Friday, March 07, 2003

Kettir....

...hafa alveg sína rútínu. Það sé ég ef ég er heima svona á virkum degi. Því þeir vita alveg muninn á virkum degi og helgardegi. Á virkum dögum vakna ég yfirleitt á undan þeim, ýti þeirri díselvélinni sem var svo heppinn að ná heiðurssætinu (ofan á bringunni á mér eða í hálsakotinu) frá og fer á fætur. Á meðan ég er í sturtu og að hafa mig til, raða þessar kisulórur sér allar þrjár í kringum mig. Bíða í dyragættinni (Sunna), ofan á klósettsetunni (Ísafold) og ofan í baðkerinu (Nebbi). Svo er fylgst með mér. Hver hreyfing. "Ætlar hún inn í eldhús núna? Voðalega er hún lengi að blása á sér hárið. Hún snýr sér núna að dyrunum...nei..hún er að ná í burstann..nei, hún stígur eitt skref..já..já..hún fer fram!!!" (nú stökkva allar til...)"Neeeeiiiiiii..........hún fer inn í svefnherbergi!" *andvarp* (Hafið þið heyrt ketti andvarpa? Það er ógurlega fyndið...). Svo flækjast þessi grey fyrir mér ef ég nálgast Himnaríki (eldhúsið) og svo er vælt og skælt þar til allir eru búnir að fá sitt. Þá er ég ekkert spennandi lengur og fæ í friði að klára mína rútínu...nema ef ég sest við eldhúsborðið að lesa Moggann. Þá leggst ALLTAF einhver þeirra ofan á blaðið. Beint fyrir framan nefið á mér. Og mala. Hátt. Ég hallast helst að þeirri kenningu að um sér að ræða þrá eftir athygli. Já, það eða að sú sem nær þessum eftirsótta stað vilji fá að vita hvað sé helst í fréttum. Hvað veit maður....
Allavega, þá er þetta svona á virkum dögum. Og þegar ég kem heim þá eru þær allar að vakna eftir að hafa hrotið allan daginn í gluggakistum, sokkaskúffum eða ofan á einhverri flík sem er nýþvegin og brotin saman á stól. Og þá byrjar þetta matarvesen aftur. Þvælst fyrir fótunum á manni þar til maður gefur þeim að borða.
Stundum eru þær í skapi "fyrir eitthvað gott". Kannist þið við þessa tilfinningu? Hún fyrirfinnst líka hjá köttum. Þetta er nefnilega hætta ef þeim er einhvern tímann gefið eitthvað annað en þurrfóður eða Whiskas. T.d. rækjur, túnfiskur, harðfiskur eða skinkusneið (nota bene..bara frá Ali. Vilja ekki sjá annað.) Hvað þá nýsoðin ýsa. Og svekkelsissvipurinn sem kemur á þessi dýr þegar maður gefur þeim svo bara eitthvað illalyktandi kattafóður. Líta ekki við mér í nokkra klukkutíma, þær verða svo móðgaðar.

...en það sem er fyndnast er að vera heima á virkum degi. Þær fara alveg úr sambandi. Ég er svo mikið að trufla rútínuna fyrir þeim að þær fara alveg í flækju. Kettir eru nefnilega ógurlega miklar félagsverur, þótt margir vilji segja annað. Núna t.d. er þeirra aðalsvefntími. En þar sem ég er heima, þá verða þær að vera nálægt mér. Ég fer úr einu herberginu í annað, fram í eldhús, inn í tölvuherbergi eða inn á bað. Og alltaf tölta þær á eftir mér. Koma sér vel fyrir á gólfinu, mottunni, stólnum..þvo sér í bak og fyrir...snúa sér í nokkra hringi..leggjast...eru alveg að sofna...lygna augunum..en þá færi ég mig og þær rífa sig upp. Og svo byrjar ballið á ný....þvo sér...sofna..og svo á fætur aftur.
Núna sit ég í tölvuherberginu, Nebbi er í gluggakistunni við hliðina á mér, Sunna á gólfinu við fæturna. Ísafold er búin að gefast upp, nennir þessu ekki lengur enda langgáfuðust af þeim þrem og búin að koma sér vel fyrir í sólinni inn í stofu.
Kattarbloggi lokið..í bili..
..
Það kom að því...

..að umgangspestir næðu tökum á manni. Ég fór heim úr vinnunni í gær, enda alveg að drepast úr verkjum alls staðar..og jú, það stóð heima, mældist með hita. Ég tók því verkjalyf og lagðist undir sæng og vissi varla af mér fyrir en undir kvöldmat. Snéri mér þá á hina hliðina og hélt áfram að sofa. Vaknaði og horfði á skvísurnar í New York, fékk mér brauðsneið og fór svo bara að sofa á ný. Leið því mun betur í morgun en þar sem hitinn var ekki alveg farinn úr mér þá ákvað ég að vera heima í dag líka. Það er samt eitt slæmt við að vera heima veik.....ég sé svo vel allt rykið og skítinn heima hjá mér í dagsbirtunni......
..

Thursday, March 06, 2003

Það er svo týpískt...

...að þegar svona stressdagur er afstaðinn, og maður ætti að geta slakað á, þá er bara líkaminn búinn. Vaknaði með hausverk og magaverk í morgun. Er nú mætt í vinnuna enda nóg að gera. En dagurinn í gær tók heldur betur á taugarnar, fyrst stress í vinnunni og að ná að skila verkefni fyrir skólann, svo að klára að undirbúa fyrirlestur (og nota bene sinna vinnunni líka, símtölum og viðtölum...), flytja hann svo eftir hádegi og þurfa svo að koma fram í sjónvarpi um kvöldið. Ég var ansi þreytt í gærkveldi! Svona streita og kvíði tekur heldur betur á. Hvernig fer fólk að sem er endalaust að mæta hingað og þangað í viðtöl og halda ræður og svoleiðis? Ég sé mig í anda, alveg andlega tætt!

Wednesday, March 05, 2003

Vá...

...bráðum kemst teljarinn upp í fimmhundruð!!?? Ég sé til hvort ég veiti einhver verðlaun fyrir þann merka gest!
..
Úff....

...þetta verður skrautlegur dagur. Af hverju lendir alltaf allt erfitt á sama deginum?? Ég mun verða ógurlega fegin þegar honum er lokið og ég komin upp í rúm...
..

Tuesday, March 04, 2003

Kaffiþyrst...

...er varla vöknuð og þrái því kaffibollann alveg ógurlega. Svaf illa í nótt, var alltof upptekin við að vinna og semja fyrirlestur. Spurning um að leggja inn reikning til vinnuveitenda minna vegna yfirvinnu... Baugarnir margfrægu, sem ég var næstum því búin að losna við, eru því komnir aftur. En að öðru....það er varla hægt að kveikja á útvarpi eða fletta dagblaði án þess að verið sé að fjalla um Davíð og Baug (Golíat?). Er ég sú eina sem nenni ekki að hlusta og lesa um þetta? Þessi umræða er svo á lágu plani að ég fæ alveg grænar. Ef kosningabaráttan verður á þessum nótum þá er alveg eins hægt lesa bara Séð og Heyrt alla daga vikunnar. *hrollur*

Monday, March 03, 2003

Linkarnir mínir...

...eru eitthvað sem ég þarf að endurskoða og laga. Þið sem heimsækið mig og bloggið líka..látið mig vita ef ég má setja link á ykkur!! Annars er ég óttalega fötluð í svona vefsíðumálum. Kann ekkert að laga dálkinn hérna hægra megin við textann...
..
Helgarblogg....

...Ég var eiginlega hálfgerð grasekkja alla helgina, eða frá morgni til kvölds báða dagana. Bóndinn á kafi í túristakeyrslu og kom örþreyttur heim bæði laugardagskvöld og sunnudagskvöld. Þannig að ég sýslaði við hitt og þetta alein. Dinglaði mér aðeins í Smáralindinni eftir að hafa farið í klippingu og kíkt við hjá mömmu og pabba. Eyddi nokkrum aurum í bókabúðinni og í Debenhams og fór svo heim og kláraði helgarhreingerninguna sem ég hafði byrjað á um hálfátta um morguninn. Við hjónin hrutum svo í kór fyrir framan sjónvarpið og fórum snemma í háttinn. Í gær var bóndinn farinn aftur fyrir allar aldir og framundan var heill dagur. Ég var að missa vitið því löngunin til fjalla var alveg að fara með mig. Ferðafélagarnir voru annað hvort að vinna eða að gera við fararskjótana sína í bílskúrnum. Annars hefði ég verið til í að leika mér upp á Lyngdalsheiði eða Skjaldbreið. En í staðinn fékk ég systurdóttur mína lánaða og fór með hana upp í Skálafell á skíði. Við skemmtum okkur alveg konunglega í góða veðrinu. Sólin skein af og til og varla bærðist hár á höfði. Enda fylltust skíðabrekkurnar upp úr hádeginu. Þegar heim var komið beið sófinn og spennusagan...og þar dottaði ég og las til skiptist á meðan síðdegissólin skein inn um stofugluggann minn og kisurnar veiddu flugur í glugganum. Alveg einstaklega notaleg stund! Veðrið í gær minnti á góðviðrisdag í apríl-maí og ég er ekki frá því að um mig hafi farið smá vorfiðringur! 32 dagar þar til ég fer til Stokkhólms!!