Friday, February 27, 2004

Namminamm....

...ég er að fara á matarsýninguna á eftir... :o)
..
Spánardraumar...

Síðustu daga höfum við legið yfir myndum og upplýsingum um Spán, nánar tiltekið Andalúsíu eða Costa del Sol. Hugurinn er kominn hálfa leið en restin mun ekki fylgja með fyrr en síðsumars, ef af ferðinni verður. En svona ferðalagapælingar lyfta manni heldur betur upp um hávetur. Og svo lengist sólargangurinn með hverjum deginum og ég er ekki frá því að smá vorfiðringur sé farinn að gera vart við sig einhvers staðar innst í kroppnum. Og undanfarin kvöld hef ég sofnað út frá hugsunum um íslenskar sumarnætur og spænskar sólarstrendur.
Mig grunar að bráðum verði fiðringurinn óbærilegur. Ætli þá sé ekki best að virkja hann í smá vorhreingerningu? Nei, varla. Hlýt að finna önnur skemmtiegri not fyrir fiðringinn. T.d. að leggjast í kaffihúsahangs og búðarráp.
..

Wednesday, February 25, 2004

Einhver sem var að leita á Google...

..að fylltum kjúklingabringum endaði hérna á blogginu hjá mér...

Mig minnir að þær hafi líka verið ógurlega góðar hjá mér. Namm. Kannski ég eldi svoleiðis um helgina.

..
Uppáhalds....

Með reglulegu millibili hef ég tjáð mig um uppáhaldssjónvarpsþættina mína. Þessa dagana er úrvalið óvenjugott, ekki síst vegna þess að Skjár Tveir gaf upp öndina og góðir þættir eins og CSI snéru aftur. Sjónvarpsglápið á þessu heimili beinist fyrst og fremst að Skjánum og Discovery (bóndinn getur endalaust glápt á einhverja þætti þar sem menn búa til vélar, bíla og önnur ökufær tæki úr rusli...) en einnig BBC Food. Síðan höfum við af og til horft á alveg kostulega spurningaþætti sem eru á norska og sænska ríkissjónvarpinu en það eru svona þættir sem ganga út á það að tónlistarmenn þurfa að giska á hvaða lög er verið að spyrja um og syngja þau á staðnum. Tvö lið keppa, tveir söngvarar í hvoru liði ásamt liðstjóra sem er píanisti. Við höfum oft velt því fyrir okkur hvernig þessir þættir myndu ganga hérna heima. En uppáhaldsþátturinn okkar er eftir sem áður hommarnir fimm á Skjá einum sem taka streitgæjana i gegn og kenna þeim að klæða sig, elda og raka sig. Þeir eru æðislegir snillingar. En ég held að þeir hafi nóg af "viðfangsefnum" þarna í Ameríku. Þvílíkir lúðar sem þeir eru að fást við. Og draslarar. Og með hroðalegan smekk. Skil ekki að sumir þeirra hafi náð sér í konu yfirhöfuð. Uppáhaldshomminn minn er Carson. Beggi fílar auðvitað kokkinn best. Hárgreiðsluhomminn er sætastur. Danshomminn er væmnastur. Innréttingahomminn er leiðinlegastur en samt ferlega sniðugur.
Svo er það Stjörnusörvævor. Þvílíkt skemmtilegur. Missti reyndar af síðasta þætti en hann er endursýndur um helgina. Ég er ekki komin með neina uppáhaldskeppendur ennþá. Mér finnst svolítið mikið sýnt af sama fólkinu, en eftir því sem þeim fækkar þá fær maður að sjá meira, vonandi. Ég held að stúlkan sem missti mömmu sína hafi verið ein af þeim sem Jeff Probst, stjórnandinn, hafi verið hrifinn af. Hann viðurkenndi í einhverju viðtali að hann hefði af og til hrifist af einhverjum kvenkynskeppanda. Jamm, Sörvævor auðgar líf mitt. Get endalaust pælt í svonalöguðu stundum. En stundum get ég ekki hugsað mér að horfa á svona þætti. Gat til að mynda varla horft á Tristu og Ryan eða þessa tískufyrirsætuþætti. En ef ég sest niður og horfi....þá get ég horft á allt. Skjár einn er með nóg af svona heilalausum þáttum. En þeir eru einmitt málið þegar maður orkar ekkert nema að liggja í sófanum og glápa heilalaus á imbann.
..
Það hlaut að vera...

Þessi frétt skýrir margt.....
..

Tuesday, February 24, 2004

Yeah baby!

Það styttist óðum í að brúnin léttist á allri fjölskyldunni sem húkir hér á eyjunni í norðri. Bráðum kemur litla systir í heimsókn með litlu nöfnu alla leið frá Miami. Við bíðum því öll alveg titrandi af tilhlökkun. Það verður biðröð um að fá að knúsa eðalkrúttið sem sum okkar hafa ekki séð í tæpt ár. Það er langur tími þegar barnið er rétt 17-18 mánaða!
Og svo er það auki bráðsniðugt að nýta sér ferðina til að fá ýmislegt úr henni Ameríku sem ekki er hægt að lifa af án. T.d. undirföt úr Victoria's Secret, sturtusápu úr Bath&Body og föt úr Gap eða Old Navy. Annars væri ég alveg sátt að fá bara mæðgurnar hingað. Annað skiptir engu máli. Þær ætla að koma aftur í sumar, þá með fullmannaða fjölskylduna. Ég er strax farin að hlakka til þá líka.
Spurning um að ég hleypi þeim nokkuð heim til sín aftur... :o)
..

Monday, February 23, 2004

Letihelgi....

Frábært að hafa svona letihelgar af og til. Fara snemma að sofa, hanga, glápa á imbann, lesa bækur, borða góðan mat..... Enda er ég þvílíkt spræk í dag. Eins gott því mánudagar eru yfirleitt alveg stappfullir af fundum, þýskri málfræði, kóræfingu og svo vinnu auðvitað. Og í dag þarf ég líka að hitta fulltrúa verktakafyrirtækisins sem við hjónin keyptum húsið okkar af. Ganga frá afsali, en það hefur dregist í marga, marga mánuði því við erum með langan lista af athugasemdum. Já, ég mun aldrei aftur kaupa af þeim hús, ekki einu sinni hænsnakofa. Óþolandi svona leiðindamál. Það verður ágætt að vera laus við málið...og þá. Sem betur fer er ég endurnærð eftir helgina. Og já, ég fékk blóm og fínan dinner. Svo sem ekkert nýtt því ég á svo góðan mann sem eldar oft fínan mat handa mér. Svo skúraði hann líka. Ég nefnilega skúra ekki. Heimilisstörf eru nefnilega óþolandi.
..