Friday, August 15, 2003

Aftur á leiðinni út ur bænum...

...í þetta sinn norður á Strandir. Ætla að kíkja eftir berjum hinum megin við Steingrímsfjarðarheiðina líka. Verð að komast í AÐALbláber!!!. Við leggjum í hann eftir vinnu. "Litla" systir ætlar að koma með og snúllan hennar líka. Fróðlegt að sjá hvernig sú stutta höndlar berjatínsluna, í fyrra sat hún með skeifu á næstu þúfu og fannst þetta frekar óspennandi. Skildi ekkert í því af hverju hún mátti ekki tína krækiber oní föturnar hjá mömmu sinni og frænku...

Ég var svo rugluð í gær að mér fannst endilega miðvikudagur. Gleymdi þ.a.l. fundi sem ég átti að mæta á. Sat til borðs með systur minn og Co þegar síminn hringdi og spurt: ætlaðir þú ekki að mæta á fund??!! Eh...ég er stundum svo hryllilega utan við mig. Þoli ekki sjálfa mig stundum....
..

Thursday, August 14, 2003

Berjatíminn er rétt hafinn...

...en það fer að verða of seint að tína sums staðar því einhver pöddufaraldur hefur farið eins og stormsveipur yfir suðurfirðina f. vestan. Fór í gær að tékka á berjum á Skógarströnd. Fullt af bláberjum og krækiberjum en aðalbláberjalyngið var berstrípað. :o( Svo sem engin padda þar á ferð, bara snjóleysi í vetur og þurrkar í sumar. Er á leiðinni vestur á firði á morgun, hef heyrt af góðri aðalbláberjasprettu í Djúpinu. Vonandi næ ég þangað á undan pöddunum...
..
Þrátt fyrir að lítið væri af berjum í gær þá var þetta alveg frábært, það skein á okkur sólin og hitinn var þvílíkur að maður varð bara að afklæðast (innan velsæmismarka þó). Hef ekki tínt ber á brjóstahaldaranum fyrr... :o)
..

Tuesday, August 12, 2003

Undur og stórmerki

Forgangsröðin hefur hingað til verið þannig hjá okkur hjónum að fyrst að lifa lífinu (lesist: að stunda fjallaferðir með tilheyrandi útgjöldum fyrir jeppann og ferðast til útlanda, eyða grimmt í bókabúðum og fara í bíó) og síðan að spá í aðra hluti eins og húsgögn (lesist: að fá sér borðstofuborð og stóla auk þess að endurnýja sófadrusluna). En sl. sunnudag duttum við bæði á hausinn og fórum í Tekk húsið og keyptum húsgögn eins og okkur væri borgað fyrir það. Viðbrögð okkar nánustu voru svipuð...."kominn tími til!" Verst að við þurfum að bíða fram i september eftir nýju húsgögnunum.
Það hlaut að koma að heimilinu í röðinni....á eftir jeppanum. :o)
..

Monday, August 11, 2003

Og fyrst ég er byrjuð...

..að tjá mig um afþreyingu þá mæli ég með bíóferð. Sá Sjóræningjana í Karíbahafinu á forsýningu um daginn og sveif út úr salnum. Langt síðan ég hef gleymt mér svona yfir ævintýramynd af þessum toga. Alveg frábær mynd og hann Johnny Depp í hlutverki sjóræningjaskipstjórans Jack Sparrow var algjör snilld. Síðan sá ég Jim Carrey í hinum almáttuga Bruce og hef sjaldan hlegið eins mikið í bíó. Táraðist og allt saman. Svo fékk myndin einhverja ræfilsdóma í Mogganum. Ég skil þetta ekki, Jim Carrey fíflast og þá fær myndin vonda dóma? Leikarinn sá er reyndar alveg magnaður í alvarlegum myndum en fíflagangurinn í þessari mynd er alls ekkert yfirgengilegur, langt í frá. Mæli því með því að þið takið ekkert mark á Mogganum og sjáið þessa mynd ef þið eruð í stuði fyrir gamanmynd. Áhorfendurnir í bíósalnum engdust af hlátri, það hlýtur að hafa eitthvað að segja!
..
Ég sat alveg límd við skjáinn í gær...

...enda síðasti þátturinn um Forsyte fjölskylduna á RÚV. Hef fylgst spennt með eftir bestu getu þrátt fyrir fjallaferðir og tjaldútilegur. Og nú er þetta búið. Reyndar eiga svona fínir þættir ekkert erindi í imbann á sumrin, þeir eiga að stytta manni stundir á dimmum vetrarkvöldum. En hvað um það, þessir þættir voru nokkuð góðir. Fínir leikarar, ekki síst Damian Lewis, sem lék hann Soames Forsyte. Sá brosti loksins á ný í lok þáttarins í gær eftir að hafa verið heltekinn af kvalafullri ást til hennar Irene alla þættina. Mikil dramatík. Það sem pirraði mig þó hvað mest var þessi leikkona sem lék Irene. Konu sem allir karlmenn áttu að heillast af vegna fegurðar hennar. Þessi kona sem lék hana var gjörsamlega frosin. Var þó hin indælasta í kvikmyndinni "Notting Hill", lék þar lamaða konu og gerði það vel. En sem Irene Forsyte var hún alltof stíf. Skiptir samt engu, þættirnir voru samt góðir. Og það er von á meiru...sagan er ekki búin!
Meira af breskum gæðaþáttum, takk!

Talandi um sjónvarp þá bíð ég spennt eftir því að sjá hvernig í ósköpunum Skjár einn ætlar að hafa nægt efni til að sýna á nýju stöðinni. Þeir hafa varla efni af viti til að sýna á þeirri fyrri. Ég bíð með óþreyju eftir CSI (ekki CSI Miami, þeim óskapnaði). RÚV hefur alveg bjargað geðheilsu minni í sumar með The West Wing , Ed og The Gilmore Girls að ógleymdri Forsyte ættinni. Í fyrsta sinn í mörg, mörg ár sem ég hef ekki séð eftir nauðungaráskriftinni í hítina í Efstaleitinu...
..