Saturday, November 19, 2005


Partítröll

Þú ert nýjungagjörn, tilfinningarík félagsvera.

Partítröllið fylgist vel með nýjustu straumum og stefnum hvort sem um er að ræða föt, tónlist eða græjur. Það eru 74.5% líkur á því að það eigi iPod, 61% líkur á því að það eigi Fred Perry póló bol og 96% líkur á því að það eigi Adidas skó. Partítröllinu finnst The OC vera skemmtilegur þáttur.

Partítröllið er vinsælt - eða telur sig að minnsta kosti vera það. Þótt margir laðist að því eins og flugur að mykjuhaug eru aðrir sem eru ónæmir fyrir þokka þess og enn aðrir sem hafa jafnvel ofnæmi fyrir því. Það eru þeir sem eru í eldhúspartíinu á meðan partítröllið hristir rassinn og baðar út öngum á dansgólfinu.

Þegar gamaninu slotar er partígríman þó fljótt tekin niður og undan henni kemur viðkvæma blómið sem partítröllið raunverulega er.

Hvaða tröll ert þú?


Ég er ekki viss um að þetta sé rétt lýsing að öllu leyti. En verð víst að sætta mig við hana! Ég var allavega ekki mikið partítröll í gær, ekkert frekar en systur mínar þegar við sátum geispandi og gapandi klukkan ellefu í gærkvöldi á Perlunni...

...

Thursday, November 17, 2005

Hvað gerir fólk...

...þegar það nennir ekki í vinnuna? Mér líður of vel yfir Mogganum og expressobollanum til þess að druslast í vinnu. Verð nú samt að gera það en ákvað að taka mér einn svona "personal day off" í næstu viku eins og Kaninn kallar það. Þegar maður er bara að væflast með sjálfum sér. Bara sú ákvörðun um að taka sér frídag, og jafnvel fleiri í desember, varð til þess að ég nennti að hafa mig til fyrir daginn!

Mundi það allt í einu að ég er með kynningu í næstu viku, eins gott að ég muni að senda út meldingu svo einhver mæti. Það er nú eins gott að vinkonur mínar (og systur) láti sjá sig, því ég er ein af þeim sem er aldrei með svona kynningu. En mæti yfirleitt til allra þeirra sem bjóða mér.... :o)

Ég held ég hafi boðið mig fram í flísalögn um helgina. Ég var að kvarta yfir því að það þyrfti að klára að leggja flísar á forstofuna og að það yrði að gerast núna á næstu vikum, eiginlega helst um helgina. Og fyrst bóndinn og bróðir hans verða uppteknir í fínparketlögn á stiganum hjá mér þá hlýtur það að þýða að ég eigi að leggja flísarnar. Ég hlýt að meika það eins og baðherbergið, sem skartar fegurstu flísalögn norðan Alpafjalla.

Hef ekki lesið bók, né horft á aðra afþreyingu lengi. Eða ekki síðan ég kláraði Arnald um þarsíðustu helgi. Þetta er orðinn langur tími án lesturs og ég er farin að hugsa manískt um hvaða bækur mig langar í um jólin. Ég hef ekki fengið Bókatíðindin ennþá og það er vont. En ég er svolítið spennt fyrir a.m.k. fimm bókum. Hef ekki verið eins ákveðin í að lesa um jólin í mörg ár. Það er líklega vegna þess að ég sé fram á að vera komin með alveg sérherbergi fyrir mig og bækurnar mínar fyrir jól og ég þrái að liggja og lesa og borða bara Nóakonfekt í heilan dag. Svona gerist þegar maður les yfir sig um tvísköttunarsamninga, milliverðlagningu, virðisaukaskatt og starfsmannatengd hlunnindi. Þá verður meira að segja unglingabókin sem ég sá systur mína kaupa til gjafa um daginn gríðarlega áhugaverð lesning.
....

Tuesday, November 15, 2005

Morgunblogg

Bíllinn fór ekki í gang í morgun. Í 5 skiptið. Orðbragð og hugtakanotkun sem var viðhöfð er ekki prenthæft. Ég var því ekki glöð í bragði þegar ég hringdi á verkstæðismóttöku IH. Hef í raun verið ósátt við þetta fyrirtæki allt frá því að við hjónin hurfum í reyk í Aðaldalnum hér um árið. Óánægja mín skein líklega í gegn. Það eru tveir menn á leiðinni frá þeim. Annar að sækja Corsugreyið, hinn að sækja mig.

....