Thursday, February 10, 2005

Bloggedíblogg.

Góð kona sagði mér að blogga meira og ekki hafa áhyggjur af þrifum. Góð ábending. Enda skiptir það kannski ekki máli því ég væri vís til þess að gleyma því að ég þurfi að þrífa. Hef vaxandi áhyggjur af minninu mínu. En ég ætla nú að reyna að muna eftir því að ég setti í þvottavélina í morgun, ætla ekki að lenda í því sama og um daginn þegar ég setti í vél, ætlaðist svo til þess að bóndinn tæki úr henni og hengdi upp. Mér láðist bara að segja honum að ég hefði sett í vélina. 2 dögum síðar veiddi ég eitthvað illa lyktandi flísdrasl úr vélinni. Ég þarf því að endurnýja flíspeysurnar mínar. Svo sem ekki leiðinlegt, þær voru hvort eð er orðnar þvældar og ljótar. Ég gerði þetta þó ekki viljandi!

Ég hef ekkert bloggað um sjónvarpsáhorf mitt lengi. Líklega af því að ég hef lítið horft á sjónvarp nema kannski Idolið. Missti nú reyndar af því síðast því við hjónin vorum á kórakvöldi. Ég vissi ekki að það fyrirbæri væri til en kóravant fólk segir mér að þetta sé fastur viðburður í fjáröflun kóra og alveg allsvakalega skemmtilegt. Og reyndin varð sú að við skemmtum okkur alveg konunglega. Og vonandi græddi kórinn minn heilan helling! En víkjum aftur að sjónvarpsglápi. Ég reyndi að horfa á nýja CSI þátt í gærkvöldi. Sofnaði yfir honum um það leyti sem Gary Sinise horfði alvarlegur á unga stúlku í einhvers konar "læstu" dái. Horfði hins vegar stóreygð á þátt á Stöð tvö í fyrradag minnir mig, sá heitir "4400" og er alveg eftir mínu höfði...horfið fólk birtist aftur, sumir mörgum árum síðar en er ekki deginum eldri í útliti og var líklega numið á brott af geimverum. Öll búa þau yfir einhverjum krafti en þau muna ekki neitt hvað gerðist. Voða duló. Blikkaði ekki auga fyrr en þættinum lauk.
..

Sunday, February 06, 2005

Það er sunnudagsmorgunn....

...og allt húllumhæ í kringum Ferðaklúbbinn 4x4 afstaðið í bili, einnig launaútreikningar og bókhald í fiskvinnslunni. Þannig að nú get ég snúið mér að vinnunni og verkefnunum þar. Já og kannski þrifum heima hjá mér. Ég þarf líka að fara að fá aftur konu til þess að þrífa hjá mér, það er mesti lúxus sem til er í mínum huga núna. Mér vex í augum allt sem þarf að gera og svo er dagana farið að lengja á ný þannig að nú sjást rykkornin betur í öllum skúmaskotum. Dugar líklega ekki lengur að kveikja á kertum og henda Ajaxtusku á ofninn. Nei, ætli það.
...