Friday, March 21, 2003

Kvennaferð...

...það er komið að valkyrjuferðinni miklu enn á ný. Á morgun ætlum við jeppaskvísurnar að leggja í hálendisferð á okkar ástkæru jeppum. Stefnan er tekin á Hveravelli og er ætlunin að fara yfir Langjökul til að komast þangað, þ.e. ef veður leyfir. Annars verður norðurleiðin valin (um Blöndudal) því Kjalvegur er ófær vegna krapa og aurbleytu. Með mér verða tveir farþegar. Báðar hafa fengið þau fyrirmæli að taka með sér vöðlur, góða tónlist og góða skapið. Og sundbolinn....því heita laugin á Hveravöllum bíður okkar!! En þetta getur allt breyst, fer eftir veðri og vindum....sem virðast ætla að blása hressilega, allavega í dag. En við erum nú svo sem vanar erfiðum ferðum, sú í fyrra var ekkert auðveld. Svona alvöru krapatúr með öllu tilheyrandi....festum, affelgunum, keyrslu langt fram á nótt og erfiðum aðstæðum... Ég vildi nú helst sleppa við svoleiðis aftur!
..
Stríð.....

....eða ætti ekki frekar að kalla þetta innrás? Þetta virkar ósköp einhliða eitthvað. Mótmæli unga listafólksins fyrir framan Stjórnarráðið í gær voru ansi áhrifamikil. Lágu þarna sem dauð væru, útötuð í svínsblóði. Hreyfðu hvorki legg né lið. Minntu óþægilega á saklaus fórnarlömb stríðsátaka. Í fyrsta sinn á ævi minni þekki ég persónulega fólk sem er þátttakandi í þessum stríðsátökum, bæði í sjóher og landher Bandaríkjanna. Og mér þykir það vond tilhugsun að vita af þessum vinum mínum þarna í þessu helvíti. Þeir eru allir eru heilbrigðisstarfsmenn á einn eða annan hátt. Einn þeirra er sónar- og röntgentæknir á flugmóðurskipi í Persaflóa, annar, einnig röntgentæknir, er á "Fleet Hospital" eða hreyfanlegum spítala í grennd við höfuðbúðir í Kuwait en sá þriðji, rétt nítján ára, er í landhernum, svokallaður sjúkraliði sem fylgir hersveitunum í átökum. Veitir fyrstu hjálp á staðnum í miðjum átökum. Móðir hans er vitanlega í öngum sínum. En þessi strákur eins og hinir, valdi það að fara í herinn til að geta nýtt sér þann rétt að fá menntun. Leið sem margir velja sem ekki eiga fullt af peningum til að greiða skólagjöld. En þetta er ókosturinn...ef haldið er í stríð...
..

Wednesday, March 19, 2003

Ég er svo reið og sár....

....því við Íslendingar erum sett á blað með öðrum sem styðja George "Dubya" Bush í blindni.. Ég er sár út í ríkisstjórnina yfir því að hlusta ekki á hinn venjulega Íslending sem vill að Sameinuðu þjóðirnar taki þá endanlegu ákvörðun hvort ráðist verði inn í Írak. Svo skil ég ekki af hverju liggur allt í einu svona mikið á? Áratugur liðinn frá því að Persaflóastríðinu lauk og allt í einu núna, í kjölfar 11. september, þarf að fara og "go kick some butts". Og hver liggur best við "smá" rassskellingum en Saddam? Ég leyfi mér að efast um að meiri hætta stafi af honum en t.d. Norður-Kóreu..sem sannanlega eiga kjarnorkuvopn. Hmmm....og hverjir ætli eigi langmest af kjarnavopnum öllum í heiminum??? Getiði nú...
Finnst ykkur við ekki öll vera svo miklu meira "seif"...af því að við höfum hann Bush karlinn til að vernda okkur??!!??
..

Tuesday, March 18, 2003

Hlemmur...

Ég sat alveg límd við sjónvarpið sl. sunnudagskvöld, yfir þessari heimildarmynd um fólkið á Hlemmi. Hún hafði mikil áhrif á mig og kvikmyndagerðarmaðurinn á mikið hrós skilið. Ég furða mig samt á því hvers vegna enginn hafði reynt að hjálpa t.d. rónunum fyrr. Og sá sem kom loks til aðstoðar kom frá Byrginu. Þeir í Byrginu virðast þeir einu sem virkilega láta sig þessi mál varða...og þá í fullri (pardon the pun) einlægni. Aðrir gera aldrei neitt nema að vera beðnir um það. Og ég hef aldrei skilið af hverju ekki að haldið úti súpueldhúsi þarna í bænum? Og húsaskjóli fyrir þá sem eru ofurölvaðir. Það nístir mann alveg að sjá þessa menn skríða undir tré til að sofa...jafnvel um hávetur. Gullkornið í myndinni var þegar þessir ágætu tveir rónar sáust koma út frá fangageymslu lögreglunnar á Hverfisgötu (Hverfissteininum) og stöldruðu við fyrir utan og voru að reyna að rifja upp hvernig þeir höfðu lent í steininum. Hvort þeir hafi verið hirtir upp einhvers staðar eða hvort þeir báðu um gistinguna?? Það kom mér einnig á óvart hversu mikil bjartsýni sveif þarna yfir, þrátt fyrir allt.
Allavega, þetta var manni hollt að horfa á þennan þátt, sumt ólánsfólk er ekki að slæpast eða að vera með aumingjaskap, það er ástæða að baki flestu hvort sem það eru andleg eða líkamleg veikindi eða eitthvað annað.
..
Mitt minni er ekki alveg að virka...

...í matarboðinu í síðustu viku fékk ég smá súkkulaðikonfekt í "nesti" og hugsaði mér gott til glóðarinnar, ætlaði að njóta molans með kaffibolla. Algjör himnasæla. Í morgun fann ég svo þennan mola í veskinu mínu. Hafði steingleymt honum. Steingleymt súkkulaðimola!?! Þetta eru alvarleg tíðindi. Og svo í dag uppgötvaði ég að vinkona mín átti afmæli í gær og ég gleymdi því. Alveg úti að aka. Og hvað þýðir þetta?
A. Það er of mikið að gera hjá mér í vinnunni.
B. Ég þjáist af Alzheimer Light.
C. Ég hefði ekki haft gott af súkkulaðinu hvort eð er og undirmeðvitundin var að hjálpa mér. (þetta skýrir samt ekki afmælisglöpin).
D. Ég á ekki að vera að velta mér upp úr þessu og éta bara súkkulaðimolann.

Ég er að hugsa um að velja valkost D. Þetta nær þá ekki lengra.
..