Tuesday, December 30, 2003

Jaaháá......




Áhugavert...
..

Monday, December 29, 2003

Södd, sæl og kílói þyngri....

Þessir hátíðisdagar hafa verið mjög notalegir. Akkúrat það sem ég þurfti. Friður og ró, myrkur og kertaljós og góður matur. Suma morgna vaknaði ég rúmlega átta, fór fram og hellti mér upp á kaffi eða sótti ískalt jólaöl og skreið aftur uppí og fór að lesa. Ég er að tala um fullkomna sælu. Ekki síst ef eitt og eitt Lindor súkkulaði fékk að fljóta með. Og núna, þegar ég hefði átt að vera að vinna er ég nú samt að vinna en bara heima hjá mér. Lofa ber nútímatækni sem gefur þann möguleika að tengjast vinnunetinu í gegnum fartölvuna heima hjá sér! Sérstaklega þegar maður er kvefaður og slappur og með eyrnabólgu! Og úti er bara hríð.

Ég var sérlega ánægð með jólagjafirnar mínar þetta árið. Bóndinn klikkaði ekki frekar en vanalega í þessari deildinni og systur og foreldrar gáfu okkur snilldargjafir, sem og vinkonur mínar. Fékk m.a. matreiðslubókarstandinn úr Pipar og salt sem mig hefur langað í lengi! Og mjúka flíspeysan frá Ameríku er svo mjúk að ég vildi helst aldrei fara úr henni. Andardúnssængurnar frá mömmu og pabba virðast gífurlega notalegar og ekki seinna að vænna að fá nýjar sængur þegar þær gömlu passa varla lengur í sængurverin, þær rýrna víst svona í þvotti. Svo á ég eftir að lesa eina bók (Söguna af Pí) sem hefur vakið mikla lukku innan fjöslyldunnar, allir búnir að lesa hana þar og ég bíð spennt eftir að byrja á henni líka.

Og enn er hátíð framundan. Og þá er ég ekki bara að tala um gamlárskvöld og nýársdag....heldur líka það sem ég hef beðið eftir lengi, lengi... Hann Aragorn er nefnilega mættur á svæðið á ný. Við hjónin erum búin að vera í stífu prógrammi sl. daga. Horfðum á The Fellowship á annan í jólum og svo Two Towers í fyrradag. Aðeins að rifja upp söguna. Verst að ég er ekki með bókina sjálfa, á hana ekki. Fékk hana bara lánaða á sínum tíma. Þetta verður hátíðleg stund að fara og sjá síðustu myndina í þessari snilldartrílógíu. Jákvæð kvikmyndagagnrýni spillir ekki fyrir. Mér líður eins og ég eigi eftir að opna einn stærsta jólapakkann! Það er bara spurning hvenær við komumst. Vonandi sem fyrst!!!

..

Wednesday, December 17, 2003

Happasending!

Við fengum lítinn pakka inn um lúguna í gær, merktum tryggingarfélaginu okkar. Í ljós kom svona lítill pakki sem líktist mikið þessum týpísku íslensku lyfjaumbúðum og innihélt hann rafhlöðu fyrir reykskynjara. Ég spurði Begga hvort við þyrftum á þessu að halda, þ.e. hvort það þyrfti eitthvað að endurnýja rafhlöðu í öðrum hvorum reykskynjaranum okkar og hann var fljótur til svars, nei,nei, í góðu lagi með okkar reykskynjara! Þannig að ég setti þetta upp í hillu. Síðan datt Begga í hug að tékka nú á þessum sem er við eldhúsið og kom þá í ljós að rafhlaðan var ekki í sambandi. "Aahh..." hugsuðum við bæði. "Líklega hefur skynjarinn farið af stað í einhverri eldhúsbrælunni og við kippt rafhlöðunni úr sambandi en svo gleymt að laga hana aftur". Mér fannst gjöfin frá tryggingunum strax vera búin að koma að góðum notum, við höfðum allavega gert reykskynjarann virkan á ný!
Stuttu síðar heyrðist píp. Og svo aftur nokkrum mínútum síðar. Þá mundi ég af hverju reykskynjarinn var ekki í sambandi. Rafhlaðan hafði klárast fyrir löngu (svo löngu að ég man það ekki....) og við alltaf á leiðinni að kaupa nýja. Þvílíkur slóðaskapur. Það hefði getað brunnið ofan af okkur í millitíðinni. Takk kæra tryggingarfélag, þrátt fyrir gífurlegt okrið að öðru leyti þá komuð þið að góðum notum þarna!
..

Friday, December 12, 2003

Ekki svo slæmt!

Ég er alveg dottin oní svona próf......alveg týpískt - enda er ég að reyna að lesa undir þýskupróf... :o)


According to the "What Weather Phenomenon am I?" quiz:




My forecast says you'll check it out! Click here!



..

Wednesday, December 10, 2003

Ja hérna hér....




..
Tvær vikur til jóla???

Ég trúi þessu ekki. Ég er ekki enn byrjuð á jólakortunum sem eiga að fara út til Evrópu og Bandaríkjanna. Hvað þá að gera eitthvað annað svona jólalegt. Er bara að vinna og hníga niður af þreytu allan sólarhringinn. Ég ætla aldrei aftur að byrja í nýrri vinnu svona örfáum mánuðum fyrir jól. Pakkinn til litlu systur í Flórída fær far með DHL, tekur tvo daga. Ég elska DHL. Þeir bjarga svona slúbbertum eins og mér. Þessar eru með allt á hreinu varðandi jólin, ég er að hugsa um að taka þær til fyrirmyndar nema hvað ég er ekki alveg eins úthaldsmikil í drykkjunni. Þarf líka nefnilega alltaf að keyra heim í sveitina á kvöldin. Og svo VERÐ ég að fara að lesa undir elsku bestu þýsku málfræðina. Ætlaði t.d. að lesa í gærkveldi. en það fór á annan veg. Kom seint heim, borðaði, horfði á hina frábæru fimm og lognaðist svo út af. Enda vöknuð eldhress fyrir klukkan sex í morgun! Reif moggann úr höndum blaðberans, ég held hann hafi næstum því fengið hjartaáfall.

Litla frænka á afmæli í dag. Er sex ára. Það birtist mynd af henni í mogganum í morgun, bara alveg óvart. Hún myndast vel sú stutta og heldur núna að þetta hafi eingöngu verið vegna þess að hún á afmæli í dag. Þótti því lítið til þess koma, frekar bara alveg sjálfsagt. :o) Það verður gaman að velja eitthvað handa henni í afmælisgjöf, maður bara klípur slatta af árum (segi ekki hversu mörg) af aldrinum og setur sig í stellingar. Mikið til af skemmtilegu dóti!
..


Monday, December 08, 2003

Úbsí....

...síðasti dagur til að skila af sér jólakortum til landa utan Evrópu er í dag, 8. des. Heyrði þetta á leiðinni í vinnuna í morgun og áttaði mig á því að ég hef ekkert hugleitt þetta. Ég sendi yfirleitt um 12 jólakort til Ameríku. Eins gott að fara að prenta út jólakortalistann....

Annars var ég að fatta að ég var bara soldið dugleg um helgina - já eða í gær. Laugardagurinn fór í svona léttvínsþynnku.... en í gær bakaði ég sörur með systur minni og í gærmorgun gerði ég svolítið jólalegt í eldhúsinu, setti jóladiskamottur á borðið og hengdi upp stjörnuseríuna mína. Setti upp smá jólaskraut og komst í þvílíkt jólaskap þar sem ég sat þarna við eldhúsborðið með kaffibollann og sunnudagsmoggann. Algjör nautn - burtséð frá því að mér finnst mogginn glataður þessa dagana og er mikið að spá í að segja upp áskriftinni, kannski bara vera með helgaráskrift. Já, þetta eru stór orð úr munni fréttasjúklingsins og moggaaðdáanda númer eitt.

Já, og fyrst ég er byrjuð á bloggfærslu, mikið lifandi skelfingar ósköp fer þessi umræða um fjárhagsvanda Landspítalans í mínar fínustu. tja, kannski ekki umræðan sem slík - frekar að það þurfi að vera að ræða þetta yfirhöfuð - það á ekki að vera svoleiðis í velferðarríki! Þetta er það sama og var/er að gerast með háskólann (HÍ). Þegar opinberar stofnanir hafa búið við fjársvelti í mörg ár og á hverju einasta ári vantar stórfé, bara til klára ýmis föst skylduverkefni, þá hlýtur það að segja sig sjálft að eftir nokkur mögur ár hefur viðkomandi stofnun reynt að hagræða eftir fremsta megni. Og þegar slíkt liggur fyrir og samt vantar fjármagn - er þá ekki augljóst að það þarf bara meiri fjármagn? Það er bara svo einfalt!?!! Þessir ágætu ráðamenn verða bara að horfast í augu við það að annað hvort ætla þeir að hugsa um veikt fólk eða bara að sleppa því. Því eins og ástandið er í dag, sbr. unga móðirin í Mosfellsbæ með litla drenginn með Goldanhar-heilkennið sem lendir einhvern vegin á milli "kerfa" og allir þvo hendur sínar (skamm Mosó og Jón ráðherra! fussumsvei! Þið ættuð að skammast ykkar!), þá bara fúnkerar þetta alls ekki! Só sorrí!

Sko, nú vélritaði ég í mig hita. Gott, er nefnilega á leiðinni heim, fyrst fer í ég afmæli til tengdamömmu og svo upp á Skaga - er boðin á jólafund Vesturlandsdeildar Ferðaklúbbsins 4x4.
..

Wednesday, December 03, 2003

Fussumsvei....

....allur snjórinn bara horfinn á ný. Slagveður og rigning í staðinn. Oj bara. Ef ég hefði ekki verið á fjöllum sl. helgi og fengi frábært veður, sól og útsýni yfir snævi þakta tinda og hvítar sléttur, hefði líklega haldið að snjórinn í síðustu viku hafi verið bara draumur.

Laugin á Hveravöllum var notaleg um helgina og það var gaman að fá smá sólskin í kroppinn síðdegis á sunnudeginum. Það hefði mátt vera meiri snjór alls staðar, steinarnir stóðu vel upp úr og gátu verið stórhættulegir dekkjum og hásingum eins og sumir fengu að kynnast. Við, sem betur fer, sluppum ósködduð að þessu sinni, Snjófusinn líka.

Heima beið okkar hálfdruslulegt heimili og ekkert jóló. Ég stefni á að bæta úr því núna í vikunni - einhvern tímann þegar ég uppgötva nokkra aukaklukkutíma í sólarhringnum..... Ef einhver vogar sér að segja við mig að hann sé búinn að kaupa allar gjafir og baka og þrífa, þá verður viðkomandi kyrktur á staðnum. Mín jól verða svona ekta "Ajax-í-tusku-á-ofni"-jól.
...

Friday, November 28, 2003

Jibbbbbííííííííííí!!!!!!!!!!!!!!!!!........

Svona á þetta að vera! Snjó í fjöllinn, vielen Dank!
..

Thursday, November 27, 2003

Fréttablaðinu....

..hefur þótt mikið um þá frétt að efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra skyldi fá auknar fjárveitingar því fréttin birtist tvisvar í blaðinu í morgun...
Lúxus....

...að geta keyrt bílinn beint út úr bílskúrnum í þessum kulda! Ég fékk náðarsamlegast að setja litla kút inn í bílskúrinn í gær. Snjófus fékk að víkja út í innkeyrsluna. Enda tekur hann sig miklu betur út með grýlukerti og snjóskafla á húddinu en litla Corsan....segi ég.. :o)

Monday, November 24, 2003

Það snjóar!!!!

Það var komin hríð þegar ég var á leiðinni úr þýsku og aftur í vinnuna. Ég keyrði því alsæl og óskaði þess heitt að þetta héldi svona áfram. Helst í nokkra daga, jafnvel vikur. Snjófus bíður spenntur inni í bílskúr, búinn að vera í smá "snyrtingu" og dekri í nokkra daga. Og verður eitthvað áfram fram að komandi helgi. Þá á að reka trýnið út fyrir borgina og inn á hálendið. Það skal tekið fram að ekki verður farið eftir veðurspám á mbl.is. Ég hef komist að því að það er ekkert að marka þau veðurkort sem þar birtast. Það er jafnvel ekki hægt að treysta því að veðurspáin á laugardagsmorgni sé rétt fyrir þann dag. Hvorki á sumrin né á veturna. Svo er verið að fussa yfir því þegar fólk lendir í villum og vandræðum til fjalla. "þessi hefði nú átt að fylgjast með veðurspám og haldið sig betur heima". Já, já, einmitt það. Eftir að Halo hvarf þá hefur ekki verið hægt að átta sig á veðráttunni næstu daga nema etv. að vera haldinn skyggnigáfu. Ég hef lent í því að halda til fjalla af því að veðurspáin er alveg þokkalega góð, enginn stormur eða hríð í kortunum, bara svona aðgerðarlítið veður og endað í þvílíkum hremmingum að ferðalagið varð meira og minna að "stikuferð" (rýna út um bílgluggann að leita að næstu stiku). Hef síðan þá alltaf haft með mér nóg af lestrarefni og nesti sem ekki þarf að hita eða matreiða. Að ógleymdri "freschettunni" minni. Svo ég geti pissað standandi eins og strákarnir. Það er nefnilega vont og kalt að bera bossann í skafrenningi..... En allavega, þá lýsi ég frati á mbl.is veðurspána. Siggi stormur er þó skárri þótt hans vegna hafi ég rokið í Húsafell í sumar og endað í útilegu eina mestu rigningarhelgi fyrr og síðar. Hann hefur líka vandað sig eftir þann skandal.
En varðandi komandi helgi, þá byrja ég fyrst að kíkja fyrir alvöru á spárnar á fimmtudagskvöldið. Og vonandi sést bara snjór eða frost í kortunum...allavega svona fram í apríl? Er það ekki bara ásættanlegt? :o)
..
Páll Óskar og Mónika....

....voru alveg frábær í gær. Og gestir þeirra ekkert síðri. Diddú söng eins og engill að venju og Ave Maríurnar sem hún söng í "skiptihléinu" hans Palla voru gríðarlega fallegar. Síðan voru þarna söngsveitin Hljómeyki og stjórnandi þeirra er Hreiðar Ingi, sem á heiðurinn af mörgum lögum Palla og Móniku. Þessi ungi maður er greinilega snillingur. Mitt fyrsta verk í dag verður að kaupa diskinn þeirra. Það var of mikil biðröð í gær eftir tónleikana, ég nennti ekki að bíða. Ég fæ ennþá sæluhroll við tilhugsunina um tónleikana, lögin voru algjört eyrnakonfekt! Ég hlakka strax til að leggjast í sófann heima með smákökur í skammdeginu og slaka á og hlusta á þennan geisladisk. Það er eitthvað svo róandi við hljómana úr hörpunni...
..

Sunday, November 23, 2003

Kisur, föndur og sunnudagsleti...

Það er nýr heimilisgestur byrjaður að mæta í morgunkaffi hérna. Veit ekki hvað hann heitir, en er ósköp ljúfur og angar eins og rósablöð. Þetta er ekki Gormur Grámann, bestir vinur Nebba, úr húsinu á móti, sem þykist eiga heima hérna, heldur einhver nýr kettlingur. Kom hérna inn í fyrrakvöld, malaði eins og díeselvél. Var vísað pent á dyr út í kuldann en var mættur hérna í morgunkaffi í gærmorgun, ferskur og glaður. Sá til hans aftur í morgun en var nógu fljót að loka glugganum. Ég er hætt að skilja þetta. Stendur á skilti hér fyrir utan á kattamáli að hér búi voða góð kona sem líkar vel við ketti og kann að klóra þeim á bakvið eyrun? Og eigi harðfisk uppi í skáp? Ég fer að halda það eða að Nebbi Nautnaseggur er svona gestrisinn og býður oft heim kunningjum sem hann hittir á förnum vegi..... Og þetta eru ekkert einhverjir úfnir skítugir fressarar? Neinei, allir voða ljúfir, góðir og hreinlegir heimiliskettir sem greinilega lúra innan um ilmandi þvott á sínu heimili. Eru bara að droppa inn í smá klór og klapp. Gamla geitin, sem notabene átti 10 ára afmæli í gær, og Sunna stresspersi eru alveg að fara á límingunum yfir þessum tíðu heimsóknum...

Annars er ég alveg hryllilega löt núna. Kannski skiljanlegt þegar maður situr að sumbli fram eftir nóttu. Það var alveg virkilega gaman í gærkvöldi. Flugsveitin hittist í gær hérna í sveitinni, hinn mánaðarlegi matarklúbbur ekta jeppasjúklinga. Eins og gefur að skilja var mikið rætt um þennan vetur og því spáð að hann verði ofboðslega snjóþungur...vonandi. Svo var aðeins minnst á 44" dekk og milligíra og jeppategundir og ég er ekki frá því að það hafi gripið um sig smá fjallafiðringur. En svo í morgun var bara rigning og slagviðri. Oj bara. En kannski snjóaði í fjöllin á meðan það rigndi hér?

Ég þarf að fara að klára þetta jólakortaföndur. Ekki nema ég geri eins og í fyrra, öööörfáir útvaldir fá heimagerð jólakort...... :o) Spurningin er...hvort á ég að vinna eða föndra..hmmm...erfitt val. Eða þannig. Svo get ég náttúrulega líka bara lagst aftur í bólið og lesið bókina hans Michael Crichton, "Prey". Orðin alveg allsvakalega spennandi sú bók. Ég held ég eigi meira að segja slatta af súkkulaði til að maula með bókinni. Og kaldan reyktan hátíðarkjúkling. Og nýja jólamaltogappelsínið frá Egils. Hmm...mér sýnist orð dagsins vera: leti. :o)

Og í kvöld erum við að fara á tónleika með Páli Óskari, Diddú og Móniku. Ég hlakka mikið til. Sá þau hjá Gísla Marteini um daginn og þetta lofar góðu. Svo eru tónleikarnir í Háteigskirkju. Ekki leiðinlegt að fara þangað á tónleika, hún er svo falleg.

Sko, búin að blogga helling. Segiði svo að ég sé löt í dag! hah!
..


Friday, November 21, 2003

Þessi vika...

...hefur liðið hratt. Sem betur fer. en mikið djö... er ég þreytt á kvöldin. Er gjörsamlega dauð þegar ég kem heim. Og ég sem ætlaði að vera svo dugleg í nóvember og desember. Líst ekkert á þetta. Sjaum til hversu dugleg ég verð um helgina. Á eftir að gera svo margt sem ég ætlaði að vera búin að fyrir löngu.
..

Monday, November 17, 2003

Úff...

Erfiður dagur. Ekki hægt að segja annað.
..

Wednesday, November 12, 2003

Huh??

Sex vikur til jóla í dag!!

..

Tuesday, November 11, 2003

Að það skuli ennþá vera til nóg af fólki...
...sem fellur fyrir þessu pýramídabulli aftur og aftur. Sorglegt. Þetta var aðalfréttin framan á Fréttablaðinu í morgun (en þetta er af mbl.is).

Vilja fá aftur fé sem lagt var í sænska sölukeðju
Íslendingar, sem lagt hafa fé til sænsku sölukeðjunnar SprinkleNetwork, hafa ráðið lögmann til að freista þess að ná fénu aftur, að því er kemur fram í Fréttablaðinu í dag. Er haft eftir Gylfa Gylfasyni, lögmanni, að um sá að ræða gríðarlegar upphæðir í mörgum tilfellum. Til stóð að fyrirtækið tæki til starfa hér á landi í haust en af því hefur ekki orðið enn. Blaðið hefur eftir Tomas Valin, talsmanni SprinkleNetwork, að fyrirtækið myndi endurgreiða hinum óánægðu þá fjármuni sem þeir hefðu lagt í sölukeðjuna. Hann segir tölvuvandamál hafa orðið til þess að starfsemin væri ekki komin í gang enn.

Monday, November 10, 2003

Hjúkk!

Blogger var eitthvað að stríða mér og á síðustu stundu hugkvæmdist mér að kópera textann yfir í Word áður en allt fór í klessu. Gat því bjargað bloggfærslunni hér að neðan...það getur komið sér vel að lesa blogghrakfarir annarra af og til...
..
Góð helgi!

Það var alveg frábært að vakna á laugardagsmorgni og átta sig á því að maður þyrfti ekki að fara að vinna. Í fyrsta sinn í margar vikur. Naut þess því alveg í botn að hella upp á kaffi, lesa blöðin og hella mér svo í hreingerningar. Horfði á MTV-Europe verðlaunaafhendinguna með öðru auganu í leiðinni. Sá Kylie syngja lagið hennar Emilíönu, "Slow" og hann Justin vin minn hirða fullt af verðlaunum. Ég bar á nýju borðin mín, klappaði nýju stólunum ástúðlega og endurraðaði í nýju bókahilluna. Sem sagt góður dagur sem endaði vel og á góðum mat hjá vinafólki okkar sem er á leiðinni til Brüssel um áramótin. Í gær svaf ég aftur út, hellti upp á sælkerakaffi og las blöðin. Bakaði svo köku og bjó til kotasælusalatið góða (uppskrift frá Kristínu B., eðalkokki) og fékk síðan ástkæra vinkonu mína, Elínu krúsímús, ásamt gullmolunum hennar tveimur í kaffi. Þau eru flutt heim frá Danmörku og við hjónin tókum því fagnandi á móti þeim. Vonandi fylgja aðrar vinkonur og ekki síst systir í kjölfarið. Vil hafa allt "mitt" fólk hérna heima, ekki út um allan heim. Þetta er náttúrulega bara sagt af pjúra eigingirni. Engu öðru... :o)
Í gærkvöldi föndraði ég smá (tréramma fyrir myndir sem ég er að gera) og fór því sæl að sofa. Mín bíða heima plötur til útsögunar og það verður gaman að takast á við þær. Ef "bútapestin" er slæm, þá er föndurpestin verri.....
..

Friday, November 07, 2003

Æ, ég virka eitthvað svo hryllilega...

...."sjallóv" þegar síðustu færslur eru lesnar. Það er eins og ekkert annað komist að hjá mér en húsgagnakaup og sjónvarpsgláp. Eins gott að ég ræddi ekki í díteils snyrtivörukaup mín í síðustu viku... :o) En svona er líf mitt þessa dagana, ekkert nema vinna, peningaeyðsla og heilalaus afþreying. Bækurnar á náttborðinu eru líka í sama anda, fjörlegar "chick lit" og Alt for damerne. Og þegar ég renni yfir bókaflóðið þá langar mig helst að lesa Bettý eftir Arnald og aðrar bækur sem munu halda mér vakandi. Ætli félagaréttur og skattalögfræði hafi þessi áhrif? Að heilasellurnar deyi drottni sínum eftir klukkan fimm á daginn? hmmm..... Annars hefur t.d. bandarísk lágmenning alltaf höfðað mjög sterklega til mín. Blóðugar raðmorðingjasögur eftir James Patterson og léttúðugar írskar Brigdet Jones-píur í bókum Marian Keyes hafa verið í uppáhaldi á meðan Fávitinn og Karamazov-bræðurnir hafa legið ólesnir í hillu síðan ég tók að mér að geyma þær bækur fyrir hana Silju vinkonu þegar hún flutti til útlanda. Það var fyrir um tíu árum og ég hef ekki enn haft mig í að lesa þær og nú er hún flutt heim aftur og fer bráðlega að heimta bækurnar af mér. Og ef ég hef rænu á að gera eitthvað þá föndra ég jólakort eða mála tréjólasveina. Að fara á tónleika, fyrirlestra eða í leikhús er eitthvað sem ég hef ósköp gaman af en hef mig ekki í það. Bara nenni því ekki.

Æ, ég er á einhverju menningarvanmáttartrippi.... Las einhverja bloggfærslu í morgun sem ég hefði betur átt að láta vera að lesa...
..
Og fyrst ég er svona dugleg að blogga í dag..

..þá lagaði ég aðeins linkana hér til hægri, bætti við nokkrum sem ég kíki alltaf á reglulega.

Og að lokum þá legg ég til að einhver opni svona verslun hér á landi. Góð vísa er aldrei of oft kveðin...
..
Sama skítaveðrið áfram.

Mikið er ég leið á þessu þótt það sé ósköp notalegt að liggja undir sæng með góða bók og hlusta á regnið lemja rúðurnar og bylja á þakinu.

Ég og Beggi erum að spá í að sjá The Matrix í kvöld, þ.e. nýjustu myndina. Ég sá einhvers staðar að hún hafi valdið vonbrigðum. Það er ágætt, þá er ég ekki að gera mér of miklar vonir, vil bara sjá hvernig þetta endar nú allt saman. Og horfa á Neo/Keanu bjarga heiminum. Vonandi.

Annars hef ég síðustu vikur eignast nýjan uppáhaldsþátt í sjónvarpinu. Svona þátt sem ég má bara ekki missa af.
Hinir fimm fræknu eru alveg brill. Og ég hefði aldrei trúað því að þessir gagnkynhneigðu amerísku karlar gætu verið svona ofboðslegir sóðar og slúbbertar. Jú, reyndar get ég alveg trúað því, þessir kanar geta stundum verið allsvakalega skrítnir, gangandi um á strigaskónum sínum á mjúku teppunum í íbúðinni sinni...og með teppi jafnvel inni á baði. Oj. Gaman að þrífa þar, eða hitt þó heldur.
..
Langt síðan ég hef verið með könnun...

..svo að hér er ein. Ég er ekkert ósátt við þetta..

pho
You are Form 0, Phoenix: The Eternal.

"And The Phoenix's cycle had reached
zenith, so he consumed himself in fire. He
emerged from his own ashes, to be forever
immortal."


Some examples of the Phoenix Form are Quetzalcoatl
(Aztec), Shiva (Indian), and Ra-Atum
(Egyptian).
The Phoenix is associated with the concept of life,
the number 0, and the element of fire.
His sign is the eclipsed sun.

As a member of Form 0, you are a determined
individual. You tend to keep your sense of
optomism, even through tough times and have a
positive outlook on most situations. You have
a way of looking at going through life as a
journey that you can constantly learn from.
Phoenixes are the best friends to have because
they cheer people up easily.


Which Mythological Form Are You?
brought to you by Quizilla

Wednesday, November 05, 2003

Oj bara....

...hvurslags veður er þetta eiginlega. Hverjum datt í hug að panta svona slagveður? Veit viðkomandi ekki að það er kominn nóvember? Við viljum snjó!
..

Monday, November 03, 2003

Helgin...

..var alveg brill. Byrjaði vel og endaði vel og allt inn á milli var bara alveg frábært. Ég hóf leikinn í hádeginu á föstudag þegar ég heimsótti vinkonu mína og lenti í amerískum "brönsj". Slurp - smjatt. Heilsaði upp á kisurnar hennar, Kitchen og Closet, en þær eru allar þrjár nýlega fluttar heim frá Ameríku eftir dvöl þar í um áratug. Og þær voru allar yndislegar heim að sækja, ekki síst matmóðirin. Takk aftur kærlega fyrir mig!!
Um kvöldið bauð Beggi mér á villibráðarhlaðborð í Perlunni og það var líka æði. Mér varð reyndar hálfillt af átinu, en það var allt í lagi. Ég held að það sé varlega til orða tekið að segja að við rúlluðum heim af ofáti. Úff. Hreindúracarpaccio-ið er snilld og villibráðarsúpan einnig. Engin rjúpusúpa þetta árið en samt góð súpa. Þeir kunna að bjarga sér þarna í Perlunni. Ég reyndar sakna eins sem þeir mættu alveg bjóða uppá, þ.e. dádýrakjöts. Smakkaði það í Stokkhólmi í vor og það er algjört lostæti. Sá að það er verið að selja það hér (Í Nóatúni).
Laugardagurinn hófst á vinnu. Mætti á gamla vinnustaðinn og kláraði verkefnið sem mér var falið og þarf því ekki að koma aftur að vinna þar. Á sama tíma voru fyrrum starfsmennirnir mínir í deildinni minni í sinni árlegu hausttiltekt. Og því var kaffi og meðlæti þar í hádeginu. Gott að sjá að fólkið mitt heldur uppi hefðum sem ég kom á... :o) Fékk sem sagt brauð, síld og kökur og fleira gúmmelaði. Svo þegar heim var komið byrjaði tiltekt þar ásamt því að taka á móti nýju húsgögnunum!! Veii! þau eru komin! Svo fékk ég lítinn fimm ára gullmola í heimsókn yfiir nótt þannig að kvöldinu eyddi ég í lestur barnabóka og umræðum um Línu Langsokk og Birgittu Haukdal. Fór svo og tók til í föndurherberginu og var svo bara sofnuð snemma. Eins gott því ég var vakin rúmlega átta morguninn eftir. Eg tók áfram til í föndurherberginu/bókaherberginu mínu og leyfði litlu frænku að mála. Þegar móðir hennar hafði sótt hana og við hjónin stússast í fleiri tilfæringum í stofunni skelltum við okkur í Byko, Húsgagnahöllina og Kringluna. Um kvöldið fór ég svo til hálfnöfnu minnar og föndraði eitt stykki jólasvein sem segir manni hvað margir dagar eru til jóla. Þegar ég kom heim upp úr miðnætti í gærkveldi hálfbrá mér, ég þekkti ekki stofuna mína aftur í rökkrinu.......
..

Friday, October 31, 2003

Veiiii!!

....það er kominn föstudagur! Vikan hefur verið ansi fljót að líða. Ég var því mjög fegin í morgun þegar ég vaknaði og áttaði mig á því að það væri bara alveg að koma helgi. Var í seinara lagi í morgun því þegar ég ætlaði að fara fram úr þá kom Nebbi og lagðist hjá mér malandi. Heimtaði knús.Hann gerir það með því að troða trýninu undir hendina á mér og ýta henni upp eða stanga mig í bringuna með kollinum. Ferlega krúttlegt. Ég fell alltaf fyrir því og lá því og kúrði aðeins lengur og hlustaði á Magnús Einars á Rás tvö. Einn besti útvarpsmaðurinn í dag. Voðalega gott að vakna með Magnúsi.... Það passar svo að dröslast framúr þegar morgunvaktin byrjar. En sem sagt ég var ekki komin í vinnuna fyrir en rétt fyrir níu. Algjör letihaugur. En ég hlustaði á leiðinni á frábær ráð hárgreiðslumeistarans sem lítur alltaf við á föstudagsmorgnum hjá Gesti Einari á Rás tvö. Held að hann heiti Arnar eða eitthvað í þá áttina. Og hann Arnar sagði að það væri bölvuð vitleysa að vera að fara í jólaklippinguna rétt fyrir jól og "frumsýna" jólafötin á aðfangadagskvöld. Maður á að fara í klippingu og kaupa sér fötin í lok nóvember - byrjun desember (á meðan allt þetta flotta er til í búðunum ennþá) og mæta svo með stæl í alla viðburði desembermánaðar. Manni líður alltaf betur þegar maður lítur vel út og það á líka við í desember þegar allir eru frekar þreyttir og uppteknir. Engin ástæða til að vera bara flottur með fjölskyldunni á aðfangadagskvöld - hún veit alveg hvernig maður lítur út grár og guggin. Það var barasta doldið mikið til í þessu hjá honum! Best að fara að huga að klippingunni!
..

Thursday, October 30, 2003

Snjór!!

Það gladdi okkur hjónin mikið í gærkvöldi að sjá snjóinn kyngja niður. Stóðum andaktug við stofugluggann og horfðum út. Hefði mátt snjóa meira og lengur. Helst vera allt á kafi í morgun, skaflar og fínerí. Svo finnst mér að það mætti snjóa alveg út í eitt allar næstu vikur. Inn á milli mætti hlýna örlítið og svo kólna strax aftur. Þá þéttist snjórinn. Betra að keyra á honum og fara á skíði. Oh, nú er ég alveg komin með þvílíkan fjallafiðring.

Og svo legg ég til að einhver opni Pottery Barn verslun hérna á klakanum. Helst í gær.
..

Wednesday, October 29, 2003

Orð dagsins: ofát....

...dagurinn hófst á því að ég kom við í gömlu vinnunni minni. Eyddi smá tíma með arftaka mínum og leiðbeindi henni en fór svo í 180 ára afmælisveislu í morgunkaffinu. Hnallþórur og brauðtertur fyrir heilan her. Þrjár nýorðnar sextugar myndarhúsmæður stóðu fyrir þessari átveislu. Ég get ekki ímyndað mér að starfsfólk skattstofunnar hafi getað unnið mikið fram að hádegi fyrir ofáti. Ég átti allavega erfitt með það eftir að ég kom á minn núverandi vinnustað. Ég fór samt niður í mötuneytið í hádeginu og fékk mér lax með fullt af grænmeti og fersku salati. Og nú get ég varla hugsað, ég er svo södd. Þarf nú samt að koma mér í gírinn og semja mjög svo viturlegan texta sem hljómar svakalega gáfulega. Kannski ég tékki á nammiskápnum til að kóróna daginn....
..

Wednesday, October 22, 2003

Mikil meirihluti lúxusslyddujeppa...

...verður á vegi mínum á leið til vinnu þessa dagana. Sem áhugamanneskja af lífi og sál um fjallamennsku og hálendisferðalög þá finnst mér þessir jeppræflar allir hálffyndnir í útliti (hálfasnalegir á litlum dekkjunum..). Og eitthvað svo tilgangslausir. Maður sér þá suma með allar græjur, kastara, drullutjakk (sprautaður i sama lit og bílinn), GPS og NMT síma en svo fer þetta dót aldrei út fyrir borgarmörkin. Væri ekki skynsamlegra að eyða peningunum í eitthvað annað? Þetta er jafnfáránlegt og að kaupa sér golfsett og græjur fyrir hálfa milljón en nota það svo aldrei. Sum tilfellin eru öfgakennd, s.s. fullbreyttur jeppi með öllu en loftdæluslangan er líklegast enn í umbúðunum því jeppanum hefur aldrei verið ekið út fyrir malbik og hleypt úr lofti í dekkjunum. *pirr* Þetta lið eyðileggur allt fyrir okkur hinum sem erum í þessu af alvöru.
Jæja, búin að fá útrás fyrir pirringinn yfir jepp"druslunni" sem svínaði fyrir mig í Ármúlanum í morgun.....
..

Tuesday, October 21, 2003

Mér var bent á ansi skemmtilegan vef...
...þar sem fjallað er um málefni líðandi stundar (já, eða bara svona viðskiptaslúður!!). Fróðleg lesning með kaffibollanum!
..
Áááiii.....

Maður verður svolíti þurr í augunum eftir að hafa starað á tölvuskjá og lesið yfir skjal upp á 480 bls.....
..

Friday, October 17, 2003

Þá er enn ein vinnuvikan liðin....

....og hún leið heldur betur hratt! Það er sko alveg nóg að gera í vinnunni og verkefnin eru virkilega skemmtileg. Ég hef ekki haft neinn tíma í annað en vinnu og nám og er því örþreytt í dag. Er satt að segja orðin svolitið mikið aðframkomin af bíóleysi og sjónvarpsleysi og eiginlega líka svona "letileysi". Hef ekki lesið staf í skáldsögu í marga, marga daga og sakna þess líka. En samt líður mér nú bara vel en vona þó að bráðum komi að því að ég geti dinglað mér eitthvað smá. Í félagslífinu hefur þó verið nóg að gera, síðustu helgi fórum við hjónin á fjöll, á landsfund ferðaklúbbsins 4x4 í Setrinu og hittum þar jeppafólk alls staðar af landinu. Mjög gaman. Svo erum við líka í kór, æfum einu sinni í viku og það er virkilega skemmtilegt. Í gær hitti ég svo fyrrum samstarfskonur og sátum við fram eftir nóttu, við þurftum að kjafta svo mikið. Ógurlega gaman. Í kvöld erum við boðin í mat til vinkonu minnar og annað kvöld erum við að fara á árshátíð í Skíðaskálanum í Hveradölum með öðrum félagsmönnum í Ferðaklúbbnum 4x4. Sem sagt nóg að gera. Vonandi fer að koma að því að ég geti eytt svo sem helgi í bókalestur, föndur og bútasaum. Jafnvel húsverk þættu mér ekki leiðinlegt - er þá nú mikið sagt! Eða að fara að versla í Fjarðarkaupum. Liggja með malandi loðdýr í fanginu og dotta. Raða heimilisbókhaldinu í möppu. Bara svona "dingl", þið vitið. :o)
..

Friday, October 10, 2003

Nammi..... :o)

Í nýju vinnunni minni er voða vel hugsað um svona grunnþarfir. Góður matur í mötuneytinu, vatnsvélar (með sódavatni m.a.!) og kaffivélar á hverri hæð ásamt körfu með kexi. Svo getur maður alltaf fengið sér skyr, jógúrt eða hvaðeina. Og það allra besta (-versta?) eru svo nammi og gosskápar á hverri hæð. Maður bara merkir við sig ef maður fær sér eitthvað. Og það tilkynnist hér með að ég gafst upp fyrir nammiskápnum núna áðan. Fékk mér súkkulaði með kaffinu eftir matinn. Er að hughreysta mig því ég er næstum því alein á hæðinni því flestir eru erlendis á árshátíð. Ég verð að segja það að Nizza-súkkulaði virkar barasta ágætlega á svona "einmana-blús"...
..

Wednesday, October 08, 2003

Ég veit ekki hvort það var nokkuð sniðugt...
..að fara að vinna aftur í höfuðborginni. Ég sé aurana streyma úr veskinu..... :o)
Svo margt sem glepur hugann. Ég skrapp í Kringluna í hádeginu sl. föstudag. Fílaði það alveg í tætlur. ("I'm baaaaaaaack, Kringla!!"). Hitti vinkonu mína á kaffihúsi í gær og systur mína í hádeginu í dag. Fyrir utan vinnuna hugsa ég bara um föt. (Ekki veitir af, ég sé að það vantar MIIIIIKIÐ í minn fataskáp. Það eru allir SVO fínir hérna í vinnunni. Það er af sem áður var þegar maður gat dröslast í vinnuna ómáluð og í gallabuxum.....).
En ég er óskaplega þreytt þessa dagana. Hefði eiginlega þurft smá frí eftir að ég kláraði á gamla staðnum og áður en ég byrjaði á þeim nýja. Það suðar fyrir eyrunum á mér. Var næstum því sofnuð í þýsku sl. mánudag þegar kennarinn talaði af ástríðu um Die Rektion der Werben. Fyrir þá sem ekki vita þá þýðir það fallstjórnun sagna. Minn heili var ekki alveg tilbúinn að meðtaka þá visku. Man þó að Þjóðverjar eiga nú þýskt orð yfir nefnifall í stað Nominativ, eða "Nennfall"!!
..

Tuesday, October 07, 2003

Ég er enn á lífi....
...en bara hryllilega mikið á kafi í nýju vinnunni. Ekki skamma mig, ég lofa að bæta fyrir bloggleysið þegar ég næ áttum..
.

Monday, September 15, 2003

Róm

Fékk póst frá mömmu og pabba. Þau eru í Róm og lenda í ýmsum ævintýrum að vanda. Ég er ekki frá því að ég vildi vera þarna á þessum slóðum líka. Sérstaklega á þessum litla fjölskylduveitingastað rétt hjá íbúðinni þeirra þar sem einungis Ítalir (og þau) borða. Mér skilst að þar sé nokkuð mikill hávaði milli kl. 9 og 10 á kvöldin. Þegar heilu stórfjölskyldurnar mæta til að borða og rífast svolítið mikið og veifa höndunum í allar áttir. Sitja svo og horfa á la bella luna og dreypa á góðu kaffi. Það væri gott að vera rithöfundur og fá íbúð lánaða í Róm í mánuð...
..

p.s. hvernig ætli þessi texti hljómi í þolmynd? Þ.e. Zustandspassiv, EKKI Vorgangspassiv..
..
Úff...

...dagurinn í dag hefur verið frekar annasamur. Þriðja vikan í þýsku málfræðinni er hafin, hef verið önnum kafin við að breyta úr germynd yfir í þolmynd. Settist á annan stað en venjulega í dag og sat við hliðina ósköp indælum stúlkum að sjá. Bjartleitar og vel til hafðar og kinkuðu kurteisislega kolli til mín. Síðan var tíminn búinn og ég stóð upp. Svo stóðu þær upp líka. Ég náði þeim í mitti. Önnur þeirra hlýtur að hafa náð a.m.k. 196 cm því það er kunnugleg stærð. Ég fílaði mig eins og lítinn feitan hobbita. Ég ætla samt ekki að láta þær fara í taugarnar á mér.
..

Friday, September 12, 2003

Föstudagur!

Mikið er ég fegin að þessi vika er næstum því á enda. Hefur verið frekar mikið að gera. Það sem bjargaði mér þessa vikuna var að byrja í jóga aftur. Indælt.... Fór á mánudaginn og var algjör stirðbusi og með þvílíkar harðsperrur daginn eftir. Fór svo aftur í gær og var strax skárri. Ég sef strax betur og næ að hvíla hugann. Ég mæli hiklaust með jóga - það gerir manni ekkert annað en gott!
..

Thursday, September 11, 2003

Eftir 13 vinnudaga...

...skipti ég um vinnu. Það verður skrítið að fara að vinna aftur í Reykjavík. En vonandi skemmtilegt. Ég er sem betur fer ekkert svo mikið lengur í vinnuna en t.d. einhver sem býr í Grafarvogi eða Efra-Breiðholti. Búin að taka tímann. En nú hef ég ekki lengur þann lúxus að skreppa heim í hádeginu. Það er nefnilega ósköp ljúft...
..

Wednesday, September 10, 2003

Mæli með því...

..að þið sjáið The Magdalene Sisters á bresku bíódögunum í Háskólabíói. Ég var hálfdofin í gærkveldi eftir að hafa séð hana. Þetta er svona "must see"-mynd!
..

Tuesday, September 09, 2003

Hah!

...pantaði mér eitt stykki Corsu áðan. Fæ hana á föstudaginn vonandi. Þangað til fæ ég lánaðan bíl hjá þeim, þökk sé frábærum markaðsstjóra hjá umboðinu. Mæli aftur á móti ekki með því að tala við þennan þjónustustjóra. Hann veit EKKI hvað felst í orðinu "þjónusta". Ég hef ekki kynnst nema góðri þjónustu hjá Bílheimum, allir vilja allt fyrir mann gera NEMA þessi "þjónustustjóri". *arrg*
..
Bílaraunir...

...Snjófusinn er illa haldinn á einhverju bifreiðaverkstæði á Húsavík og Östrunni var skilað inn í gær til tengdapabba enda Beggi ekki lengur að vinna hjá honum. Við erum sem sagt ekki með fullskipaðan bílaflota. Frekar óþægilegt þegar maður býr á Álftanesi og er að fara að sækja vinnu til Reykjavíkur eftir örfáar vikur. Og er að vinna í Hafnarfirði og þarf að mæta í þýsku í HÍ 2x í viku. Bílheimar mega eiga það að þeir útveguðu okkur annan Isuzu Trooper á 38" svo bóndinn yrði ekki af tekjum í túristakeyrslunni en ég veit ekki hvernig það endar. Nenni ekki að fara mikið út í þá sálma en í stuttu máli þá fór túrbínan í vélinni, vélin fór á yfirsnúning og eyðilagði út frá sér. Tjón upp á mörg hundruð þúsund krónur. En þessi ágæta túrbína átti að vera farin úr bílnum og önnur ógölluð komin í staðinn. Skipanir frá Isuzu úti. En það var ekki komið að okkur í innkölluninni og svo fór sem fór. Sem betur fer vorum við að renna frá sumarbústaðnum í Aðaldalnum, 10 km frá Húsavík þegar vélin trompaðist en ekki í eyðibyggðunum í kring sem við vorum að skoða dagana á undan. Mér þótti málið vera að tefjast ansi mikið hjá þjónustustjóra Bílheima, sá vildi ekki einu sinni viðurkenna að ef vél færi á yfirsnúning þá eru allar líkur á að annað eyðileggist í vélinni. Hringdi því í einn góðan mann sem ég þekki frá fornu fari úr bílabisnessinum sem vinnur þarna og þá fóru hjólin að snúast. Það er von á jeppanum suður í dag og það er óskandi að eitthvað fari að gerast. Ég vil fá bílinn aftur á götuna sem fyrst...þarf að fara á fjöll! Svo þarf ég líka snattbíl og ætla að vinna í því í vikunni. Get ekki verið bíllaus. Ekki benda mér á strætó...strætisvagnaferðir eru ekki öflugar í Bessastaðahreppi..
..


Monday, September 08, 2003

Það er ekki friður þessa dagana fyrir vírusum...

...nú eru 11. september-vírusarnir mættir á svæðið. Pósturinn fullur af viðvörunum frá tölvudeildinni. Það fer meiri tími í að huga að vírusum í tölvunni en að sinna vinnunni sinni, allavega þessar síðustu vikur. Og það er varla að ég þori á netið heima. Óþolandi..
.
Mætti hrossi á leið til vinnu í morgun....

...því fannst greinilega leiðinlegt innan girðingar og ákvað að skoða garðana í Bessastaðahreppi nánar. Mér fannst það ansi skondin sjón! Hann má alveg fara heim til mín, það þyrfti sko að slá grasið hjá okkur!
..

Wednesday, August 20, 2003

Norðlensk sæla

Förum á föstudag norður í Aðaldalinn í sumarbústað. á dagskrá er slökun, svefn og lestur. Er að fara yfir bækur sem ég ætla að taka með mér, m.a. bækur sem hafa vikið fyrir léttmetinu í sumar. Þ.á.m. ein skáldsaga á þýsku sem ég hef verið að strögla við (Kalt ist der Abendhauch e. Ingrid Noll) en er samt alveg frábær. Takmarkið er að klára hana áður en þýskunámið hefst að nýju í haust. Fyrir norðan ætlum við líka að kíkja til berja (get ekki látið það vera þótt ég eigi nóg....) og skoða aðra en þessa venjulegu túristastaði. Ábendingar eru mjög vel þegnar! Svo er bara að vona að við fáum gott veður...
..
Það var ánægjulegt að lesa á mbl.is...

..að Flugleiðir ætli að hefja áætlunarflug til Orlando næsta sumar! Sem þýðir vonandi að Orlando verði með í 2 fyrir 1 tilboðunum á komandi hausti. Kemur sér vel fyrir fjölskylduna mína!
:o)
..

Tuesday, August 19, 2003

Ég lýsi eftir þessum opinberu starfsmönnum...

...sem hafa fengið svona miklar launahækkanir að þær munu hafa áhrif á næstu kjarasamninga.
Hvorki ég né aðrar opinberar skrifstofublókir sem ég þekki kannast nefnilega við þykkara launaumslag. Óneeii...
..

Mörthur Íslands...

..Við systurnar höfum í hyggju stefna á frama innan matvælaiðnaðarins. Við myndum t.d. geta stofnað sultugerð. :o) Þetta var sko enginn smáiðnaður hjá okkur í eldhúsi í Grafarvoginum í gær. Afraksturinn varð um 30 krukkur og við erum ekki hálfnaðar með berin. Og svo er sultan ferlega góð! Vorum ekkert smá ánægðar með okkur í gærkveldi og ansi vígalegar með svunturnar og sleifarnar!!
Martha Stewart þarf sko að fara að vara sig!
..

Monday, August 18, 2003

Það er virkilega haustlegt úti...

...það er svo langt síðan að það var rigning og rok að ég var eiginlega búin að gleyma því hvernig slíkt veður væri! Það rifjaðist þó fljótt upp! Helgin var alveg frábær, við gistum á Kirkjubóli á Ströndum (get alveg hiklaust mælt með þeirri gistingu, gestgjafinn þar er alveg frábær!) og tíndum ber hinum megin við Steingrímsfjarðarheiði, nánar tiltekið í botni Ísafjarðar. Þar fundum við þvílíkt magn af aðalbláberjum og tíndum rúmlega 25 lítra á einum eftirmiðdegi. Veðrið var yndislegt, alveg logn og af og til sólskin. Grilluðum síðan um kvöldið og hreinsuðum berin að mestu. Alveg frábær staður, fallegt veður og góð uppskera!
..

Friday, August 15, 2003

Aftur á leiðinni út ur bænum...

...í þetta sinn norður á Strandir. Ætla að kíkja eftir berjum hinum megin við Steingrímsfjarðarheiðina líka. Verð að komast í AÐALbláber!!!. Við leggjum í hann eftir vinnu. "Litla" systir ætlar að koma með og snúllan hennar líka. Fróðlegt að sjá hvernig sú stutta höndlar berjatínsluna, í fyrra sat hún með skeifu á næstu þúfu og fannst þetta frekar óspennandi. Skildi ekkert í því af hverju hún mátti ekki tína krækiber oní föturnar hjá mömmu sinni og frænku...

Ég var svo rugluð í gær að mér fannst endilega miðvikudagur. Gleymdi þ.a.l. fundi sem ég átti að mæta á. Sat til borðs með systur minn og Co þegar síminn hringdi og spurt: ætlaðir þú ekki að mæta á fund??!! Eh...ég er stundum svo hryllilega utan við mig. Þoli ekki sjálfa mig stundum....
..

Thursday, August 14, 2003

Berjatíminn er rétt hafinn...

...en það fer að verða of seint að tína sums staðar því einhver pöddufaraldur hefur farið eins og stormsveipur yfir suðurfirðina f. vestan. Fór í gær að tékka á berjum á Skógarströnd. Fullt af bláberjum og krækiberjum en aðalbláberjalyngið var berstrípað. :o( Svo sem engin padda þar á ferð, bara snjóleysi í vetur og þurrkar í sumar. Er á leiðinni vestur á firði á morgun, hef heyrt af góðri aðalbláberjasprettu í Djúpinu. Vonandi næ ég þangað á undan pöddunum...
..
Þrátt fyrir að lítið væri af berjum í gær þá var þetta alveg frábært, það skein á okkur sólin og hitinn var þvílíkur að maður varð bara að afklæðast (innan velsæmismarka þó). Hef ekki tínt ber á brjóstahaldaranum fyrr... :o)
..

Tuesday, August 12, 2003

Undur og stórmerki

Forgangsröðin hefur hingað til verið þannig hjá okkur hjónum að fyrst að lifa lífinu (lesist: að stunda fjallaferðir með tilheyrandi útgjöldum fyrir jeppann og ferðast til útlanda, eyða grimmt í bókabúðum og fara í bíó) og síðan að spá í aðra hluti eins og húsgögn (lesist: að fá sér borðstofuborð og stóla auk þess að endurnýja sófadrusluna). En sl. sunnudag duttum við bæði á hausinn og fórum í Tekk húsið og keyptum húsgögn eins og okkur væri borgað fyrir það. Viðbrögð okkar nánustu voru svipuð...."kominn tími til!" Verst að við þurfum að bíða fram i september eftir nýju húsgögnunum.
Það hlaut að koma að heimilinu í röðinni....á eftir jeppanum. :o)
..

Monday, August 11, 2003

Og fyrst ég er byrjuð...

..að tjá mig um afþreyingu þá mæli ég með bíóferð. Sá Sjóræningjana í Karíbahafinu á forsýningu um daginn og sveif út úr salnum. Langt síðan ég hef gleymt mér svona yfir ævintýramynd af þessum toga. Alveg frábær mynd og hann Johnny Depp í hlutverki sjóræningjaskipstjórans Jack Sparrow var algjör snilld. Síðan sá ég Jim Carrey í hinum almáttuga Bruce og hef sjaldan hlegið eins mikið í bíó. Táraðist og allt saman. Svo fékk myndin einhverja ræfilsdóma í Mogganum. Ég skil þetta ekki, Jim Carrey fíflast og þá fær myndin vonda dóma? Leikarinn sá er reyndar alveg magnaður í alvarlegum myndum en fíflagangurinn í þessari mynd er alls ekkert yfirgengilegur, langt í frá. Mæli því með því að þið takið ekkert mark á Mogganum og sjáið þessa mynd ef þið eruð í stuði fyrir gamanmynd. Áhorfendurnir í bíósalnum engdust af hlátri, það hlýtur að hafa eitthvað að segja!
..
Ég sat alveg límd við skjáinn í gær...

...enda síðasti þátturinn um Forsyte fjölskylduna á RÚV. Hef fylgst spennt með eftir bestu getu þrátt fyrir fjallaferðir og tjaldútilegur. Og nú er þetta búið. Reyndar eiga svona fínir þættir ekkert erindi í imbann á sumrin, þeir eiga að stytta manni stundir á dimmum vetrarkvöldum. En hvað um það, þessir þættir voru nokkuð góðir. Fínir leikarar, ekki síst Damian Lewis, sem lék hann Soames Forsyte. Sá brosti loksins á ný í lok þáttarins í gær eftir að hafa verið heltekinn af kvalafullri ást til hennar Irene alla þættina. Mikil dramatík. Það sem pirraði mig þó hvað mest var þessi leikkona sem lék Irene. Konu sem allir karlmenn áttu að heillast af vegna fegurðar hennar. Þessi kona sem lék hana var gjörsamlega frosin. Var þó hin indælasta í kvikmyndinni "Notting Hill", lék þar lamaða konu og gerði það vel. En sem Irene Forsyte var hún alltof stíf. Skiptir samt engu, þættirnir voru samt góðir. Og það er von á meiru...sagan er ekki búin!
Meira af breskum gæðaþáttum, takk!

Talandi um sjónvarp þá bíð ég spennt eftir því að sjá hvernig í ósköpunum Skjár einn ætlar að hafa nægt efni til að sýna á nýju stöðinni. Þeir hafa varla efni af viti til að sýna á þeirri fyrri. Ég bíð með óþreyju eftir CSI (ekki CSI Miami, þeim óskapnaði). RÚV hefur alveg bjargað geðheilsu minni í sumar með The West Wing , Ed og The Gilmore Girls að ógleymdri Forsyte ættinni. Í fyrsta sinn í mörg, mörg ár sem ég hef ekki séð eftir nauðungaráskriftinni í hítina í Efstaleitinu...
..

Friday, August 08, 2003

Þessir ágætu herrar...

...hjá Baggalúti hitta stundum naglann á höfuðið nokkuð hnitmiðað og fast...
..

Thursday, August 07, 2003

Gerði virkilega góð kaup í hádeginu...

...þegar ég keypti mér tvo nýja geisladiska á góðu verði. Festi m.a. kaup á diski sem ég hef lengi haft augastað á, eða Sea Change með Beck. Hinn diskurinn er Love Is Here með Starsailor, ekki síðri diskur. Skífan fær hrós fyrir að setja fullt af góðum titlum í "2 fyrir 2.200" tilboðið sitt.
..
Tók mig til....

...og stakk af úr vinnunni í gær og fór í sund í alveg frábæru veðri. Alveg meiriháttar! Kíkti svo í Smáralindina til að athuga með nýju haustfötin og sá lítið áhugavert. Nennti síðan alls ekki að elda og var bara með brauð og skyr í kvöldmat, var að dunda mér útivið frameftir kveldi og ætlaði aldrei að dröslast inn. Hvað þá að koma mér í rúmið enda er ég geispandi aðra hverja mínútu í dag. Hefði sko alveg verið til í að sofa út í morgun. Bóndinn bauð mér í bíltúr í dag með túristunum sem hann er að keyra upp á Heklu en ég komst því miður ekki. Hefði alveg verið til í að þvælast þangað uppeftir og skella mér svo í laugina í Landmannalaugum.

p.s. hvað er þetta eiginlega með þessar tískufatabúðir? Hvar eru fötin fyrir svona venjulegt fólk sem er ekki 1.70 m á hæð og 45 kíló? Óþolandi. Mér líður eins og ég sé 100 kíló þegar ég máta föt í Zöru. Ggrrrrrr.......
..

Wednesday, August 06, 2003

Það er einn ókostur við það að fara í frí...

...það bíða manns svo mörg verkefni þegar maður kemur aftur og heilinn er í engu ástandi til að fara að hugsa skýrt og einbeita sér. Hvað þá að taka einhverjar ákvarðanir af viti. Nú langar mig t.d. bara að fara til útlanda þótt fjárhagurinn leyfi það líklegast ekki við nánari skoðun. En mig langar samt. Er komin hálfa leið út í huganum. Ekki mjög skynsamlegt.
Heilar nýkomnir úr sumarfríi eru því stórhættulegir. Það tilkynnist hér með.
..
Ég þarf að bæta einu við...

...á listann minn. Ég mæli með Lavendar baðolíu frá Body Shop í baðið. Prufaði svoleiðis í gær og þvílík sæla! Svaf eins og ungbarn í nótt. zzzzzzzzzzzzzzzzzzz
..


Tuesday, August 05, 2003

Mæli með....

....að finna sér fallegt fjallavatn með urriðaveiði, tjalda þar með sínum heittelskaða og veiða á undirfötunum einum fata.
....ná sér í vatn í næsta læk og hita sér kaffi á gamla mátann.
....skröltast á fjallajeppanum um nýja slóða inni á miðju hálendi, pissa á bak við stóran stein og horfa um leið á smyril kæla sig í fjallalæk.
....sofa í tjaldi í smá úðarigningu og finna bara lyktina af blóðberginu sem vex allt um kring.
....veiða um miðja sumarnótt. Kyrrðin er engu lík...

Var þetta ekki alveg hrikalega væmið? Mér er sama...þetta gerði ég í sumarfríinu mínu og er alveg endurnærð. og nú fer að líða að því sem kemur næst á "uppáhalds"-listanum mínum. Aðalbláberjatíminn mikli! Mér skilst að berjalönd séu alveg að verða tilbúin og sumstaðar er alveg hægt að tína ber. Namminamm...
..
Fríið búið...í bili...

...hversdagsleikinn tekinn við. Og bloggið. Það hefur heldur betur verið vanrækt í sumar enda á maður ekki að vera hangandi við tölvu þegar veðrið er gott úti.
..

Thursday, June 26, 2003

Það er algjör pína...

..að hlusta á útvarpsfréttir þessa dagana. Ríkisútvarpið hefur greinilega ekki fengið góða sumarafleysingamenn....fréttirnar eru sagðar á hikstandi hátt og mismæli allsráðandi. Núna í tvö-fréttum t.d. mismælti fréttaþulurinn sig a.m.k. sex sinnum og hikstaði og gapti í tvö skipti þannig að ég gafst upp og skipti um rás. Get bara ekki hlustað á þetta.
..

Tuesday, June 24, 2003

Ég þoli ekki....

....þegar eitthvað opinbert batterí ráðskast með hluti eins og nöfnfólks. Þetta er forsjárhyggja í sinni alverstu mynd. Ég legg til að þessi mannanafnanefnd verði lögð niður med det samme. Það er engum greiði gerður að leyfa honum Jóni að nefna dóttur sína Zakaríu en nágranninn má ekki nefna sína dóttur Elizu. Oh..þetta fer ógurlega í pirrurnar á mér. Þegar ég hef tjáð mig um þetta við aðra hefur stundum verið sagt við mig: já, en hvað ef foreldrar myndu skíra son sinn Satan? Það er alveg rétt, slíkt nafn myndi valda barni með þessu nafni mikilli kvöl og pínu en það er alls ekki rök fyrir því að hafa mannanafnanefnd starfandi í þeirri mynd sem hún er í dag. Það að nafn taki ekki einhverri háttvirtri og almáttugri eignarfallsendingu sé gild ástæða fyrir því að leyfa fólki ekki að nota það er ein sú mesta fásinna sem ég hef heyrt. Forsjárhyggja og þjóðernisfasismi eru orð sem klingja í kollinum á mér...
..


Friday, June 13, 2003

Ró og friður....

...einkennir húshaldið þessa dagana. Já, ætli hugtakið "leti" eigi ekki einnig við, við erum komin í í 1. gír, ég veit ekki hvort ég eða kettirnir lúra meira. Og að geta dormað úti í sólinni er alveg frábært. Með góða bók. Dejligt...
Góð vinkona mín eignaðist myndardreng núna fyrr í vikunni og ég fékk myndir í gær. Hann er algjör dúlla!! En ég var búin að spá því að þetta yrði stelpa. Ég er alltaf sannspá nema þegar það kemur að æskuvinkonum mínum þremur. Þá klikka ég alltaf! Skil þetta ekki!! :o)
..

Sunday, June 08, 2003

Geisp...

Búin að hafa það ferlega gott, lesa bækur og horfa á myndir sem ég ætlaði að sjá fyrir löngu. Mikið rosalega er Kevin Spacey góður leikari. Horfði m.a. á The Shipping News og skv. bókinni er Quoyle, sögupersónan sem hann leikur, stór og luralegur og þrátt fyrir að hann sé nú ekkert hávaxinn hann Kevin, þá virkar hann stór og luralegur í myndinni. Gengur alveg eins og hann sé að dröslast með a.m.k. 120 kíló.

Annars er það helst í fréttum að ég uppgötvaði mér til mikillar hrellingar að það voru komnar pöddur í fersku kryddjurtirnar mínar... *sniff* Ég er alveg ógurlega svekkt yfir því en mun ekki láta bugast og ætla að þvo pottana og planta upp á nýtt. Eldaði nefnilega spagetti Bolognese og það var bara næstum því vont - það vantað alveg bragðið af fersku basilikunni. Ógurlegt svekkelsi....

Thursday, June 05, 2003

Stundum...

...get ég verið svakalega pirruð út í sjálfa mig. Sérstaklega þegar ég hef ýtt einhverju máli á undan mér og svo þegar ég sest niður og fer loksins í það þá tekur það rétt hálftíma. Af hverju var ég ekki löngu búin að þessu??? Setti algjört met...úrskurðaði á nó tæm leiðindamál sem ég hef ekki megnað að fara í í marga daga..vikur..mánuði..eh... Alltaf virtist eitthvað annað koma upp á sem lá meira á. Og nú dauðskammast ég mín....
..
Ég er á leiðinni í frí...

...og þá er svo týpískt að það verði allt vitlaust að gera í vinnunni þannig að ég næ ekkert að klára öll þau mál sem ég ætlaði að klára. Demmit. Jæja, hvað um það - ég hlakka mikið til að liggja með tærnar upp í loft í hálfan mánuð. Vonandi helst veðrið gott líka þannig að ég komist í sólbað af og til.
..

Wednesday, June 04, 2003

Allt er nú til....

Nýjasta nýtt í henni Ameríku.... Ekki það...ég hef nú séð suma ónefnda ketti eltast við ýmislegt sem þeir sjá á sjónvarpsskjánum, s.s. skíðamenn, fótbolta og billjardkúlur. Fyndnast er þegar þeir hlaupa á bakvið sjónvarpið...tékka á því hvort áhugaverði hluturinn hafi skoppað þangað...
..

Tuesday, June 03, 2003

Ánægjulegustu fréttir dagsins...

...eru fréttirnar af upprisu bloggara dauðans. Fróðlegt að sjá að hann og bróðir hans voru einlægir aðdáendur þýska lagsins í Eurovision árið 1979. Þetta lag var í kósakkastíl og vakti mikla aðdáun okkar systra á sínum tíma. Það var sungið með miklum þrótti og tilheyrandi dansi heima hjá okkur í stofunni á þessum tíma enda bjuggum við í Þýskalandi þá og héldum því auðvitað með því lagi í keppninni sjálfri. Vonbrigðin urðu mikil þegar það lenti svo bara í fjórða sæti. Mig minnir að ég hafi næstum því grátið mig í svefn það kvöld....
..

Saturday, May 31, 2003

Þetta er skemmtilegt próf....

Switzerland
Switzerland -
A neutral power for as long as most can remember,
it has avoided war for several centuries.
However, it is still considered highly advanced
and a global power.


Positives:

Judicial.

Neutrality.

World-Renouned.

Powerful without Force.

Makes Excellent Watches, Etc.


Negatives:

Target of Ridicule.

Constant Struggle to Avoid Conflict.

Target of Criminal Bank Accounts.



Which Country of the World are You?
brought to you by Quizilla


Þeir gleymdu samt einu......þeir búa til svo fjandi gott súkkulaði þarna í Sviss!
..

Friday, May 30, 2003

Nenni ekki að skrifa meira...

....fyrr en þið druslist til að kommenta í kommentakerfið hjá mér. Ég púlaði við að koma því upp fyrir ykkur, og svo notið þið það ekki. Það er ekki upp á punt!
Iss..
Sumarkvöld eins og í gær...

...eru alveg frábær. Ég ætlaði aldrei að geta hætt að stússast í kvöldsólinni í gær. Við vorum að ganga frá bílskúrnum, nýja fína gólfið þar er æði, svo plöntuðum við stóru fínu 3 m háru birkitréi í garðinum og þegar inn var komið gat ég ekki hætt....fór að þvo þvott og taka til. Svo settumst við hjónin niður og fengum okkur te og spjölluðum í rólegheitunum. Manni langaði alls ekki upp í rúm á meðan sólin skein svona glaðlega úti. Var þvi svolítið þreytt í morgun en samt ánægð, svona notaleg sumarkvöld eru alveg meiriháttar.
..

Thursday, May 29, 2003

Það er náttúrulega bilun....

...að vera að vinna á svona góðum degi, en hér er ég nú samt. Verð nú ekki lengi, eitthvað framyfir hádegið. Vonandi verður gott veður þá líka!
Var á bjórkvöldi hjá ferðaklúbbnum 4x4 í gær. Við Beggi fengum hjónaverðlaun fyrir mikið afrek....að hafa kafað á Troopernum með glæsibrag. Fengum svona kafaragleraugu í verðlaun ásamt viðurkenningarskjali. Okkur var vinsamlegast bent á að hafa þennan kafaraútbúnað framvegis við hendina í bílnum, svona til vonar og vara...
..

Wednesday, May 28, 2003

Er mætt í vinnu á ný...

...enda enginn hiti í mér lengur og þrátt fyrir beinverki hef ég enga afsökun til að hanga heima. En...sem betur fer er frí á morgun!! Þarf samt að mæta í vinnuna, en ætla nú að sofa aðeins lengur. Var að skipuleggja að fara í smá frí í júní, í 1/2 mánuð...hlakka ekkert smá mikið til. Vonandi fáum við skaplegt veður hjónin. Frekari frí hefur ekki verið ákveðið, hugurinn stefnir út fyrir landsteinana í ágúst, seinnipartinn, en hvort af því verður og þá hvert, það kemur í ljós. Skandinavía (Danmörk eða Svíþjóð...troðast inná vinkonur mínar þar, hehehe) eða Portúgal eru "heitir" staðir!

Komst að einu þegar ég lá heima í gærmorgun....mikið sakna ég morgunútvarpsins á Rás 2. Þetta er ekki nærri því eins áhugavert og það var. Reyndar fínt fram til hálfátta en þá verður útvarpið ógurlega boring. Ég vil hafa tónlist og viðtöl í bland. Og er ég þó fréttafíkill...en það var fátt notalegra en að vakna með þeim þarna í morgunútvarpinu, fá fréttaefni matreitt oní mig með léttu yfirbragði. Svo voru þau með svo fjandi góðan tónlistarsmekk. Æ, ég er kannski óttaleg nöldurkerling núna...best að hætta þessu. Skv. einhverri könnun í Birtu, er lífstalan mín 4...og skv. því nöldra ég of mikið....
..

Tuesday, May 27, 2003

Þriðjudagur....

...lá í rúminu megnið af deginum. Var að reyna að ná úr mér einhverri leiðinda beinverkjapest og hitavellu sem hefur verið að angra mig síðan á sunnudag. Tók því rólega í dag, en var svo orðin aðframkomin af aðgerðarleysi um fimmleytið að ég fór að taka til í fataherberginu. Þrír stórir ruslapokar eru sem sagt á leiðinni út í Sorpu. Veiiii! Fullt af plássi á ný! Get keypt meira af fötum og skóm!! En núna er orkan alveg búin. Best að skríða upp í og horfa á Boston Public...zzzzzzzz
..

Monday, May 26, 2003

Það er helst í fréttum...

...að húsmóðir á Álftanesinu vaknaði illa bitin af starrafló. Persneskur köttur í eigu frúarinnar liggur helst undir grun, en hann slapp út í gærdag þegar húsmóðirin var að planta sumarblómum og hljóp einn rúnt í kringum húsið. Kötturinn er ekki með flóahálsmen, eins og aðrir ferfætlingar á heimilinu, en starraflær hafa verið að gera heimilisfólkinu lífið leitt í vor enda er hreiður (jafnvel í ft) í næsta húsi hjá fólki sem virðist vera alveg sama. Þess ber að geta að í þetta sinn eru bitin á frekar pirrandi stað...hálsi og bringu. Fjandans nágrannaf..... *ggaaaarrrrggg*

Saturday, May 24, 2003

Eurovisiondagurinn mikli....

...keppnin í kvöld og Logi og Gísli alveg að fara á límingunum í Riga. Alveg frábært að fylgjast með þeim og fá svona innsýn í þetta. Við Beggi ætlum að horfa á keppnina með systur minni og familíu, þriðja systirin sér þetta vonandi á netinu heiman frá sér í Flórída. Við ætlum að grilla og borða fleira gott (ætla að búa til Tex Mex ídýfu - namminamm! Þeir sem vilja uppskriftina geta sent mér póst). Fyrst þarf ég reyndar að kíkja við í einni útskriftarveislu. Alveg nóg að gera í dag, er að vinna núna og ætla síðan héðan beint á garðplöntumarkaðinn sem kvenfélagið í sveitinni ætlar að hafa í dag. Beggi er að keyra Breta um Suðurlandið, vonandi nær hann í bæinn tímanlega.

Gærdagurinn var svo bissí vegna fundahalda að ég komst ekkert í tölvu, skreið svo heim með hausverk frá Helvíti og lá eins og skata í allt gærkvöld. Missti af myndasýningarkvöldi hjá stelpunum sem hafa farið í kvennaferð á vegum ferðaklúbbsins 4x4. Ferlega svekkjandi, en svona er þetta bara stundum.

Æ, já. Verð víst að linka yfir á þessa heimasíðuómynd, þetta eru ferðafélagar, ef félaga skyldi kalla, úr jeppamennskunni. Kolbrjálaðir vitleysingar sem kalla sig Rottugengið. Eru svo bara með skítkast út í okkur vinina, sem eru náttlega miklu skemmtilegri, flottari, betri og á margfalt betri bílum...en maður á að vera góður við þá sem minna mega sín. Þess vegna erum við í flugsveitinni góð við þessi rottugrey. Lífið er ekki dans á rósum í ræsinu...
..

Wednesday, May 21, 2003

Ef þið farið í bíó...

...og sýnt verður úr nýju Fast & Furious-myndinni, takið þá vel eftir laginu sem spilað er undir....það er Stick'em up með Quarashi! Kemur virkilega vel út. Þið getið skoðað trailerinn hér.
Þegar við vorum á Miami í desember sl. var verið að taka upp þessa mynd þarna. Þetta lið var svolítið að flækjast fyrir okkur því ég og systir mín höfðum planað alveg allsvakalega verslunarferð í alveg geðveikt "outlet", Sawgrass Mills minnir mig að það hafi heitið. Þið vitið...Prada og Nine West og Gucci o.s.frv....öll merkin á góðu verði í risarisarisastóru molli! En við þurftum að keyra nokkuð langt og vorum búin að finna hvaða hraðbrautir við þurftum að keyra eftir...en svo var bara allt lokað vesgú. Verið að taka upp þessa fjandans mynd út um allt og alls staðar...og ekki bara þennan dag, heldur í einhverjar vikur var verið að loka hinum og þessum hraðbrautum...svona aðalleiðum fyrir fólk í Miami til að sækja vinnu t.d. í fjármálahverfið o.fl. o.fl. Margir Miami-búar voru dolítið fúlir yfir þessu. Við systurnar náðum þó á endastað eftir einhverjum krókaleiðum, vorum með góðan bílstjóra sem hefði svo sem alveg verið til í að leika sér við að taka upp þessa mynd, ef ég þekki hann rétt....
..
Já, það var þetta með Survivor...

...keppnina vann 21 árs sundfatafyrirsæta. Sem vældi og skældi yfir því hvað hún ætti bágt. Hversu slöpp hún væri. Hversu erfitt það væri að vera svona fallegur, það jafnaðist á við fötlun. Einmitt það já. Þessi hæfileikaríka og þroskaða kona *hóst* vann sem sagt alla hina. Ég veit ekki hvort það segir meira um hana eða þessa þrjá karla sem hún keppti við þarna í lokin.....
..

Tuesday, May 20, 2003

Í mér blundar pínulítill Eurovision-aðdáandi...

...um þetta leyti breytist ég í svona hálfgerðan nörd og fer að skoða erlendar heimasíður sem tengjast þessu árvissa áhugamáli mínu. Mæli t.d. með þessari síðu og svo var ég að rekast á íslensku síðuna en þar er að finna fréttir frá Gísla Marteini og Loga. Þeir virðast skemmta sér vel þarna úti í Riga!!
Annars er þessi áhugi minn ekkert nýr af nálinni, níu ára gömul fylgdist ég með þessari keppni af miklum áhuga úti í Þýskalandi en Þjóðverjar hafa alltaf verið miklir áhugamenn um þessa keppni - þótt þeim hafi nú ekkert alltaf gengið neitt sérstaklega vel síðan "Ein bisschen Frieden" var og hét.
Það er eitthvað við það að sitja fyrir framan sjónvarpið, saddur og sæll eftir góðan grillmat og í góðum hópi, og gagnrýna hvern einast kjól, söngvara, stór nef og lítil augu, skræka rödd o.s.frv. Hin "bestasta" skemmtun! Svo á hver sitt uppáhald (fyrir utan íslenska framlagið að sjálfsögðu) og venjulega vinnur síðan einhver allt annar keppnina. Það er það besta - þessi keppni er gjörsamlega óútreiknanleg!
..
Bíddu við....

Kominn þriðjudagur? Hrikalega líður tíminn hratt. Mér finnst eins og t.d. síðasta helgi hafi skotist fram hjá mér, án þess að ég tæki eftir því. Samt gerði ég nú ýmislegt, fór í brúðkaup, gróðursetti stjúpur og önnur sumarblóm, fór á The Matrix Reloaded og reyndi að þrífa eitthvað. Nú bíð ég bara spennt eftir næstu helgi. Er vonandi ekki að gera neitt, þannig að hún líði bara svona löturhægt framhjá.

Annars var það upplifum að sjá The Matrix Reloaded. Sólgleraugun hans Keanu/Neo eru enn jafn flott. Latexgellan hún Trinity er enn svaka skvísa. Og tæknibrellurnar eru truflaðar, þær eru svo flottar. Myndin í heildina er bara hin fínasta skemmtun. Og nú bíður maður fram í nóvember eftir næstu mynd.
..

Friday, May 16, 2003

Það er föstudagur...

..í dag og í tilefni dagsins er ég með músík glymjandi í eyrunum. Ég gerði nebblega soldið í gær sem ég varla ætti að segja frá. Fór í BT og keypti mér græju til að geta hlustað á tónlist í tölvunni minni hérna í vinnunni, alveg aðframkomin af þögninni sem kemur í húsið eftir að almennum vinnudegi lýkur. Hef aldrei getað hlustað á útvarpið því að móttökuskilyrðin eru svo slæm að ég heyri ekkert nema suð. Orðin ansi langþreytt á þessu. En nú er allt hægt, m.a. að hlusta á útvarpsstöðvarnar í gegnum netið og vista tónlistardiska til hlustunar í tölvunni. Þannig að ég fór sem sagt í BT...og keypti mér m.a. nýjan disk. Já..ehemmm...með..*hóst, ræskj* ..hinum eina sanna..eh.. *roðn* Justin Timberlake. Ég alveg læddist með diskinn að kassanum og svo út úr búðinni. Tek það fram að til skamms tíma þoldi ég ekki þennan vælukjóa og hvað þá vælukjóamjaðmahnykkjagengið N'sync. En lögin sem hafa verið spiluð með honum að undanförnu eru bara asskoti góð og ég skellti mér bara á Justin...þ.e. diskinn. :o) Og restin er bara nokkuð góð. En mér finnst hann samt ennþá ljótur og hallærislegur. Þetta var sem sagt játning dagsins, í boði BT.
..

Thursday, May 15, 2003

Ég er með munnræpu í dag...

...allavega miðað við aðra daga...en ég rakst af tilviljun á eina mynd sem ég verð að deila með ykkur. Lýsir í hnotskurn ástæðunni fyrir þessum jeppaáhuga mínum (sem hefur rekið mig í stjórn Ferðaklúbbsins 4x4....ekki spyrja mig af hverju...). En, að vera á fjöllum, í fallegu veðri og þeysa eftir jökli, sjá púðursnjóinn mokast yfir bílinn og ná næstum því að svífa....alveg toppurinn á tilverunni. En svo getur það líka farið illa og þá vill maður ekki heyra af því einu sinni að fara aftur á fjöll. Allavega ekki næstu fimm mínúturnar eða svo.... En í mér blundar alltaf þráin að komast á fjöll. Já, eða fá tækifærið til að keyra Formúlu 1 bíl, sitja í einni Blue Angels sýningarherþotu, keppa í rallýi eða eignast mótorhjól. Það er nebblega margt sem mig langar í....
..
Ég sigldi um sundin blá...

...í fyrradag. Alveg meiriháttar skemmtilegt. Bara ég og bóndinn á smábát, hálfgerðum sportbát (samt ekki "spíttara"). Ég játa að fyrst til að byrja með var ég ekkert örugg, vissi það að það eru ár og aldir síðan að Beggi hafði siglt síðast...fyrir mína tíð, sem er ansi langt síðan! Hann mátti varla gefa í án þess að ég emjaði eitthvað og vældi. En svo rjátlaðist það af mér. Prufuðum að veiða en ekkert gekk en það var samt gaman. Alveg frábært að sjá Hafnarfjörð og Álftanesið frá öðru sjónarhorni! Við eigum örugglega eftir að gera þetta oftar, sé alveg fyrir mér svona siglingu í kvöldsólinni á lygnum sjó.... :o)
..

Hjónaband...
Ég verð nú að óska forseta vorum og eiginkonu til hamingju, þetta voru ánægjuleg tíðindi að þau skyldu hafa gengið í hjónaband í gærkveldi þarna hjá mér í sveitinni. Ætli þjóðin varpi ekki öndinni léttar, allt orðið eins og á að vera þarna útfrá. Nú þarf fólk ekki að velta sér upp úr þessum málum lengur...... Mér skilst að sumir hafa varla sofið af áhyggjum yfir þessu. Ein fullorðin kona fyrir vestan sagði að það yrði nú agalegt ef forsetinn myndi nú kvænast þessum "útlendingi", eins og hún orðaði það. En nú er það búið og gert og það hlýtur að ríkja mikil hamingja á Bessastöðum í dag. Fordómar í öðru fólki koma þessu máli ekkert við og eru vonandi ekki að trufla nýgiftu hjónin! Einn kunningi minn, sem er nýlega sextugur, sagði að þetta væri nú ótrúleg heppni í "karlinum, að ná sér í svona bráðhuggulega konu...kominn á þennan aldur!!".
..
Glæsilegt...

...samstarfskona mín á afmæli í dag og kom með köku til að gleðja okkur hin. Svona á þetta að vera.....
..

Monday, May 12, 2003

Það er kominn mánudagur á ný....

....kosningarnar yfirstaðnar og lífið að færast aftur í sitt fyrra horf. Hvað varðar úrslitin þá vil ég bara segja þetta.....enginn sjálfstæðismaður hefur enn hitt naglann á höfuðið í útskýringum sínum á því af hverju þeir töpuðu svona miklu fylgi. Málið er nefnilega að margir fyrrum kjósendur flokksins söknuðu ákveðinna atriða í málflutningi frambjóðendanna sem lúta að samúð og samkennd með samborgurum sínum. Það eru ekki allir Íslendingar velstæðir bissnessmenn í fjármálaheiminum. Flokkurinn gleymdi þeim kjósendum sínum sem eru með rétt tæp meðallaun og þurfa að leggja út marga þúsundkallana í heilbrigðisþjónustu. Hann gleymdi líka eldri borgurum og öryrkjum. Fjölskyldum með langveik börn og öðrum sem eiga við ýmsa sjúkdóma að stríða. Stefnumörkun á sviði heilbrigðis- og velferðarmála og menntamála var alltof óljós. Því miður. Og flokkurinn virðist ekki geta fjölgað konum í framboði. Ég held að það sé ákveðið viljaleysi þeirra sem stjórna sem ráði því. Ég hlusta ekki á eitthvað kjaftæði um að hæfu konurnar finnist ekki. Þær eru þarna, nokkuð margar, ef vel er að gáð. Ég bind vonir mínar við að þessi flokkur framfara og frelsis hugsi sinn gang og endurskoði afstöðu sína í ýmsum málum. Og muni að það er til fullt af fólki sem þarf á hjálp okkar hinna að halda, ekki af því að það eru aumingjar...langt í frá. Hroki og viljaleysi til að hlusta mun aldrei skila okkur velferðarþjóðfélagi í reynd.

Friday, May 09, 2003

Kosningar....

...á morgun. Þetta verða fróðleg úrslit. Vonandi fer þetta á þann veg eins og ég kýs. Ég get þó ekki sagt að ég hafi fylgst með frambjóðendum í útvarpi eða sjónvarpi nema að litlu leyti. Mér leiðast svona rifrildi. Þetta eru ekki umræður af viti. Alls ekki. Þess vegna er ágætt að skoða vel bæklingana sem berast inn um lúguna. Hefði reyndar mátt vera meira af því - ég vil gjarnan geta setið með stefnu flokkanna í rólegheitum og spáð í þessi kosningaloforð. Skoða frambjóðendur og reyna að mynda mér einhverja skoðun. Átta mig á því hvað ÉG vil og hvaða flokkur virðist ætla að sinna mínum helstu málum best. Það er ekkert svo auðvelt þegar stjórnmálamennirnir tala hver upp í annan. Æ, þá er skemmtilegra að virða fyrir sér margæsina hérna á Álftanesinu. Hún setur svip sinn á túnin hérna, mörg hundruð krúttlegra gæsa að éta á sig gat fyrir næsta hluta ferðalagsins sem endar í Norður-Kanada. Svo sá ég að fleiri hestum hefur verið hleypt á beit hérna á túnin norðanmegin á nesinu. Svo þegar ég kom út í gærmorgun sat feit og sælleg grágæs á flötinni fyrir framan. Og Nebbi kisi sat stjarfur og horfði. Skildi hvorki upp né niður í því hversu stór þessi fugl var, sem vappaði þarna rétt fyrir framan hann. Svo bara kvakaði gæsin, "hnéhné", og tók á loft. Ég hélt að það myndi líða yfir kisa. Hann allavega riðaði til falls..... :o)

Thursday, May 08, 2003

Ég og vinkona mín erum...

...í heilsuátaki saman í vinnunni. Þ.e. við reynum að fara út að ganga í hádeginu og veita hvor annarri andlegan stuðning í þessu átaki. Reyndar ákváðum við þetta fyrir svolitlu síðan....og náðum að fara í einn góðan langan göngutúr í hádeginu en svo bara kólnaði og hefur varla verið hundi út sigandi í hádeginu undanfarnar vikur. En svo ákváðum við að fara áðan, enda farið að hlýna og enginn vindur, sem sagt kjörið gönguveður. Það er skemmst frá því að segja að við lentum í þvílíku úrhelli. Hröktumst inn í Fjörð og skoðuðum snyrtivörur í apótekinu. Alltaf gaman að skoða svoleiðis. Svo gerðum við aðra tilraun á leiðinni tilbaka og sem betur fer var bara "lítil" rigning, þannig að við gátum tekið á okkur krók. Þetta varð því örlítið lengri göngutúr en við áttum von á þarna í hellidembunni.
..

Wednesday, May 07, 2003

Búin í prófinu!

En þetta var nú óttalega stutt eitthvað. Tveir tímar er ekki neitt neitt. Maður er rétt sestur þegar yfirsetukonan kallar að hálftími sé eftir. Hvað um það, ég veit ekkert hvernig mér gekk með þessar þýsku þýðingar. Fyrir prófið var ég ekkert stressuð en þegar ég hafði staðið fyrir framan stofuna, sem prófið átti að vera í, í rúmt kortér þá var ég að fara á límingunum. Hinir þýskunemarnir voru þarna, hálfgrænir af prófstressi. Þá rifjaðist upp fyrir mér hvernig manni líður venjulega fyrir próf. Ég pompaði því úr mínum þægilega fílabeinsturni niður í einhvern stresspoll og var orðin samlit hinum þegar prófið hófst. Í lagadeildinni á sínum tíma hvorki svaf ég né gat borðað fyrir próf. Var gjörsamlega búin á því á síðustu dögum próftímabilsins. Enda var þá lesið allt kennsluefni ársins fyrir vorpróf. Engin miðsvetrarpróf þá. Bara allur pakkinn í lokin....6 próf þegar verst lét. Úff....fæ alveg hroll við tilhugsunina. En hvað er ég að velta mér upp úr þessu núna? Mín bíður vinna....trilljón úrskurðir og álit og verkefni og beiðnir og...og..
..
Nú er ég fokill....

...las það með morgunkaffinu að einhverjir fávitar hefðu skotið á læðu, sem reyndist vera kettlingafull. Og þetta gerðist inni í miðju íbúðahverfi á Akureyri. Er ekki allt í lagi með fólk?? Hvurslags virðingarleysi er þetta fyrir málleysingjum?? Það væri nær að skjóta í rassgatið á svona fíflum. Vonandi hefur viðkomandi skotið sjálfan sig í fótinn í leiðinni. Ég vil bara minna ykkur, sem eigið börn, að rækta með þeim virðingu fyrir umhverfi sínu og dýrum. Ef þið eruð góð við dýr þá sýnir það ykkar innri mann. Þeir sem gera svona hluti, að nota kisu sem skotmark, hafa lært það einhvers staðar að gæludýr skipta engu máli. Hafa heyrt foreldra sína eða aðra tala af lítilsvirðingu um hunda eða ketti eða hvað sem það hefur verið. Þessi fífl hafa því í hamaganginum gleymt fólkinu og börnunum sem þykir vænt um viðkomandi gæludýr. Hún var heppin þessi litla læða að lifa þetta af. Kettlingarnir hennar gerðu það ekki hins vegar.
Það er ekki gott að byrja daginn á því að vilja berja vit í einhverja hálfvita, blóðþrýstingurinn hækkar um of. En ég er að róast, verð vonandi orðin góð um hádegið áður en ég fer í þýskuprófið.
..

Tuesday, May 06, 2003

*sniff*

...ég vil fara til Miami. Í júlí. Í þrjár vikur. :o(
..
Svefn...

...er mitt uppáhald þessa dagana. Sérstaklega eftir 5 svefnlausar nætur í röð. Enda tók ég til minna ráða í gær og í gærkveldi. Það virkaði...ég sofnaði á endanum og svaf að mestu án truflunar í alla nótt. Þvílík sæla. En svona svefntruflanir eru líklega merki um ört hækkandi aldur minn. Stundum þrái ég að geta sofið eins og í "gamla daga". Þá gat ég sofnað standandi ef ég vildi.

Annars skil ég ekkert í veðrinu þessa daga. Það snjóaði á mig í morgun á leiðinni í vinnuna. Rugl í þessu veðri! Draumar mínir um letilíf á sólarströnd verða ákafari í svona leiðindaveðri. Eins gott að það fari að rætast úr því, annars set ég mig á hausinn síðsumars.

..

Monday, May 05, 2003

Ég samdi langan pistil í huganum...

...í gær um ferð mína í Hagkaup í Smáralindinni. Man svo í dag fæst af því sem ég var að pirra mig yfir. En...látum á það reyna hvort það rifjast upp fyrir mér. Fór þangað frekar föl og illa útlítandi til að versla í matinn, enda ein heima og gat ekki sent neinn annan. Ég bara vonaði að ég rækist á engan sem þekkti mig, enda vill maður ekki hitta neinn þegar maður er veikur og slappur, með bauga og syndandi augu. En....allavega...þá var ég ógurlega lengi að versla því ég bara fann ekki neitt af því sem mig vantaði. Þvældist þarna um gangana, fram og aftur, leitandi að hinu og þessu, þó aðallega sítrónusafa. Af hverju eru ekki samræmdar reglur á milli búða hvar þessi fja... sítrónusafi er geymdur? Sums staðar er hann á grænmetistorgum en annars staðar hjá svona ýmis konar kryddlögum og sósum og enn annars staðar, m.a. í Hagkaup í Smáralind, var hann lengst inni í horni hjá ávaxtasöfunum. Auðvitað. Að ég skyldi ekki fatta það fyrr. Lá í augum uppi þegar ég loks fann þetta eftir langa leit. En þetta fór rosalega í taugarnar á mér. Enda fer það alltaf í taugarnar á mér þegar ég þarf að versla annars staðar í matinn en í Fjarðarkaupum. Maður er svo vanafastur. Er stundum frekar eins og níræð kona í svona málum.
..

Sunday, May 04, 2003

Bjart, en kalt...

...Vetur konungur ætlar greinilega að sleppa tökunum á okkur hægt, mikið djö... er kalt úti. enda hef ég ekkert samviskubit yfir því að hanga inni í þessu bjarta og fallega veðri. Því ég er að hreinskrifa þýðingar yfir á þýsku. Á meðan sólar bóndinn sig á Mýrdalsjökli með þrjá þunna Breta í bílnum. Ég hugga mig við það að ég get þó horft á formúluna...sem nota bene er að fara að byrja. Auf Wiedersehen!
..

Saturday, May 03, 2003

Vorslappleiki..

...var ferlega slöpp í gær, fór þó á fund í Reykjavík og notaði tækifærið og hitti vinkonur mínar í hádeginu áður en ég fór aftur "út á land". Það var ansi gott að komast heim og undir sæng. Og slappleikinn er alls ráðandi enn og ég treysti mér ekki í ferð sem farin var á vegum vinnunnar í dag. Svona veikindaleiðindi eru ekki skemmtileg. Reyndar er skítkalt úti en ógurlega fallegt veður en ég held ég haldi mig við þýskubækurnar í dag.

p.s. Kuldakastið fór alveg með fallegu páskaliljurnar minar og runnana. Laufblöðin á blátoppunum eru hálfvisnuð. *sniff*

..

Wednesday, April 30, 2003

Hmmmm....

...skrítið veður. Það var slydda og snjókoma hérna áðan. Og spáð næturfrosti. Ég er uggandi yfir plöntunum mínum, löngu komin lauf á blátoppinn, páskaliljurnar í fullum blóma og ég nýbúin að planta furum og lerki. Vonandi verður ekki næturfrost í margar nætur...
..
Mig dreymdi...

..bara þýskupróf í nótt. Líklega samviskan að minna á sig, enda prófið í næstu viku. Þannig að næstu daga verð ég að æfa mig í að skrifa þýskustíla og renna yfir málfræðireglur. En draumurinn í nótt gekk út á það að ég gleymdi því að það væri próf og mundi allt í einu, þegar 15 mín. voru eftir af prófinu að ég ætti að vera að þreyta þetta ágæta próf. Úff, vond tilfinning. Það er nú lítið hægt að læra undir próf þegar maður er á fullu í vinnunni - nema að kíkja frekar á þýskar vefsíður í stað Moggans.
..

Tuesday, April 29, 2003

Ég er auli...

...í annað sinn á þessu ári gleymdi ég að góð vinkona mín ætti afmæli. Ég ætti bara að leggja sjálfa mig inn á spítala med det samme! Ég skammast mín svo......og er um leið uggandi yfir þessu minni mínu. Þetta er ekki alveg normalt!
...

Monday, April 28, 2003

Grænir fingur?

...ónei, eftir helgina eru þeir nú frekar moldarbrúnir!! Við fengum tvö vörubílahlöss af mold í garðinn hjá okkur á laugardaginn og á sunnudagsmorgni var hrúgan enn á sínum stað. Hafði ekkert hreyfst og því neyddumst við að fara út og moka eitthvað. Þar sem við áttum von á nánustu fjölskyldu minni í mat þá gat ég nú reyndar laumað mér inn og sinnt heimilisstörfum, þurfti ekki að vera úti í kuldanum. Að öðru leyti var helgin nú ósköp ljúf. Við sváfum út báða dagana og slöppuðum af. Á laugardagskvöldið fórum við út að borða með systrum mínum, á Pasta Basta, alveg ágætis matur þarna. Og í gær fékk ég að klípa litlu frænku alveg í tætlur....enda eru hún og mamma hennar að fara aftur heim til Ameríku í dag. *sniff* Mikið á ég nú eftir að sakna þeirra, hefði helst viljað hafa þær áfram langt fram eftir sumri. Sú litla er greinilega orðin vel vön því að vera knúsuð og kysst í bak og fyrir, henni líkar það bara vel enda búið að vera stíft knúsprógram í gangi þessar þrjár vikur sem þær mæðgur hafa dvalið hérna. Flórídaferð er aftur komin á dagskrá hjá okkur Álftnesingum. Ekki spurning um hvort...heldur hvenær!
..

Friday, April 25, 2003

Sumarfrí

Ég hef verið að raða saman sumarfríum starfsmanna minna í morgun. Það er ákveðinn lúxus að geta valið sér tímasetningu á sumarfríi en því fylgir samt einn ókostur...ég bara veit alls ekki hvenær ég á sjálf að taka mér sumarfrí......endar oft þannig að allir fara í frí og ég sit eftir. Hmmm...þarf að spá aðeins betur í þetta...
..
Málfarsblogg

Ég rakst á skemmtilegt blogg í morgun, mæli með því að það sé lesið reglulega. Sem sagt...hollt blogg!
..

Wednesday, April 23, 2003

Kosningar!

Ég fékk um daginn senda þessa skemmtilegu slóð
þar sem ég tók próf sem á að sýna hvar ég stend svona pólitískt séð - miðað við stefnumál flokkanna núna fyrir kosningar. Niðurstaðan var ansi áhugaverð......
..
Sumarið handan við hornið??

Þetta hafa verið ljúfir dagar undanfarið. Vorið komið fyrir alvöru, allir farfuglar komnir á sinn stað í sveitinni - nema kannski krían en hún er á leiðinni, sólin skín og allt að komast í blóma. Vorið er minn uppáhaldstími og páskarnir eiga sinn þátt í því. Ekki sama stress og fylgir jólunum, heldur eru páskarnir miklu afslappaðri og maður nýtur frídaganna betur. Við vorum reyndar á ferðalagi skírdag, föstudaginn langa og laugardag, en renndum í hlað heima uppúr miðnætti á laugardagskveldi. Ferðalagið vestur á Firði var alveg frábært, Drangajökull er alveg frábær jökull og þaðan er eitt skemmtilegasta útsýnið af íslenskum jöklum sem ég hef kynnst. Það var erfitt að komast að honum, leiðin liggur upp úr Unaðsdal á Snæfjallaströndinni....ógurlega stórgrýtt og erfitt, sérstaklega þegar það er svona lítill snjór. Þá er ekkert hægt að fara út fyrir slóða því það skemmir gróður. En við sem sagt fórum þangað á föstudeginum, í ágætisveðri þótt sunnan Djúpsins hafi verið mjög dimmt yfir. Sólin skein á köflum á okkur og útsýnið norður, þ.e. á nyrðri Strandirnar var alveg geggjað. Að fólk skuli hafa búið þarna og notað jökulinn sem samgönguleið yfir í Djúp...ótrúlegt. Á leiðinni vestur daginn áður fengum við líka frábært veður þegar við fórum Þorskafjarðarheiðina. Hún er reyndar ekki enn opin fólksbílum, enda allt á kafi í snjó ....og krapa á köflum. Við komumst þó yfir en urðum að teyma með okkur nokkra smájeppa sem héldu að þeir kæmust þarna yfir. Þetta fólk var ekki með okkur í för en hefur örugglega verið dauðfegið þegar við komum að þeim, föstum í skafli og vægast sagt illa útbúin fyrir svona ferðalag. Þessir bílar voru hengdir aftan í stærri jeppa og svo var baslast með þá yfir heiðina. En sólin skein glatt þannig að þetta var ekkert svo slæmt....bara meira fjör eins og einn ferðafélaginn okkar sagði! á laugardeginum kíktum við upp fyrir Sængufossvirkjun, sem er innst í Húsadal við Mjóafjörð. Ætluðum að reyna að komast að Glámu og þaðan inn á Skálmardalsheiði. Það gekk ekki eftir vegna snjóleysis og gífurlegrar bleytu en sólin skein nú samt sem áður á okkur og einn ferðafélaginn pompaði ofan í læk sem leyndist undir snjónum þannig að það var svo sem alveg nóg við að vera! Við lögðum síðan af stað heim rétt fyrir sex á laugardeginum og skildum restina af félögunum eftir í Reykjanesi við Ísafjörð en við ætluðum að vera mætt í páskaboð daginn eftir í bænum og fórum því degi fyrr heim. En Snjófusi fannst greinilega ekki hafa verið nógu mikið "fútt" í ferðinni og ákvað því að blása aðeins lífi í þetta allt saman. Þegar við vorum í rólegheitunum að dóla okkur upp Steingrímsfjarðarheiðina, á vel upphækkuðum vegi og með bláa krapapytti báðum megin við veginn, heyrðist allt í einu sérkennilegt hljóð og áður en ég vissi af hallaðist bíllinn vel til hægri og við hentumst út af veginum. Ég held ég hafi öskrað af hræðslu en er ekki viss. Hjartslátturinn yfirgnæfði öll hljóð sem ég heyrði. Við sátum fyrst sem frosin en klöngruðumst svo út...öll alveg heil og óbrotin. Bíllinn hafði lent pent á kafi í skafli, örfáa metra fyrir ofan risakrapapytt. Skýringin var sú að það hafði hvellsprungið hægra framdekkið.....gatið á stærð við fótbolta. Þegar svona gerist á upphækkuðum bíl, þá gerist það snöggt og engin leið að stýra honum, hann hallast svo niður að framan. En ég er alveg á því að þarna hafi snarræði Begga bjargað okkur, því við hefðum hæglega getað lent á hlið eða á hvolfi. Brattinn þarna niður af veginum er töluverður. Og í hjólförunum voru steinar á stærð við Hálfsterkan og Fullsterkan eða hvað sem þeir nú heita þarna í Dritvík. Og þarna vorum við...ein á ferð og ekki með NMT síma í lagi...hann drukknaði þarna um daginn.... En þetta bjargaðist allt saman, jeppi sem kom aðvífandi var með síma og við hringdum í ferðafélagana sem voru að gera kvöldmatinn sinn kláran. Þeir komu fljótt, skiptu um dekk (það var eitt aukadekk með í för, meira að segja á felgu - takk Kjartan!) og við héldum áfram á rammskökkum bílnum yfir heiðina. Stýrið var skakkt og bíllinn gekk alveg til. Það var óþægileg lífsreynsla. En á Hólmavík hjólastillti Beggi bílinn ásamt einum sem hafði slegist með í för úr ferðahópnum, var á leið á Sauðárkrók (Takk Danni!!), og eftir það gekk þetta betur. En sem sagt, okkur vantar eitt Groundhog 38" dekk, lítið notað, ef einhver veit um slíkt! Bíllinn þarf að fara í hjólastillingu á ný, rétta þarf felguna sem er rammskökk og okkur vantar líka nýjan síma! En ég er eiginlega komin með nóg...í bili. Minn óhappa- og tjónakvóti er búinn! En ég verð samt að viðurkenna...að undanfarið í öllum þessum óhöppum, þá höfum við samt verið heppin. Þetta hefði allt getað farið miklu, miklu verr - í öll skiptin.... En gerði það ekki. Okkar verndarengill hefur heldur betur verið að vinna yfirvinnu undanfarið......
..

Wednesday, April 16, 2003

"24"....

....er ein sú allsvakalegasta þáttaröð sem ég hef komist í. Systir mín keypti fyrir mig alla fyrstu seríuna á dvd úti og við hjónin erum orðnir fíklar. Horfðum á 5 þætti í röð um helgina. Og þrjá í gær. Þættirnir eru látnir gerast á rauntíma og hver þáttur spannar eina klukkustund og í heildina því einn sólarhring. Byrjar á miðnætti.....við horfðum í gærkveldi á þáttinn sem gerist milli ellefu og tólf á hádegi....eftir að Beggi kom heim seint og síðar meir. Urðum að horfa á einn þátt áður en við fórum að sofa. Er þetta eðlilegt?? Og til að toppa þetta allt þá erum við með tölvu í jeppanum.....með dvd-drifi........ *hóst* Sem sagt ef að við lendum í vandræðum eða vondum veðrum þá er bara hægt að koma sér vel fyrir með svefnpokann í bílnum og glápa..... eins og eldgömul sápa....
..
Páskafrí!!

...á morgun er komið páskafrí....Jibbííí!! Við hjónin erum hvergi bangin eftir síðustu svaðilfarir og ætlum á fjöll á morgun. Förinni er heitið vestur í Ísafjarðardjúp, á Reykjanes. Þaðan ætlum við að skoða okkur um og fara m.a. á Drangajökul. Heimferð er svo áætluð á laugardaginn. Snjófus er kominn í þokkalegt lag, allur tandurhreinn og fínn og það eina sem er í ólagi er blessaður NMT síminn sem náði sér ekki eftir volkið um daginn. Beggi er að þrífa og bóna bílfákinn í þessum skrifuðum orðum svo hann verði ekki eins og ljóti andarunginn við hliðina á öllum stífbónuðum jeppunum sem verða með okkur í för...

Tuesday, April 15, 2003

Skrítin könnun....



I am the number
2
I am friendly

_

what number are you?

this quiz by orsa



Veit ekki alveg hvernig ég á að taka þessu prófi. Fannst það ekki einu sinni fyndið. Veit því fjandakornið alls ekki af hverju ég set það á síðuna mína.
..
En ég verð nú samt að bæta einu við...

...ég verð að lýsa ýfir ánægju minni með hann Bush karlinn. Því Sýrland hefur alltaf valdið mér svolitlum uggi og ótta. Sýrlendingar eru að bralla eitthvað. Eiga örugglega eitthvað sem ekki má eiga skv. Bush. Því Bush veit upp á hár hvað er heimsbyggðinni fyrir bestu. Því er ég svo glöð með að hann Bush ætli að láta hermennina sína ekkert fara heim eftir Íraksstríðið heldur halda bara áfram að taka til þarna suður frá. Mér líður svo miklu betur yfir því að vita af þessum indælu piltum þarna, athugandi á bakvið sérhvern sandhól og klett hvort ekki leynist alveg stórhættuleg vopn eða eitthvað annað. Svona á þetta að vera, taka almennilega til þarna, allir þessir múslimar hljóta að vera bralla eitthvað illt. Eru ekki allir múslimar vondir? Líka þessi börn..með stóru augun sín. Þau hljóta að vera að búa til vopn eða eitthvað.

.....
Bloggið mitt...

...hefur verið vanrækt undanfarna daga. Hef bara alltof mikið að gera. Er eiginlega komin með upp í kok af því að hafa svona mikið að gera. Þessu má alveg fara að linna. Og gerir það vonandi eftir páska.
..

Friday, April 11, 2003

Veisluhöld....

...í gær gengu bara vel. Ég var ógurlega dugleg í eldhúsinu og kom familíunni á óvart með svaka fínu gúmmelaði sem er ekki síst vinkonum að þakka sem luma á góðum uppskriftum! Aðal"trítið" var svo auðvitað að fá að sjá systur mína og systurdóttur....sem er algjör snúllimús. Mikið var nú gaman að fá að klípa hana aðeins. Sú litla bara brosti og var ógurlega glöð, þrátt fyrir langt ferðalag alla leið frá Ameríku og ókunnugt umhverfi og ókunnug andlit. Ætli ég sleppi þeim mæðgum nokkuð heim aftur....
..

Thursday, April 10, 2003

Ég á ....

...afmæli í dag, ég á afmæli í dag, ég á afmæli í daaaag, ég á afmæli í dag!

...

Wednesday, April 09, 2003

Á morgun....

...verður vonandi góður dagur. Tilhlökkunarefnin eru allavega mörg. Þar ber hæst heimsókn litlu systur frá Flórída ásamt litlu nöfnunnar minnar. Hlakka ekki lítið til að klípa þær og kremja.... Svo ætla ég að vera ógurlega dugleg og gefa bæði samstarfsfólki nammigott í fyrramálið og nánustu ættingjum og vinum nammigott um kvöldið. Fæ að gefa 2 litlum frænkum ógurlega fín föt sem ég keypti í Stokkhólmi, m.a. svona ballerínuföt handa þeirri eldri. Það er nefnilega mikil forréttindi að fá að vera frænka. Við erum með sérleyfi fyrir dekri og eftirlátssemi.
..
Skondið próf....

...enda The Big Lebowski ein sú brjálæðislegasta fyndnasta og skrítnasta mynd sem ég hef séð. Fílaði hana alveg í ræmur.


According to the "Which Big Lebowski character are you?" quiz:




Why don't you check it out? Or we cut of your Johnson!


..

Tuesday, April 08, 2003

Komin heim...

...hversdagsleikinn tekinn við ásamt slagviðri og rigningu. En ég er sko í nýrri sænskri peysu og með "hei" ennþá klingjandi í kollinum! Ferðin var virkilega skemmtileg en ég kem að því síðar. Ég er svolítið á eftir með ferðasögur, á eftir að segja frá kvennaferðinni, krapaferðinni og svo Stokkhólmsferðinni. Það hefur verið nóg að gerast undanfarið....og svo er margt skemmtilegt framundan. Vorin eru alltaf viðburðarík og páskarnir eru minn uppáhaldstími. Allt að vakna til lífsins, litirnir í náttúrunni láta aftur á sér kræla hérna á höfuðborgarsvæðinu og fuglarnir ganga af göflunum úti á Álftanesi. Ég sá t.d. að mávurinn er mættur í móann meðfram Álftanesveginum, nokkuð skýr vorboði! Og sá næsti verða þá lóur á vappi í görðunum og margæsir á beit og hestunum fjölgar á túnunum. Þá er vorið örugglega komið.

Thursday, April 03, 2003

I mora...

...skal jeg til Stockholm! Ég er því að rifja upp norskuna mína því ekki kann ég sænsku.... Eldsnemma í fyrramálið leggjum við vinkonurnar í hann út á flugvöll. Mikið hlakka ég nú til! En á sama tíma er ég strax farin að sakna bóndans. Það kemur ekki oft fyrir að við erum aðskilin. En það er fjörug helgi framundan enda óratími síðan við vinkonurnar höfum gert eitthvað svona mikið saman í langan tíma. Mig grunar að það verði flissað heilmikið um helgina. Gvöð hvað við verðum skemmtilegar....

Friday, March 28, 2003

Og eitt enn....

....BARA VIKA ÞAR TIL ÉG FER TIL STOKKHÓLMS!!!!!!!!

...
Jökulheimar - Grímsfjall

Jæja, ég er á leiðinni á fjöll á ný. Núna með fullt af körlum....svolítið mikið frábrugðið síðustu helgi! Ætli ég verði ekki ein af fáum konum í ferðinni en mun að öllum líkindum sjá að mestu um aksturinn því bóndinn verður á kamerunni, að taka upp efni fyrir vin okkar (við í Flugfélaginu EJS ætlum sko að vinna myndbandasamkeppnina í Ferðaklúbbnum 4x4 í ár!). Mér þykir það ekki slæmt, þótt fyrirséð verði að við lendum í gífurlegum krapa og svoleiðis skemmtilegheitum. Þá er bara að skella sér í vöðlurnar, setja á sig húfu og stökkva út og hengja spott á á króka ef við festumst. Ferðinni er heitið í
Jökulheima sem eru skálar Jöklarannsóknarfélagsins við rætur Vatnajökuls. Vonandi mun viðra vel á morgun svo við getum þvælst eitthvað um Vatnajökulinn og skellt okkur í gufu á Grímsfjalli. Skíðin eru að sjálfsögðu með ásamt gítarnum hans Lúffa (jú og Lúffi líka..of course..), Óskar uppvaskari með meiru verður í fararbroddi í eldhúsinu en Ingvi hrotukóngur er enn úti á Kanarí með hinu gamla fólkinu og verður því af fjallaferð í þetta sinn. Hans ektakvinna komst heldur ekki með í kvennaferðina um síðustu helgi, því miður. En vonandi rignir ekki á okkur, það er eiginlega leiðinlegasta veðrið...stórhríð er eiginlega skárri (þó ég sé ekki að biðja um slíkt veður!). En það er sko ekki verra að fá fínt veður á fjöllum....það er fátt sem slær það út.
..
Föstudagur!!!!

...mikið er ég nú fegin að vikan er senn á enda. Ég hef verið ansi þreytt síðustu daga enda nóg að gera á öllum vígstöðvum. Ég er t.d. að verða gróin hérna við skrifborðsstólinn minn í vinnunni enda vinnudagarnir langir núna. Nema í dag! Þá ætla ég að hætta fyrir fjögur og halda heim og undirbúa mig fyrir ferðina um helgina...segi meira frá því á eftir, er rokin á fund...
..

Thursday, March 27, 2003

8 dagar...

..þar til við vinkonurnar gerum innrás á heimili vinkonu okkar í Stokkhólmi. Nú er ég farin að kíkja á veðrið þar á hverjum degi og vona að það taki svona ljúft vorveður á móti okkur! Það yrði ekki leiðinlegt að fá smá forskot á vorið hérna heima. Því ég vil ekkert fá vorið hingað of fljótt...vil halda snjónum á hálendinu sem lengst!!
..

Wednesday, March 26, 2003

Fínn dagur!

..búið að vera bara ágætt í dag. Nóg að gera, eins og alltaf, en það er alltaf gaman að skipta alveg um gír og fara í þýskutíma upp í háskóla. Fara í allt annað umhverfi, miklu afslappaðra þótt nóg sé að gerast. Þetta akademíska umhverfi á ósköp vel við mig. Einu sinni lofaði ég sjálfri mér að verða eilífðarstúdent en svo sættist ég á það að fara bara aftur í háskóla þegar ég yrði sjötug. En þarna er ég sem sagt mætt á ný og líkar bara vel. Svo er þýskan bara mjög skemmtileg þótt hún sé fjandi erfið. Ég er ekki beint að brillera í þessum stílum....það er af sem áður var þegar maður fékk tíu án þess að lyfta litla putta. *sniff* Svo skiptir engu máli hvort ég puða við stílana alein eða hvort ég fær aðstoð frá Þjóðverjunum hérna í vinnunni við orðaforðann eða frá öðrum þýskusnillingum. Alltaf sama einkunnin.... *búhúú*

Annars eru bara 9 dagar þar til ég fer til Stokkhólms!!!!..
..

Tuesday, March 25, 2003

Það er ekki oft....

...sem ég hitna á eyrnasneplunum af reiði en ég næstum því sprakk áðan. Framan í dónalegan "viðskiptavin" sem var svo leiðinlegur og dónalegur að ég gat næstum því öskrað. Enda sagði ég pent við hann að ég hefði ekkert meira við hann að tala, sem þýddi í raun = komdu þér út! Ég er að hugsa um að fá mér boxhanska lánaða og stilla þeim upp við hliðina á verðlaunabikarnum og medalíunni sem ég vann í síðustu viku í keilukeppni. Þá halda svona menn að ég sé meistari í boxi, ekkert sniðugt að abbast upp á mig.
Mikið djö...er ég reið ennþá..... Veitti ekki af því að boxa eitthvað í alvörunni...
..
Klárar konur...

...stóðu sig vel í ferðinni um sl. helgi. Ég var samt frekar mikið þreytt eftir helgina...það tekur á að jeppast svona! Fengum ágætis veður, með hressilegum skafrenningi og éljagangi inn á milli, lentum í nægum ævintýrum og fengum flestar..ef ekki allar...að prófa spottann. Smá krapi var á leiðinni, nokkrir ágætis púðursnjóspyttir og svo gat ég "sprautað" smá á nokkrum köflum...Snjófusinn stóð sig vel enda hörkujeppi! Nýja læsingin að aftan er þarfaþing, nú vantar mig bara læsingu í hann að framan. Og nú get ég ekki beðið eftir því að komast aftur á fjöll...enda ætla ég að bregða mér á Vatnajökul með bóndanum. Leika mér aðeins meira....
..

Friday, March 21, 2003

Kvennaferð...

...það er komið að valkyrjuferðinni miklu enn á ný. Á morgun ætlum við jeppaskvísurnar að leggja í hálendisferð á okkar ástkæru jeppum. Stefnan er tekin á Hveravelli og er ætlunin að fara yfir Langjökul til að komast þangað, þ.e. ef veður leyfir. Annars verður norðurleiðin valin (um Blöndudal) því Kjalvegur er ófær vegna krapa og aurbleytu. Með mér verða tveir farþegar. Báðar hafa fengið þau fyrirmæli að taka með sér vöðlur, góða tónlist og góða skapið. Og sundbolinn....því heita laugin á Hveravöllum bíður okkar!! En þetta getur allt breyst, fer eftir veðri og vindum....sem virðast ætla að blása hressilega, allavega í dag. En við erum nú svo sem vanar erfiðum ferðum, sú í fyrra var ekkert auðveld. Svona alvöru krapatúr með öllu tilheyrandi....festum, affelgunum, keyrslu langt fram á nótt og erfiðum aðstæðum... Ég vildi nú helst sleppa við svoleiðis aftur!
..