Jæja, þetta virðist ekki há blogginu sjálfu...
...þannig að ég get snúið mér að merkari málum. Sem sé útliti mínu í dag. Er alveg ógurlega fín, með augabrúnir eins og Hollívúddleikkona, og líður þ.a.l. miklu betur. Svo er föstudagur í þokkabót!! Veeiii!!! Svo var bakkelsi með kaffinu í vinnunni, í hollari kantinum, þannig að ástandið er bara gott á bænum. Og rúsínan í pylsuendanum er auðvitað sú að það er útborgunardagur á morgun!!!!
Engin sérstök plön fyrir helgina önnur en þau að fara til vinar míns í klippingu, alveg snillingur þessi drengur, og kíkja til mömmu og pabba. Bóndinn er líklega að fara að keyra einhverja túrista á fjöll á morgun, þannig að ég dingla mér þá bara ein.
..
Friday, February 28, 2003
Voðalega lítur bloggið mitt skringilega út??
..vonandi koma íslensku stafirnir fram þegar ég birti textann, þetta er alveg ógurlega asnalegt eitthvað. Fyrir ykkur sem ekki þekkja til, þá skrifar maður textann í svona "editor" og ýtir á takka og viskann streymir út á vefinn. Það er þessi "editor" sem er svona brenglaður, allir íslensku stafirnir horfnir og komnir einhverjir kassar í staðinn.
Best að sjá hvernig þetta kemur út......

Thursday, February 27, 2003
Baugar....
...eru mín helsta "prýði" þessa dagana. En ég hef í hyggju að berjast gegn þeim. Er á leið í smá upphalningu í dag á snyrtistofu ("litun og plokkun" eins og þær segja...), svo á ég pantað í klippingu á laugardaginn og ætla að fara í tvo til þrjá ljósatíma. Það ætti aðeins að hjálpa til. Ég er nebblega með fyrirlestur í næstu viku og alveg ómögulegt að líta út eins og framliðinn háfur fyrir framan einhverja virðulega embættismenn..... Þannig að slagorðin mín þessa dagana eru: Baugana burt!!

Wednesday, February 26, 2003
Sólarupprásin...
..var ansi falleg í morgun. Slík sjón léttir lund þegar maður er grútmyglaður á leið í vinnuna. Svo flugu gæsir yfir húsið mitt í morgun. Það er merki um betri tíð og blóm í haga....eða svona næstum því! Ég hef ekki heyrt í þeim síðan í haust. En það er hægt að stilla klukkuna sína eftir þeim...alltaf á sama tíma fljúga þær kvakandi yfir húsið. Við erum greinilega í beinni leið frá þeirra næturstað að Bessastaðatúninu. Svo voru svanirnir á tjörninni í morgungöngu. Venjulega liggur leiðin þeirra frá tjörninni að húsi einu í grennd þar sem sett er æti út handa þeim. En núna var sá yngsti, sem er greinilega ekki farinn að heiman, komin langleiðina að gatnamótunum. Kannski verið að fylgjast með morgunumferðinni....já eða haldið að hann væri hundur og elt nágrannann sem var úti að labba með voffa...

Tuesday, February 25, 2003
Tíminn líður hratt....
...á gervihnattaöld.....hraðar sérhvern dag....hraðar sérhvert kvöld...Ertu stundum hugsandi yfir öllum gulu miðunum....
Það er alveg magnað hvað þetta lag getur límt sig fast við heilann á mér. Pálmi bara bergmálar í kollinum á mér, í silfraða jakkanum sínum og satín-pokabuxunum. Allt Gísla Marteini og Loga að kenna. Samt eru liðnir margir dagar frá þessari Júróvisjón-undankeppni. Nei, maður er greinilega ekki alveg í lagi þessa dagana.
Annars hefur sjónvarpið átt hug minn allan undanfarin tvö kvöld. Fyrst sat ég öskuvond og horfði á þáttinn hans Ómars á sunnudagskvöldið, um yfirvofandi umhverfisslys á Austurlandi. Svo sat ég spennt og horfði á Amazon-konurnar nöldra og skammast í Sörvævor í gær. Ég trúi því ekki að þessar kerlingar ætli að tapa niður forskotinu með því að drepa hvor aðra með nöldri og smámunasemi! Annars unnu þær verðlaunakeppnina en töpuðu keppninni um skurðgoðið og þurftu að mæta á ættbálkaþing. En mikið djö... eru þær horaðar!!! Enda er ein þeirra "Swimsuit model". Maður heyrir beinin skrölta þegar hún labbar framhjá vélinni....
...en varðandi þessa helvítis virkjun þarna fyrir austan (já, nú sjáið þið hvað ég er ferlega svekkt yfir þessu) þá hef ég komið þarna oftar en einu sinni. Gengið meðfram fossunum í Sauðá, horft ofan í gljúfrin við Hafrahvamma og Kárahnjúka og baðað mig í heitu uppsprettunum sem eru allt um kring á þessu svæði. Labbaði fram á gæsir í sárum og steig næstum því ofan í hreindýraskít - ég var svo spennt að leita eftir hjörðinni sjálfri! Fór alveg að upptökum Jöklu og að standa þarna á sléttum malarbreiðunum, með hvítan jökulinn yfir sér, steikjandi sólina og ná sér í klaka í gosið...alveg magnað. Ég gat endalaust furðað mig á náttúrufegurð þessa svæðis og prísað mig sæla yfir því að fáir ferðamenn komist þangað...maður fékk að hafa þetta alveg í friði. En svo fórum við hjónin þarna aftur í fyrrasumar. Allt í einu voru komnir þvílíkt góðir malarvegir þarna út um allt - alveg frá Fljótsdalshéraði, upp á heiðina, framhjá Snæfelli og í kringum Kárahnjúka. Vinnuvélar, mælitæki og annað drasl í eigu Landsvirkjunar á víð og dreif. Náttúruperlan Laugarvalladalur, sem liggur samsíða Dimmugljúfrum, var pökkuð af tjöldum og fellihýsum. Heiti lækurinn fullur af fólki og vonlaust að fara í náttúrulega heita sturtu í friði. Litlar mælistikur út um allt sem sýndu hæðina á þessu blessaða Hálslóni. Ég stóð vel fyrir neðan eina þeirra, sem sagt undir "yfirborði" lónsins og sá langt niður eftir jökulsánni og hennar nánasta umhverfi. Ég ætlaði ekki að trúa því hversu stórt þetta yrði. Þetta svæði, sem maður kannaði í 27 stiga hita um árið í sumarfríi sem jafnaðist á við Mallorcaferð og miklu meira en það,........allt á kaf. Og umhverfið á eftir að verða að einni leirdrullu sem mun fjúka hressilega yfir Austfirðingana. Og þetta kalla hinir háu herrar "afturkræfar framkvæmdir". Ekki "umtalsverð umhverfisáhrif". Bara margra ferkílómetra landssvæði lagt í rúst með nokkrum undirskriftum. Það er ekki oft sem minn maður er heitur þegar það kemur að pólitík en hann hótar því að hlekkja sig fastan við einhvern klettinn þarna til að mótmæla þessum framkvæmdum.
Það liggur við að ég óski þess að það gjósi hressilega í Vatnajökli, Brúarjökull brjótist fram og það komi stórt hlaup í Jöklu. Og virkjunarmannvirki leggist í rúst. Það ætti að kenna þessum mönnum með $$$-glampann í augunum að láta öræfin í friði. Og hana nú.
Þið sem hafið ekki hugmynd um hvað ég er að röfla...þið getið skoðað þetta hér.