Tuesday, December 28, 2004

Annar dagur í syfju

Gríðarlega er ég löt í dag. Og syfjuð eitthvað. Fór samt að sofa á skikkanlegum tíma og svaf bara ágætlega.
Það var napurlegt að vakna við þær fréttir í morgun að fleiri tugir þúsunda manna hafi líklega farist í flóðunum í Asíu. Þetta eru að sögn fréttamanna mestu hamfarir sögunnar. Lík að skolast á land út um allt og drepsóttir yfirvofandi. Hörmulegt. Í pistli aftan á Fréttablaðinu í morgun var fólk hvatt til að gefa frekar í söfnunina fyrir bágstadda í Asíu heldur en að spreða peningum í flugelda. Svo sem góð hugmynd enda hvort eð er spáð ömurlegu veðri á Gamlárskvöld. Hins vegar vil ég benda á að íslensku björgunarsveitirnar fá sínar tekjur einmitt í gegnum flugeldasöluna. Þeir eru svo sem ekkert á miklum ríkisspenum og reyndi nú heldur betur á þær yfir jólin fyrir norðan og austan. Það er kannski svolítil skammsýni að hvetja fólk til þess að kaupa ekki flugelda þótt auðvitað sé málsstaðurinn góður.
..

Monday, December 27, 2004

Örfáir..

...eru í vinnunni í dag. Flestir voru svo skynsamir að taka sér frí í dag. Mér finnst ég því vera ónlíðelónlí. Ég held að þetta verði stuttur dagur. Ég þarf líka að baka fyrir morgundaginn. Þá er nefnilega annar í aðfangadagskvöldi. Ameríska gengið mætir á svæðið í fyrramálið og það verður fjör í foreldrahúsum. Julefrokost, pakkar og öll fjölskyldan ásamt mökum og börnum. Ég held ég hætti líka snemma á morgun!
..
Jólin búin...

..og maður er bara mættur í vinnuna aftur. Það var hríð þegar ég keyrði hingað í morgun og ég hefði alveg verið til í að lúra lengur undir sænginni með bók. En skyldan kallar. Ég ætla þá bara að hlakka til næstu helgar. Það verður ekki eins annasamt hjá okkur hjónum í jólaboðum og skírnarveislum, þannig að þá ætti maður að fá nægan tíma til að slappa af og gera helst ekki neitt. Vona ég.
..

Thursday, December 23, 2004

Þorláksmessa

Jæja, Þorlákur skollinn á. Ótrúlegt en satt. Og það er barasta brjálað að gera! Við vorum að til hálftvö í nótt að þrífa og fúga og ég veit ekki hvað. Ég skal alveg viðurkennanþað núna að það var kannski of stór biti að flísaleggja eldhúsið í miðjum jólaundirbúningi og gangsetningu fyrirtækisins. Fyrir utan óvenjumikla desembertörn í vinnunni hjá mér. En ég leyfði mér nú samt að hætta rúmlega fjögur í gær og hitti æskuvinkonurnar niðrí bæ á kaffihúsi. Ógurlega indælt að sjá þær enda erum við of latar að hittast. Látum hversdagslegar annir trufla okkur í því! Ég þakka bara fyrir að ein okkar býr erlendis og kemur oft til landsins þannig að við drífum okkur í að hittast þegar hún kemur. Og við vorum sem sagt fullmannaður æskusaumó í gær. Röltum m.a. upp á Laugaveg og það er bara orðinn hluti af komu jólanna að kíkja á Laugaveginn með þeim stöllum. Bévíti kalt en samt gríðarlega jólalegt. Þegar heim var komið reyndi ég að koma einhverri reglu á í stofunni, en þar er allt undirlagt af dóti úr eldhúsinu. Svo fórum við í Bónus. Tef ekki mörg orð um það nema eitt: troðningur. *hrollur* Mundi í gær af hverju ég fer helst ekki í Bónus. Enda þarf ég hvort eð er að fara í Fjarðarkaup í dag. Segi enn og aftur, ég dýrka þá búð! Eftir langan verslunarleiðangur fórum við með dót á nýja vinnustað bóndans. Kaffikönnu og síma. Já, betra að vera með síma ef einhver skyldi hringja og panta fisk...ekki síst þegar maður er að fara út í þannig bissness að selja fisk... :o) Komum heim um ellefu og þá beið hreingerning og fúgun á eldhúsflísunum. Ég fór í hreingerninguna og bóndinn í flísarnar. Ég réðist til atlögu á baðherbergið og tilkynnti eiginmanninum klukkan hálftvö í nótt að það mætti helst ekkert gera neitt í klósettið. Alveg fram að jólum. Postulínið glansar svo gríðarlega og ég vildi helst halda því þannig. Hann horfði á mig í forundran. Fannst þetta eitthvað óraunhæfar kröfur af minni hálfu.

Jæja, ég þarf að vinna eitthvað í dag, þökk sé íslenskum viðskiptamógúlum sem geta ekki tekið sé frí í desember. Þarf samt að klára að kaupa í matinn, tvær jólagjafir og eina skírnargjöf, þrífa stofuna og eldhúsið og gera húsið gestahæft fyrir skötuboðið klukkan sex.

Eitt að lokum, litla systir útskrifaðist núna í vikunni með Master í mannauðsstjórnun og með glæsibrag og verður hér eftir eingöngu titluð Il Maestro. Ég er voða stolt af henni enda raðaði hún pent bara A í einkunnabókina sína. Og svo er hún að flytja heim líka með fjölskylduna. Bara örfáir dagar þangað til. Jibbííí!!!!
...

Wednesday, December 22, 2004

Það er eins gott...

...að það verði tekið á því í ræktinni í janúar. Því hér flæðir Nóakonfekt um allar hæðir. Og sem sérstök áhugamanneskja um súkkulaði stenst ég ekki mátið. Ónei. Þetta gæti farið illa...
..

Monday, December 20, 2004

Oh Tannenbaum, oh Tannenbaum...wie schön sind deine Blätter...

Arkaði í Blómaval í gær inn á milli jólagjafakaupa (sem notabene eru ekki eins einbeitt, hnitmiðuð og ákveðin og hjá henni Kerlingu ) og leitaði að jólatré. Að venju stefndum við hjónin á háu trén fyrir innan, þ.e. yfir 2 metrar enda næg lofthæð í stofunni og stórt tré sómir sér vel þar. Á leiðinni datt ég um grenivöndul sem reyndist vera jólatré, bara svolítið mikið um sig. Rétt rúmur meter á hæð og enn meira á breiddina. Sem sagt jólatréskúla. Og þarna sem ég stóð við eitt stæðilegt tveggjaoghálfsmetra jólatré sá ég í jólakúluna og fylgdist með hvernig allir virtust detta um aumingja tréð. Fannst það vera hálfeinmana og utangátta, enginn virtist veita því athygli þarna sem að hékk í spotta við gangveginn. Á endanum vorkenndi ég trénu svona ógurlega og endaði auðvitað á að kaupa það. Var að klára að skreyta það og verð bara að segja að það er ósköp fallegt núna. Breið og fallega skreytt grenijólakúla....

Annars rétt hangi ég vakandi. Kann ekki alveg við það að fara að sofa á meðan iðnaðarmenn eru að verki í eldhúsinu....
...

Monday, December 13, 2004

Ýmislegt...

...hefur gerst síðan síðast. Ein lítil prinsessa fæddist þann sjöunda desember og önnur prinsessa átti afmæli þann tíunda desember. Þann sama dag, þ.e. á aðfararnótt þess tíunda, kom lítill prins í heiminn. Ég heilsaði upp á hann í gærkvöldi og fékk að líta dýrðina augum. Heimsótti líka afmælisprinsessuna og leit þá bleiku dýrð einnig augum. Herbergið hennar er eitt það albleikasta sem ég hef séð. Það er æði. Ég gæti leikið mér lengi með dótið hennar. Ég er að hugsa um að biðja um Barbie dót í jólagjöf...
Fyrstnefndu prinsessuna hlakka ég einnig mikið til að sjá og stefni á að gera það hið fyrsta. Hún mamma hennar, hálfnafna mín, má því eiga von á mér og hinum fyrrverandi vinnufélaganum bráðlega. Við bíðum spenntar eftir því að fá að klípa.... :o)

Annars leið helgin fljótt enda undirlögð af jólaveislum og áti. Við afrekuðum það einnig hjónin að fara út á lífið fram undir morgun. Kíktum á Thorvaldsen og svo á Rex. Bara ferlega gaman. Sá einmitt gamlan skólafélaga úr grunnskóla. Þessi sem allar stelpurnar voru skotnar í. Sá leit karlalega út! Enginn sjarmi eftir. Bara allt bú. Sá einnig fleiri gamla félaga sem virtust vera á annarri eða þriðju umferð í makaleit. Ég fór því alsæl heim með minn mann og glöð yfir því að vera ekki í þeirra sporum. Þótt það sé allt í lagi að kíkja aðeins á lífið þá líður mér yfirleitt betur heima hjá mér eða á fjöllum. Gæti vart hugsað mér að vera á þeim stað í lífinu að leita mér að maka. Myndi að öllum líkindum bara sleppa því og líða bara vel. En burtséð frá ölli slíku þá var miklu skemmtilegra á Rex. Betri þjónusta á barnum, flottari tónlist, hægt að fá sæti, rýmra til lofts og hægt að dansa.

Er á leiðinni upp á Skaga í jólasúkkulaði og smákökur í boði Vesturlandsdeildar Ferðaklúbbsins 4x4. Ég man ennþá hvað það var gott hjá þeim kókóið í fyrra. Namminamm....
..

Monday, December 06, 2004

Afrek!

Ég afrekaði ýmislegt um helgina. Gerði slatta af jólakortum, keypti þrjár jólagjafir, kveikti á aðventukertum í fyrsta sinn á þessari aðventu, skreytti stofuna oggusmá, fór yfir jólakortalistann, kláraði Kleifarvatn með Arnaldi, sendi frá mér starfsframmistöðumatið í vinnunni og skrifaði jólagjafahugmyndalista fyrir fjölskylduna. Endaði helgina síðan á að klára verkefni fyrir vinnuna sem varð að vera tilbúið í dag. Ég sem sagt hafði það af í gærkvöldi klukkan hálfellefu.
Hins vegar bakaði ég ekki Sörur. Keypti reyndar allt í þær. Heyrði í einhverjum jólaskipuleggjanda í útvarpinu um daginn að galdurinn að friðsælli og afslappaðri jólaaðventu væri að skipuleggja sem fæsta viðburði á aðventunni og standa svo við þessa fáu. Ef maður t.d. ætlaði sér að skrifa jólakortin þetta kvöldið og baka hitt þá á maður að standa við það. Mér sem sagt tókst ekki að standa við að baka þessa einu kökusort. Ég þori ekki að setja mér annað sörubakstursmarkmið.
..

Wednesday, December 01, 2004

Jólakort

Ég föndraði loksins nokkur jólakort í gærkvöldið en föndurdótið ásamt tilheyrandi lími, litum og pappír hafði legið á sama stað í nokkrar vikur án þess að vera snert. Nú er ekki seinna að vænna en að drífa það af að uppfæra jólakortalistann og koma þessum kortum út! Mig vantar reyndar slatta í viðbót ef allir eiga að fá heimagerð kort, en ég held ég sleppi því. Að venju hef ég keypt kortin frá Barnaheill og Umhyggju og þrátt fyrir að þau kort séu ekki þau alfallegustu á svæðinu þá ætla ég nú að senda þau út. Það er svo sem endalaust hægt að eltast við að styrkja góðgerðarmálefni, ekki síst fyrir jólin, og ég var orðin ringluð á tímabili fyrir nokkrum árum, því ég fékk samviskubit yfir því að segja nei. Keypti þess vegna allt sem mér var boðið til kaups til styrktar hinum og þessum. Var ein jólin komin með grilljón kort, geisladiska, dagatöl og fleira og fleira sem nýttist mér ekkert og ég sat uppi með. Þar til ég ákvað að takmarka mig við eitthvað ákveðið. Og það eru veik börn, fötluð börn, einstök börn og sveltandi börn í útlöndum. Sem sagt börn sem þurfa á hjálp. Síðan þá hefur þetta ekki verið vandamál. Ef mér er boðið eitthvað til kaups sem tengist börnum þá segi ég já, ef ég á aur. Og ég vona að allir hinir verði ekki sárir út í mig.
..

Tuesday, November 30, 2004

Allt að gerast!

Jæja, kominn þriðjudagur og 25 dagar til jóla. Sem betur fer allavega tuttuguogfimm dagar....því lítið hefur farið fyrir einhverjum undirbúningi á þessum bæ. Ég tók mig þó til í gær og skipti um diskamottur á eldhúsborðinu og skarta núna svona rauðum og ljósum diskamottum úr Ikea. Voða sænskar en mér finnst reyndar sænskt jólaskraut alltaf svo fallegt og jólalegt. Helgast líklega af því að stór hluti af því jólaskrauti sem ég man eftir í "gamla daga" kom einmitt úr Ikea, svona úr furu og hálmi, bundið saman með rauðum borðum. Man einmitt eftir því að hafa farið í Ikea á meginlandinu þegar ég var átta ára og hélt að jólin væru bara hreinlega sænsk að uppruna.
Veit nú ekki hvort einhver af jólalögunum sem við sungum á tónleikunum hafi verið sænsk, en allavega heppnuðust þeir vel að sögn. Það hlýtur að vera því eftir eitt lagið (Boðskap Lúkasar - öðru nafni BoneyM-lagið) var stappað og blístrað og kallað. Voða gaman. Og við vorum klöppuð upp aftur og aftur og vorum búin með varaprógrammið á endanum. Þeta var virkilega gaman, enda líka gaman að syngja bæði sálma og svo óhefðbundnari jólalög. Við syngjum svo fyrir eldri borgara á fimmtudaginn og líklega eitthvað meira sem er ekki ljóst ennþá.

Framundan er annasöm vika með grilljón verkefnum í vinnunni og í nýju fyrirtæki og ég vona að það verði ekkert búið að plana neitt á komandi helgi. Ég þigg alveg svona helgi heima að þrífa, uppfæra jólakortalistann og koma smá skipulagi á líf mitt og tilveru. En ég lýsi því hér meðyfir að ég ætla mér ekki mikið á aðventunni. Held ég aflýsi öllum bakstri. Treysti á tengdó og bakaríin! Lofa þó að baka gúmmelaðið mitt handa familíunni yfir hátíðarnar.
..

p.s. Já, og bara 28 dagar þar til að litla systir flytur heim! Víííííí!!!!!!!!!!!!!!!!!

..

Monday, November 22, 2004

Falalalaaaalaalaalala!

Var að frétta það áðan að búið er að færa tónleikana okkar yfir í tónlistarhús Ýmis við Öskjuhlíð. Það er örugglega gaman að syngja þar! Við vorum á æfingu í gær i Gerðubergi og eitthvað hefur salurinn ekki alveg fallið í kramið hjá kórstjóra og kórformanni. Sá salur var allt í lagi, en svo sem ekki fyrir glæsileikanum að fara.
..
Gólfkuldi

Í fyrsta sinn síðan frostið skall á var þokkalega heitt í húsinu þegar ég fór fram úr í morgun. Þ.e. gólfið var ágætlega hlýtt viðkomu en ekki eins og skautasvell. Kominn tími til segi ég nú bara. Allir ofnar á fullu en samt var alltaf kalt. Nema uppi, þar var molla eins og á síðsumarsdegi í Miami. En þar sem ég kýs frekar kulda úti en rok og rigningu, þá ætla ég ekki að kvarta. Ég var sem sagt ekki að kvarta. Bara að ítreka það...
..

Sunday, November 21, 2004

"Frá ljósanna hásal ljúfar stjörnu stara..."

Ég var að æfa mig áðan, sat alein uppi í tröppu og söng. Mér heyrðust hroturnar í bóndanum bara aukast þannig að ég hætti. Fór bara á netið. Ég er sem sagt löngu vöknuð enda úthvíld eftir frábæran laugardag. Svaf aðeins frameftir eftir veisluhöld föstudagskvöldsins, las svo ánægjulega gagnrýni um bók sem ég tel bestu bók bókaflóðsins og vil sjá vegsemd hennar og höfundarins sem mesta. Las svo skemmtilegt viðtal við höfundinn í öðru blaði. Var eitthvað að hangsa fram að endursýningu á Idolinu, svo tók við tiltekt og þrif fram að kvöldmat. Við hjónin dekstruðum okkur smávegis, opnuðum foie gras dós að utan og spænska hráskinku og vorum með tvíréttaðan forrétt á undan lambinu. Rauðvinslögg með. Svo kaffi og líkjör á eftir og súkkulaði. Horfðum á ósköp indæla og ljúfa mynd í sjónvarpinu og svo var ég bara sofnuð löngu fyrir miðnætti. Er því eldhress í dag, enda aukakóræfing kl. eitt. Á jólatónleikunum eftir viku (*gisp!*) munum við syngja nokkur jólalög sem ég verð að játa að ég þekkti bara alls ekki. En það er bara skemmtilegt. Gæti kannski orðið ankannalegt ef ég þarf að syngja þessi fallegu lög utan kórsins, kann þau þá bara í alt-rödd! En sú staðreynd að ég þekkti ekki þessi lög segir kannski svolítið um jólasálmamenningu okkar Íslendinga. Ef maður er ekki að sækja kirkjurnar mikið þá heyrir maður bara Bjögga, Stebba Hilmars og Kó syngja jólapopplög. Enda hef ég lofað sjálfri mér að stilla útvarpið oftar á Rás 1 um jólin og fara í messu á aðventunni. Þá heyrir maður kannski eitthvað annað, svona til tilbreytingar! Það eina sem reyndar truflar mig varðandi messur er að það er ekki mjög líflegt messustarfið hérna á Álftanesinu. Enda sjá prestar Garðasóknar um Bessastaðasókn og bara stöku sinnum er messað í Bessastaðakirkju. Og mér finnst ég ekkert hafa að sækja til prestanna þarna í nágrannasveitarfélaginu. Finnst hálfhallærislegt að við séum ekki með okkar eigin prest hérna í "sveitinni".

Ég hélt að snjóinn ætti að taka upp í dag? Kannski hefur því seinkað eitthvað....sem betur fer. Miklu skemmtilegra að hafa snjó en rok og rigningu. Það er óþolandi veður. Það fer betur við jólakortagerð og jólatónleikaæfingar að hafa snjó úti.
..

Friday, November 19, 2004

Brrrrrrrrrr.......

....það er kalt úti og yfir öllu er smá snjóábreiða. Hreint út sagt frábært veður. Gerist ekki betra! Megi það halda svona áfram, helst snjóa og snjóa og frysta og frysta. Og snjóa svo aðeins meira. Þá kannski fer maður að komast á skíði hérna á suðvesturhorninu. Ókei, ókei - ég skal undanskilja gangstéttir í Reykjavík svo enginn detti og meiði sig. (búin að læra þetta eftir svipaðar fullyrðingar mínar sl. ár). Við fórum í skemmtilega ferð upp í Hvanngil um síðustu helgi, fengum mjög fallegt veður á heimleiðinni á sunnudeginum. Það er fallegt að Fjallabaki innan um öll hvítklæddu fjöllin í bleikbláu vetrarbirtunni. Maður alveg endurnærist fram að næstu fjallaferð. Sem verður ekki á næstuni hjá okkur, allavega ekki fyrr en nokkrar vikur. Maður er svo upptekin í sósíallífinu og kórstarfinu að jeppaferðirnar sitja á hakanum. Ég áttaði mig líka á því í morgun að ég hef ekki verið hjá mér heima að kveldi til síðan eh...hmm...man það ekki. Líklega fyrir rúmlega viku síðan?Og verð líklega ekki heima hjá mér fyrr en annað kvöld líklega. Þannig að öll sjónvarpsdagskrá hefur farið fram hjá mér, ég hef varla séð fjölskyldu mína og ég á ekki orðið til nein hrein föt og heimilið er á hvolfi. Eiginmaðurinn verður í túristakeyrslu um helgina þannig að ég ætla að vera heima hjá mér og taka til, þvo þvott og þrífa. Því annars mun ég ekki hafa tíma til svoleiðis hluta fyrr en vikuna fyrir jól. Það er svolítið seint og hálfleiðinlegt að vera með allt grútskítugt á jólaaðventunni. Hún nefnilega byrjar eftir rúma viku! Hugsa sér, jólin eru á næsta leiti! Ég mun ekki frekar en venjulega fara í miklar hreingerningar, en svona góð helgarhreingerning er nauðsynleg. Aðeins að grynnka á rykmaurunum...
..

Friday, November 12, 2004

Fíkn

Fékk það enn og aftur staðfest áðan að ég er gríðarlega háð tölvupóstinum mínum. Miðlægi tölvupóstsnetþjónninn hérna í vinnunni, sem er staðsettur úti, er búinn að vera í ólagi þannig að ég fæ engan póst og póstur sem ég sendi kemst líklega ekki til skila fyrr en seint og síðar meir. Ferlega óþægileg tilfinning.

Annars hefur þessi vika liðið hratt og ég hef varla haft undan að sinna öllum verkefnunum mínum, í vinnu og heima og í félagslífinu. Og um helgina fer ég á fjöll, vonandi, þ.e. ef Bílanaust reddar mér varahlutum fyrir kl. fjögur í dag, og mun gera lítið annað en að hangsast. Engin vinna. Engin tiltekt eða þrif. Æ, það er ágætt. Ég ætla hins vegar að taka með mér bók sem ég hef beðið eftir lengi að fá í hendurnar. Veit að hún er frábær því ég hef fengið að lesa hana hjá höfundinum. Ætla því að lesa hana aftur og njóta hverrar setningar.
...

Thursday, November 11, 2004

Óþolandi!

Það er líklega orðið sem ættingjar, vinir og kunningjar muldra í hljóði þegar þeir heyra á mig minnst þessa dagana. Ég er nefnilega að gera alla vitlausa með þessu kórastarfi mínu. Seljandi skeinipappír og kort og seríur (já, við ætlum að selja svoleiðis líka, bíðiði bara...), sendandi út tölvupóst þar sem ég er að reyna að pranga þessu inn á fólk. Fólk á ekkert von á þessu frá mér, ég hef venjulega verið á "hinum" endanum, þ.e. verið að kaupa wc-pappír og svoleiðis. Ég hef ekki selt svona síðan í menntó þegar við vorum að safna fyrir útskriftarferð. Þurftum að selja milljón rúllur af jólagjafapappír og jólakortum. Svosem í lagi nema að þetta var forljót vara. Og ég þoli ekki að þurfa að selja svona. Seldi því lítið sem ekkert og sat uppi með þetta sjálf. Ömurlegt. Lofaði sjálfri mér að selja svona aldrei aftur því ég væri svo glataður sölumaður. En, þetta var fyrir tíð netsins. Nú sendi ég bara út tölvupóst í massavís í anda Spammara. Þyrfti kannski að verða mér úti um nýtt nafn til að fullkomna myndina, taka upp nafn eins og Bernadette, Catie eða Anna Nicole.....
..

Monday, November 08, 2004

Svartagull í fréttum

“Átök fara harðnandi í Írak” heyrðist í fréttum í morgun. Ég skil ekki alveg hvaða viðmiðun er í gangi því allt frá því að stríðið hófst þarna niðurfrá og þar til því “lauk” formlega þá hafa átök farið þar harðnandi. Og á sama tíma og Bandaríkjamenn vaða yfir allt og alla í Mið-Austurlöndum til þess að vernda olíuhagsmuni sína þá koma olíufélögin þrjú hvert á fætur öðru og biðjast afsökunar á því að hafa haft af mér og öðrum landsmönnum mýgrút fjár undanfarin ár. Mér finnst einhvern veginn þessar afsökunarbeiðnir vera ósköp innantómar. Eins og hugur fylgi ekki máli. Mér finnst ekki eins og búið sé að segja “fyrirgefðu” við mig í einlægni. Miklu frekar eins og þeir hafi séð sig tilneydda til þess að biðjast afsökunar svona til að lágmarka tjón sitt og kasti þessu fram í svona fýlutón. Ég tek því ekki mark á þessum afsökunarbeiðnum. Og frábið mér myndir af brosandi starfsfólki olíufélaganna á heilsíðum dagblaðanna. Þetta ágæta starfsfólk hefur ekkert gert mér eitt eða neitt. Hins vegar mættu Einar Ben, Kristinn Björns og kó biðja mig afsökunar. Helst með svona lúkk í augunum eins og lúbarðir hundar. Þá fyrst skal ég taka afsökunarbeiðnina til athugunar.
..

Sunday, November 07, 2004

Vöfflur með rjóma

Þessi helgi hefur verið sambland af ýmsu, matarboðum, afmælum, föndri, svefni og leti. Við fórum seint að sofa bæði föstudags- og laugardagskvöld og sváfum frameftir bæði í gær og í dag. Það verður fróðlegt að sjá hvort við náum að sofna á skikkanlegum tíma í kvöld, enda alveg búin að snúa sólarhringnum við! En svona helgar eru ósköp ágætar þegar maður nær að slappa vel af inn á milli mannamóta. Og ég föndraði meira að segja smá í gær. Ætla að kíkja á föndrið líka á eftir. Er búin að koma mér vel fyrir við borðstofuborðið og ætla að athuga hvort ég nái ekki að gera slatta af jólakortum fyrir jólin.
Okkur langaði svo í vöfflur áðan og þar sem ég fann ekki uppskriftina hennar mömmu þá fengum við okkur bara svona Vilko-vöfflur, en þær bara voru ekki nógu góðar. Ég þarf að grafa upp góðu uppskriftina næst. Það var nú samt voða notó að sitja í rökkrinu frammi í stofu, kveikja á kertum og spjalla yfir vöfflum með rjóma. En mikið svakalega er orðið dimmt seinnipartinn!
...

Wednesday, November 03, 2004

Fréttir að vestan...

...í morgun valda mér miklum vonbrigðum. Ég bara hreinlega trúi því varla að bandaríska þjóðin ætli að kjósa yfir sig önnur fjögur ár með Bush. Ég er alveg drulluhrædd um að þessi óði forseti steypi heimsbyggðinni í glötun með áframhaldandi stríðsrekstri og vitleysisgangi. Fæ hnút í magann þegar ég sé hann byrja að tala um "öxulveldi hins illa". Eins og það sé allt bara svart og hvítt í heiminum, séð með augum miðaldra hvíts karlmanns frá Texas. Hann er svo upptekinn af því að elta uppi hryðjuverkamenn að það gleymist allt heima fyrir. Allt í molum þar en hann vill bara meiri peninga í hernað. Fussumsvei!- eins og nafna mín sagði.

Annars er það helst að frétta að á morgun er föndurkvöld í vinnunni og getiði hver lenti í því að vera í forsvari og sýna jólakortaföndur? Jamm, einmitt sú sem hefur ekki haft tíma í að búa til neitt sjálf. Hef samt verið á leiðinni lengi, búin að viða að mér efni og alles.

Einnig er það að frétta að það er mikill órói á heimilinu. Svona gosórói. Fyrir utan standa 160 hestar óþolinmóðir og vilja gjarnan komast á fjöll. Nánar tiltekið Grímsfjall. Að horfa á gos. Helst í 200 metra fjarlægð eins og einn félagi minn sem rauk til að skoða gosið seint í fyrrakvöld. Sat fastur í Tungná í nokkra klukkutíma og þjösnaðist svo upp Tungnárjökul og að Grímsvötnum á 1 km á klst eða svo. Talaði svo við fréttamenn í gærdag og fannst það bráðfyndið að viðmælendur hans höfðu áhyggjur af því að þetta væri nú svolítið hættulegt, að fara svona nálægt gosinu. "neeeinei"...sagði hann doldið góður með sig. Fór svo út að pissa og horfði á gosstrókinn. Líklega verið með svona "king of the world"-tilfinningu. Sá svo allt í einu sprungu opnast í átt að sér á ógnarhraða. Var þá fljótur inn í bíl og brunaði í burtu. Það skal tekið fram að mínum hestum verður ekki sleppt á fjöll með sama hætti. Ónei. En kannski ég leyfi þeim að fara að jökli. AÐ, ekki Á. Veit það ekki. Er ekki búin að taka ákvörðun. Kannski ég hirði lykilinn að jeppanum með mér í vinnuna svo sumir geti ekki hleypt hestunum á skeið.
..

Monday, November 01, 2004

Tölvur í verkfalli...

Það hefur verið óttalegt ólag á tölvunum í kringum mig. Netið hefur verið ógurlega leiðinlegt í vinnufartölvunni og m.a. er öryggiskerfinu í netþjónum vinnunnar eitthvað uppsigað við Blogger þannig að ég hef ekkert farið inn á bloggið mitt í vinnunni. Og til að bæta ástandið hrundi heimilistölvan. Neitaði að ræsa sig almennilega og sýndi bara frosinn skjá í hvert sinn sem maður reyndi. Hvorugt okkar hjóna er með hæfileika til að krukka í vélbúnaði tölvu og því tók smá tíma að herða upp hugann og reyna að finna út úr þessu. En það sem sagt hafðist í dag. Tók sinn tíma en þessir erfiðleikar eru vonandi að baki. Í bili að minnsta kosti!

Annars leið síðasta vika hratt enda náði ég megninu af yfirvinnu mánaðarins þessa síðustu daga í október. Helgin var sem betur fer róleg, gerði lítið annað en að glápa á sjónvarp, borða góðan mat, vinna smá, lesa og þrífa og þvo þvott. Einn rúntur var tekinn í Smáralindina, annar í Ikea og Húsasmiðjuna og föndurloftið í Garðheimum. Eftir helgina á ég sem sagt nýtt hliðarborð úr birki, The Dante Club, föndurpappír og límmiða, jólakaktus, kerti, ilmsápu í baðið og body lotion. Bara nokkuð gott. Í gær eldaði ég svo Konunglegt Korma, með kjúklingi í þetta sinn (er venjulega með lambakjöti) og bar það fram með Keela Khera Kachumber eða hvað svo sem það heitir (bananar, agúrka og kókos og rauður chili, hitað á pönnu og svo kælt). Alveg ferlega gott. Segiði svo að það borgi sig ekki að fara á matreiðslunámskeið hjá Mími!
..




Monday, October 18, 2004

Her name is Rio...

Gömlu jálkarnir komnir með nýtt lag, og viti menn, það er alveg eins og það hefði verið gefið út fyrir 17 árum. Sami taktur, sama viðlag. Og ég fékk það á heilann í morgun eins og ég væri orðin unglingur á ný að klippa út myndir af þeim í Bravo. Já, John Taylor og kó eru með þvílíkt "kombakk" að það er eins og mér hafi verið þeytt mörg ár aftur í tímann þegar ég heyri lagið þeirra. Ég fékk sem sagt nostalgíukast í morgun. Í annað sinn á stuttum tíma. Fyrst Monsurnar og nú Duran Duran. Hvað ætli komi næst? Bleikar legghlífar? Don Cano íþróttagallar og Top Ten strigaskór?
..

Sunday, October 17, 2004

Yndisleg tilfinning

..að eiga heilan sunnudag framundan og þurfa ekki að gera neitt sérstakt, nema það helst að dunda mér við tiltekt í föndurherberginu. Kannski ég kíki í Ikea líka! Gærdagurinn hófst snemma, ég fór í vinnuna að undirbúa kennslu, kenndi svo frá ellefu til þrjú, búin að vinna klukkutíma síðar og fór þá heim og skreið aðeins undir sæng, því föstudagurinn hafði verið ansi strembinn. Fyrst nóg að gera í vinnunni og svo bara sósílalíf og djamm með vinnufélögunum sem svo endaði í brjálaðri SingStar keppni. Virðulegir yfirmenn misstu sig alveg sem Elvisar og Roy Orbinsonar.. Ég ætla deffinitílí að kaupa mér þennan karaókí leik í PS2. Þetta var ekkert smágaman! Ég sé alveg fyrir mér hvernig næstu fjölskylduboð verð hjá okkur, allir að keppa í SingStar!! Við borðuðum síðan yfir okkur hjá tengdamömmu í gærkvöldi, fengum hangikjöt og svo ís og ávexti. Svo horfðum við á sjónvarpið frameftir (það vakti mikla lukku þegar enginn annar en Viggo Mortensen lék í GI Jane....það slá fáir Aragorn við..). Jæja, best að druslast á fætur..
..

Friday, October 15, 2004

Nýja lúkkið

..er svo sem ágætt, en ég sakna linkanna og svo finnst mér þetta blogger kommentakerfi ekki eins sniðugt og haloscan. Ég mun finna út úr því, jafnvel velja annað útlit ef það hentar betur. Kemur í ljós.
..
Monsan er mætt á svæðið á ný!

Ég var að fletta Fréttablaðinu núna í morgun og rakst þar á frétt sem yljaði mér um hjartarætur. Monsurnar eru komnar aftur, eða Monchichi eins og þær heita víst. Ætli það sé asnalegt að hálffertugri konu langi í eina svoleiðis?

Annars varð ég heltekin af föndurbakteríunni í gær. Lofaði meira að segja sjálfri mér að taka til í föndurherberginu um helgina og bauð mér heim til vinkonu minnar í föndur á þriðjudagskvöldið næsta. Varð að beita mig gríðarlegum aga svo ég myndi ekki hrynja í föndurheimasíðugláp í vinnunni í gær og hér heima í gærkvöldi því ég er að kenna á námskeiði á laugardaginn og verð að undirbúa mig. En var í huganum farin að sauma út kort og líma og klippa. Og ástæðan fyrir þessum viðbrögðum? Ég kveikti óvart á Íslandi í Bítið og þar sat Gugga úr Föndru að sýna það nýjasta í jólakortaföndri. Ég fékk svona skjálfta í kroppinn. Örugglega ekkert ósvipað og dópistar fá..
..

Wednesday, October 13, 2004

Hljómar ágætlega...


You are Lili St. Cyr!
You're Lili St. Cyr!

What Classic Pin-Up Are You?
brought to you by

Monday, October 11, 2004

Kommentakerfið...

..er ekki alveg að virka rétt hjá mér, þ.e. ég sé það ekki í fartölvunni en svo er allt í lagi þegar ég logga mig inn heima. Það er greinilega einhver pikkles í þessu. Ef einhver getur ímyndað sér hvað er að hrjá fartölvuna mína þá má sá hinn sami láta mig vita.

Annars leið helgin hratt og örugglega, enda flýgur tíminn yfirleitt áfram þegar maður er á fjöllum. Veðrið var svo sem ekkert til að hrópa húrra yfir, milt og lygnt en lítið skyggni. Við fórum aðskilin á fjöll við hjónin, frekar óvenjulegt. Ég fékk far með einni valkyrju á allmyndarlegu Patrol trölli og bóndinn fór með einum félaga okkar. Ella valkyrja og ég vorum einbíla, í niðamyrkri á föstudagskvöldið að feta okkur norður Kvíslarveituveginn (Sprengisand), yfir Þjórsá á Sóleyjarhöfðavaði og svo vestur yfir mela og sanda í Setrið þar sem okkar biðu tæplega fjörtíu karlar hvaðanæva af landinu. Og með þeim eyddum við svo helginni í fundahöld, át og gleði. Fórum síðan skemmtilegan rúnt á heimleiðinni, við hjónin að þessu sinni sameinuð í bíl, og vorum komin heim uppúr kvöldmatarleytinu í gær. Þar biðu okkar geðvonskulegar kisur, grautfúlar eftir suddaveður um helgina. Ég nefnilega sá að saltið hafði skolast vel af litla bílnum hérna fyrir utan, þannig að greinilega hefur rignt hér. Það sást líka á þungbrýnum köttunum að þeir höfðu verið saman innilokaðir alla helgina og rifist stöðugt. Litlir hárhnoðrar hingað og þangað eftir nokkur samstuð. Alveg magnað hvað þeim getur komið illa saman eftir öll þessi ár.

Ég fór svo á kóræfingu áðan, alveg virkilega skemmtilegt að venju. Ég komst ekki síðast og var alveg miður mín. Það er svo miklu skemmtilegra núna en í fyrra. Kannski líka af því að ég er að ná þessu betur núna en þá. Og það var ákveðið á aðalfundinum sl. föstudag að við förum út í byrjun næsta sumars til Englands. Gaman, gaman! Síðast þegar ég fór í kórferðalag var ég ellefu eða tólf ára og fór með grunnskólakórnum á kóramót á Akranesi. Man fátt annað en að Akranes þótti ekki spennandi staður. Allavega ekki í minningunni. Svo í fyrra kom ég í stutta heimsókn í þennan ágæta bæ og fékk höfðinglegar móttökur hjá Vesturlandsdeild Ferðaklúbbsins 4x4. Sú heimsókn var ljúf, ekki síst vegna heimalagaða súkkulaðisins sem við fengum með jólasmákökunum. Gat verið að ef það er tengt mat, þá yljar það manni frekar í minningunni!!
..

Wednesday, October 06, 2004

Sullumbull...

..er orðið yfir afrek mín við eldavélina í kvöld. Sem sagt ekki mikið til að státa sig af. Sullið var þó etið fyrir framan sjónvarpið, nánar tiltekið yfir Bráðavaktinni. Það er alveg magnað hversu lengi sú þáttaröð ætlar að ganga í sjónvarpi. Reyndar minnir mig að framleiðslunni sé hætt úti í Bandaríkjunum, eða er mig að misminna eitthvað? Hvað segir litla systir úti um það? Ég er annars að bíða eftir Anorexíu þættinum. Jamm, amerísku verðandi toppmódelunum. Finnst sá þáttur alveg frábær. Hvað þær geta vælt og skælt og röflað yfir hver annarri. Alveg milljón! Hið fullkomna sjónvarpsefni! Gat ekki hugsað mér að horfa á fyrri þáttaröðina, fannst þetta vera svo lágkúrulegt sjónvarpsefni......eða þar til að ég límdist við einn þáttinn þegar þær voru orðnar örfáar eftir og rifust eins og hundur og köttur. Beið því spennt eftir þáttaröð númer tvö. Og þær hafa ekki svikið mig þessar horuðu leggjalöngu og álkulegu ungu meyjar. Ég held sérstaklega upp á eina sem heitir Shandi, ef ég man nafnið rétt. Álkulegasta unga víf sem ég hef séð. Og þar að auki gleraugnaglámur. Það eitt gerði hana númer eitt hjá mér. Áfram Shandi!
..

Tuesday, October 05, 2004

Stefnuræðan

...hjá Halldóri fór alveg framhjá mér í gær. Og satt að segja var ég nú bara frekar lítið spennt yfir þeirri staðreynd að þingið væri komið til starfa á ný. Maður fékk eiginlega alveg nóg af pólítík í sumar og í hvert sinn sem stjórnmálamennirnir hér á landi hreyfa sig þá brjóta þeir einhver lög, eyðileggja náttúruna eða sýna æðsta dómstól landsins lítilsvirðingu. Hunsa jafnvel sett lög, af því að þeim finnst þau úrelt og taka ekki mark á álitum umboðsmanns Alþingis frekar en auglýsingableðli sem kemur inn um lúguna hjá þeim. Ráðherrar og þingmenn eru því best geymdir í fríi. Undanfarið ár hafa þeir gjörsamlega gengið fram af mér trekk í trekk. Sagt og gert hluti sem gera mig orðlausa. Öll lógík er fokin út í veður og vind og ég fer að halda að ég búi í bananalýðveldi. Það er skrítin tilfinning.

Annars ætlaði ég nú ekki að eyða orðum á þessa stjórnmálamenn, en gat eiginlega ekki stillt mig. Var nefnilega að hugsa um þessa ungu þingmenn sem skriðu inn á þing síðast. Þeir eru orðnir óþekkjanlegir, orðnir steyptir í sama mót og hinir og virðast ekki hafa neinn sjálfstæðan vilja. Opna bara munninn í viðtölum og út kemur bara sama klisjan og venjulega. Mér leiðast þeir svo hrikalega að ég er fljót að skipta um stöð. Og bara yfirhöfuð forðast að hlusta á stjórnmálamenn yfirhöfuð. Og pirra mig á því að fjölmiðlafólk geti ekki tekið þá almennilega í bakaríið. Þá á ég við málflutninginn, ekki persónu viðkomandi.

Greinilega kominn tími á að gefa Nebba að borða. Hann er farinn að leggjast ofan lyklaborðið til að fá athygli...
..

Monday, October 04, 2004

Rúm vika...

...síðan ég skráði eitthvað síðast. Stundum fljúga dagarnir áfram og allt í einu er komin ný vika og nóg af viðburðum framundan. Ég var einmitt að velta því fyrir mér af hverju september og október eru svona annasamir. Ég hef t.d. ekki verið laus eina helgi undanfarnar vikur og það er alveg eins með næstu helgar. Árshátíðir og ráðstefnur, kórastarf og annað félagsstarf. Var t.d. á ráðstefnu allan sl. föstudag og svo á árshátíð, sem var haldin fyrir austan fjall, á laugardeginum. Um næstu helgi förum við hjónin upp í Setur, þ.e. inn á hálendið, og hittum þar fólk alls staðar af landinu til að ræða um hálendismál og vegamál og ýmislegt fleira sem viðkemur jeppa- og fjallamennsku. Svo er önnur árshátíð í október, reyndar hérna í bænum. En þetta er sem betur fer allt skemmtilegt, annars væri maður nú ekki að vasast í þessu. Ég er viss um að ef ég væri ekkert að gera margar helgar í röð myndi ég ekkert vera ánægð með það!

Annars skemmti ég mér alveg konunglega á árshátíðinni sl. laugardagskvöld. Skemmtilegt fólk og góður matur og svo var ekki amalegt að gista á Hótel Selfossi, herbergin eru stórglæsileg í nýju álmunni. Við fórum síðan í smá bíltúr í gær, því þrátt fyrir rok var mjög bjart og haustlitirnir gríðarlega fallegir. Í Grímsnesinu var alls staðar fólk í sumarhúsum, íbúafjöldinn margfaldast örugglega á þessu svæði um helgar! Ég sé mig ekki alveg fyrir mér eignast sumarbústað á þessum skipulögðu sumarbústaðasvæðum en hins vegar gæti ég alveg hugsað mér að kaupa eyðibýli og gera það upp. Ekkert endilega í alfaraleið. Og það má ekki vera alveg of nálægt höfuðborginni, frekar að það sé rétt við helstu leiðir inn á hálendið. Þannig að ef þið vitið um svoleiðis þá megið þið láta mig vita. Kannski ekki akkúrat núna...en þegar fram líða stundir.... :o)

Það er frekar leiðinlegt veður úti í augnablikinu en maður neyðist víst til þess að fara að vinna. Svo er kóræfing í kvöld og svo er ég að kenna á námskeiði á morgun og þarf að klára að undirbúa mig. Sat í gærkvöldi yfir tölvunni og samdi námsefni og fór að sofa með ferköntuð augu! Það getur verið svolítil áskorun að útbúa nokkurra tíma námskeið á sviði skatta þannig að áheyrendur sofni ekki á fyrstu 15 mínútunum af leiðindum. Best að fara að drífa sig á lappir og koma sér í vinnuna!
..

Saturday, September 25, 2004

Skrítið...

Það minnist enginn fréttastofa á fellibylinn Karl sem nálgast okkur óðum. Eða kannski er rokið og rigningin frá því í nótt og morgun vegna hans. Samt, samkvæmt kortinu á hann ekki að vera hér fyrr en í kvöld? Annars er ég svo sem enginn veðursérfræðingur þótt undanfarið hafi ég skoðað þessa síðu ansi oft upp á síðkastið vegna sífelldra fellibylja sem herja á litlu systur.

Annars eru allir hálflamaðir hérna vegna veðurs. Kettirnir eru allir með tölu lagstir í þunglyndi. Horfa á mig með letiaugnaráði og væla lágt í kvörtunartón. Eins og þetta veður sé mér að kenna!
..


Friday, September 24, 2004

Rok og rigning

Ég fauk í vinnuna í morgun og var óvenjusnemma á ferðinni, svona miðað við venjulega. Hafði mælt mér mót við kollega minn í bakaríi, enda áttum við að sjá vinnufélögum okkar fyrir kaffi í morgun. Við hins vegar uppgötvuðum það ekki fyrr en seint í gærkveldi, annars hefði ég nú slegið um mig með einhverju heimagerðu góðgæti. En við gátum lítið notið bakkelsins sjálf, hentum því inn hingað í vinnuna og rukum beint út aftur á fund. Mjög effektív svona í morgunsárið, því ég var sem sagt búin að redda kaffi og sitja fund úti í bæ á þeim tíma sem ég venjulega skríð hingað inn í húsið í vinnuna! Svo er ég að fara á skrall í kvöld og verð örugglega geispandi og gapandi klukkan tíu. Það er kannski ekki skrítið að verða syfjaður þegar maður er á eilífu útstáelsi öll kvöld eða vinnandi langt frameftir en það er greinilega kominn tími á vítamínkúr, þessi syfja er ekki alveg að gera sig. Veðrið er ekki heldur að bæta það. Úti er svona týpískt "kúra undir sæng með bók og sofna"-veður og heima á ég nokkrar ólesnar bækur sem æskuvinkona mín lánaði mér. Við deilum þessum mikla lestraráhuga og höfum mjög svipaðan smekk á bókum og ég nýt heldur betur góðs af því! Hún kom færandi hendi um daginn þegar við vorum að skoða litlu snúlluprinsessu sem önnur æskuvinkona okkar eignaðist. Prinsessan fékk föt og ég fékk bækur. :o)
..
..



Thursday, September 23, 2004

Hanskaveður

Ég þurfti að skafa bílrúðurnar í morgun. Það er greinilega að koma vetur! Brrrr....
..

Wednesday, September 22, 2004

Afmæli!

Já, við eiginmaðurinn eigum afmæli í dag. Sextán ára kærustuparaafmæli! Þarna fyrir sextán árum vangaði ég við ungan dreng á busaballi í Versló og það var ekki aftur snúið. Mikið er ég glöð að hafa átt vinkonur í Versló, annars hefði ég ekkert átt erindi á þetta ball og ungi drengurinn ekki heldur. Þessi ungi drengur var líka voða ljúfur í gær, því ég var að vinna lengi og hafði lítinn tíma til að undirbúa saumó. Þegar ég kom heim var hann bara búinn að öllu. Þreif, ryksugaði og þurrkaði af og bjó til tvo heita rétti. Í kvöld fæ ég Hjartagúllas a la litla systir. Kannski ekki mjög fínn matur en heitir vel við hæfi. En það er búið að lofa mér fína matnum á laugardagskvöldið!

Það var gaman í saumó í gær. Þetta eru svo skemmtilegar og indælar stúlkur og við getum blaðrað endalaust. Það er greinilega bráðhollt að hitta vinkonur sínar og ég fékk tvöfaldan skammt í þessari viku, fyrst æskuvinkonurnar sl. sunnudag, þótt stutt væri og svo hinn saumó í gær. Maður verður svo miklu glaðari og brosmildari eitthvað. Nú vantar bara systrakvöld! Kannski rennur það upp fyrr en varir með hópinn fullskipaðan. Ég vona það innilega allavega.
..

Tuesday, September 21, 2004

Það mættu alveg vera örlítið fleiri tímar í sólarhringnum!

Sérstaklega þegar dagarnir eru eins og í gær: Vinna, beint á fund og beint þaðan á kóræfingu og komin heim klukkan hálfellefu um kvöldið. Enda var ég þreytt í morgun. Hef eiginlega verið þreytt síðan ég svaf ekkert þarna í síðustu viku. Því ekki hvíldist ég nú beint um helgina. Fór í sumarbústað og stundaði veiði og glasalyftingar af miklum móð. Svo miklum að ég tók út mestu þynnku í mörg ár sl. laugardag. Úff. Ég var eiginlega búin að gleyma hvernig það er að vera almennilega þunn!

Annars fengum við yndislegt veður um helgina. Það var meira að segja svo gott að ég fékk mér blund á vatnsbakkanum og náði smá heilsu á ný..... Eitthvað veiddist, m.a. í net. Við sem sagt "lifðum á landinu" í þessari ferð, borðuðum nýveiddan lax á föstudagskvöldið og hreindýr á laugardagskvöldið. Urriðin sem veiddist svo um helgina var reyndar tekinn heim, fer líklegast í reyk.

Ég er svo með saumaklúbb í kvöld og af fenginni reynslu veit ég að þá fer ég að sofa seint. Verð sem sagt þreytt á morgun líka. Það fara að verða ansi margir klukkutímarnir sem ég þarf að bæta mér í svefni um næstu helgi. Þ.e. ef við förum ekki á fjöll. Sem er sem sagt inni í myndinni.
..

Thursday, September 16, 2004

Svefnvana grasekkja....

Það varð lítið um svefn í nótt. Þrátt fyrir alveg allsvakalega afslappandi kvöld sem samanstóð af sjónvarpsglápi uppi í rúmi, nammiáti (já, þrátt fyrir fögur fyrirheit..) og ágang malandi katta. Þetta Ívan-afbrigði sem hrjáði landann í nótt hélt sem sagt fyrir mér vöku. Venjulega sef ég aldrei eins vel og í kolbrjáluðu veðri en þá sefur eiginmaðurinn einmitt líka svo vært og ef ég vakna við veðurofsann og sé hann hrjóta áhyggjulausan þá hef ég ekkert áhyggjur heldur og sný mér á hina hliðina og sofna á ný. En núna var ég ein, veðrið lamdi húsið sundur og saman og það gnauðaði í lofttúðunni á efri hæðinni. Blandið saman við það áhyggjur af fjúkandi byggingarrusli, sem er enn nóg af í kringum okkur því enn er verið að byggja í götunni, myrkfælni og rápandi kisum þá er komin þessi fína uppskrift af svefnleysi. *sniff*

Annars horfði ég á slappa kvikmynd gerða eftir sögu Michaels Crichton, Timeline. Eins og sagan var skemmtileg þá var þetta alveg hreint út sagt glötuð mynd. Drullusé eftir því að hafa eytt tíma mínum í að horfa á hana.
..

Wednesday, September 15, 2004

Grasekkja

Jæja, nú verð ég grasekkja í rúman sólarhring. Bóndinn farinn í laxveiði í brjáluðu veðri þangað til seint annað kvöld. Ég er ágætlega sátt við að fara ekki að veiða líka í svona veðri (*hrollur*) en finnst það meira miður að þurfa að fara að sofa ein í kvöld. Ég get nefnilega verið svo fjandi myrkfælin. Og kettirnir bæta ekki úr skák, þeir horfa svo oft snögglega brúnaþungir yfir öxlina á manni, eins og eitthvað sé á ferli fyrir aftan og hræða þá úr mér líftóruna í leiðinni. Og mínar kisur geta verið sérstaklega brúnaþungar og geðvondar á svipinn. Kosturinn við grasekkjuástandið er hins vegar sá að losna við hrotur eina nótt....
..

Monday, September 13, 2004

Fasteignasalar...

...eru sérstök tegund mannfólks. Eins misjafnir og þeir eru margir. En hann var ósköp ljúfur þessi fasteignasali sem heimsótti okkur áðan til þess að meta húsið. Hann var alveg á öðru hundraðinu enda vitlaust að vera í verðmötum á fasteignum þessa dagana því allir eru að endurfjármagna eða fjármagna með nýju íbúðalánum bankanna. Við erum reyndar ekki á þeim buxunum, heldur vegna fyrirhugaðrar fjárfestingar í atvinnufyrirtæki og húsið hefur aldrei verið endurverðmetið af Fasteignamatinu síðan við fluttum inn á steininn. Enda erum við í raun enn að byggja, fullt óklárað ennþá. Og þess vegna er ég nú að minnast á þessa heimsókn. Ég stóð mig nefnilega að því að vera að afsaka það við bláókunnugan fasteignasalann af hverju það vantaði enn gólfefni hér og loftaefni þar... Eins og það komi honum nokkuð við hversu langt eða stutt við erum komin í að fullklára húsið!!?? Oh, ég fór í taugarnar á sjálfri mér þegar ég uppgötvaði þetta...
..
Léttvínspotturinn...

...í vinnunni féll í minn hlut að þessu sinni. Glæsilegt að byrja vikuna á því að vinna fullt af rauðvíni og hvítvíni!!!

..

Sunday, September 12, 2004

Mygluð

Er frekar grámygluleg í dag. Varla þó af þynnku því ég var voðalega stillt í afmælinu í gærkvöldi. Líklega er þetta vegna þess að ég er óðum að verða fertug sjálf og er bara orðin of gömul fyrir svona djamm. Að vaka svona fram eftir nóttu, sofa frameftir degi og borða óreglulega. Ég greinilega fúnkera ekki eðlilega nema ég sé komin í háttinn klukkan tíu og borða kvöldmat klukkan hálfsjö. Ekkert smá leiðinleg týpa eitthvað, ég er eins og áttrætt hró.

Annars var ég að kaupa mér áskrift að Stöð 2 áðan í gegnum netið. Ætla að fylgjast með Idolinu órugluðu í vetur. Það er ekki hægt annað! Svo þurfum við hjónin að fara að kaupa nýjan heimilissíma, hinn er alveg að gefa sig, bara pípti á mig áðan þegar ég var að tala við litlu systur áðan. Það er samt varla þorandi með eiginmanninn í svona tækjabúðir. Hann er nefnilega svolítil tækjafrík. Samt ekki eins slæmur og margir aðrir sem við þekkjum, en minn maður bætir það upp með svona varahluta/aukahlutaæði í bílinn. Hann getur meira að segja haldið uppi samræðum um öxla og legur í jeppa heilan dag. Sem betur fer á hann félaga sem deila sama áhuga....
..

Friday, September 10, 2004

Pestarvæl

Það kom ein snögg og afkastamikil Pestarkerling við hjá mér í gærmorgun og ég lagðist í bælið í allan gærdag. Sem betur fer hafði ég fengið bók lánaða daginn áður, ég náði að lesa slatta á milli faðmlaga við Gústavsberg. Og bjórbumban minnkaði aðeins fyrir fertugsafmælið sem ég fer í á morgun! En ég var svolítið föl í dag. Mín fölfölbrúna brúnka fór alveg...
..

Tuesday, September 07, 2004

Ávana- og fíkniefni

Ég sé það að ég er illa haldinn ávana- og fíkniefnasjúklingur eftir sumarið. Ég hef verið alltof góð við mig síðustu mánuði og því er þetta niðurstaðan. Ég er með tremmu. Titra öll og skelf. Get ekki einbeitt mér né hugsað neitt af viti. Þrái bara fixin (takið eftir fleirtölunni) mín. Fyrst ber að telja súkkulaðið. Heima á ég nokkrar blokkir af eðalsúkkulaði en get ekki borðað það vegna loforða um aðhald sem ég gaf út opinberlega eftir að hafa séð digitalmyndir af mér á ströndinni í Roses á Spáni. En mikið ofboðslega langar mig í nokkra mola. Einnig hefði ég ekkert á móti svo sem einum ísköldum bjór eða glasi af hvítvíni. Og leggjast svo á strandhandklæðið undir sólhlífinni og dorma í síestunni. Já eða lesa góðan þriller og fylgjast um leið með fólkinu í kringum mig. Eða fá einn cafe con leche og grand. Og meira súkkulaði. Og síðasta fíknin.....sem ég er að fullnægja í augnablikinu...internetið og tölvupósturinn minn. Je minn hvað ég fann fyrir því í fríinu að komast ekki í póstinn minn og á netið. Ég áttaði mig á því að ég gæti bætt þessari fíkn við langa listann minn þegar vinkona mín ein sagðist hafa þjáðst á meðan hún var internets- og tölvupóstslaus í hálfan mánuð og fattað að hún væri líklega háð þessum fjanda. Og ég er sem sagt netsjúklingur líka. Vitið hvar maður fer í meðferð við ofneyslu súkkulaðis, síestubjórs, letiblunda, gláps, grands og internets?
..

Thursday, August 19, 2004

Sælublogg

Þetta hefur nú verið meira blíðviðrið undanfarið og landinn orðinn vel útitekinn og sællegur að sjá. Og góða veðrið hefur heldur betur haft áhrif, ekki bara á góða sprettu aðalbláberja, gróðursæld, geitungafjölda og fjölda rósaknúppa á bleiku rósinni minni, heldur hafa knattspyrnumennirnir fengið hita í kroppinn og völtuðu yfir Ítali í gær með glæsibrag. Já, hugsið ykkur ef við gætum gengið að því vísu að í 4 vikur á ári væri hér endalaust sólskin og hiti alltaf yfir 15 stigum, jafnvel hærri eins og gerðist í síðustu viku. Annars er ég ósköp lukkuleg því ég fæ áfram vonandi blíðu og hita í þokkabót. Fljúgum út til Barcelona á laugardaginn og verðum við Costa Brava ströndina, nánar tiltekið í Roses, í hálfan mánuð. Ég kemst í færi við búðirnar í Barcelona síðustu dagana og allt annað skemmtilegt sem tilheyrir þeirri frábæru borg. Gaudí og Dalí og Picasso og allir hinir snillingarnir. Við ætlum einnig að kíkja yfir landamærin til Frakklands, til Pepignon ásömt mörgu öðru og ég er því alsæl að eiga þetta framundan og lengja sumarið. Verst hvað það hefur liðið fljótt og því allt eins víst að næstu tvær vikur verði eins. Búmm..liðið og ég komin heim aftur...
En núna í augnablikinu ætla ég að smjatta á handgerða konfektinu sem ég fékk gefins í gær. Hafliði Bakari er snillingur.
..

Wednesday, August 11, 2004

Hiti og sól

Sit hérna með frostpinna í boði vinnunnar. Með blöðrur á fótum, tognaðan lærvöðva, flugnabit í vinstri hnésbót, marbletti á ýmsum stöðum, sólbrunnin og með stærstu frunsu norðan alpafjalla á efri vör. Ég er sem sagt komin heim frá Hornströndum.
..

Thursday, July 15, 2004

Hæg tenging..

Neðangreind færsla var skrifuð í gær, en fór greinilega ekki inn. Ég sá það í morgun og sendi hana þá. Það er greinilega eitthvað mjög svo hæg tenging heima hjá mér. Löngu kominn tími á ADSL!
..

Wednesday, July 14, 2004

Litfríð og ljóshærð..

...og í nýjum skóm. Undirbúningurinn fyrir komandi laugardag stendur sem hæst. Þetta er alveg að bresta á. Föruneytið lendir í fyrramálið og hringarnir bíða. Er að semja ræðuna einmitt núna. Búin að bóka handsnyrtinguna og er orðin ljóshærð á ný! Bara allt annað líf. Ég verð að vera fín þegar litla systir giftir sig!

Hin verðandi brúður verður algjört "knockout" ef hún nær heilsu á ný. Hún var soldið slöpp í dag. Alveg búin á því. Það tekur á að gifta sig, I know. Been there, done that. Sem betur fer. Rosalega margt sem þarf að huga að. Systa stendur sig vel í því og liðsaukinn mætir frá Ameríku í fyrramálið og þá fer þetta allt að smella saman. Þær eru á við heilan her tvær saman. Ah, svo fær ég líka varninginn á morgun. Allt stöffið frá landinu í vestri. Það fer um mig alveg sæluhrollur.

Annars hef ég nú ekki setið auðum höndum frá síðustu færslu. Ónei. Skrapp austur í hitann og sólina á mánudeginum í síðustu viku, og skarta m.a. smávegis af lit eftir þá ferð. Þetta var algjört letilíf í sól og hita. Sem sagt, alveg eins og í útlöndum. Sötraði bjór um hádegið á meðan ég var í sólbaði, hvítvín á meðan ég var að búa til matinn og svo kaffi og grand á eftir. Lovlí. Mæli með því að höfuðstaðurinn verði færður að Hallormsstað. Fínt veður þar. Svo er bara töluð portúgalska í búðunum. Vantaði bara meira strandlíf, þótt Atlavíkin sé svo sem hálfgerð strönd.

Ég er einnig búin að labba á Helgafellið, sjá Spiderman 2, kaupa mér dress fyrir brúðkaupið (ótrúlega mikil vinna þar að baki) veiða í vötnunum sunnan Tungná, strauja 25 skyrtur og blússur, lesa þrjár bækur, skipuleggja ferð á Hornstrandir, hitta vinkonurnar, fara að vinna aftur og er á leið aftur í frí eftir morgundaginn.
..



Monday, July 05, 2004

Á leið út úr bænum...

Stefnan er tekin austur, í takt við veðurspá. á dagskrá er að veiða, ganga, sofa, liggja í leti, fara í sund, borða góðan mat og drekka gott hvítvín. Og njóta þess að vera langt frá amstri hversdagsins.
Er búin að finna mér dress fyrir veislu ársins, búin að pakka hálfu eldhúsinu ofan í ferðabox og kælibox, er vel birg af bókum og er því ekkert að vanbúnaði.
..

Friday, July 02, 2004

Gönguferð dauðans?

Var að skipuleggja gönguferð á Hornstrandir í gær. Lá því í kortum og bók um staðhætti áður en ég fór að sofa og fór yfir útbúnaðinn minn í huganum. Náði einnig að gera systur mína svo fúla út í mig að hún skellti á mig. Dreymdi svo bara styrjaldir, mannsmorð, eltingarleiki upp á líf og dauða og spillingu, dauða og djöful....

Annars er voða notalegt að vera í sumarfríi. Núna er klukkan t.d. rúmlega hálftólf og ég ennþá í náttfötunum. Búin að lesa öll blöðin í tætlur og fá mér kaffi, klappa kisunum, skoða bakpokann minn og fylgjast með húðlötum unglingum hangsa við beðið á græna svæðinu á bakvið húsið. Og úti rignir. Spáin fyrir helgina og næstu viku er betri, þ.e. fyrir austan. Leiðin liggur nefnilega út úr bænum á sunnudaginn og þá er bara spurning í hvaða átt við förum. Miðað við veðurspá er það austur.

Jæja, best að fá sér eitthvað í gogginn. Og fara svo í búðarráp. Er enn að leita mér að sparifötum fyrir brúðkaup. Ef ég verð ekki afboðuð fyrir að vera með leiðindi.

..

Wednesday, June 30, 2004

Sumarfrí innan seilingar...

..eða svona næstum því. Það fer allt eftir þvi hvernig málin þróast næstu klukkutímana. Ég verð voða glöð ef ég fæ að sofa út á morgun, dingla mér og fara að finna spariföt fyrir brúðkaupið eftir rúmar 3 vikur. Gæti samt þurft að vinna. Vonandi ekki...

..

Tuesday, June 29, 2004

Oj bara...

....var að ná mér í kaffi áðan. Var niðursokkin í verkefnið sem ég er að vinna að og dreypti annars hugar á kaffinu. Fann allt í einu svo mikla rakspíralykt af kaffinu að ég næstum því kastaði upp. Skildi ekkert í þessu þar til að ég kveikti á því að líklega hafði sá sem notaði plasthölduna utan um kaffiplastmálið verið angandi af Old spice eða þ.u.l. Þetta var svo ógeðslegt eitthvað. Er harðákveðin í því að hætta að nota þetta plastdrasl. Nota bara næst fínu bollana.

Annars lifi ég enn á síðustu helgi. Veiðin gekk frábærlega vel þrátt fyrir hífandi rok og öldugang. Svo var ósköp notalegt að hvíla sig í sumarbústaðnum og fara í heita pottinn. Maturinn klikkaði ekki, hvorki grillið á laugardagskvöldinu né humarstaðurinn á Stokkseyri á sunnudeginum. Namminamm....

..

Friday, June 25, 2004

Veðurspá...


....það er spáð stormi á sunnanverður hálendinu fram til kl. 18 á morgun. Á morgun mun ég því kljást við rigningu, storm, kulda og bleytu og reyna að veiða á meðan varað er við útiveru á þessu svæði. Ef þetta kallast ekki að þrjóskast við...
..

Thursday, June 24, 2004

Sumarfríið mitt....

...er of langt undan að minu mati. Ég finn að ég er orðin svolítið þreytt. Letin er gjörsamlega að yfirbuga mig á morgnana. Ég sem hélt að ég yrði svo spræk í birtunni. neinei, þvert á móti. Þá lufsast ég heima á náttfötunum að lesa öll blöðin, fæ mér kaffi, klappa kisunum, kíki á blómin, set í þvottavél..allt í svona sló-mó. Hægar hreyfingar. Geispa mig svo úr kjálkalið. Æ, það er vika eftir.....
..

Tuesday, June 22, 2004

Harðsperrur á þriðja degi...

...eru ekki eins slæmar og búið var að vara mig við. Þær eru bara alveg þolanlegar. Almenn ánægja með gönguferðina hefur líklega einnig áhrif á líkamlega líðan, það er bara gott að finna fyrir þreyttum vöðvum. Sérstaklega þegar þessir sömu vöðvar hafa lítið sem ekkert verið notaðir í margar vikur! Sem sagt, gangan sl. laugardag heppnaðist vel, gönguskórnir stóðu fullkomlega undir væntingum og göngufélagarnir alveg frábærir. Við skemmtum okkur konunglega, fimm fræknar konur með einn bjór hver í bakpokanum. Enda vorum við tindilfættar sem fiðrildi eftir B-punktinn og eldsnöggar niðrí Bása, við hefðum getað hlaupið Kattarhryggina og niðurúr. Ég mæli með svona hálfum Fimmvörðuhálsi, alveg þokkalega erfitt (þessar fannir eru endalausar) en samt ekki svo að maður væri dauður um kvöldið. Þórsmörkin var algjör paradís að venju, allt í fullum blóma og veðrið indælt og fór heldur betur hlýnandi er á helgina leið. Við komum einnig við á Hvolsvelli á heimleiðinni og fórum í sund í 21 stiga hita og sól. Og þó að erfitt hafi verið að labba upp og niður stiga, já eða stíga upp eða niður úr jeppanum, þá vorum við svo ánægðar með labbitúrinn að harðsperrurnar skiptu engu máli. Í gær þurfti ég svo að fara á fund á Selfossi og veðurblíðan var þvílík að ég hefði alveg verið til í að vera áfram í fríi. En ég hætti snemma og sat á veröndinni heima og sólaði mig, á meðan bóndinn hamaðist við að klára að leggja hellurnar og reita arfann. :o) Svo fórum við í sund, ég synti nú ekki nema 350 metra, enda fóru harðsperrurnar að segja til sín eftir nokkrar ferðir. Svo lá leiðin á Friday's og fengum okkur gott að borða og horfðum á lok leiksins á milli Englendinga og Króata, tókum svo Mystic River á leigu og gláptum á hana. Virkilega góð mynd. Mánudagurinn varð því bara alveg ágætis dagur!
..

Wednesday, June 16, 2004

Ég þurfti að skreppa í bæinn áðan...

...og langaði sko ekkert í vinnuna aftur. Indælisblíða úti. Og 14 dagar þar til að ég fer í sumarfrí. það virkar alltof langt í fljotu bragði en ég næ liklega rétt svo að klára það mesta sem liggur fyrir. Reyndar verð ég ekki í fríi í allan júlí en samt í tæpar þrjár vikur, skipti þessu eitthvað upp. Svo aftur í frí í lok ágúst, en þá förum við út í sólina á Spáni og lengjum sumarið aðeins.
Vonandi verður gott veður núna um helgina! Þá erum við að fara í Þórsmörkina og ég nenni ekki að hírast í tjaldi í kulda og trekki. Spáin virðist ágæt, en þar sem ég treysti alls ekki mbl.is-spánni, eins og margoft hefur komið fram, þá ætla ég að kíkja á þessa þýsku líka. Talandi um þýsku...var ég búin að segja ykkur að ég fékk aftur níu í þýskuprófinu um daginn? Þessu sem ég hélt að ég hefði klúðrar bigtime? Og áfram á þessari línu - mikið voðalega spiluðu Þjóðverjar leiðinlegan bolta í gær. Ég gafst upp á að horfa og missti þ.a.l. af marki súkkulaðistjörnunnar í lokin þegar hann jafnaði fyrir Hollendinga. Hollendingar fengu einnig fleiri stig í mínum bókum fyrir fríðleika. Ég mun þó gæta mín að hlusta ekki á þá tala. Beckham á t.d. ekki að tala neitt. Bara horfa í myndavélalinsuna og brosa. Þetta á líklega við þá flesta. Eins og Adonisar á vellinum en eru svo bara mjóróma og illa mælandi ræflar í raun. Ferlega svekkjandi.
..

Tuesday, June 15, 2004

Kvöldsund

Í gær þegar ég kom heim örmagna, heilasellurnar allar alveg á barmi útrýmingar og augun orðin ferköntuð af því að glápa á tölvuskjáinn, þá var alveg ferlega notalegt að skríða upp í sófa með dagblöðin, kaffibolla og kexköku. Það var ekki síður notalegt þegar Nebbi nautnaseggur skreið uppí til min líka og malaði svo ryþmískt að ég dormaði í kortér. Það var svo ennþá betra þegar við drifum okkur af stað eftir kvöldmatinn í sund. Fórum í Kópavogslaugina og þar synti ég heila 300 metra og flatmagaði svo í heitu pottunum og gufunni. Það var alveg pakkfullt, allir að slappa af í kvöldsundi. Að hafa sundlaugar opnar á kvöldin er snilld. Svo komum við bara heim og ég fór eiginlega beint í náttfötin og uppí rúm. Hroorrrrrrr.....
Í kvöld hins vegar ætla ég í labbitúr. Á nýju gönguskónum...
..
Ég er ekki alveg að skilja þessa syfju...

...ég sofna fyrir kl. ellefu, sef til að verða átta og er gapandi og geispandi í vinnunni klukkan tíu? Hmmm...
..

Monday, June 14, 2004

Gleymdi einu stórmerkilegu!

Ég festi kaup á nýjum gönguskóm í fyrradag. Þeir eru alveg rosaflottir og því ekkert því til fyrirstöðu að fara að prufuganga þá! Spáin á morgun er fín, allavega ekki spáð rigningu. Ætli ég drífi mig ekki bara í göngutúr. Gömlu skórnir eru fínir fyrir vetrarferðirnar en þessir eru svona léttir og liprir, alveg kjörnir í sumarfríið.
..
Sem betur fer er rigning í dag...

...því það er langur vinnudagur framundan! Þá er betra að hafa haustveður með rigningu en sólina sem skein glatt í síðustu viku og eyðilagði öll vinnuafköst hjá mér.

Horfði annars á tvær frábærar myndir um helgina. Whale rider og The Calender Girls. Mæli hiklaust með þeim! Aumingja bóndinn var nú ekki ánægður með myndavalið hjá mér, en viðurkenndi eftir á að þær hefðu báðar verið skemmtilegar. Mér skilst að Mystic River komi út í dag. það er mynd sem ég ætlaði að sjá í bíó en komst aldrei. Hún verður örugglega tekin á leigu einhverja næstu daga!
Annars ætla ég að panta mér slatta af geisladiskum á netinu næstu daga, svona til að lifga upp á úrvalið af tónlist í sumarfríinu. Mæliði með einhverjum sérstökum geisladiskum til að kaupa?
Ég prufaði að kaupa á netinu í Banana Republic fyrir helgi, reyndar karlmannsföt, ekekrt á mig :o( Fór smá krókaleiðir til þess. Fróðlegt að vita hvort það heppnaðist hjá mér. Ég er nefnilega byrjuð að undirbúa mig fyrir komu litlu systur frá Ameríku. Núna kemur hún með burðarmann (eiginmann, eiginlega það sama) með sér. Henni er því ekki vorkunn að kippa með sér nokkrum sápum og nærfötum og gallabuxum handa stóru systur!
..

Friday, June 11, 2004

Sumarið er tíminn...

Við hjónin sátum yfir dagatalinu eitt kvöldið í vikunni og reyndum að skipuleggja sumarið og átta okkur á því hvaða helgar í sumar við erum laus og hvaða helgar eru undirlagðar af fyrirfram ákveðnum útilegum, brúðkaupum eða einhverju öðru. Það kom í ljós að þessi helgi, 11. - 13. júní er síðasta helgin í sumar sem er á lausu. Allt annað frátekið. Dagskráin er t.d. Þórsmerkurferð og Fimmvöruháls, veiðiferðir í vötnin að Fjallabaki og önnur hálendisvötn, Þakgil, Strandir, Austfirðir, Borgarfjörður, Gæsavatnaleið og Trölladyngja, Vonarskarð og Kverkfjöll, Dýrafjörður, Bjarnarfjörður og síðast en ekki síst, brúðkaup í bænum. Sem sagt nóg að gera. Það er eins gott að ég endurnýji gönguskóna mína á morgun.
Fyrsta útileguhelgin er sem sagt eftir viku, þá hefst "vertíðin" með árlegri Þórsmerkurferð Flugsveitarinnar í Bása - sem strangt tiltekið tilheyrir ekki Þórsmörk heldur Goðalandi! Og ég ætla að labba Fimmvörðuhálsinn, þ.e. helminginn. Þennan sem ég var of þreytt til að njóta fyrir nokkrum árum þegar ég staulaðist aðframkomin yfir fannirnar og niður í Mörkina. Þá var ég svo illa á mig komin að þegar ég þurfti að labba upp tröppur næstu daga þurfti ég að hjálpa til með því að lyfta fótunum á mér. Ég var sem sagt alveg búin í náranum. Algjört hró!
..
Meira af golfi

Þetta var ekki búið, ég mætti tvo daga í viðbót á byrjendanámskeiðið í sól og blíðu og lærði að pútta og slá af þvílíkum móð að ég tognaði í bakvöðva.....
En allavega þá er kominn mikill hugur í okkur stelpurnar í vinnunni og við stefnum á að fara og spila golf saman einhvern daginn á næstunni. Það verður gaman að sjá hvort það sé eins gaman að spila braut eins og að dútla sér á æfingasvæðinu!
..

Wednesday, June 09, 2004

Alvörugefnir íþróttamenn...

Ég prufaði svolítið nýtt í gær. Fór á byrjendanámskeið í golfi með öðrum vinnufélögum. Þetta var mjög skemmtilegt, enda fallegt veður og frábært að vera að dunda sér úti. Ég prufaði einnig að fara á hestbak um daginn og fékk smá innsýn í hestamennskuna. Þannig sl. mánuð hef ég prufað tvö ný áhugamál, hestamennsku og golf. Sumir segja að þetta séu íþróttir fyrir "ríka" fólkið og má svo sem alveg skilja þá fullyrðingu enda dýrt að stunda bæði þessi sport. (og litla Corsan var áberandi minnst á bílastæðinu innan um Benza, BMWa og slyddujeppana á bílastæðinu...) En ég komst að einu í gær. Golfarar eru ólíkt alvörugefnari og formfastari en hestamenn. Ég hafði aldrei komið á svona alvöru golfvöll áður og gerði fullt af mistökum. Labbaði þar sem ég mátti ekki labba, snéri golfkylfunni öfugt í hvíld, hló og flissaði og gerði stólpagrín að sjálfri mér. En eftir smátíma sá ég að ég var ekki alveg að fylgja þessum óskráðu siðareglum golfara og tók mig á. Horfði íbygginn í kringum mig, lét fá svipbrigði sjást og hagaði mér eins og þaulreyndur golfari. Mikið rosalega geta þeir verið alvarlegir!! Af þessum 2 áhugamálum er ég að fíla hestana betur. Og ég held að ég verði ekki mikið að þvælast á "fínu" golfvöllunum hérna í bænum. Það verður gaman að geta prufað golfið í og með öðru á ferðalögunum í sumar. Svona mér til skemmtunar. Og öðrum..... :o)
..

Tuesday, June 08, 2004

Fy Sören!
Ég var að hella niður á mig kaffi..á ljósbleikan bolinn. Fjandinn!!
..

Monday, June 07, 2004

I beg your pardon...?

Hvaða fordómakjaftæði er þetta?? Síðan hvenær eru 41 árs gamlar leikkonur taldar of "gamlar" til að leika í sjónvarpsþáttum?
..

Saturday, June 05, 2004

Völd til kvenna!

Síðastliðin vika hefur öll verið eins og ein hálfgerð helgi. Eins og Hvítasunnuhelgin hafi aldrei klárast! Enda var ég ekki nema einn og hálfan dag í vinnunni þessa vikuna og því ekki skrítið þótt mér finnist vikan hafa verið skrítin. Hápunkturinn var auðvitað "valdaráðstefnan" á Bifröst. Hún hafði á sér skemmtilega súrrealistískan blæ, ekki síst vegna þess að hún endaði á móttöku á Bessastöðum. Það var líka upplifun út af fyrir sig fyrir sveitunginn mig að koma þangað inn. Ég kolféll fyrir húsinu, hvítlökkuðu gereftunum og þessu gamaldags "lúkki" sem ég er að rembast við að blanda saman við hið nýja á mínu heimili. Við vorum líka hvattar til að skoða húsið, alveg frá kjallara upp á loft og nýttum við okkur það óspart! Skoðuðum hvern krók og kima. En burtséð frá Völu Matt-fílingnum í mér, þá var heimsóknin þangað bara mjög ánægjuleg. Forsetinn tók vel á móti okkur og Frú Dorrit reyndi eftir fremsta megni að spjalla við okkur á íslensku-ensku. Þau eru greinilega alveg þaulvön að taka á móti gestum þarna og virtust nú bara alveg þokkalega afslöppuð yfir öllu því sem gengið hefur á. En víkjum aftur að Bifröst í Borgarfirði. Þangað komum við systurnar á miðvikudagseftirmiðdaginn, alveg uppveðraðar eftir að hafa hlustað á blaðamannafundinn í útvarpinu á leiðinni. Hittum fyrir fullt af skemmtilegum konum, fyrrum skólasystur og kollega og gengum upp á Grábrók. Þaðan lá leiðin í Paradísarlaut þar sem veitingar voru á boðstólum. Ekki spyrja mig hversu mörg hvítvínsglös ég drakk, ég bara man það ekki, það var alltaf einhver að sniglast í kringum mig að bæta á glasið. Hausverkurinn morguninn eftir bendir þó til þess að þau hafi verið fleiri en tvö og fleiri en þrjú. En hann var fljótur að hverfa því fyrirlestrarnir á fimmtudeginum voru hver öðrum áhugaverðari. Og bandaríski prófessorinn og lögfræðingurinn Nadine Strossen var alveg frábær. Forseti bandarísku réttindasamtakanna fór á kostum og ég myndi glöð setjast á námsbekk hjá henni, enda er hún prófessor í stjórnskipunarrétti við háskólann í New York og greinilega alveg brilljant lögfræðingur. Og kom vel undirbúin, hafði lesið einhverja skýrslu íslenskra stjórnvalda til Sameinuðu þjóðanna um stöðu íslenskra kvenna hér á landi - ég hafði nú bara ekki einu sinni heyrt um þessa skýrslu. Bandarískar konur eiga langt í land miðað við okkur íslensku, en samt sagði hún okkur frá baráttuaðferðum bandarískra kvenna sem hafa gefist mjög vel, og ekkert ósvipaðar hugmyndir komu fram í máli annarra fyrirlesara. Þessar hugmyndir getum við líka nýtt okkur t.d. til þess að fjölga konum í valdastöðum og stjórnum fyrirtækja. Og munum gera ef yfirlýsingar ýmissa áhrifakvenna sem þarna voru eru marktækar. Vonum það bara! Það sem gladdi mig var að þarna var ekkert væl í gangi. Ekkert svona minnimáttarkjaftæðisvæl heldur kom það skýrt fram að það er okkar að breyta viðhorfum og berjast fyrir jafnrétti á öllum sviðum. Samtakamáttur og tengslanet eru tæki til þess. Það sem var líka fróðlegt var að þarna komu fram atriði er varðar jafnréttið eins og það snýr að körlum, m.a. í forsjármálum. Því einn lögmaður benti á að ennþá væru ríkjandi viðhorf í dómarastétt (hjá karlkynsdómurum) sem eru ekkert annað en misrétti gagnvart feðrum sem væru löngu úrelt og ættu ekki að sjást lengur á prenti en gera það samt. Enn það sem mér þótti hvað sérkennilegast var fréttaflutningurinn frá þessari ráðstefnu (það sem ég varð vör við allavega). Var ekki hægt að sýna annað en göngutúrinn og glasalyftingar í Paradísarlaut? Hvar voru fjölmiðlarnir þegar skoðanaskiptin fóru fram? Það þótti greinilega meira spennandi að sýna okkur sem einn stóran saumaklúbb. Óþolandi.
..

Wednesday, June 02, 2004

Framundan er forvitnilegur sólarhringur og rúmlega það...

Ég er að fara á "kerlingarmót" eins og vinnufélagarnir orðuðu það. Yfir hundrað konur að spá og spekúlera og skemmta sér. Stjórnmálamenn, fræðimenn, dómarar, lögfræðingar, leikkonur og doktorar munu ræða um konur og völd. Fræði og skemmtun í bland. Og mitt helsta áhyggjuefni? Jú, í hverju á ég að vera?!!?
..

Monday, May 31, 2004

Fúlt.

Það eru bara allar verslanir eiginlega lokaðar í dag. Ég sem ætlaði að reka nefið inn í aðra hvora verslunarmiðstöðina á leiðinni heim úr vinnunni. Mín bíður m.a. það erfiða verkefni að finna spariföt fyrir brúðkaup. Úff..

Var að skoða langtímaveðurspána. Það virðist bara vera rigning á næsta leiti, alveg fram á sunnudag (nema fimmtudag, þá er smá sól). Verður fróðlegt að sjá hversu oft sú spá mun breytast fram að helgi!
..
Í dag er mánudagur en samt ennþá helgi!

Opinberir frídagar á mánudögum koma eins og kallaðir fyrir okkur sem komum frekar þreytt og tætt undan vetri. Sama á við um fimmtudagsfríin svokölluðu. Næsta svoleiðis frí verður fimmtudaginn 17. júní. nk. Ég veit ekki hvort ég lafi þangað til. Sé fram á að taka einn og einn "personal day" eins og Kaninn segir. Já, þetta eru ekki upplífgandi orð í upphafi frídagsins, en það er líklega vegna þess að ég var rifin upp fyrir kl. átta því eiginmaðurinn þurfti að fara að vinna. Keyra túrista. Fékk hringingu hálfellefu í gærkvöldi og við sem vorum að renna í hlaðið á grútskítugum og rykugum bílnum neyddumst til þess að fara út og þrífa og bóna jeppann að innan og utan. Það sem maður gerir ekki fyrir peninga og væntanleg verkefni. Þ.e. hann þarf að fara í 10-11 tíma og tala út í eitt og sýna túristum hraun, jökla, hella og fossa og ég þarf að sinna öðru. Valið stendur á milli vinnu, bókhalds eða heimilisþrifa. Og helst þyrfti ég að gera allt þrennt. En hefði hann ekki farið að keyra, þá er allt eins víst að við hefðum ekki gert neitt. Kannski farið í sund og í kaffi eitthvert.

Annars hefur þessi helgi svo sem verið hin ágætasta. Hóf hana á Mojito kokkteil á föstudegi á Rossopomodoro, fórum svo í bíó þar sem Hr. Brad Pitt náði ekki að halda athygli minni, við systurnar vorum sammála að Eric Bana hefði meira sexappíl í "Troy". Hefðum betur átt að halda okkur við kokkteila í sumarblíðunni. Laugardagurinn hófst á örlitlu útsóvelsi, þ.e. ég svaf fram yfir kl. tíu. Svo fór ég að vinna og duglegi garðvinnumaðurinn fór að sækja sand og möl fyrir garðinn. En þá voru gemsarnir okkar farnir að loga af góðviðrisfréttum úr Borgarfirði þannig að um fimmleytið brunuðum við í Húsafell og þáðum gistingu í ofurfellihýsi. Snæddum góðan mat og áttum alveg frábæra stund með góðum vinum í meiriháttar góðu veðri. Í gær skriðum við svo upp á jökul, tókum einn rúnt þar í sól og roki. Við síðan kvöddum félagana og kíktum í kaffi til tengdamömmu í bústað í Borgarfirðinum, átum á okkur gat enn einu sinni og komum frekar rykug, rauðbirkin og syfjuð í bæinn. Og fórum að þrífa jeppann.

Ég held ég byrji á að vökva kryddjurtirnar mínar...
..

Friday, May 28, 2004

Ég þoli stundum ekki sjálfa mig.

T.d. eins og í morgun þegar ég gleymdi gemsanum á eldhúsborðinu. Var fyrst bara voða fegin, laus við að hafa hann glymjandi allan daginn. En ég er eiginlega bara hálf manneskja núna. Sakna gemsans míns. How sick is that?

..

Thursday, May 27, 2004

Einu sinni byrjuð, get ekki hætt..

Byrjaði á kryddjurtaræktun í vor. Er svo gaman að ég gæti opnað kryddjurtaheildverslun. Basilika, kóríander og timian...sprettur af lífsins list í pottunum hjá mér. Trúi þessu varla, enda hefur svona ræktun farið illa hjá mér í öll hin skiptin sem ég prufaði. En ég passaði betur upp á að vokva þetta núna. Og nú er bara að halda áfram, ætla að prófa fleiri tegundir!
Svo var í ég matjurtagarðinum í gær, að hreinsa og stinga upp. Nú get ég plantað kartöflunum (var á svipuðum tima í fyrra, gekk bara mjög vel), salatinu og svo er að hella sér í jarðaberjarækt. Er tilbúin með kassa og alles. Svo er rabarbarinn heldur betur búin að taka við sér. Ég á eftir að verða svo geðveikislega heimilisleg í sumar að ég fæ ógeð á sjálfri mér...
..

Austfirðir

Ég var send austur á Firði um síðustu helgi í tengslum við vinnuna. Það var mjög áhugavert á margan hátt. Þarna er mikil uppbygging í gangi, hálfgerð "gullgrafarastemming" ríkjandi eins og einn heimamaður kallaði það. En ég sem sagt flaug í fyrsta sinn austur á Egilsstaði. Í annað sinn sem ég hef flogið innanlands. Er vanari að keyra þangað sem ég er að fara. Enda var ég í hálfgerðum vandræðum að pakka niður því sem ég þurfti, þ.e. fyrir helgi á hóteli, fyrirlestur, rútuferð og gönguferð, fínan kvöldferð ofl. Ég stóð lengi og horfði á fataskápinn og klóraði mér í kollinum. En hefði ég verið að pakka fyrir 5 daga jeppaferð á fjöll, vetrarferð eða sumarferð, þá hefði ég verið fimm mínútur að pakka. Eins og ég sagði við einn kollega minn, ég kann bara ekki að ferðast innanlands án jeppans míns. Ég bauð eiginmanninum með, og þegar við lentum fyrir austan og settumst upp í bílaleigubílinn, litla Yarispúddu, þá horfðum við á hvort annað og sögðum í kór "þetta er ekki alveg eins og það á að vera"... Svo rúntuðum við um ýmsa staði á sunnudeginum, m.a. inn í Mjóafjörð. Það vantar sko ekki náttúrufegurðina þarna fyrir austan. Og frómur bæjarstjórnarmaður í Fjarðabyggð sagði mér m.a. að aðalbláberin væru stærst og best á Austfjörðum. Það þarf nú ekki meira til að ég, "berjakerlingin" eins og ég er kölluð stundum, fari aftur austur, bara til þess að kanna þessa fullyrðingu!

Við fórum líka á Seyðisfjörð. Ég gekk eiginlega útfrá því að þar myndum við fá kaffi og meðlæti um þrjúleytið á sunnudegi. Enda að sögn líflegur bær. Það er skemmst frá því að segja að það var allt dautt þarna og allt lokað. Sá ekki eina hræðu á stangli. Seyðfirðingar fara greinilega ekki út úr húsi síðdegis á sunnudögum. Ég fer að halda að um leið og ferjan lætur sjá sig hlaupi allir til og opni búðirnar sínar. Asnalegt. Seyðisfjörður stóð alls ekki undir væntingum. Jújú, falleg hús, fallegur staður. En lýsi að öðru leyti frati á þennan bæ. Sorrí. Te og kaffi á Egilsstöðum björguðu okkur, enda nýlega búið að opna kaffihús inn af búðinni. Nammnamm. Eitt - núll fyrir Egilsstöðum. Neskaupstaður er staður sem kom á óvart. Þjónustustigið er ansi hátt þarna. Og bærinn fallegur burtséð frá aðkomunni, fram hjá draslaralegum bryggjum. En þarna var kaffihús, flott blómabúð, tónlistar-og hljóðfærabúð og flott heimavist Verkmenntaskólans. Mæli hiklaust með gistingu þar. Grunnskólinn einn sá flottasti á landinu og snjóflóðavarnirnar mjög smekklega útfærðar (bæði upp í fjalli og á t.d. grunnskólanum), annað en hörmungarvarnargarðurinn á Flateyri. Neskaupstaður fékk prik í hattinn hjá okkur!

..
Það eru allir að breyta um útlit.

Þ.e.a.s. á blogginu sínu. Allir að lífga upp á síðurnar sínar fyrir sumarið. Ég er að melta með mér hvort ég eigi að nenna því að breyta til. Æ. Kemur í ljós.
..

Friday, May 21, 2004

Það er allt í einu kominn föstudagur!

Og ég sem ætlaði að vera fyrir löngu búin að setja inn umfjöllunina um Eurovision-lögin. Uss.

Ég er á leiðinni austur og verð á Norðfirði um helgina. Flýg á Egilsstaði í kvöld og kem heim á sunnudagskvöldið. Svaka stuð. Hef aldrei komið á Neskaupstað áður. Verður fróðlegt...

Mikið er ég fegin að kórtónleikunum er lokið. Þeir voru í gærkvöldi og við önduðum töluvert léttar á leiðinni heim í gær.
..

Saturday, May 15, 2004

Jamm. Er illa haldin af Makedóníusyndróminu...

Hef verið að fylgjast með endursýningu á undankeppninni í sænska sjónvarpinu. Er enn að furða mig verulega á því af hverju Eistland og Danmörk komust ekki áfram. Og Serbía er ennþá jafnflott. Það má alveg vinna í kvöld mín vegna. Engar mótbárur þar...

Ég er einlægur aðdáandi þriggja Íra sem hafa fjallað um söngvakeppnirnar undanfarin ár og lýsa frammistöðu keppenda á æfingum o.fl. Þeir eru á þessari bloggsíðu og skrifuðu m.a. um lokaæfinguna áðan eftirfarandi:

ICELAND - Jonsi - Heaven. Shows you what music can do for you. Grabs your emotions, takes them up and down and wins the hugs and hearts of Europe and never really lets you go. I didn't rate this much to start with. Nobody seemed to. But he makes the stage his own and just.....Yeah, yeah yeah. I could live with this winning.

Í gær sögðu þeir m.a. þetta:

ICELAND - Jonsi - Heaven. After a run of uptempo songs of varying levels of poor quality, a complete change of pace. Jonsi is now dressed up in a white suit (that's original! But I forgive him), and pouring his heart out and singing fabulously. It really is an arresting performance, it's got a perfect draw, and it could well be a 19:00 local time start in Reykjavik next May. If it's outside the top 6 I'll be furious - but it won't be. 1st-6th.

Ég geri mér engar vonir, en það er gaman að sjá svona jákvæða umfjöllun!!!

..

Friday, May 14, 2004

...og krónprinsinn táraðist í kirkjunni...

...það mátti heyra andvörpin af öllum hæðum hér í húsinu. Krónprinsinn danski hreiðraði um sig í hjörtum fyrrum kvenkyns þegna sinna með glæsibrag með tárvotum augunum er hann leit brúði sína. Já, það jafnast fátt á við konunglegt brúðkaup. Og Ólafur Ragnar missir af þessu öllu saman.

..
Óþolandi lag...

...þetta gríska lag er að gera mig vitlausa. Shakis hinn gríski fær ekki stig frá mér, það er á hreinu. Bara fyrir það eitt að suða svona í hausnum á mér stanslaust!
..

Thursday, May 13, 2004

“Shake it!”

Ég er ekki alveg búin að mynda mér skoðun á því hvernig mér finnst þetta nýja fyrirkomulag á Eurovision vera, þ.e. þessi undankeppni í gærkveldi. Ég hef á tilfinningunni að þessi keppni sé að breytast verulega með tilkomu landanna í “austri”, þ.a. löndunum á Balkanskaga og þaðan norður úr. Keppnin í gær bar þess svolítil merki. Ég er nefnilega hálfgáttuð á valinu. Þarna flugu sum lönd inn í úrslitin sem ég hefði varla litið tvisvar á. En keppendur eins og Danmörk sátu eftir með sárt ennið. Ég tók mig til og punktaði hjá mér hvað mér fannst um hvert lag fyrir sig, svo ég gæti nú munað þau betur þegar að kosningunni kæmi, fyrst maður mátti kjósa svona fjandi oft, eða tuttugu sinnum! Þið ykkar sem þolið ekki þessa keppni sleppið þá bara þessum pistli. Mér er alveg sama. Ég er gjörsamlega týnd í Eurovisionlandi núna. Sem sagt, hér koma mínar skoðanir á þessum 22 lögum sem kepptu í gær...

Finnland. Sem betur fer var hann ekki með þessa hallærislegu vængi og í myndbandinu en var kominn í forljótar þröngar ljósar buxur. Það hefur líklega gert útslagið með að lagið kæmist áfram. En hann er með ágæta rödd og lagið venst alveg þokkalega.
Hvíta Rússland. Ég náði laginu alveg strax, ágæt melódía en úttauguð söngkonan hjálpaði ekki upp á framsetninguna. Í annarri umgjörð hefði laginu gengið betur.
Sviss. Ó mæ god. Það allra besta var þegar söngvarinn hálfrotaði sig með míkrafóninum, það var langflottast... Skiljanleg þessi núllstig!
Lettland. Ég var ekki alveg viss fyrst, en þegar söngvarinn tók góða rokkaríu og átti sviðið eins og á almennilegum rokktónleikum þá skoraði lagið nokkur stig fyrir að vera svolítið orginal. Hefði mátt komast áfram.
Ísrael. Jamm. Geldingurinn söng svo sem voða vel, lagið nett Eurovisionhallærislegt, en bakraddirnar...úff. Hörmung. Mátti detta út mín vegna.
Andorra. Einstaklega óeftirminnilegt lag. Hryllilega horuð og úfin hæna sem söng. “Nil points”!
Portúgal. Já, hún Soffía Viktoría var flott og með góða rödd en lagið ekki að gera sig. Alveg hroðalegt lag.
Malta. Hún var krúttlega fyndin en hann alveg hroðalega glataður. Minnti svolítið á Disney-lag. Þau komust áfram, ótrúlegt en satt...
Mónakó. Eftirlæti Alberts prins söng ágætlega en lagið glatað og framsetningin einnig.
Grikkland. Jaahá. Hann Sakis karlinn, já. Hvað á maður að segja....alveg týpískt lag til að slá í gegn i þessari keppni, þ.e. vekja athygli fyrir sýninguna á sviðinu sem gekk út á að dilla sér og sýna hold. Shakeshakeshakeshakeshake it! Alveg svona lag sem límist á heilann og maður þoooooolir ekki. Hann er eitthvað “of mikið” af öllu.
Úkraína. Flott show. Má vinna mín vegna.
Litháen. Man varla eftir þessu lagi, þótti það frekar glatað.
Albanía. Kom á óvart. Flottur taktur og sem betur fer slaufuðu þeir hallærislegu dönsurunum úr myndbandinu!
Kýpur. Fannst myndbandið flott. Vil samt helst að hún klúðri þessu því þetta er “hin” ballaðan. Andstæðingur Jónsa. Út með hana.... (lagið er samt ferlega flott....fjandinn)
Makedónía. Hmm. Skildi ekki af hverju þetta lag komst áfram. Kannski á það eftir að venjast eitthvað betur...?
Slóvenía. Cher/Celine Dion sound-alike. Lagið svona lala en þau nett asnaleg eitthvað. Hann snéri henni í hringi endalaust og hún svona gufaðist einhvern vegin áfram. Glatað...
Eistland. Fullt af Pochahontusum með léttgeggjuðum trommuleikara. Mér fannst þær frábærar og var svekkt yfir því að þær komust ekki áfram. Þegar gæinn trommaði með hausnum á sér fékk ég alveg kast. Skemmtilega bilaður eitthvað með hornin út úr skallanum og í yndislegu ósamræmi við þær þarna þjóðlega jóðlandi eitthvað á óskiljanlegu tungumáli.
Króatía. Sá að ég skrifaði hjá mér “neineinei”. Ekki mjög eftirminnilegt lag og komst þó áfram. Balkan-mafían greinilega að verki.
Danmörk. Tómas stóð sig vel og ég er ennþá fúl yfir því að lagið komst ekki áfram. Það fékk mig alveg til að iða í sófanum, takturinn var bara fínn.
Serbía-Svartfjallaland. Uppáhaldslagið mitt fyrir keppnina og það er ennþá á topp 5 hjá mér. Frábært lag, yndisleg melódía. Ég fæ svona rómantískan tragískan fiðring og ímynda mér ást í meinum og allt það...
Bosnía. hahahahahahahahahahahahahahahahahahaha.... Væri ég til í að sjá Jónsa herma eftir þessum Deen vitleysing. Þvílíkur bjáni og kjáni og..og... Djös vitleysingar eru þetta að kjósa þetta lag í úrslitin. En, það má hafa gaman af því. Alf hinn Austurríski frá því í fyrra bara kominn með samkeppni!
Holland. Lagið vandist, gítarleikarinn glataður og falskur en hinn gat sungið.

Sem sagt. Eurovisionblogginu lokið að sinni..meira síðar..
..

Tuesday, May 11, 2004

*Aaaarrrg*!

Hausverkur from Hell mættur á svæðið. Rúm, sæng og tvöfaldur skammtur af Íbúfeni væri vel þegið núna. Þetta gerist þegar maður glápir of stíft á tölvuskjáinn í marga klukkutíma.
..
Söngur og aðalfundur

Við skriðum heim um kl. eitt eftir miðnætti í gær. Enda var ég asskoti þreytt í morgun, ætlaði ekki að koma mér framúr rúminu. Og er svo tuskuleg núna að ég þakka bara fyrir það ef ég slepp við fundi í dag. Í gær fórum við sem sagt á kóræfingu og svo beint á aðalfund hjá Ferðaklúbbnum 4x4. Og sá fundur var einn sá fjörlegasti í háa herrans tíð og stóð alveg til hálfeitt! Mér líst vel á nýja stjórnarmeðlimi og nýjan formann, það verður eflaust gaman að starfa með þessum nýju mönnum. Við stelpurnar, sem eftir vorum í stjórninni til eins árs, munum hugsa vel um þá og passa upp á að þeir geri hlutina rétt...!

Annars líst mér ekkert á að veðbankar spái Íslandi 14. sætinu í Eurovision. Lögin í efstu sætunum hjá veðbönkunum eru ekki það góð að þau eigi efstu sætin skilið. En smekkur fólks í Eurovision er óútreikninalegur. Það kannski gerir keppnina einmitt skemmtilega! En ég segi eins og Gestur Einar - voðalegur trommusláttur er þetta í sumum lögunum!!?? Frétti einmitt af því að trommu-stapp-hamagangur í þessari Ruslönu frá Úkraínu hafi opnað sprungur í sviðinu úti á einni æfingunni...... :o)

..

Monday, May 10, 2004

Latar systur...

Við erum greinilega ógurlega pennalatar þessa dagana systurnar. Heimasíður á Barnalandi og Blogger eru alveg látnar afskiptalausar þessa dagana. maður veit ekkert hvað er t.d. að gerast hjá systurdóttur minni og nöfnu þarna í útlandinu. Já, ég er að nöldra. Finnst ég þó hafa staðið mig hvað skást í þessu heimasíðubloggi, og er ég þó ekki mjög aktív, allavega ekki sl. daga.

Ég heimta því uppfærslur í vefdagbækur systradætrana, myndir í albúmin (kommon, þið eigið báðar digitalmyndavél, ekki ég...) og ítarlegan póst um daglegt líf, allt frá tannburstun til eldamennsku, moll-heimsókna til skúringa ásamt fleiri fréttum af börnunum. jamm.

Annars er ég öll krambúleruð eftir helgina. Var á kafi oní mold og arfa og hamagangurinn svo mikill að ég er marin á hægra handarbaki. Hef greinilega verið í drápshug gagnvart skriðsóleynni...

Bakaði geðveikt góða köku handa slektinu í gær í eftirmat. Uppskriftin er úr kokkabók eftir Nigellu. Alveg trufluð, hún er svo góð. Hún kláraðist líka öll á nóinu. Lykilinnihaldið eru ástríðualdin.....nammmmmm...

Það gekk svona lala í þýskuprófinu um daginn. Maður uppsker eins og maður sáir, og ég á ekki skilið neitt voða góða uppskeru. Það er alveg á tæru. Svo veit ég ekkert hvort ég kemst að aftur í haust, ég var víst eitthvað voða sein að endurskrá mig. Bara bullandi takmarkanir á fjölda stúdenta í háskólanum. Frekar fúlt eitthvað. Æ, ég bara þarf að spá í það hvað ég ætli að gera í haust.

Í kvöld er næst síðasta kóræfingin fyrir tónleikana. Á dagskrá eru lög sem kórinn hefur æft áður, þ.e. fyrir mína tíð. Ég á eftir að læra næstum allt klabbið utanað... *andvarp*
..

Monday, May 03, 2004

Afsakið blogghlé...

Ótrúlegt en satt, þá kveikti ég ekkert á tölvunni um helgina. Fékk alveg skammtinn í vikunni, það var lítið annað gert en að vinna nema á föstudeginum. Þá var lokahófið í vinnunni út af heilsuátakinu. Voða gaman. Við fórum svo út að borða vinnufélagarnir ásamt mökum á 101 Hótel. Ferlega flottur staður þótt maturinn sé meira í ætt við skyndibita en alvöru matseld. Þarna var greinilega mjög "hot" að vera, fullt af þekktum andlitum. Þeir búa líka til helvíti gott "Mojito" á barnum þarna. Ég mun örugglega snúa þangað aftur...
Laugardeginum var eytt í hálfgerða þynnku og í að byrja að lesa undir þýskupróf. Gærdeginum var eytt í leti og að byrja að læra undir þýskupróf. Deginum í dag var eytt í vinnu fram að hádegi, heimsókn á gamla vinnustaðinn og svo að byrja að læra undir þýskupróf. Jamm, það gengur ekkert of vel að setjast við próflesturinn.... Enda efast ég um að ég hafi tíma og nennu í að halda áfram í haust, en ég verð bara að sjá til. Kemur í ljós. Annars erum við hjónin að fara á kóræfingu á eftir. Ég hef verið að raula Dona Nobis Pacem í allan dag og gera Ísafold kolvitlausa. Hún kemur og sest á skólabækurnar og glósurnar og mænir á mig raunalegum augum. Annað hvort er hún svo heilluð af söng mínum...eða vonast til þess að ég fari að þegja svo hún geti lúrt í friði á glósunum um veika beygingu lýsingarorða. Hún er nefnilega svoddan prófkisa. Alveg frá því að ég fékk hana fyrir rúmlega 10 árum hefur hún iðulega fengið sér síðdegislúra á skólabókunum mínum þegar ég var að lesa undir próf. Ég hélt að það væri lögfræðin sem heillaði hana en fyrst hún sækir í þýsku málfræðina þá hlýtur það að vera eitthvað annað sem rekur hana til þess að troða sér inn í opnar möppur og undir bókastafla. Hún er sérstaklega hrifin af Duden orðabókinni minni. Leggur alltaf aðra loppuna á bókina eins og hún sé að eigna sér hana. Og ef ég voga mér að draga bókina undan loppunni eða fletta örlítið, þá fæ ég svona geðvonskumjálm framan í mig. Sama mjálmið sem kemur þegar ég rek hana niður af nýþvegna þvottinum sem ég hef loksins dröslast til þess að brjóta saman. Einnig það sama og þegar hún fattar að ég var að sækja eitthvað annað en frosnar rækjur í frystiskápinn. Þessi köttur hefur meira skap en Væla Veinólína...
..

Wednesday, April 28, 2004

Úrvinda...

Dagurinn í gær í vinnunni varð ansi annasamur og ekki tók betra við í dag. Ég sem hélt að þetta væri að fara að róast! Svo horfi ég hérna á skólatöskuna mína og er með gífurlegt samviskubit, hef lítið sem ekkert komist í að kíkja á þýsku málfræðina. Jæja, ég efast um að afrekið úr þýskri málfræði I verði endurtekið...

Annars lauk heilsuátakinu í vinnunni hjá mér í dag, ég var mæld á alla kanta. Er léttari og grennri en í janúar, örlítið sterkari en þolið hefur ekkert batnað að ráði. Ég vissi það svo sem, enda fór ég ekkert í neinar þolæfingar í átakinu. Ákvað að gera ekki of mikið í einu, því þá myndi ég springa á limminu...þekki alveg sjálfa mig! Formlega lýkur átakinu á föstudaginn með tertum og verðlaunaafhendingu og alls konar uppákomum og veitingum í fljótandi formi, en ég fór samt og fékk mér einn rjómasúkkulaðikúlupoka í dag eftir mælinguna! Hélt upp á þetta svona aðeins. Stóðst freistinguna að fá mér kók, er nefnilega ekki alveg hætt, ætla að halda í við mig eitthvað lengur. Ætla ekki að blása út fyrir strandferðir í lok ágúst! Maður verður að vera bikinifær!

Tjaldhjónin voru á vappi í götunni í morgun og mörg hundruð margæsir á túnunum við Bessastaði ásamt fullt af grágæsapörum. Og trilljón mávar stóðu eða sátu á þúfunum milli Garðaholtsins og Álftanesins. Krían fer að hreiðra um sig líka von bráðar. Það er ekki leiðinlegt að sjá mörg hundruð fugla á leið í vinnuna á morgnana. Alls ekki. Fuglalífið er mikið hérna á nesinu og smáfuglarnir líka út um allt. Enda komnar bjöllur á útikettina á þessu heimili. Glinggling heyrist allan sólarhringinn. Læt mig hafa það, veit hins vegar ekkert hvort kisulórurnar séu sáttar. Þær eru með vælusvip í nokkra daga á hverju ári þegar bjöllurnar eru endurnýjaðar! Horfa á mig eins og öll heimsins vandamál hvíli á herðum þeirra.
..

Monday, April 26, 2004

Langt um liðið...

Ég sá á mbl.is að það eru liðin átján ár frá því að kjarnorkuslysið var í Tsjernobyl. Það þýðir að það eru bráðum átján ár síðan síðan ég flutti til Noregs. Og það hefur heldur betur fyrnst yfir norskuna. Skildi nú samt glettilega mikið af því sem Eiríkur Hauksson sagði í Eurovision-þættinum sænska sl. laugardagskvöld. Finninn var þó auðskiljanlegastur á finnsk-sænskunni sinni. Finnarnir eru ferlega flottir alltaf. Og þar sem ég er svoddan Eurovisionaðdáandi inn við beinið þá fannst mér svo gaman að horfa á þennan þátt. Sá hann einmitt í fyrra á sænska ríkissjónvarpinu. Þá voru nú engir Íslendingar með. Og eftir að hafa séð þessi framlög þá er nú bara Jónsa lag miklu betra en mér fannst í upphafi. Reyndar eru þetta löndin sem keppa fyrst í undanúrslitunum, en samt - þau voru allflest hroðaleg.

Á heimasíðunni esctoday.com er að finna margt fróðlegt en þar eru m.a. helstu Eurovisionöfgaaðdáendur að tjá sig á spjallþráðunum. Hef nú ekki skoðað nýlega hvað þeim finnst um okkar framlag þetta árið.

Og talandi um Eurovision... þetta umrædda ár sem ég var úti í Noregi þá eyddi ég kvöldi með skólafélögunum að horfa á keppnina. Orðin sem voru viðhöfð um íslenska framlagið þá fengu mig næstum því til að gráta, Halla Margrét var sko ekki að slá í gegn hjá Norsurunum. Sem betur fer var þeirra framlag ekkert að gera neitt betri hluti þá, ef ég man rétt. En þegar maður er sextán að verða sautján, þá er allt svona óskaplega viðkvæmt og ég tók það mjög nærri mér þegar aðalgæjarnir í bekknum gerðu grín að Íslandi, Höllu Margréti og þ.a.l. mér....
..

Saturday, April 24, 2004

Kvef og pólitík

Einu sinni sem oftar þá er ég að vinna. Vaknaði fyrir allar aldir í morgun...ekki skrítið þar sem ég var sofnuð fyrir klukkan tíu í gærkvöldi. það varð ekkert út bíóferð, bóndinn bara þverneitaði þegar hann sá ástandið á mér í gær. Rautt nef og syndandi augu. Enda kom á daginn að ég var komin með hita. Þannig að Videóleigan og Pizza Hut varð fyrir valinu og ég var ósköp sátt við það val. Líður margfalt betur í dag, 10 tíma svefn hefur greinilega heilmikið að segja. Horfðum á kínverska mynd í gærkveldi, "Hero" Virkilega góð mynd. Minnti svolítið á Crouching Tiger, Hidden Dragon en öll einhvern vegin táknrænni.

Það er fróðlegt að lesa blöðin þessa dagana og fylgjast með þessum umræðum um lagasetningu í tengslum við eignarhald á fjölmiðlum. Persónulega finnst mér þetta frumvarp alveg út í Hróa og hef á tilfinningunni, án þess að hafa kannað það eitthvað nánar, að ef það yrði að lögum eru líklega einhver frelsisákvæði í stjórnarskránni brotin. Aðkoman að þessu frumvarpi hefur einnig verið mjög sérkennileg og truflandi. Og mér finnst það alls ekki vera í þeim frelsisanda sem Sjálfstæðisflokkurinn beitir fyrir sig á tyllidögum. En kannski er það frelsi eins konar hentifrelsi? Bara þegar það hentar þeim?
Æ, pólitíkin er svo skrítin tík..
..
Enn og aftur...

Það var verið að spyrja mig út í "Snjófus" nafnið.... Það er nafnið á jeppanum mínum. Nenni ekki að útskýra það frekar, en það á sér sem sagt sögu. Sá hinn sami og spurði hélt líka að ég væri strákur...
..

Friday, April 23, 2004

Úff..

...ég er alveg búin á því. Maður verður eitthvað svo hryllilega latur eftir svona frídag eins og í gær. Ég varla næ að halda þræðinum í skýrslunni sem ég er að lesa yfir. En, ég verð að þrauka aðeins lengur... Í kvöld erum við að spá í að kíkja i bíó. Líklega verður þessi fyrir valinu. Sú fyrri var skemmtilega skrítin og minnti á teiknimyndasögu.
..
Föstudagur!!

Þvílík sæla að í dag skuli vera föstudagur. Tveir frídagar framundan. Ég þarf líklega að vinna eitthvað smá, en það er alveg í lagi. Það er kominn mikill vorfiðringur í mig eftir gærdaginn, því veðrið var alveg frábært. Verst með þetta fjandans vorkvef sem enn hrjáir mig. Ég er handviss um að ein helgi á Grímsfjalli myndi lækna það eins og skot. Fyrir þá sem ekki vita þá er ein besta gufa landsins þarna uppi á jökli og gufan þarna er allra meina bót, ekki síst ef maður kemst á skíði líka á undan. Ég er einmitt að vonast til þess að við komumst eina ferð á jökulinn í maí. Það gæti nefnilega orðið erfiðara yfirhöfuð að komast á jökulinn ef fyrirliggjandi tillögur nefndar um stofnun Vatnajökuls ná fram að ganga. Þar eru einhverjir göngufasistar sem ráða ríkjum og átta sig ekki á því að 90% útivistarfólks á hálendinu er í “blandaðri” ferðamennsku, þ.e. ekur og gengur eða er á skíðum. Ég held að þetta fólk viti ekkert hvað það er að tala um. Það er ekki eins og það sé ekki þverfótað fyrir göngufólki á Vatnajökli á sama tíma og jeppamenn eiga þangað erindi.
Það er líka ansi fátítt að fólk sé “bara” í vélasleðamennsku eða jeppamennsku eða gönguferðum. Hvað með trússferðirnar?? Þær t.d. gefa fleirum kost á að ganga inni á hálendi án þess að þurfa að bara hvert einasta snitti með sér. Og það er fátt skemmtilegra en að komast á skíði líka þegar maður er í fjallaferð á veturna. Ég sem hélt að ég væri fyrst og fremst með áhuga á útivist og útiveru á hálendinu en er nú allt í einu bara hálfgerður glæpamaður á jeppa.
Nýjasta nýtt er að leggja til skiptingu á hálendinu fyrir mismunandi ferðamáta. Draga línur og flokka í hólf, hestamenn ferðist þarna og göngufólk gangi þarna. Vélsleðamenn mega fara þarna og þarna og jeppamenn helst ekki neitt. Enda eru þetta ekkert nema “reykspúandi drekar sem sóða og skíta allt út og aka utan vega” o.s.frv. o.s.frv. “Þið hafið svo mikið frelsi hérna á Íslandi miðað við annars staðar, best að skerða það og banna til þess eins að banna”. Það er eins og þjóðfélagið sé að fara hamförum í að setja boð og bönn. Og leggja malbikaða vegi og hraðbrautir inn í Þórsmörk, inn á hálendi og ég veit ekki hvað og hvað. Áður en við vitum af verður landið undirlagt af virkjunum, malbikuðum vegum og vegasjoppum....

Og ég sem ætlaði að dásama bara góða veðrið í pistli morgunsins...
..

Thursday, April 22, 2004

Gleðilegt sumar!!!

Það er alveg indælisveður úti, enda dröslaðist ég út áðan og þvoði bílinn minn, þ.e. þennan minni. Legg nú ekki í jeppann. Næ varla uppfyrir dekkin á honum.
Fór alveg hroðalega seint að sofa í gærkveldi, enda ekki við öðru að búast þegar ég hitti fyrrum samstarfskonur. Við kjöftuðum langt fram á nótt. Það er alltaf svo gaman að hitta þær, ég sakna þeirra líka mikið. Byrjaði reyndar kvöldið á að fara á kóræfingu með bóndanum. Við sungum ekki mjög hátt, enda ennþá kvefuð, en við megum ekki við því að missa af æfingu, fyrst það verða tónleikar í lok maí. Og það á líka að syngja nokkur eldri lög, frá því áður að við byrjuðum í kórnum. Það er mjög fjölbreytt lagadagskrá, allt frá léttum jazz-syrpum til íslenskra og enskra ættjarðarljóða og ungverskra stúdentasöngva á latínu. "Cohors Generosa! Turba Studiosa!" Jamm, ég þarf að rifja upp latínukunnáttuna. Á hérna latínuorðasafn einhvers staðar.... Hljómar þetta ekki annars bara voða skemmtilega? Sjáið þið ekki mig í anda? Syngjandi í einhverri kirkju í svona kór-átfitti? Ég fríka út ef mér verður troðið í einhvern svona netthallærislegan kjólpoka. Ég get svo sem sjálfri mér um kennt, að fara í svona átthagakór... Æ, þetta er samt svo skemmtilegt. Líklega sveitagenið sem ræður því hjá mér. Þið munið..þetta sem varð svo hrifið af fjósinu fyrir norðan...
..

Tuesday, April 20, 2004

Nei!!! Hvar eru hommarnir??

Mig grunaði þetta svo sem. Í síðustu viku var nefnilega þáttur sem hafði verið áður. En ég hélt í vonina um að nýjasti þátturinn hefði eitthvað misfarist. Beið því spennt eftir þriðjudagssælunni með Carson og Kó. Ónei, í staðinn var eitthvað rusl um Winonu Ryder. Í gær var CSI líka endursýndur. Ég trúi því ekki að hin árlega grútlélega sumardagskrá Skjás eins sé þegar hafin. *andvarp*
..
Bílastúss með mömmu

Fór á smá rúnt með mömmu í dag að skoða nýja bíla. Það var svolítið skemmtileg upplifun. Bæði vegna þess að við fengum misjafnar móttökur hjá bílaumboðunum og að sjá svolítið hvernig manneskja sem hefur mjög takmarkaðan áhuga á bílum velur sér nýjan bíl. Í tilfelli móður minnar var það eyðslan og liturinn á bílnum sem vóg þyngst í valinu. "Eitthvað aukadót" skipti hana engu. "Álfelgur, samlitir stuðarar, ABS, x mörg hestöfl, spoilerar...etc." malið í bílasölumönnunum fór inn um annað eyrað og út um hitt hjá henni ef þeir hættu sér út í svoleiðis sölumennsku. Ég aftur á móti hef gaman að spá í hina og þessa bíla, hef alltaf haft áhuga á þeim og deili þeim áhuga með bóndanum. Get alveg fengið þvílíka dellu fyrir sumum bílum. Ég veit ekki hvort hún móðir mín er alveg búin að gera upp hug sinn, kannski fæ ég að fara að skoða fleiri bíla með henni! Ég komst allavega að því að hún er smekkleg í litavalinu, sem kemur mér ekki á óvart þegar hún er annars vegar. Það aftur á móti kom mér á óvart hversu gaman hún virtist hafa af þessu stússi, m.a. að reynsluaka bílunum!
..
Örlítið um lágmenninguna...

Er alveg miður mín út af Sörvævor stjörnuleiknum í dag. Þeim fer fækkandi mínum uppáhaldskeppendum, nú síðast Kathy nagli. Hann Rob "Do I have Stupid written on my forehead" vann aftur friðhelgi. Ég bara trúi því ekki að hann vinni milljón dollara. Ég hreinlega þoli hann ekki en verð þó að játa að hann lífgar upp á þennan sjónvarpsþátt. Sem ég er orðin gjörsamlega húkkt á. Nú treysti ég á Rupert krulluhaus. Eða einhvern annan en Rob vitleysing og Ambáttina hans.
..