Þetta er kannski lag fyrir næstu tónleika?
Þetta jólalag er náttúrulega bara snilld.
.....
Tuesday, December 06, 2005
Einu sinni í ættborg Davíðs..
Við æfðum í gærkvöldi í Grensáskirkju og nú í fyrsta sinn með Samkór Kópavogs, sem mun syngja með okkur á tónleikunum, þ.e. þau syngja sitt prógram og við syngjum svo tvö lög saman. Þetta verða augljóslega svolítið öðruvísi tónleikar en í fyrra því þá sungum við fleiri svona létt jólalög (sbr. íslensku útgáfuna af Mary's Boychild, Boðskap Lúkasar, Snæfinn snjókall og fleiri í þessum dúr) en núna erum við í hátíðlegu deildinni. M.a. syngjum við tvö lög sem mér þykja ógurlega falleg og ég hafði ekki heyrt áður, Ættborg Davíðs og svo See amid the winter's snow. Þemað er eiginlega gömul ensk jólalög og sitt á hvað syngur sópran síðan yfirrödd eða kórstjórinn okkar spilar á trompet. En þetta reynir á, textarnir eru frekar erfiðir og með frekar "öldnu" yfirbragði, hvort sem þeir eru á ensku eða íslensku. Og að reyna að læra þá þokkalega, úffpúff. Maður verður svolítið manískur einhvern vegin. Við hjónin sofnuðum syngjandi og vöknuðum syngjandi. Það verður ágætt þegar þetta er búið...
...

Monday, December 05, 2005
Mánudagur á ný...
...helgin var alltof fljót að líða! En þessi vika verður ágætlega annasöm hjá mér og mínum, þrenn afmæli og þar af tvö stórafmæli! Tengdamamma verður sextug á fimmtudaginn og litli frændi á sinn fyrsta afmælisdag á laugardaginn! Lítil frænka verður átta ára sama dag og það stefnir allt í að ég og bóndinn verði að skipta með okkur mætingu í þessi tvö síðastnefnduafmæli, því við getum víst ekki verið á 2 stöðum í einu, því miður. Svo er kóræfing í kvöld og tónleikarnir á miðvikudagskvöldið. Svo er kveðjuteiti á föstudagskvöldið fyrir eina í vinnunni sem er að flytja til útlanda.
Sem sagt stöppuð vika í sósíallífinu og ég er ekki byrjuð á þessu vinnutengda! Úff.
Annars fengum við gest í dag, þ.e. það var óboðinn gestur í húsinu þegar bóndinn kom heim úr vinnunni. Hann heyrði tíst og hélt sig orðinn vitlausan því hann sá ekkert sem virtist orsaka tístið. Kettirnir lyftu ekki einu sinni öðru eyra, hvað þá að opna augun til að sjá hvað var á seyði. Bara hrutu áfram á sínum koddum og teppum út um allt hús. Orsökina fyrir þessu ámátlega tísti var svo að finna uppi á lofti í gluggakistunni. Þar var pínulítill fugl alltaf að reyna að fljúga út til vina sinna en endaði alltaf ringlaður á rúðunni. Hann fékk frelsi og varð því víst mjög feginn, en bóndanum blöskraði svo letin í köttunum, sem höfðu ekki einu sinni blakað veiðihárunum og til að athuga hvort þeir væru ekki með öllum mjalla leyfði hann prímadonnunni að þefa af lófanum sínum, þar sem fuglinn kúrði. Sú gráa leit á hann með gulum augum og labbaði svo bara í burtu. Ekki snefill af áhuga. Hinir virtu minn mann ekki einu sinni viðlits. Ég held að kettirnir mínir séu þunglyndir.