Saturday, October 08, 2005

Sveitarómantík

Með reglulegu millibili fer ég á mbl.is og leita að jörðum eða lögbýlum úti á landi til sölu. Þ.e. jörð með einhverjum húsakosti, með sjávarsýn, veiðihlunnindum (fiskar og fiðurfé, jafnvel hreindýr...), berjasvæðum, fjöllum og jöklum í nágrenninu ásamt öðru smálegu sem væri svo sem ágætis kostur að hafa aðgang að. Aðalatriðið er sem sagt að þetta sé annað hvort fyrir austan Kirkjubæjarklaustur eða norðan Búðardals. Sunnanverðir Austfirðir eða sunnanverðir Vestfirðir koma til greina. Svo finn ég áhugaverða staði, t.d. í Álftafirði, skoða myndirnar og læt mig dreyma. Finnst hins vegar of mikið að borga 60 milljónir fyrir eitt hús og jörð. Þannig að ef þið vitið um einhverja sem vilja selja eyðijörð, jafnvel bara smáskika einhvers staðar lengst í rassgati, látið mig vita...

...

Friday, October 07, 2005

Föstudagskaffi

Ein besta uppfinning síðari tíma eru kaffitímar í vinnunni þar sem starfsmenn heilla mann með heimabakstri. Eini ókosturinn er að restina af deginum er maður einhvern veginn ekki tengdur. Hefur kannski eitthvað með það að gera að í dag er föstudagur.

Ætlaði að vinna heima í gærkvöldi og vera ógó dugleg. Vinafólk okkar kom í heimsókn, voru að prufukeyra amerískan Toyotujeppa. Við fórum með í prufuakstur og komum við hjá öðrum vinahjónum sem eru jafnskynsöm og við að búa í sveitinni. Þarna stóð meirihluti Flugsveitarinnar, konur sem karlar, og héldu ekki vatni yfir pallbíl. Í morgun fékk ég símtal þar sem mér var tjáð að karlmennirnir í hópnum væru búnir að ákveða að flytja svona bíla inn. Mér var skipað að velja lit med det samme. Mig grunar að Snjófus sé á leiðinni á bílasölu.

Ég fór inn í fundarherbergi eftir símtalið og fékk mér aðra kökusneið. Föstudagskaffi er algjör snilld.

...

Tuesday, October 04, 2005

Tíví-blogg

Hef horft sorglega lítið á sjónvarp núna í haust. Hef því lítið um málið að segja nema að Bráðavaktin og House og Grey's Anatomy eru í uppáhaldi. Greinilega eitthvað læknaþema í gangi hjá mér. Góð tilbreyting frá lögfræðingunum.

North and South er auðvitað snilld, verst að ég er búin að sjá þættina alla nokkrum sinnum. CSI er alltaf góður. Lýtalæknirinn á eyjunni er alveg frábær en ég á reyndar óséða þrjá þætti, þar af bíða tveir á spólu fyrir mig að horfa á. Ég vildi óska að RÚV myndi vera duglegra að endursýna þætti, ef ég missi af hinum þá næ ég þeim annað hvort í endursýningu eða Stöð2 plús. Og mánudagar eiga ekki að vera góðir sjónvarpsdagar. Því þá er ég á kóræfingu. Algjör óþarfi að restin af þjóðinni þurfi að vera að horfa á góða þætti á meðan ég er að æfa. Hljóta að geta beðið til 22:20 þegar ég er komin heim. Varla ósanngjörn krafa, ha?

...

Sunday, October 02, 2005


Mr. Darcy, please step aside...



Fyrir svona Jane Austen fíkla eins og mig er erfitt að viðurkenna að Colin Firth, a.k.a. Mr. Darcy hefur fengið harða samkeppni. John Thornton í sögu Elizabeth Gaskell gefur Darcy lítið ef þá nokkuð eftir. Richard Armitage hefur líklega sitt að segja með þessa skoðun mína. Hef verið á leiðinni að panta mér North and South bókina á Amazon nokkuð lengi. Hef hins vegar átt þessa syrpu sem verið er að sýna á RÚV síðan snemma á þessu ári á DVD. Ég komst að þeirri niðurstöðu að Richard er eiginlega meiri töffari en Colin. Thornton er líka grimmari en Darcy, sbr. senuna í bómullarverksmiðjunni í fyrsta þættinum þar sem sá fyrrnefndi tekur einn starfsmanninn og nærri lemur hann til óbóta. Enda voru norðanmenn á þessum tíma ólíkt harðneskjulegri týpur en hinir rómantísku sunnanmenn. Ég er hins vegar hrifnari af Elizabeth en Margaret.

Allavega - þið rómantísku sálir sem hafið ornað ykkur við BBC útgáfuna af Hroka og hleypidómum....ekki missa af Norður og suður!
...
Spænsk gítartónlist...

...eða frekar eins konar afbrigði af henni hljómar nú um höllina í Hólmatúni. Afkvæmi Kerlingar komst í gítarinn hjá húsbóndanum og situr nú og semur tónverk. Af hverju fattaði ég þetta ekki fyrr í morgun? Ég var alveg búin með öll hugsanleg skemmtiatriði. Þau kláruðust eiginlega í gærkveldi. En Kerlingarungi er ógurlega vel upp alin og stillt þannig að fyrirhöfnin hefur ekki verið mikil í þessari pössun. Eiginlega ekki fyrr en í morgun þegar unginn vaknaði öflugur og orkumikill. Og Latibær búinn í morgunsjónvarpinu. Ég þakka bara fyrir að unginn virðist tónelskur og frá henni koma fyrst og fremst dimmir spænskir tónar...
....