Friday, March 26, 2004

Fiðrildi í maganum...

Ég verð að játa að ég er dolítið stressuð enda að fara á fjöll á eftir með rúmlega 60 öðrum konum á 29 jeppum. Það er sem sagt loksins komið að því, kvennaferð Ferðaklúbbsins 4x4. Undirbúningurinn hefur verið langur og strangur og kominn mikill hamur í konurnar. Tilhlökkun og smá kvíði í bland. Við höfum verið á hvolfi tvær í stjórninni að undirbúa þetta ásamt góðri hjálp frá öðrum frábærum þátttakendum og ég verð eiginlega að játa það að ég er svolítið þreytt. Enda nóg um að vera fyrir utan þennan undirbúning!

Ég held að ég verði svolítið fegin þegar helgin er búin...

..

Sunday, March 21, 2004

P.s.....

Ég ætla rétt að vona að Schumacher fari ekki að taka upp á því að vinna allar keppnir á þessu ári. Þá get ég alveg eins hætt að horfa núna strax!!
Árrisul...

Getur einhver útskýrt það fyrir mér af hverju ég vakna útsofin og spræk á laugardags- og sunnudagsmorgnum klukkan sjö en á virkum dögum þarf glóandi tangir og tuttugu hross til að draga mig fram úr fyrir klukkan átta? Ég bara skil þetta ekki....
Var vöknuð fyrir klukkan sjö í gær og svo aftur núna. Náði meira að segja formúlunni í morgun léttilega.
Ekki það, svo sem ágætt að vakna snemma, enda þarf ég að undirbúa fyrirlestur og kennslu fyrir morgundaginn auk þess að vinna upp nokkrar vikur í þýskunáminu sem hefur verið ógurlega dapurlegt undanfarið, þ.e. af minni hálfu.
Fékk annars heimsókn í gær frá litlum skæruliða sem hljóp marga hringi í húsinu og stoppaði ekki fyrr en alveg í blálokin á heimsókninni. Ofboðslega ákveðin sú stutta! Ánægð með það. Vonandi verður hún alltaf þannig og lætur engan vaða yfir sig!!
..