Tuesday, June 07, 2005

Tommi og Kata

Þessi frétt vakti áhuga minn því alls staðar er verið að birta myndir af þeim skötuhjúum hlæjandi og með ýmsar yfirlýsingar um hvað þau séu ástfangin. En það er verið að ýja að því að þetta sé allt saman tilbúningur og þau séu að leika allan tímann. Sú staðhæfing er ansi áhugaverð og minnir mig á svona rómansa þar sem á endanum skötuhjúin fella hugi saman. En hugsið ykkur að leika svona daginn út og inn!?

En annars er ekkert að marka minn heila þessa dagana, það er búin að vera klikkað að gera hjá mér og heilagreyið er bara alveg örmagna þannig að sérkennilegustu fréttir og leikaraslúður vekja mikinn áhuga. Það er nefnilega svo mikil tilbreyting frá ársreikningum og afkomutölum.

...