Um daginn var ég að fylgjast með krókusum og trjám vera að komast í vorgírinn en núna er gaddur úti, snjór og sól. Skrítin þessi íslenska veðurtilvera. Aska er hæstánægð, hún virðist elska snjóinn og finnst langskemmtilegast að leika sér úti þegar það er nógu kalt og mikill snjór. Hún hefur stækkað töluvert og hálfgerður sláni í útliti þessa dagana. Ferlega óþekk á köflum, en það er ósköp eðlilegt fyrir fjögurra mánaða hvolp. En það fer að líða að því að eigandinn fari með hana á námskeið, það er allavega búið að skrá þau á eitt slíkt hjá Retrieverdeildinni hjá HRFI.Vonandi verður það sem fyrst!
Jeppinn er búinn að vera heila eilífð í breytingu, fyrst reyndar á planinu fyrir framan verkstæðið í 4 vikur en fór loks inn í síðustu viku og ætti að vera tilbúinn í dag eða á morgun. Eiginmaðurinn er orðinn svolítið mikið ofboðslega óþolinmóður og pirraður á þessum seinagangi. En mig grunar að það eigi eftir að líða úr honum um helgina, en þá á prufukeyra hina breyttu Tacomu í snjónum.
...