Tuesday, August 29, 2006

Obbosí..

Dreymdi flóð, jarðskjálfta og hamfarir í nótt. Las svo grein jarðeðlisfræðiprófessorsins í Mogganum í morgun. Hann spyr spurninga um stíflugerðina fyrir austan. Þegar sérfræðingar í jarðhræringum, m.a. í Bárðarbungu og öðrum virkum svæðum þarna, er farnir að óska eftir svörum fræðinga LV á síðum dagblaða þar sem ekki sé hægt að fara aðrar leiðir (af því að LV lemur bara hausnum við steininn og þegir þunnu hljóði?) og um er að ræða einn vinsælasta og virtasta jarðfræðiprófessor landsins, þá stendur manni ekki á sama.
Fyrir leikmann eins og mig, sem hef ferðast um þetta svæði í nokkur skipti þá fer ekki á milli mála að þarna ríkja gríðarlega sterk öfl með mikinn eyðileggingarmátt, ummerkin eru alls staðar í fjöllum, gljúfrum og bergmyndunum og yfir öllu trónir jökullinn. En ég hélt bara í einfeldni minni að þarna hefði allt verið rannsakað í döðlur - annars hefði ekki verið gefið grænt ljós á þessa blessuðu virkjun. Maður hélt alltaf að þarna hefði "bara" umhverfis- og náttúruverndarsjónarmiðum verið kastað fyrir borð, en þegar allt í einu dúkka upp spurningar um öryggi og endingu mannvirkjanna og prófessorar í jarðeðlisfræði spyrja spurninga á síðum dagblaða - þá segir maður bara "obbosí".