Neysla....
Við eyddum deginum í að dinglast um Reykjavík. Kíktum í Kolaportið og svo var listin næst á dagskrá í Gallerí Turpentine. Síðan tóku amerískir pallbílar við. Eftir daginn í dag er ljóst að mig dauðlangar í eitt risastórt verk eftir Ásdísi Spanó og eitt stykki hvíta ameríska Toyotu Tundru. Já og eitt gamalt antíkbollastell í Kolaportinu. Og eins og sannur Íslendingur hef ég áttað mig á því að ég get keypt þetta allt saman. Með dyggri aðstoð vina minna - þeirra KB banka, Visa og Glitnis. Hvar væri maður án þeirra?
...
...
Saturday, September 24, 2005
Snjór?
Mér sýnist beðið fyrir aftan hús vera hvítleitt. Er þetta snjór? Ég reyndar keyrði í snjókomu á Bifröst í gær, mikil hálka á veginum undir Hafnarfjalli og uppá Bifröst var allt meira og minna hvítt. Það var þó horfið þegar ég hélt aftur heim á leið seinnipartinn. Fór eiginlega beint í afmæli til litlu nöfnu sem er hvorki meira né minna en þriggja ára. Sú stutta virtist alsæl með allt tilstandið. Þegar heim var komið skreið ég beint undir sæng með Offred og kláraði bókina. Mögnuð saga.

Thursday, September 22, 2005
5 tilgangslausar staðreyndir um mig...
Ásta Svavars klukkaði mig á endasprettinum, ég neyðist víst til þess að vera höflich og finna eitthvað ekki af viti um mig.
1. Rödd Magnúsar í morgunútvarpinu nær yfirleitt að svæfa mig aftur þegar útvarpsvekjarinn fer í gang. Linda Blöndal hefur ekki sömu áhrif.
2. Ég hef Nebba grunaðan um framhjáhald. Hann angaði af Clinique Happy í morgun. Ég nota ekki Clinique Happy.
3. Ég er komin á blaðsíðu 195 í The Handmaid's Tale. Bókin er árituð "To Soffia, best wishes, Margaret Atwood". Fram að þessu finnst mér bókin töluvert betri en myndin. Það hefur ekkert með áritunina að gera.
4. Ég borðaði 5 súkkulaðimola í gær í vinnunni, þeir voru ekki hluti af mínum fríhafnarkaupum. Það var góð tilfinning og hafði allt með það að gera að ég á ennþá mitt fríhafnarsúkkulaði heima.
5. Það var einn Dani úti með mér á ráðstefnunni sem leit út eins og Colin Farrell. Hann heitir Kasper. Við Erla kölluðum hann Köttinn. Það hljómaði betur en Kasper.
Kerling, Skrukka og Hrafnkell/Ella fá klukk. Áslaug fær líka klukk en hún verður bara að senda mér það á meili fyrst hún er ekki með bloggsíðu.

Ljós og list
Fyrsta kvöldið mitt í Kaupmannahöfn sigldum við frá hótelinu og yfir að veitingastað að nafni Noma. Hús eitt mikilfenglegt gegnt hótelinu vakti athygli mína og var okkur bent á að þetta væri nýja danska óperan. Á heimleiðinni hafði þessi bygging breyst, var ekki lengur upplýst af kvöldsólinni heldur kom nú öll birtan innanfrá. Ekki síður fallegt. Við fengum að heyra um dönsku milljarðana sem byggingin kostaði og deilurnar á milli arkitektsins og gefandans, hins ríka Maersk eiganda. Og þar sem ég stóð á bakkanum gegnt óperunni vakti athygli mína þessar þrjár gríðarlegu fallegu ljósakrónur sem sáust greinilega innan í byggingunni og virtust lýsa með alls konar litbrigðum út yfir kanalinn. Kvöldið eftir var okkur boðið í siglingu um þessa skemmtilegu kanala í Köben og viti menn....ferðin endaði fyrir framan óperuna. Og þar vorum við leidd inn og umvafin spariklæddum þjónum og okkur skenkt kampavín. Ég sá þá að þessar ljósakrónur voru í raun risastórir kúlulaga glerskúlptúrar sem breyttu um lit eftir þvi hvernig ég stóð og horfði. Að standa undir einum slíkum og dreypa á kampavíni var svolítið sérstök upplifun. Hún varð auðvitað enn betri þegar okkur var sagt að Íslendingurinn Ólafur Elíasson hafi hannað þessa upplifun. Tilfinningin í morgun þegar ég sá hugmyndirnar um íslenska tónlistarhúsið í Austurhöfninni yrði m.a. hannað af honum var enn betri. Kaupmannahöfn hvað?!!!
..

Wednesday, September 21, 2005
Nokkuð oft síðustu tvær vikur hef ég verið minnt á hversu lífið er mikið fjöregg. Á stuttum tíma hefur sorgin látið vita af sér í fjölskyldunni og allt í einu virðist allt annað eitthvað svo lítilfjörlegt. Svo bættist við að skólafélagi minn fórst á voveiflegan hátt á sama tíma. Þrjár manneskjur sem ég þekkti vel dóu með þriggja daga millibili. Og í kringum mann eru ættingjar og vinir sem syrgja. Og sorgin er sérkennilegt fyrirbrigði en maðurinn er enn sérkennilegri því heilinn nær samt sem áður að fúnkera á einn eða annan hátt þrátt fyrir sorgina. Við fráfalls náins ættingja fer einnig af stað ákveðið upprifjunarferli og oft áður en ég veit af er ég orðin ellefu ára, heima hjá afa að læra að umgangast bækur. Eða borða bláar pönnukökur. Eða að fylgjast með honum borða hægt. Mjög hægt. Skoða myndina af skautunum í forstofunni og velta því fyrir mér hverjir hafi átt skautana. Troða mér í tíglagluggann. Laumast ofan í kjallarann og sitja fyrir sakleysingjunum systrum mínum og deyja svo sjálf úr hræðslu við ímyndaða drauga. Húka fyrir framan afakompu og vona að hann lumi á svo sem nokkrum síríuslengjum þar inni. Fylgjast með nætursólinni skoppa á haffletinum útum gluggann á afakompu. Horfa á frænku mína, aðeins eldri en ég, og velta því fyrir mér hvernig sé að eiga afa minn fyrir pabba. Það er, að afi minn sé líka pabbi - ekki bara afi. Það þótti mér skrítið.
...
...