Monday, April 11, 2005

Mánudagur....

Jæja, þá er viðburðarríkri helgi lokið og við blasir mánudagur. Og ég er löt í dag. Alveg gríðarlega löt.

Föstudagurinn var helgaður söngnum, við sungum á kórakvöldi hjá Karlakór Kópavogs ásamt öðrum kórum, þ.e. kvennakór Kópavogs og kór Óháða safnaðarins. Ég hafði aldrei farið á svona kórakvöld fyrr en núna í vetur og nú hef ég upplifað tvö. Bara ansi gaman og svolítið sérstæð upplifun fyrir svona manneskju eins og mig sem hefur lítið komið að kórum og tónlist alla sína ævi. Það var gaman að hlusta á hina kórana og það vakti athygli mína að allir stjórnendurnir voru af erlendum uppruna. Kórstjórinn okkar stjórnaði upphitun fyrir alla kórana eins og honum er einum lagið og svo tróðu kórarnir upp hver af öðrum og sungu þrjú lög hver. Við sungum Somewhere over the rainbow, Nínu og svo Goodnight sweetheart. Allt svona "létt" lög sem gaman hefur verið að æfa og syngja, ekki síst hana Eurovision Nínu! Við urðum því mðiur að hverfa heim snemma, enda hófst vinna í fiskverkuninni ansi snemma á laugardagsmorguninn. Ég þurfti þó ekki að mæta, heldur naut þess að sofa aðeins lengur á meðan eiginmaðurinn þurfti að vakna hálfsex. Á laugardagskvöldið kíktu félagar okkar úr Flugsveitinni í heimsókn og gærdagurinn var helgaður fjölskyldunni sem kom í mat. Ég fékk góðar gjafir frá öllum og framundan er því dekur og búðarráp. Það var því bara gaman að eiga afmæli, þrátt fyrir að mér finnist talan óþarflega há...
...