Thursday, September 08, 2005

Lífið er (fersk)fiskur

Ég kíkti áðan aðeins á sjávarútvegssýninguna, m.a. til að skoða krapavél og einhvers konar fiskúrbeiningarvél. Frauðplastkassar, íblöndunarefni og kælivélar urðu einnig á vegi mínum. Að sögn eiginmannsins var þetta allt bráðnauðsynlegt og eitthvað sem litla fiskverkunina okkar bráðvantar. Verst að ég á ekki hálfan milljarð og dollarinn er ennþá lengst oní kjallara hvað gengið varðar.

Alls staðar voru menn að kveinka sér - hvort sem það var gengið, olíuverðið eða eitthvað annað. En samt voru allir með kaupæðisglampa í augunum. Flottar veitingar voru í boði fyrir þá sem sýndu áhuga og ég fékk m.a. rosaflott ferðahleðslutæki fyrir gemsann. Líklega hápunkturinn hvað mig varðar á þessari sýningu!

....

Wednesday, September 07, 2005

Skrítið..

Þessi vika hefur verið allskrítin einhvern veginn. Eins og örlaganornirnar hafi hrært aðeins í pottunum og allir viðburðir lent á sama tíma. Sama hvort um er að ræða fjölskyldu, vinnu eða stjórnmálalífið.

Annars ber það hæst hérna í sveitinni að búið er að sulta ber af ýmsum toga, þvottastaflarnir hækka en eiginmaðurinn réðist á óstraujuðu skyrturnar af mér og nú á ég fullan skáp af nýstraujuðum skyrtum og blússum. Svo fór ég á almennan kynningarfund um daginn á aðalskipulaginu næstu árin fyrir Álftanesið og komst að því að þeir sem ég kaus síðast í sveitarstjórnarkosningunum eru annað hvort búnir að missa vitið eða hafa bara verið nöldrandi geðvonskupúkar allan tímann sem þekkja ekki muninn á kynningarfundi á skipulagi og framboðsræðufundi/skítkasti.. og ég ekki fattað það fyrir síðustu kosningar og fallið fyrir einhverjum umhverfisfagurgala sem var svo bara í nösunum á þeim. Ég trúi því ekki að þeir hreki mig til þess að kjósa þá bláu á ný. Kommon. Ég sem var búin að hreiðra um mig vinstra megin. Hélt að ég væri búin að sjá ljósið. Það er allavega ekki kveikt á því í fyrrum Bessastaðahreppi. Þvílíkt hliðarspor!!

....

Tuesday, September 06, 2005

Gisp!!

Ég þarf að semja tvær gáfulegar kynningar fyrir Kaupmannahafnarferðina í næstu viku. Sem betur fer þó ekki á dönsku! En nógu mikill hausverkur samt. Ég ætla að vona að ég nái að sulta berin sem ég tíndi um helgina fyrir ferðina, það er eitthvað svo mikið að gera hjá mér þessa dagana. Það er því ágætt að taka bloggrúntinn og mbl.is með morgunkaffinu. Ég rakst á þessa margfrægu rassálfafærslu kennarans af Akranesi og held að þessar konur sem fordæma slíka bloggfærslu á barnalandi hljóti að vera illa klikkaðar eða þá frústreraðar af leiðindum. Rassálfar hafa verið lengi í uppáhaldi hjá mér og það að líkja spurulum og iðandi nemendum sínum við rassálfa er bara krúttlegt og skemmtilegt. Alveg ótrúlegt hvað sumt fólk á Íslandi er farið að minna mig á taugaveiklaðar bandarískar húsmæður sem vilja brenna Disneybækur og búa til vandamál úr engu.

Bara rúm vika þangað til ég kemst í H&M, smörrebröd og bjór!

.....