Wednesday, June 22, 2005

Hah! Haldiði að ég hafi ekki bara verið drifin í golf áðan. Veðrið var barasta ágætt þrátt fyrir nöldur mitt hér fyrr í dag. Það gustaði aðeins en sólin skein glatt og þetta var rosalega gaman þrátt fyrir misgott gengi í golfinu. Ég var bókstaflega úti á túni í sumum höggum, en þetta var alveg frábært að vera úti í góða veðrinu og viðra sig aðeins.
...
Kalt...

Já, mér finnst alveg skítkalt úti. Þrátt fyrir að það sé heiðskírt þá er bara kalt. Og svo er bara rigning í kortunum. Oj bara.

Það er líklega óttaleg bjartsýni að vonast til að fá svona gott veður eins og kom síðasta sumar....

...

Tuesday, June 21, 2005

Hollusta

Á leiðinni heim í dag kom ég við í Fjarðarkaupum einu sinni sem oftar. Erindið var að kaupa eitthvað auðvelt til eldunar enda heimilið í rúst eins og ég hef aðeins tæpt á áður. Einnig vil ég að smiðunum mínum líði vel og hafi eitthvað að narta í með kaffibollanum. Innkaupakarfan mín var því frekar döpur útlítandi, með skyndifæði og bakarísbakkelsi ríkjandi yfir örfáum tómötum og einni papriku. Að ógleymdri tveggja lítra Pepsiínu fyrir málarann sem ekki drekkur kaffi. Og að venju lá leiðin að kassanum og þarna stóð ég nokkuð lengi í röð. Eins og svo oft áður þá gleymdi ég mér við gláp á annað fólk, iðja sem ég hef stundað mikið og lengi og venjulega. Ég hef alveg gríðarlega gaman að því að fylgjast með fólki, sérstaklega þegar ég er í búðum. Horfi stíft ofan í innkaupakörfurnar hjá öðrum, vonast jafnvel til að fá hugljómun í innkaupunum, eitthvað sem mig vantar oft um hálfsexleytið á daginn. Fyrir framan mig í röðinni var par á fertugsaldri og áður en ég vissi af var ég farin að gera úttekt á innihaldinu í körfunni þeirra. Og með hverri vörunni sem þau tóku upp úr körfunni og settu á færibandið þá varð ég meira og meira meðvituð um innihaldið í körfunni minni. Þarna streymdu upp úr körfunni þeirra alls konar fræ og bygg og korn og bio-þetta og bio-hitt. Lífrænt ræktaðar vörur í massavís, ávextir, Lindu McCartney heilsuréttir, veggie-ostur, soyamjólk og gróft pasta. Fitusnautt kjöt og alls konar krukkur og pakkar gríðarlega hollustulegir útlits eitthvað. Ekkert álegg. Ekkert gos. Engar venjulegar mjólkurvörur. Ekkert nammi..jú, einn bakki af kókosbollum og mér létti allsvakalega við þá sjón. En hvers konar fólk var þetta eiginlega? Ég laumaði kexinu og kleinunum oní poka og fór heim..
...
Undanfarna daga hef ég þurft að leita hælis í skúmaskotum heimilisins þar sem það er undirlagt af ryki, gifsi, málningu og smiðum.Einu staðirnir sem standa óraskaðir eru eldhúsið, svefnherbergið og baðherbergið. Sumsé "grunnstaðirnir" á heimilinu. Þetta gaf m.a. af sér langþráða fatatiltekt í fyrradag þegar rigning hamlaði útiveru og það eina sem ég gat fundið að gera var að fara í gegnum endalausa stafla af fötum. Þannig að í dag á ég ekki lengur endalausa stafla heldur bara örfá einmana boli. Á meðan bárust óhljóðin úr stofunni og loftinu, allt á fullu við að pússa og mála o.s.frv. Svona hefur ástandið verið alveg frá því áður að við hjónin héldum í söngferðina til Englands. Og svona verður þetta eitthvað áfram. En ég er samt sem áður alsæl, langþráðri bið eftri stórframkvæmdum er loksins lokið og það verður gaman að sjá fyrir endann á þessu.

Ferðin til Englands festi ást mína á Jane Austen, sveitasetrum, blómstrandi rósum og tei vel í sessi auk þess sem ég komst að því að það þarf að vanda valið þegar maður ætlar út að borða þarna. En meira um það seinna. Núna þarf ég að gefa smiðnum kaffi.
...