Friday, November 25, 2005

Ferðaþreyta

Fyrir um viku hefði ég ekki trúað því að mér þætti Kastrup flugvöllur leiðinlegur og að ég hafi ekki nennt að kaupa neitt. En ég verð víst að trúa því núna. Mikið er gott að vera komin heim.

...

Monday, November 21, 2005

Tilviljun?

Sá bíómyndina Memoirs of a Geisha auglýsta á Yahoo í dag og fékk smá tilhlökkunarhroll. 2 mínútum seinna var ég að bera kassa af bókum á milli herbergja, fór að raða bókunum upp í hillu og fann þá bókina sjálfa - sem ég átti alltaf eftir að lesa, vissi að ég var með hana einhvers staðar og gerði dauðaleit að henni einu sinni í sumar og a.m.k. tvisvar sl. vetur. Var með gríðarlega slæma samvisku því mig minnti að ég væri einmitt með hana í láni og búin að vera með hana í einhver ár! En nú er hún fundin. Og ég get vonandi skilað henni í kalkúnaboðinu milli jóla og nýárs! Áslaug - þú manst þetta með mér!
Tja - ekki nema maður eigi ekki að lesa bókina áður en maður sér myndina? Hvernig var þetta aftur. Mig minnir að ég hafi verið með einhverjar miklar kenningar á lofti eftir að ég sá Shipping News eftir að ég las bókina, og núna man ég ekki neitt.
...
Heimilisleg þreyta

Það var aksjón á Álftanesinu í gær frá morgni til kvölds. Við lögðum flísar á forstofuna (já, ég þvældist fyrir og var sérlegur aðstoðarmaður og skipuleggjari, ég er mjög góð í því hlutverki þegar að framkvæmdum kemur), ég þvoði allan þvott, bakaði Sörubotna, raðaði inn í hillurnar í tölvuherberginu og braut saman heilt fjall af fötum. Eldaði franskan sveitakjúkling og skipti um rúmföt. Við fórum þvi bara nokkuð þreytt í háttinn í gærkvöldi en það var góð þreyta. Það er alveg magnað hvað heimilisstörf geta verið róandi og afslappandi þegar þau eru stunduð í hófi.

Ég horfði á tvo þætti í gær sem ég hafði virkilega gaman af, fyrst nýjan þátt með súkkulaðifíkli sem tekur við morðrannsóknardeild hjá LAPD og líkar ekki að vera kölluð tík á þarlendu tungumáli og svo sá ég endursýnt á Sirkus danskeppnisþáttinn sem ég missi alltaf af í miðri viku. Þessi þáttur slær næstum því Idolið út. Sem sagt gott sjónvarpskvöld eftir klukkan hálftíu. Fram að þeim tíma flökkuðum við á milli þessara milljón stöðva sem allt í einu birtust í sjónvarpinu eftir að við tengdum græjurnar á ný uppi á lofti.

...

Sunday, November 20, 2005

Tónlistarklukk

Nokkuð skemmtilegt klukk á ferð og ég ætla að reyna að svara því þótt græjurnar hafi verið í lamasessi síðan fyrstu framkvæmdir frá helvíti hófust í sumar og fyrst verið tengdar í ný í gærkvöldi. Svörin eru því sambland af tónlist sem mig langar að hlusta á og því sem ég hef verið að hlusta á í iPodinum.

1. Þegar þú ert að ryksuga:
Þá vil ég hafa allt í botni, helst nógu aggressívt og hressandi. Hef t.d. sett U2 eða Skonrokksafndiskinn á, en yfirleitt hef ég prufukeyrt nýja tónlist sem bóndinn kallar breska pönkrokkið mitt þótt ég láti vera að kalla The Gorillaz og Stereophonics pönkrokk! Ef ég ætti Langa Sela þá færi Breiðholtsbúgí á med det samme og ég set ryksuguna í gang.

2. Á sunnudagskvöldum:
Emilíana Torrini hefur verið í miklu uppáhaldi í sumar. Keypti um daginn eldri diskinn með Hjálmari (Hjálmum?) og líkar hann vel. Ekki ólíklegt að einhver rólegheitaplata með Bubba gæti ratað í græjurnar.

3. Þegar þú ert ein(n) heima:
Eithvað klassískt og þá í botni, eða Coldplay. Gæti líka alveg hugsað mér The White Stripes núna.

4. Þegar útvarpið er óþolandi:
Skonrokksafndiskurinn kemur aftur upp í hugann.. Reyndar bregst Rás 2 eða Radíó X sjaldan.

5. Þegar sjónvarpið sýnir þátt um hagfræði Belgíu:
Þá dugar ekkert annað en U2 til að losna við hrollinn.

6. Þegar þú vilt rifja upp gömlu dagana:
Duran Duran, Spandau Ballett eða Ultravox!

7. Á föstudagskvöldum:
Eitthvað djassað, eða spænsk gítartónlist. Gæti alveg hugsað mér að komast með puttana í úrvalið hjá Hrafnkatli...

8. Eftir erfiðan vinnudag:
Coldplay, Andrea Boccelli, Beck (Sea Change) eða bara draga fram nóturnar og æfa mig fyrir næstu kóræfingu..

9. Þegar þú þarft að losna undan heimilisverkum:
Þá dugar ekki tónlist, frekar að sýna bílskúrnum áhuga - eða stinga upp á ferð í Byko eða KTM búðina.

10. Þegar þér líður vel:
Emilíana eða SigurRós


.....