Sunday, February 29, 2004

*Geisp*

Þvílíkur letidagur. Vaknaði reyndar eldsnemma, ætlaði í bíltúr upp á Skjaldbreið með öðrum konum að æfa mig fyrir kvennaferðina, en því var frestað. Bæði rigningarveður og svo allt á floti. Ekkert gaman að fara í dagsferð og aka í krapa eða litlum sem engum snjó. Vona bara innilega að það frysti þarna uppfrá og bæti svo aðeins í snjóinn. Já, já, ég veit. Sum ykkar eru voða ánægð með hlýindi og rigningu. Ekki ég. Það er nú bara rétt febrúar ennþá, mars á morgun. Vorið á ekki að koma fyrr en í apríl. Ég vil fá vetrarveður! Bjart og fallegt vetrarveður til að njóta á skíðum, jeppum og stunda endalausa útivist á fjöllum. Allavega, þá ákváðum við að fresta bíltúrnum og ég fór bara aftur uppí, með kaffibollann og moggann. Við fengum okkur svo morgunmat og skriðum aftur uppí og ég alveg steinsofnaði. Eftir lúrinn lá leiðin út í Bárukot, búðina okkar Álftnesinga, og þar leigðum við The Italian Job, alveg ágæta mynd. ´Núna heyrist mér Beggi vera sofnaður aftur, núna fyrir framan sjónvarpið. Sem sagt, við höfum gert lítið annað í dag en að glápa á sjónvarp, lesa, sofa og borða. Alveg það sem ég þurfti, enda að vinna í gær. Þyrfti eiginlega að vinna í dag líka, en ætla að fara að læra þýska málfræði í staðinn....ég hef alveg vanrækt þýskuna núna eftir áramót. Svo ætla ég að elda kjúklingabringurnar á eftir. Þessi ítalska uppskrift sem ég hef nefnt áður.....skera í bringurnar og fylla með hvítlaukssmjöri og Parmaskinku (já, eða bara beikoni - alveg jafngott), léttsteikja á pönnu og stinga í ofninn í smástund. Búa til kartöflustöppu, með rjóma og ferskri basiliku, og svo ferskt salat. Já, ég held að þetta verði bara hin ágætasta máltíð! Kannski ekki alveg í anda heilsuátaksins, en ég hef verið svo stillt undanfarnar vikur. Talandi um heilsuátak...ég held ég dragi sófakartöfluna út í labbitúr núna....
..