Tuesday, January 31, 2006

Sextuttuguogsjö

Það hljómar aðeins betur en fimmtuttuguogþrjár, en þá vorum við vakin af værum blundi. Lítill voffi búinn að fá í magann og afleiðingarnar m.a. að veltast um í þvottavélinni núna. Og Aska búin að fara í sitt fyrsta bað. Það gekk ágætlega.
...

Monday, January 30, 2006

Endalausir mánudagar

Aftur kominn mánudagur en ég er ólíkt úthvíldari núna en fyrir viku, enda búin að flatmaga í bústað alla helgina með tilheyrandi pottabrölti og áti. Las eina bók og át fullt af nammi. Fór alveg skikkanlega snemma að sofa bæði kvöldin. Það kom upp smá vinnuhasar, en í sjálfu sér gat ég lítið gert þarna lengst uppi í sveit. En ég þarf eitthvað að láta kíkja á gemsann, hann er farinn að slökkva á sér í tíma og ótíma. Þegar það bætist ofan á slappa rafhlöðu og slæma tengingu þá er alveg kominn tími á útskiptingu.
..