Friday, January 17, 2003

Bbrrrrrr......

...það er svolítið kalt úti. Og virkilega fallegt veður. Það hríslaðist um mig sælutilfinning við að sjá blábleiku birtuna yfir fjöllunum en það er fátt fallegra að vetrarlagi en þessi birta. Og hún nýtur sín best á hálendinu, ekki síst í grennd við jöklana. Síðdegistungl yfir Hofsjökli og sól að setjast í vestri og blábleik birta allt um kring, það er sjón sem ekki gleymist svo glatt. *andvarp* Hvenær ætli ég komist á fjöll? Kannski maður setji annan fótinn inn á Kjöl á morgun, við erum nefnilega á leið í bústað í kvöld í Biskupstungum. Væri alls ekki vitlaust að viðra Snjófus aðeins ef veðrið er áfram bjart og fallegt.

Annars var ég að furða mig á fréttamati DV í fyrradag. Forsíðufréttin (og baksíðan) var undirlögð þeirri frétt að Ólafur Ragnar forseti væri orðinn afi, þ.e. ætti nú barnabarn að blóðböndum. Finnst ykkur þetta ekki bráðmerkilegt? Og verðugt forsíðuefni fréttafjölmiðils? *hóst* Ég veit það eitt að ef ég hefði verið áskrifandi að þessu blaði þá hefði ég sagt þeirri áskrift upp samstundis. Hvað eru þessir menn að hugsa? Og hvernig vissu þeir þetta? Sátu þeir um fæðingardeildina eða lét einhver (nú kemur samsæriskenningin...) í hinni nýju íslensku konungsfjölskyldu DV vita? Hmmm... Því ekki liðu margir klukkutímar frá fæðingu barnsins fram að prentun blaðsins... Ég bara spyr... Þetta er allt eitthvað svo hallærislegt að ég fer alveg í keng. *hrollur*
ÞETTA...
...er meira útkoma eftir mínu höfði. Yeah, baby!!!!





Which Italian Car Are You?

by Auto Glass America

Og þar sem ég er með bíladellu...
....þá virkaði þetta próf frekar spennandi, en ekki er ég ánægð með farartækið. Ég vil hafa það kraftmikið, stórt, vígalegt, töff og með nóg af aukahlutum....





What's Your Movie Dream Car?

by Auto Glass America

Ég er ekki alveg viss um....

...að ég sé sammála þessu.....en samt skárra en Temptation Island!

fear factor



You Should Be On Fear Factor!


While you don't have the patience for a drawn out adventure,


you're up for almost anything.


Put your big balls to the test and see if you can earn a little cash!



What Reality TV Show Should You Be On? Click Here to Find Out!

More Great Quizzes from Quiz Diva

Thursday, January 16, 2003

Smá próf...

....ég er ekkert smá stolt, er þvílíkur feministi sem vil helst útrýma karlmönnum (nema þessum eina þræl í rúminu) og rúla heiminum!! Skemmti mér alveg konunglega í hádeginu við að kíkja á hin ýmsustu próf. Það sem fólki dettur í hug að búa til...fyrir okkur hin sem dettur í hug að skoða þetta!!!
Vííííí!!!!!!!!!! Það var allt hvítt í morgun þegar ég leit út. LOKSINS! Hef verið að bíða eftir þessu ásamt öðrum félögum í Ferðaklúbbnum 4x4 . Þvílík gleði og hamingja. Vonandi helst þetta hvítt næstu vikur...helst mánuði! Snjófusinn er alveg að verða "fjallafær" eftir smá breytingar. Bóndinn búin að vera ógurlega duglegur í bílskúrnum undanfarið og ég hef með glöðu geði séð um þvottinn á meðan. :o) Við hjónin fórum reyndar í Bílabúð Benna í gær, ætluðum að skipta Rancho dempurum í Snjófusinn að framan. Ónei, þeir vildu ekki skipta (eftir að hafa sagt um daginn að þeir ætluðu að hugsa málið) enda okkur fáráðlingunum að kenna að hafa dottið það í hug að kaupa þessa dempara úti í Ameríku helmingi ódýrari þegar þeir svo passa ekki alveg þrátt fyrir að við eyddum mörgum dýrum mínútum í það eitt að hringja heim (m.a. í Bílabúð Benna) til að fá "öruggar" upplýsingar um hvaða stærð hentaði best. Já, svona erum við vitlaus.... Mér þykja þeir reyndar vitlausari....ég á nebblega eftir að kaupa driflæsingu í gripinn góða að framan og annað dót til að lækka hlutföllin. Best að gleyma því að versla við Benna (ætlaði að setja link, en heimasíðan virkar ekki...enn einn mínus fyrir þá), ég nenni ekki að standa í því að láta draga mig á asnaeyrunum. Ónei. Aftur á móti get ég ekki beðið eftir því að komast á fjöll og á skíði..... snjór, snjór...mikið hef ég saknað þín... Megi stórhríðarnar koma í röðum yfir landið....

Wednesday, January 15, 2003

Var að setja upp svona "kommentafídus" (hrikalega er þetta falleg íslenska hjá mér...). Nú getið þið...þessar örfáu hræður sem hingað villast, sett inn athugasemdir! Er ég ekki ógó klár?? :o)
Hver er minn ákjósanlegasti partner af þessum gæjum í Hringadróttinssögu?

My%20ideal%20mate%20is%20Aragorn!%20
Who is your Ideal Lord of the Rings (male) Mate?

brought to you by Quizilla

Jamm...Ekki slæmt. Mjög ánægð með þessa útkomu....Viggó rúlar!
Þetta er alveg að koma hjá mér. Ég er vonandi búin að læra hvernig á að pósta á síðuna án þess að týna því.... Nú langar mig að læra hvernig ég á að gera bloggsíðuna persónulegri útlits... :o)
Allavega....ég hafði skrifað áðan hvernig minn fyrsti þýskutími var í morgun. Þetta var svolítið sérstök upplifun. Að koma þarna aftur enda nokkur ár síðan ég útskrifaðist. Og ég er auðsjáanlega nokkuð eldri en samstúdentar mínir í þessum kúrs! Þýskan sjálf er kapítuli útaf fyrir sig. Ég skildi ekkert og fannst ég ekki kunna neitt og muna neitt. Og kennarinn talaði bara þýsku..og talaði frekar lágt. *hjálp!* Við sjáum nú til hvernig þetta gengur! En ég þarf greinilega að dusta rykið af gömlum málfræðilyklum og orðabókum. Samt sem áður þá var þetta bara fjandi gaman þrátt fyrir getuleysið! Og ekki spillti fyrir smá mannlífsstúdía...að fylgjast með þessum "börnum" sem eru með mér í tíma. Mér fannst ég vera hundgömul...enda að verða 13 ár síðan ég útskrifaðist úr menntaskóla... :o)
Demmit! Ég var búin að skrifa langa rullu um ævintýri morgunsins...og það fór eitthvað út í buskann. Ggrrr......