Græn og væn
Eins gott að það sjái mig enginn núna. Ég er ansi græn í framan, þökk sé þaramaskanum sem á að fríska upp á mína þreyttu húð. (þið hélduð örugglega að það væri af öðrum orsökum, ha?). Sukkið í sumar hefur sett mark sitt á ásjónu mína og því kominn tími til að gera eitthvað í málunum. Ég er því farin að skoða hollustuuppskriftir, fékk loks grænmetisgestgjafann sem kom út fyrir mánuði en hafði ekki ratað til mín, hundtryggs áskrifandans en mér var auðvitað sendur hann um leið og ég hafði rænu á að láta vita að blaðið hafði ekki komið. Svo er ég einnig búin að fara einu sinni með íþróttatöskuna í vinnuna, komst svo reyndar ekki í leikfimi í hádeginu eins og ég ætlaði mér, en þetta er þó fyrsta skrefið í átt að heilbrigðu lífi á ný. Að auki er nýi ísskápurinn eitthvað svo hollustulegur og grænmetislegur að sjá að ég verð bara að kaupa hollt og gott hráefni í hann. Ég er líka viss um að þegar ég druslast til þess að fara að hreyfa mig á ný og borða hollari mat þá slepp ég við svona leiðindadót eins og mígreni og vöðvabólgu sem hefur hrjáð mig síðastliðna viku. Því í staðinn fyrir að koma úthvíld og endurnærð úr sumarfríinu í vinnuasann þá kom ég bara úthvíld, löt og með króníska vöðvabólgu. Ekki gott. Mér hefði verið nær að halda áfram að hreyfa mig í fríinu.
Jæja, best að hreinsa maskann af og hefja þrif svo kettirnir fái ekki asma af gifsryki sem enn leynist í öllum hornum. Mín bíður einnig einhver vinna en ætli ég geymi það ekki þar til á morgun, ég hef líklega ekki tíma því bjútíprógrammið er ekki búið, ég er nebblega að fara í brúðkaup seinna í dag, veii!!
...
Saturday, August 27, 2005
Thursday, August 25, 2005
Pavlova
Ég er að bíða eftir pavlovunni sem er að bakast í ofninum. Fékk að vita í dag að ég ætti að koma með kaffinu á morgun. Helst eitthvað heimabakað... Ég er svo hugmyndasnauð, ekki síst þegar það er brjálað að gera, að ég baka þá bara það sem ég kann, þ.e. marengs. Mig rámar að ég hafi ekki prangað Nigellu pavlovunni ennþá upp á vinnufélagana, þannig að ég smellti mér í Hagkaup og fjárfesti í ástríðuávöxtum (kalla það að fjárfesta þegar kílóverðið er um þúsund krónur) og byrjaði svo að baka uppúr klukkan tíu. Pavlovan kólnar svo bara í ofninum í nótt, hendi á hana þeyttum rjóma og kaldri ástríðu í fyrramálið- voila! Tilbúið. Ágætt fyrir svona morgunsleða eins og mig! Svo er ég að hugsa um að grípa Gestgjafann með mér í rúmið núna og ímynda mér að ég sé robboslega effissíent húsmóðir. Allavega finnst mér ég vera það þegar ég er að baka seint á kvöldin. Er svo súrrealístískt eitthvað. Ég hef nefnilega aldrei skilið konur sem nenna að dunda sér í eldhúsinu seint á kvöldin. Ég er meiri svona "í náttfötin, upp í rúm, með bók" týpa seint á kvöldin. Eða "liggja í sófanum að horfa á sjónvarpið frá því eftir kvöldmat þar til ég fer að sofa" týpa.
Jæja, best að setja tæmerinn á og fara uppí. Nenni ekki að vaka eftir þessari köku.
..

Wednesday, August 24, 2005
Týpískt....
....að þegar maður er að sjá fyrir endann á framkvæmdum heima hjá sér og komið tómahljóð í budduna að þá bili bráðnauðsynlegt heimilistæki? Í okkar tilviki var að ísskápurinn sem neitaði að sinna aðalhlutverki sínu, þ.e. að kæla matinn. Við leituðum á nokkrum stöðum að nýjum ísskáp, fundum hann í Elko og þegar ég kom heim í gærkvöldi var komið nýtt kæliskápalúkk í eldhúsið. Gasalega lekkert. Ég er samt í fýlu út í heimilistækjaguðinn. Mér fannst þetta algjör óþarfi. En núna er ég vör um mig og horfi með grunsemdaraugum á sjónvarpið. Það er líka alveg að koma á tíma.
....