Eftir að hafa stúderað margvíslegt efni sjónvarpsstöðva af miklum móð frá morgni til kvölds í margar vikur þá má segja að ég sé orðin alveg sérfræðingur í svokölluðu "daytime tv". Og nokkuð ljóst að innlendar sjónvarpsstöðvar eru ósköp slappar nema ef Bíórásin sendir út óvart einhverja bíómynd sem ég hef ekki séð. Annað er varla horfandi á nema Martha, Oprah og Dr. Phil. Ég er sem sagt ekki hrifin af þessum sápum sem eru annars sendar út á daginn, þá kveiki ég frekar á Rás 1. Discovery og Animal Planet eiga vinninginn ásamt BBC Food, það er nokkuð ljóst. Ég veit ekki hvernig ég hefði komist af þessar vikur án Fjölvarpsins! Uppáhaldsþættirnir eru fyrst og fremst svona animal rescue þættir þar sem aðframkomnum gæludýrum er komið til bjargar af laganna vörðum og þeim hjúkrað til heilsu á ný. Svo er líka gaman að fylgjast með henni Mörthu Stewart gera eitthvað sniðugt fyrir heimilið. Já, það hefur verið fróðlegt að upplifa það að vera heima alla daga og geta lítið annað gert en horft á sjónvarp. En ég skil ekki af hverju Sjónvarpið notar ekki tækifærið og endursýnir fullt af góðum þáttum og heimildarmyndum á daginn.
..
Thursday, April 27, 2006
Monday, April 24, 2006
Það er komið sumar samkvæmt tímatalinu en það var bara allt hvítt í morgun. Það er nú reyndar allt farið að mestu núna, enda skín sólin alltaf á Álftanesinu. :o) Annars fóru lok vetrar alveg fyrir ofan garð og neðan hjá mér, enda var ég ekki að velta mér mikið upp úr veðrinu þegar maður liggur til skiptis í rúminu heima hjá sér eða á Kvennadeild LSH inn á milli stefnumóta við Gustavsberg. Jamm og jæja. Það fer vonandi að sjá fyrir endann á þessari ógleði og endalausum uppköstum. En þegar maður gengur með "double trouble" eins og einhver sagði, þá er þetta víst stundum enn verra en venjuleg meðgönguógleði. ;o) Ég hef ornað mér síðustu daga við hugsanir um sumarbústaðaferðir og útilegur og letilegar setur í sumarsólinni og ætla bara rétt að vona að sumarið verði ekki of rigningarsamt hérna á suðvesturhorninu fyrst að ekki verður farið á suðlægar slóðir. Hálfgerð synd þegar maður er 10 kílóum léttari að geta ekki spókað sig í bikini, en ég fer bara í staðinn í bumbulínusund í Hrafnistulauginni og trítla um laugina að gera svona ljúfar og léttar æfingar eins og gamalmenni. Ægilega notalegt. Skrítið hvað manni líður alltaf vel í vatni, jafnvel þótt maður hafi ekki getað lyft höfði frá kodda vegna vanlíðan allan daginn, um leið og maður er komin ofan í passlega heita laugina þá bara hverfur öll ógleðin. Ég vildi ég gæti búið ofan í svona laug alla daga.
....
....