Alveg brill.....
Hann má eiga það hann Ármann að hann er fjandi góður penni. Mig verkjar enn í kinnarnar af hlátri. Kíkið einnig á pistilinn um goðafræðina! (oftast er ég nú ósammála Múrverjum, en þetta er gott "stöff"). Það var einnig skemmtilegt viðtal við hann í Lesbók Moggans í morgun. Og svo var hann víst að hætta að blogga um daginn og ríkir sorg í bloggheimum yfir því. En þá er bara að heimsækja Múrinn reglulega.
Saturday, January 25, 2003
Það er alveg ekta fjallaveður í dag....
Heiður himinn og falleg birta. en því miður þarf bóndinn að vinna í dag. Og á morgun er spáð rigningu... :o( Þá bara lætur maður sig dreyma þar til maður kemst út fyrir borgarmörkin næst og horfir á handboltann.... Aðalferðatíminn er að ganga í garð í vetrarjeppamennskunni...sem þýðir að helgarnar eru upppantaðar í fjallaferðir langt fram á vor... Gaman, gaman! Ég er alveg með fiðring í tánum, spenningurinn er svo mikill yfir því að komast á fjöll bráðlega...

Friday, January 24, 2003
Mikið er ég nú ánægð með þessa frétt:
Það er kominn tími til að skerpa betur á þessu, ég þoli nefnilega fátt eins illa og kynjakvóta. Ég hljóma kannski eins og biluð plata, en ekki vildi ég vera ráðin í starf með þeim rökum að ég sé kona. Svokölluð "jákvæð" mismunun (þvílíkt orðskrípi!) er algjör tímaskekkja og er niðurlægjandi fyrir konur. Á meðan þær líta á sig sem minnihlutahóp þá haga þær sér eins og minnihlutahópur. Jamm. Segi ekki meir um þetta í bili, en mun örugglega láta í mér heyra um þessi málefni síðar. It's a promise. :o)

Dagurinn í gær endaði vel...
....fyrst fannst Nebbi. Þessi elska var á þvælingi einhvers staðar lengst í burtu og rataði greinilega ekki heim. Tólf ára dóttir nágranna míns, sem Nebbi heimsækir reglulega til að leika við ásamt tæplega þriggja ára gömlum tvíburasystrum (m.a. til að leyfa þeim að klæða sig í dúkkuföt), fann hann þegar hún var á leiðinni á fótboltaæfingu. Þekkti Nebba og náði honum og sendi pabba sínum sms sem hljóp yfir í geðshræringu og tilkynnti að Nebbi væri fundinn!! Við hjónin brunuðum niður í íþróttahús og þar beið hann í fanginu á bjargvættinum sínum. Hann var svangur, þvældur og skítugur en eftir smá dekur og þvott svaf hans eins og steinn í alla nótt, aðallega í hálsakotinu á mér. Malandi af gleði. Og ég hraut af gleði sjálf.... :o)
....svo fór ég í jóga og náði þvílíkri slökun í lokin að ég var dofin í fingrum og tám. Mjög notalegt.
....svo unnu Íslendingar Portúgala í handbolta. Ég náði síðustu mínútunum.....valhoppandi fyrir framan sjónvarpið. Sætur sigur! Nú er bara að leggja Katarbúa á morgun...
....síðan uppgötvaði ég að það væri alveg að koma helgi, einn dagur enn í vinnu og svo leti í tvo daga. zzzzzzzzzzzz
Bara nokkuð fínt kvöld!!

Thursday, January 23, 2003
Skemmtilegt próf!
Giskaðu á hvort þessar séu "female" eða "shemale" (þ.e. karlar). Ég var bara nokkuð nösk! Var með 14 réttar af 16. En þið? Látið mig vita!

Handbolti...
Ég þori varla að hugsa mikið um HM í handbolta því það er svo leiðinlegt að gera sér vonir um gott gengi og svo gengur allt á afturfótunum. En landsliðið í dag er eitt það skemmtilegasta í langan tíma og þegar þeir náðu að sigra svona minni spámenn eins og Ástralíu og Grænland með góðum markamun þá fer maður að þora að vona oggupínusmá. Því það hefði verið svo týpískt fyrir þá að hálfklúðra þessum leikjum en fara síðan á seiglunni í gegnum erfiðari leikina. Ég hef alltaf átt erfitt með að fylgjast með spennandi handboltaleikjum. Í "gamla daga" þegar pabbi var að spila (eða liðin sem hann þjálfaði) þá hljóp ég iðulega fram á búningsgang, ég átti svo bágt með að fylgjast með. Bjó einnig til alls konar hjátrúarfullar reglur....ef ég hugsa svona þá tapa þeir, ef ég klæði mig í þetta þá gengur þetta ekki, ef ég sit þarna þá tapa þeir. Og á tímabili var ég alveg búin að finna það út að ef ég fylgdist með leik þá tapaði liðið sem ég hélt með! Þegar ég var að dæma leiki í gamla daga úti í Noregi, þá varð ég stundum að taka á honum stóra mínum....það hefði ekki alveg gengið ef annar dómarinn hlypi bara út af velli af því hann væri svo spenntur!!!
Allavega....ef leikurinn í kvöld verður svona jafnteflis-spennandi...þá verð ég örugglega hlaupandi fram í eldhús reglulega....eða tvístígandi í grennd við sjónvarpið.

Nebbi kisi...
Ekki kom Nebbi heim í nótt. En ég ætla ekki að angra ykkur með þessari sorgarsögu, ég verð sjálf svo "dán" yfir því. En ég gerði lítið góðverk í gær. Sl. mánudag, eftir að Nebbi hvarf, þá birtist annar köttur heima hjá mér. Ofboðslega vinalegur og leit eiginlega alveg eins út og Nebbi, brúnbröndóttur með hvítar hosur og hvíta blesu á nebbanum. En þessi var 3 kílóum þyngri og greinilega eldri. en hann þvældist þarna næstu daga og var alltaf að stökkva inn hjá okkur. Hinar kisurnar mínar, þ.á.m. mamma Nebba, sögðu ekki orð, héldu greinilega að þarna væri Nebbi á ferð! En ég kíkti á eyrnamerkinguna og hringdi á dýraspítalann í gær og fékk uppgefið hver ætti hann. Þá kom í ljós að eigendurnir voru nýlega fluttir úr Hólmatúninu í næstu götu og þessi kisi hafði eitthvað ruglast í ríminu. En sem sagt, eigandinn kom í gærkvöldi og sótti hann þannig að Rex komst heim til sín í gær. Hann virtist ósköp glaður. Ég vildi óska að einhver fyndi Nebbaling....

Wednesday, January 22, 2003
*grát*
Nebbi er ennþá týndur. Ég var að tala við Kattholt og enginn hefur látið vita um lítinn brúnbröndóttan fress á flakki. Þannig að litli snúllinn minn er einhvers staðar týndur eða hefur lokast inni í einhverju húsi. Mig vantar hitapúðann á fæturna á kvöldin. *sniff* Ætli ég haldi ekki áfram að svipast um eftir honum og dreifa auglýsingu í húsin í kring. Æ, hvað þetta er nú leiðinlegt að týna mjúku kisunni sinni....

Tuesday, January 21, 2003
*sniff*...
...hann Nebbi kisukrútt er týndur. Það hefur ekkert sést til hans síðan á laugardag eða sunnudag, þ.e. á meðan við skruppum í bústað. Þessi litli snúlli hefur eitthvað farið á flakk í þessum kulda. :-( Við hjónin erum hálfstúrin og leið yfir þessu og erum sífellt að svipast um eftir honum. Ætli við göngum ekki í hús í dag og hringjum í Kattholt o.s.frv. *andvarp*

Monday, January 20, 2003
Núna er kominn teljari..
...mér er alveg fyrirmunað að skilja hvernig í fja.. ég gat komið honum inn. Þetta html dæmi er jafndularfullt fyrir mér og stærðfræðin forðum daga.. En einhvern veginn gengur þetta upp þótt útlit síðunnar sé ekki upp á marga fiska.
Annars er ég á leiðinni heim. Búin með verkefni dagsins...sem hefur verið að angra mig síðustu tvær vikur. Unaðslegt hljóð að heyra í prentaranum, vitandi það að maður sé finido með þetta hundleiðinlega verkefni....þar til að janúar 2004 rennur upp og ársskýrslan kallar á mig að nýju... Úff...
Heima bíður eiginmaður, kjúklingabaunasúpa a la Jamie Oliver og svo jóga. Og þýskur stíll. Nokkuð týpískt mánudagskvöld, nema að það vantar CSI á Skjá einum. Hvenær ætli þeir byrji að sýna uppáhaldsþáttinn minn á ný??? *grenj* Það er af sem áður var þegar mánudagskvöldin voru langbestu sjónvarpskvöldin. Vitiði hvað þeir eru að sýna í staðinn? "World's wildest police videos". Sem betur fer er ég áskrifandi að Stöð 2 þennan mánuðinn því þeir voru að byrja að sýna nýjan þátt, The Court. Klukkan 20:50 í kvöld. Bara fjandi góður. Dugar mér í bili þar til áskriftin rennur út og CSI byrjar vonandi aftur!

Gleðifréttir!
Samkvæmt þessu er snjódýptin komin yfir hálfan meter við Setrið, skála Ferðaklúbbsins 4x4 og svo er spáð snjókomu þarna á Miðhálendinu næstu daga. Þvílík sæla....

Það er kominn mánudagur...
...heil vinnuvika framundan. Sem er svo sem í lagi. Vikan ætti að vera fljót að líða því það er nóg á dagskránni, ekki síst í vinnunni (brjálað að gera og ég hef í raun engan tíma fyrir svona bloggvitleysu), skólanum (Ja, bitte!), fjölskyldulífinu (afmæli og fleira skemmtilegt) og félagslífinu (ýmislegt á döfinni um næstu helgi svo sem matarboð í 101 og jeppaferð) og svo þarf ég að mæta í jóga í kvöld og á fimmtudaginn og langar ógó mikið að kíkja á útsöluna í Föndru... (Stelpur, er ekki kominn tími á föndurkvöld???) Sem sagt....áður en ég veit af ætti að vera kominn næsti mánudagur! en þangað til ég blogga næst, þá getið þið tekið þetta ágætlega skemmtilega próf. Ég er Íri inn við beinið, kemur mér svo sem ekki á óvart!

What's your Inner European?
brought to you by Quizilla