Saturday, May 03, 2003

Vorslappleiki..

...var ferlega slöpp í gær, fór þó á fund í Reykjavík og notaði tækifærið og hitti vinkonur mínar í hádeginu áður en ég fór aftur "út á land". Það var ansi gott að komast heim og undir sæng. Og slappleikinn er alls ráðandi enn og ég treysti mér ekki í ferð sem farin var á vegum vinnunnar í dag. Svona veikindaleiðindi eru ekki skemmtileg. Reyndar er skítkalt úti en ógurlega fallegt veður en ég held ég haldi mig við þýskubækurnar í dag.

p.s. Kuldakastið fór alveg með fallegu páskaliljurnar minar og runnana. Laufblöðin á blátoppunum eru hálfvisnuð. *sniff*

..

Wednesday, April 30, 2003

Hmmmm....

...skrítið veður. Það var slydda og snjókoma hérna áðan. Og spáð næturfrosti. Ég er uggandi yfir plöntunum mínum, löngu komin lauf á blátoppinn, páskaliljurnar í fullum blóma og ég nýbúin að planta furum og lerki. Vonandi verður ekki næturfrost í margar nætur...
..
Mig dreymdi...

..bara þýskupróf í nótt. Líklega samviskan að minna á sig, enda prófið í næstu viku. Þannig að næstu daga verð ég að æfa mig í að skrifa þýskustíla og renna yfir málfræðireglur. En draumurinn í nótt gekk út á það að ég gleymdi því að það væri próf og mundi allt í einu, þegar 15 mín. voru eftir af prófinu að ég ætti að vera að þreyta þetta ágæta próf. Úff, vond tilfinning. Það er nú lítið hægt að læra undir próf þegar maður er á fullu í vinnunni - nema að kíkja frekar á þýskar vefsíður í stað Moggans.
..

Tuesday, April 29, 2003

Ég er auli...

...í annað sinn á þessu ári gleymdi ég að góð vinkona mín ætti afmæli. Ég ætti bara að leggja sjálfa mig inn á spítala med det samme! Ég skammast mín svo......og er um leið uggandi yfir þessu minni mínu. Þetta er ekki alveg normalt!
...

Monday, April 28, 2003

Grænir fingur?

...ónei, eftir helgina eru þeir nú frekar moldarbrúnir!! Við fengum tvö vörubílahlöss af mold í garðinn hjá okkur á laugardaginn og á sunnudagsmorgni var hrúgan enn á sínum stað. Hafði ekkert hreyfst og því neyddumst við að fara út og moka eitthvað. Þar sem við áttum von á nánustu fjölskyldu minni í mat þá gat ég nú reyndar laumað mér inn og sinnt heimilisstörfum, þurfti ekki að vera úti í kuldanum. Að öðru leyti var helgin nú ósköp ljúf. Við sváfum út báða dagana og slöppuðum af. Á laugardagskvöldið fórum við út að borða með systrum mínum, á Pasta Basta, alveg ágætis matur þarna. Og í gær fékk ég að klípa litlu frænku alveg í tætlur....enda eru hún og mamma hennar að fara aftur heim til Ameríku í dag. *sniff* Mikið á ég nú eftir að sakna þeirra, hefði helst viljað hafa þær áfram langt fram eftir sumri. Sú litla er greinilega orðin vel vön því að vera knúsuð og kysst í bak og fyrir, henni líkar það bara vel enda búið að vera stíft knúsprógram í gangi þessar þrjár vikur sem þær mæðgur hafa dvalið hérna. Flórídaferð er aftur komin á dagskrá hjá okkur Álftnesingum. Ekki spurning um hvort...heldur hvenær!
..