Föstudagur!!!!
Það er loksins komin föstudagur á ný...og vinnudagurinn bráðum búinn. Ég ætla snemma heima í dag og ekki að vinna á morgun. Gera sem minnst alla helgina, slappa af, sofa, borða og kannski fara og heimsækja vinafólk okkar í sumarbústað í Landssveitinni. Hljómar það ekki bara ágætlega??
...
Friday, February 21, 2003
Streita...
...hrjáir mig þessa dagana. Sef órólega og vakna klukkan fimm á morgnana og er farin að plana daginn. Hvað ég þurfi nú að gera í vinnunni, muna eftir þessu, ekki gleyma hinu, hringja í þennan, skrifa þessum. En þá er svo sem ekki verra að bara drífa sig á fætur...en það er bara svo erfitt. Það er svo dimmt úti og heyrist bara í rigningunni eða vindinum. Það bjargar þó deginum að fá einn lítinn kúrukall (lesist: fress) sem malar eins og 6 lítra díeselvél upp við eyrað á mér. Murrrrrrrrrrrr........ Þá slaka ég á aftur og dett inn í draumalandið í hálftíma. Verst að Nebbalingur kemur ekki eftir pöntun klukkan hálfsex að morgni. Þarf að gera eitthvað í þessu, þjálfa hann betur! En það er nokkuð ljóst að gæludýr draga úr streitu.
42 dagar þangað til ég fer í stelpuferð til Stokkhólms....

Thursday, February 20, 2003
Og bíóferðin...
...(mín bara dugleg að blogga í dag..)...myndin með þeim Hugh og Söndru er alveg frábær! Two weeks notice heitir hún og ég skemmti mér alveg konunglega á henni. Ekki spillir fyrir að elskan hann Hugh leikur ekkert ósvipaðan karakter og í About a Boy. Ekki svona "wimpy" gæi eins og í sumum myndum, heldur svona sjálfsöruggur glamúrgæi með breskan hreim. Adorable...eins og Bretinn myndi segja. Og Sandra var óvenjuspör á taugakippina og brussuskapinn. Og myndin er sem sagt ósköp sæt...en með ágætis handrit! Og ekki of Hollywood-væmin.
Og þeir sem ætla að skamma mig fyrir að hafa farið í bíó þrátt fyrir eitthvað "bíóverkfall" þá hlusta ég ekki á svona vitleysu. Hafið þið farið í bíó í bíólandinu sjálfu? Það kostar nú bara ekkert minna en hér! Og hana nú...

Og hitt....
...um okkur vitleysingana sem æðum á fjöll og þurfum að láta bjarga okkur. Það fýkur sjaldan eins í mig og þegar ég heyri þetta. Eins og við séum bara einhverjir heilalausir hálfvitar sem brunum yfir skafla og hæðir og hóla og jökla og sprungur..án þess að hugsa. Já, mér verður agalega misboðið. Því við höldum aldrei af stað nema að athuga veðurspá. Og þótt ekki séð spáð sól og blíðu í febrúar, þá förum við nú yfirleitt nema varað sé við stormi, enda vel útbúin og getum keyrt í blindu, myrkri og stórhríð. Eftir fyrirfram ákveðnum leiðum sem við eigum í GPS tækjunum og fartölvunum. Erum með NMT síma, VHF talstöð og sumir jafnvel með fleiri en eitt tæki af hverju. Þessar leiðir krækja fram hjá giljum, sprungum og öðrum farartálmum. Erum vel útbúin með mat, drykk og hlýjan skjólfatnað. Ef erfiðlega gengur þá tökum við á því. Silumst stundum áfram 1 km á klukkutíma ef það er þá svo gott. Ef eitthvað bilar er reynt að gera við það. Ef óhapp verður þá koma ferðafélagarnir til hjálpar. Verða jafnvel stundum fyrir tjóni sjálfir við að hjálpa. En þetta vitum við...áður en við leggjum af stað og erum undir þetta búin. En það geta orðið óhöpp. Ekkert síður en þegar maður er að keyra á Miklubrautinni eða austur í Hveragerði. Og þá reynum við fyrst að athuga hvort félagar okkar í bænum geti aðstoðað, ef ferðafélagarnir geta það ekki. Það er allt reynt áður en björgunarsveitir eru kallaðar til. Sem betur fer höfum við hjónin hingað til ekki þurft á þeim að halda (7-9-13), höfum getað bjargað okkur sjálf. Og hvað er "pointið" með þessum skrifum? Jú, ekki dæma alla ferðamenn á hálendinu vegna einhverja örfárra. Og ekki dæma alla þá sem þurfa á björgunarsveit að halda....þeir lentu ekki í ógöngum bara af því að þeir gerðu eitthvað viljandi eða höguðu sér á óábyrgan hátt! Það var nú bara þetta sem ég vildi segja. Við erum ekki öll fífl sem förum á fjöll...

Það sem ég ætlaði að segja...
...um Sörvævor, var hversu rosalega mikið ég fékk út úr því að horfa á þennan fyrsta þátt. Karlmennirnir allir voða macho, hjuggu tré og kveiktu eld á broti úr sekúndu og voru búnir að koma sér upp skýli fyrsta kvöldið. Hnykkluðu vöðvana og sögðu með fimm mínútna millibili "æ, hvernig ætli konurnar spjari sig" og Der Übermensch skein úr hverju andliti. "Þær eru örugglega ekki eins vel haldnar og við.." Sem var alveg rétt, þær gátu ekki kveikt eld fyrr en seint og síðar meir, ein var meira og minna veik - gat ekki gengið og var sífellt flökurt, þær þvoðu frekar undirfötin sín í stað þess að byggja skýli, fengu taugaáfall þegar kónguló á stærð við kött var að þvælast í kringum bækistöðvarnar þeirra, ein þeirra heyrnarlaus og skildi varla nokkuð eftir að myrkrið skall á og lá þarna út af til hliðar við hinar, allt voða trist eitthvað. Enginn matur, nema fisksýnishorn á stærð við fingurbjörg. Matur handa átta, vesgú! Þetta leit ekki vel út. Á meðan héldu karlmennirnir átta áfram að hnykkla vöðvana, sem voru bæ ðe vei ekkert spennandi....allir ljótir. Í þeirra hóp var smá valdabarátta í gangi á meðan konurnar sungu gospellög. Svo kom fyrsta keppnin um goðið góða sem gefur þrjá daga í viðbót án þess að fara á ættbálkaþing. Ansi flókin keppni...kraftar, seigla, snerpa og gáfur. Og jafnvægi!!!! Og það vita allir að karlar geta ekki rassgat í jafnvægislistum...svona almennt. Það borgar sig að vera með lægri jafnvægispunkt! Þarna trítluðu þreyttar og teknar konurnar léttilega yfir ræfilslegan tréstubb...sem karlarnir voru búnir að reyna að skríða klofvega yfir. Og auðvitað unnu þær!!!!! Áfram konur!!!!!!! Við hjónin fögnðum ákaft...karlfauskarnir áttu ekkert betra skilið eftir að hafa verið svona sigurvissir. Hah! Sem sagt....góður þáttur. Bíð spennt eftir meiru. Nú vantar bara CSI til að fullkomna mánudagskvöldin.....

Tuesday, February 18, 2003
Það var svo mikið sem ég....
...ætlaði að tjá mig um, sérstaklega í morgun. En svo mætti ég í vinnuna og þar var bara allt brjálað að gera. Það á að banna svona daga! Komst ekki á toilettið né að sækja mér kaffi eða neitt. Kúnnar og starfsfólk biðu bara í röðum eftir að ná athygli minni. Úffpúff! Og núna er klukkan bráðum fjögur...og ég ætla bara að stinga af á kristilegum tíma svona einu sinni og fara í bíó með vinkonu minni! Fara að sjá Hugh Grant og Söndru Bullock. Jebb. Rómantísk gamanmynd.... *andvarp*
En þar sem ég er búin með þennan ágæta kaffibolla, sem ég hljóp til að ná mér í, þá hef ég ekki afsökun fyrir því að segja neitt meir hér, verð að halda áfram að vinna. Mun því tjá mig síðar um þetta tvennt sem mér lá á hjarta. Ykkur til fróðleiks sem ekki geta beðið þá varðar það annars vegar Sörvævor (sem byrjaði aftur í gær) og fjallamennsku í brjáluðu veðri (af því það er alltaf verið að nöldra eitthvað yfir okkur "brjálæðingunum" sem æðum á fjöll, hugsunarlaust, og þurfum að láta bjarga okkur fyrir dágóðan pening).
Sem sagt....more to come... :o)

Monday, February 17, 2003
Mánudagur á ný...
Þetta var alveg ágætis helgi, sérstaklega gærdagurinn. Laugardagur fór í vinnu að heiman og heima og vorum við hjónin örþreytt á laugardagskvöldið. Skemmtun okkur þó konunglega yfir Júróvisjón. Fyrirsjáanleg úrslit, en samt gaman. Og í gær var maður bara heima, svaf fram eftir morgni, horfði á Ice Age (alveg frábær mynd!), eldaði góðan mat og bara slappaði af, eða svona næstum því. Þvottahúsið átti óskipta athygli mína í einhverja klukkutíma. En það er bara mjög afstressandi að strauja og brjóta saman þvott. Mæli með því.
Annars á ein kona mína aðdáun í dag. Það er hún Andrína. Mér sýnist á öllu að hún hafi verið föst á vélsleðanum sínum á svipuðum slóðum og við valkyrjurnar börðumst áfram í gegnum krapaflæmi fyrir tæpu ári síðan í Kvennaferð 4x4. Þar birtust heilu stöðuvötnin og stórfljót á stöðum þar sem ekkert segir til um slíkt á landakorti. Ég hélt ég myndi syngja mitt síðasta einmitt í einum djúpum krapapytti sem fékk það ágæta viðurnefni "Soffíusund" eftir þá viðureign (sem stóð í einhverja klukkutíma...). En að sitja þarna í ísköldu krapavatninu í þrjá tíma....vá. *hrollur*