Friday, March 28, 2003

Og eitt enn....

....BARA VIKA ÞAR TIL ÉG FER TIL STOKKHÓLMS!!!!!!!!

...
Jökulheimar - Grímsfjall

Jæja, ég er á leiðinni á fjöll á ný. Núna með fullt af körlum....svolítið mikið frábrugðið síðustu helgi! Ætli ég verði ekki ein af fáum konum í ferðinni en mun að öllum líkindum sjá að mestu um aksturinn því bóndinn verður á kamerunni, að taka upp efni fyrir vin okkar (við í Flugfélaginu EJS ætlum sko að vinna myndbandasamkeppnina í Ferðaklúbbnum 4x4 í ár!). Mér þykir það ekki slæmt, þótt fyrirséð verði að við lendum í gífurlegum krapa og svoleiðis skemmtilegheitum. Þá er bara að skella sér í vöðlurnar, setja á sig húfu og stökkva út og hengja spott á á króka ef við festumst. Ferðinni er heitið í
Jökulheima sem eru skálar Jöklarannsóknarfélagsins við rætur Vatnajökuls. Vonandi mun viðra vel á morgun svo við getum þvælst eitthvað um Vatnajökulinn og skellt okkur í gufu á Grímsfjalli. Skíðin eru að sjálfsögðu með ásamt gítarnum hans Lúffa (jú og Lúffi líka..of course..), Óskar uppvaskari með meiru verður í fararbroddi í eldhúsinu en Ingvi hrotukóngur er enn úti á Kanarí með hinu gamla fólkinu og verður því af fjallaferð í þetta sinn. Hans ektakvinna komst heldur ekki með í kvennaferðina um síðustu helgi, því miður. En vonandi rignir ekki á okkur, það er eiginlega leiðinlegasta veðrið...stórhríð er eiginlega skárri (þó ég sé ekki að biðja um slíkt veður!). En það er sko ekki verra að fá fínt veður á fjöllum....það er fátt sem slær það út.
..
Föstudagur!!!!

...mikið er ég nú fegin að vikan er senn á enda. Ég hef verið ansi þreytt síðustu daga enda nóg að gera á öllum vígstöðvum. Ég er t.d. að verða gróin hérna við skrifborðsstólinn minn í vinnunni enda vinnudagarnir langir núna. Nema í dag! Þá ætla ég að hætta fyrir fjögur og halda heim og undirbúa mig fyrir ferðina um helgina...segi meira frá því á eftir, er rokin á fund...
..

Thursday, March 27, 2003

8 dagar...

..þar til við vinkonurnar gerum innrás á heimili vinkonu okkar í Stokkhólmi. Nú er ég farin að kíkja á veðrið þar á hverjum degi og vona að það taki svona ljúft vorveður á móti okkur! Það yrði ekki leiðinlegt að fá smá forskot á vorið hérna heima. Því ég vil ekkert fá vorið hingað of fljótt...vil halda snjónum á hálendinu sem lengst!!
..

Wednesday, March 26, 2003

Fínn dagur!

..búið að vera bara ágætt í dag. Nóg að gera, eins og alltaf, en það er alltaf gaman að skipta alveg um gír og fara í þýskutíma upp í háskóla. Fara í allt annað umhverfi, miklu afslappaðra þótt nóg sé að gerast. Þetta akademíska umhverfi á ósköp vel við mig. Einu sinni lofaði ég sjálfri mér að verða eilífðarstúdent en svo sættist ég á það að fara bara aftur í háskóla þegar ég yrði sjötug. En þarna er ég sem sagt mætt á ný og líkar bara vel. Svo er þýskan bara mjög skemmtileg þótt hún sé fjandi erfið. Ég er ekki beint að brillera í þessum stílum....það er af sem áður var þegar maður fékk tíu án þess að lyfta litla putta. *sniff* Svo skiptir engu máli hvort ég puða við stílana alein eða hvort ég fær aðstoð frá Þjóðverjunum hérna í vinnunni við orðaforðann eða frá öðrum þýskusnillingum. Alltaf sama einkunnin.... *búhúú*

Annars eru bara 9 dagar þar til ég fer til Stokkhólms!!!!..
..

Tuesday, March 25, 2003

Það er ekki oft....

...sem ég hitna á eyrnasneplunum af reiði en ég næstum því sprakk áðan. Framan í dónalegan "viðskiptavin" sem var svo leiðinlegur og dónalegur að ég gat næstum því öskrað. Enda sagði ég pent við hann að ég hefði ekkert meira við hann að tala, sem þýddi í raun = komdu þér út! Ég er að hugsa um að fá mér boxhanska lánaða og stilla þeim upp við hliðina á verðlaunabikarnum og medalíunni sem ég vann í síðustu viku í keilukeppni. Þá halda svona menn að ég sé meistari í boxi, ekkert sniðugt að abbast upp á mig.
Mikið djö...er ég reið ennþá..... Veitti ekki af því að boxa eitthvað í alvörunni...
..
Klárar konur...

...stóðu sig vel í ferðinni um sl. helgi. Ég var samt frekar mikið þreytt eftir helgina...það tekur á að jeppast svona! Fengum ágætis veður, með hressilegum skafrenningi og éljagangi inn á milli, lentum í nægum ævintýrum og fengum flestar..ef ekki allar...að prófa spottann. Smá krapi var á leiðinni, nokkrir ágætis púðursnjóspyttir og svo gat ég "sprautað" smá á nokkrum köflum...Snjófusinn stóð sig vel enda hörkujeppi! Nýja læsingin að aftan er þarfaþing, nú vantar mig bara læsingu í hann að framan. Og nú get ég ekki beðið eftir því að komast aftur á fjöll...enda ætla ég að bregða mér á Vatnajökul með bóndanum. Leika mér aðeins meira....
..

Friday, March 21, 2003

Kvennaferð...

...það er komið að valkyrjuferðinni miklu enn á ný. Á morgun ætlum við jeppaskvísurnar að leggja í hálendisferð á okkar ástkæru jeppum. Stefnan er tekin á Hveravelli og er ætlunin að fara yfir Langjökul til að komast þangað, þ.e. ef veður leyfir. Annars verður norðurleiðin valin (um Blöndudal) því Kjalvegur er ófær vegna krapa og aurbleytu. Með mér verða tveir farþegar. Báðar hafa fengið þau fyrirmæli að taka með sér vöðlur, góða tónlist og góða skapið. Og sundbolinn....því heita laugin á Hveravöllum bíður okkar!! En þetta getur allt breyst, fer eftir veðri og vindum....sem virðast ætla að blása hressilega, allavega í dag. En við erum nú svo sem vanar erfiðum ferðum, sú í fyrra var ekkert auðveld. Svona alvöru krapatúr með öllu tilheyrandi....festum, affelgunum, keyrslu langt fram á nótt og erfiðum aðstæðum... Ég vildi nú helst sleppa við svoleiðis aftur!
..
Stríð.....

....eða ætti ekki frekar að kalla þetta innrás? Þetta virkar ósköp einhliða eitthvað. Mótmæli unga listafólksins fyrir framan Stjórnarráðið í gær voru ansi áhrifamikil. Lágu þarna sem dauð væru, útötuð í svínsblóði. Hreyfðu hvorki legg né lið. Minntu óþægilega á saklaus fórnarlömb stríðsátaka. Í fyrsta sinn á ævi minni þekki ég persónulega fólk sem er þátttakandi í þessum stríðsátökum, bæði í sjóher og landher Bandaríkjanna. Og mér þykir það vond tilhugsun að vita af þessum vinum mínum þarna í þessu helvíti. Þeir eru allir eru heilbrigðisstarfsmenn á einn eða annan hátt. Einn þeirra er sónar- og röntgentæknir á flugmóðurskipi í Persaflóa, annar, einnig röntgentæknir, er á "Fleet Hospital" eða hreyfanlegum spítala í grennd við höfuðbúðir í Kuwait en sá þriðji, rétt nítján ára, er í landhernum, svokallaður sjúkraliði sem fylgir hersveitunum í átökum. Veitir fyrstu hjálp á staðnum í miðjum átökum. Móðir hans er vitanlega í öngum sínum. En þessi strákur eins og hinir, valdi það að fara í herinn til að geta nýtt sér þann rétt að fá menntun. Leið sem margir velja sem ekki eiga fullt af peningum til að greiða skólagjöld. En þetta er ókosturinn...ef haldið er í stríð...
..

Wednesday, March 19, 2003

Ég er svo reið og sár....

....því við Íslendingar erum sett á blað með öðrum sem styðja George "Dubya" Bush í blindni.. Ég er sár út í ríkisstjórnina yfir því að hlusta ekki á hinn venjulega Íslending sem vill að Sameinuðu þjóðirnar taki þá endanlegu ákvörðun hvort ráðist verði inn í Írak. Svo skil ég ekki af hverju liggur allt í einu svona mikið á? Áratugur liðinn frá því að Persaflóastríðinu lauk og allt í einu núna, í kjölfar 11. september, þarf að fara og "go kick some butts". Og hver liggur best við "smá" rassskellingum en Saddam? Ég leyfi mér að efast um að meiri hætta stafi af honum en t.d. Norður-Kóreu..sem sannanlega eiga kjarnorkuvopn. Hmmm....og hverjir ætli eigi langmest af kjarnavopnum öllum í heiminum??? Getiði nú...
Finnst ykkur við ekki öll vera svo miklu meira "seif"...af því að við höfum hann Bush karlinn til að vernda okkur??!!??
..

Tuesday, March 18, 2003

Hlemmur...

Ég sat alveg límd við sjónvarpið sl. sunnudagskvöld, yfir þessari heimildarmynd um fólkið á Hlemmi. Hún hafði mikil áhrif á mig og kvikmyndagerðarmaðurinn á mikið hrós skilið. Ég furða mig samt á því hvers vegna enginn hafði reynt að hjálpa t.d. rónunum fyrr. Og sá sem kom loks til aðstoðar kom frá Byrginu. Þeir í Byrginu virðast þeir einu sem virkilega láta sig þessi mál varða...og þá í fullri (pardon the pun) einlægni. Aðrir gera aldrei neitt nema að vera beðnir um það. Og ég hef aldrei skilið af hverju ekki að haldið úti súpueldhúsi þarna í bænum? Og húsaskjóli fyrir þá sem eru ofurölvaðir. Það nístir mann alveg að sjá þessa menn skríða undir tré til að sofa...jafnvel um hávetur. Gullkornið í myndinni var þegar þessir ágætu tveir rónar sáust koma út frá fangageymslu lögreglunnar á Hverfisgötu (Hverfissteininum) og stöldruðu við fyrir utan og voru að reyna að rifja upp hvernig þeir höfðu lent í steininum. Hvort þeir hafi verið hirtir upp einhvers staðar eða hvort þeir báðu um gistinguna?? Það kom mér einnig á óvart hversu mikil bjartsýni sveif þarna yfir, þrátt fyrir allt.
Allavega, þetta var manni hollt að horfa á þennan þátt, sumt ólánsfólk er ekki að slæpast eða að vera með aumingjaskap, það er ástæða að baki flestu hvort sem það eru andleg eða líkamleg veikindi eða eitthvað annað.
..
Mitt minni er ekki alveg að virka...

...í matarboðinu í síðustu viku fékk ég smá súkkulaðikonfekt í "nesti" og hugsaði mér gott til glóðarinnar, ætlaði að njóta molans með kaffibolla. Algjör himnasæla. Í morgun fann ég svo þennan mola í veskinu mínu. Hafði steingleymt honum. Steingleymt súkkulaðimola!?! Þetta eru alvarleg tíðindi. Og svo í dag uppgötvaði ég að vinkona mín átti afmæli í gær og ég gleymdi því. Alveg úti að aka. Og hvað þýðir þetta?
A. Það er of mikið að gera hjá mér í vinnunni.
B. Ég þjáist af Alzheimer Light.
C. Ég hefði ekki haft gott af súkkulaðinu hvort eð er og undirmeðvitundin var að hjálpa mér. (þetta skýrir samt ekki afmælisglöpin).
D. Ég á ekki að vera að velta mér upp úr þessu og éta bara súkkulaðimolann.

Ég er að hugsa um að velja valkost D. Þetta nær þá ekki lengra.
..

Thursday, March 13, 2003

Skattur, skattur, skattur, skattur...

Það er svolítið mikið að gera í dag í vinnunni. Reyndar hafa síðustu vikur verið annasamar hér í vinnunni, álagið í virðisaukaskattinum er mest í febrúar og mars. Og nú fer hitt að bætast við, þ.e. þjóðin fer að skila inn skattframtalinu sínu. Það álag smitast svolítið hingað niður til okkar í vaskinum. Megi guð gefa að sem flestir skili framtalinu sínu rafrænt og hafi rænu á að lesa leiðbeiningar fyrst og spyrja svo. En það er eins og hálf þjóðin verði slegin lesblindu við það eitt að fá eyðublöðin sín inn um póstlúguna....
Fimmtudagur til syfju...

...*geisp*

Var í matarboði í gær. Kom heim seint og sofnaði enn seinna. Var eins og draugur í morgun. Hafði þó rænu á því að vera á bíl og er því hressari en bóndinn sem fékk koníak með kaffinu á eftir matinn.... En það verður gott að leggja sig í kortér þegar ég kem heim úr vinnunni á eftir. En þessi syfja er alveg þess virði, það var svo gaman hjá okkur í gær. Hittum hina meðlimina í Flugfélaginu EJS (EJS stendur m.a. fyrir "ekta jeppasjúklingar", en "flugfélagið" vísar til þess að sumir meðlimir hafa tekið flugið á fararskjótunum sínum) og hlógum og grínuðumst svo mikið að ég er með harðsperrur í kinnunum. Af hverju að hittast á miðvikudagskvöldi, myndu sumir spyrja? Tja, það er nú einföld ástæða fyrir því. Það er algjör óþarfi að eyðileggja prýðisgóða ferðahelgi með einhverju matarboði.... Um helgar fer maður á fjöll!


Tuesday, March 11, 2003

Kaffipróf!!!

Já, ég er bara nokkuð ánægð með útkomuna. Prófið var samt ekkert voðalega skemmtilegt....


Samkvæmt kaffiprófinu er ég
Latte!
og samanstend af tvöföldum espresso og flóaðri mjólk.
Hvernig kaffi ert þú eiginlega?

Monday, March 10, 2003

Sunnudagur í leti...

....gerðum fátt annað en að sofa, horfa á formúluna, strauja stór fjöll af þvotti, fá fólk í heimsókn og hella upp á kaffi. Enda bara mjög gott að taka því rólega. Ég var enn hálfslöpp og drulluþreytt eftir síðustu viku og þetta var því vel þegin leti. Og það spillti ekki fyrir að mínir menn gerðu það gott í formúlunni og keppnin var það spennandi að ég mun alveg örugglega nenna að horfa á hana næst.
Er núna að drekka C-vítamín, 1000mg. Ætla ekki að verða veik aftur....veit ekki hvort það tekst hjá mér...

Friday, March 07, 2003

Kettir....

...hafa alveg sína rútínu. Það sé ég ef ég er heima svona á virkum degi. Því þeir vita alveg muninn á virkum degi og helgardegi. Á virkum dögum vakna ég yfirleitt á undan þeim, ýti þeirri díselvélinni sem var svo heppinn að ná heiðurssætinu (ofan á bringunni á mér eða í hálsakotinu) frá og fer á fætur. Á meðan ég er í sturtu og að hafa mig til, raða þessar kisulórur sér allar þrjár í kringum mig. Bíða í dyragættinni (Sunna), ofan á klósettsetunni (Ísafold) og ofan í baðkerinu (Nebbi). Svo er fylgst með mér. Hver hreyfing. "Ætlar hún inn í eldhús núna? Voðalega er hún lengi að blása á sér hárið. Hún snýr sér núna að dyrunum...nei..hún er að ná í burstann..nei, hún stígur eitt skref..já..já..hún fer fram!!!" (nú stökkva allar til...)"Neeeeiiiiiii..........hún fer inn í svefnherbergi!" *andvarp* (Hafið þið heyrt ketti andvarpa? Það er ógurlega fyndið...). Svo flækjast þessi grey fyrir mér ef ég nálgast Himnaríki (eldhúsið) og svo er vælt og skælt þar til allir eru búnir að fá sitt. Þá er ég ekkert spennandi lengur og fæ í friði að klára mína rútínu...nema ef ég sest við eldhúsborðið að lesa Moggann. Þá leggst ALLTAF einhver þeirra ofan á blaðið. Beint fyrir framan nefið á mér. Og mala. Hátt. Ég hallast helst að þeirri kenningu að um sér að ræða þrá eftir athygli. Já, það eða að sú sem nær þessum eftirsótta stað vilji fá að vita hvað sé helst í fréttum. Hvað veit maður....
Allavega, þá er þetta svona á virkum dögum. Og þegar ég kem heim þá eru þær allar að vakna eftir að hafa hrotið allan daginn í gluggakistum, sokkaskúffum eða ofan á einhverri flík sem er nýþvegin og brotin saman á stól. Og þá byrjar þetta matarvesen aftur. Þvælst fyrir fótunum á manni þar til maður gefur þeim að borða.
Stundum eru þær í skapi "fyrir eitthvað gott". Kannist þið við þessa tilfinningu? Hún fyrirfinnst líka hjá köttum. Þetta er nefnilega hætta ef þeim er einhvern tímann gefið eitthvað annað en þurrfóður eða Whiskas. T.d. rækjur, túnfiskur, harðfiskur eða skinkusneið (nota bene..bara frá Ali. Vilja ekki sjá annað.) Hvað þá nýsoðin ýsa. Og svekkelsissvipurinn sem kemur á þessi dýr þegar maður gefur þeim svo bara eitthvað illalyktandi kattafóður. Líta ekki við mér í nokkra klukkutíma, þær verða svo móðgaðar.

...en það sem er fyndnast er að vera heima á virkum degi. Þær fara alveg úr sambandi. Ég er svo mikið að trufla rútínuna fyrir þeim að þær fara alveg í flækju. Kettir eru nefnilega ógurlega miklar félagsverur, þótt margir vilji segja annað. Núna t.d. er þeirra aðalsvefntími. En þar sem ég er heima, þá verða þær að vera nálægt mér. Ég fer úr einu herberginu í annað, fram í eldhús, inn í tölvuherbergi eða inn á bað. Og alltaf tölta þær á eftir mér. Koma sér vel fyrir á gólfinu, mottunni, stólnum..þvo sér í bak og fyrir...snúa sér í nokkra hringi..leggjast...eru alveg að sofna...lygna augunum..en þá færi ég mig og þær rífa sig upp. Og svo byrjar ballið á ný....þvo sér...sofna..og svo á fætur aftur.
Núna sit ég í tölvuherberginu, Nebbi er í gluggakistunni við hliðina á mér, Sunna á gólfinu við fæturna. Ísafold er búin að gefast upp, nennir þessu ekki lengur enda langgáfuðust af þeim þrem og búin að koma sér vel fyrir í sólinni inn í stofu.
Kattarbloggi lokið..í bili..
..
Það kom að því...

..að umgangspestir næðu tökum á manni. Ég fór heim úr vinnunni í gær, enda alveg að drepast úr verkjum alls staðar..og jú, það stóð heima, mældist með hita. Ég tók því verkjalyf og lagðist undir sæng og vissi varla af mér fyrir en undir kvöldmat. Snéri mér þá á hina hliðina og hélt áfram að sofa. Vaknaði og horfði á skvísurnar í New York, fékk mér brauðsneið og fór svo bara að sofa á ný. Leið því mun betur í morgun en þar sem hitinn var ekki alveg farinn úr mér þá ákvað ég að vera heima í dag líka. Það er samt eitt slæmt við að vera heima veik.....ég sé svo vel allt rykið og skítinn heima hjá mér í dagsbirtunni......
..

Thursday, March 06, 2003

Það er svo týpískt...

...að þegar svona stressdagur er afstaðinn, og maður ætti að geta slakað á, þá er bara líkaminn búinn. Vaknaði með hausverk og magaverk í morgun. Er nú mætt í vinnuna enda nóg að gera. En dagurinn í gær tók heldur betur á taugarnar, fyrst stress í vinnunni og að ná að skila verkefni fyrir skólann, svo að klára að undirbúa fyrirlestur (og nota bene sinna vinnunni líka, símtölum og viðtölum...), flytja hann svo eftir hádegi og þurfa svo að koma fram í sjónvarpi um kvöldið. Ég var ansi þreytt í gærkveldi! Svona streita og kvíði tekur heldur betur á. Hvernig fer fólk að sem er endalaust að mæta hingað og þangað í viðtöl og halda ræður og svoleiðis? Ég sé mig í anda, alveg andlega tætt!

Wednesday, March 05, 2003

Vá...

...bráðum kemst teljarinn upp í fimmhundruð!!?? Ég sé til hvort ég veiti einhver verðlaun fyrir þann merka gest!
..