Friday, April 25, 2003

Sumarfrí

Ég hef verið að raða saman sumarfríum starfsmanna minna í morgun. Það er ákveðinn lúxus að geta valið sér tímasetningu á sumarfríi en því fylgir samt einn ókostur...ég bara veit alls ekki hvenær ég á sjálf að taka mér sumarfrí......endar oft þannig að allir fara í frí og ég sit eftir. Hmmm...þarf að spá aðeins betur í þetta...
..
Málfarsblogg

Ég rakst á skemmtilegt blogg í morgun, mæli með því að það sé lesið reglulega. Sem sagt...hollt blogg!
..

Wednesday, April 23, 2003

Kosningar!

Ég fékk um daginn senda þessa skemmtilegu slóð
þar sem ég tók próf sem á að sýna hvar ég stend svona pólitískt séð - miðað við stefnumál flokkanna núna fyrir kosningar. Niðurstaðan var ansi áhugaverð......
..
Sumarið handan við hornið??

Þetta hafa verið ljúfir dagar undanfarið. Vorið komið fyrir alvöru, allir farfuglar komnir á sinn stað í sveitinni - nema kannski krían en hún er á leiðinni, sólin skín og allt að komast í blóma. Vorið er minn uppáhaldstími og páskarnir eiga sinn þátt í því. Ekki sama stress og fylgir jólunum, heldur eru páskarnir miklu afslappaðri og maður nýtur frídaganna betur. Við vorum reyndar á ferðalagi skírdag, föstudaginn langa og laugardag, en renndum í hlað heima uppúr miðnætti á laugardagskveldi. Ferðalagið vestur á Firði var alveg frábært, Drangajökull er alveg frábær jökull og þaðan er eitt skemmtilegasta útsýnið af íslenskum jöklum sem ég hef kynnst. Það var erfitt að komast að honum, leiðin liggur upp úr Unaðsdal á Snæfjallaströndinni....ógurlega stórgrýtt og erfitt, sérstaklega þegar það er svona lítill snjór. Þá er ekkert hægt að fara út fyrir slóða því það skemmir gróður. En við sem sagt fórum þangað á föstudeginum, í ágætisveðri þótt sunnan Djúpsins hafi verið mjög dimmt yfir. Sólin skein á köflum á okkur og útsýnið norður, þ.e. á nyrðri Strandirnar var alveg geggjað. Að fólk skuli hafa búið þarna og notað jökulinn sem samgönguleið yfir í Djúp...ótrúlegt. Á leiðinni vestur daginn áður fengum við líka frábært veður þegar við fórum Þorskafjarðarheiðina. Hún er reyndar ekki enn opin fólksbílum, enda allt á kafi í snjó ....og krapa á köflum. Við komumst þó yfir en urðum að teyma með okkur nokkra smájeppa sem héldu að þeir kæmust þarna yfir. Þetta fólk var ekki með okkur í för en hefur örugglega verið dauðfegið þegar við komum að þeim, föstum í skafli og vægast sagt illa útbúin fyrir svona ferðalag. Þessir bílar voru hengdir aftan í stærri jeppa og svo var baslast með þá yfir heiðina. En sólin skein glatt þannig að þetta var ekkert svo slæmt....bara meira fjör eins og einn ferðafélaginn okkar sagði! á laugardeginum kíktum við upp fyrir Sængufossvirkjun, sem er innst í Húsadal við Mjóafjörð. Ætluðum að reyna að komast að Glámu og þaðan inn á Skálmardalsheiði. Það gekk ekki eftir vegna snjóleysis og gífurlegrar bleytu en sólin skein nú samt sem áður á okkur og einn ferðafélaginn pompaði ofan í læk sem leyndist undir snjónum þannig að það var svo sem alveg nóg við að vera! Við lögðum síðan af stað heim rétt fyrir sex á laugardeginum og skildum restina af félögunum eftir í Reykjanesi við Ísafjörð en við ætluðum að vera mætt í páskaboð daginn eftir í bænum og fórum því degi fyrr heim. En Snjófusi fannst greinilega ekki hafa verið nógu mikið "fútt" í ferðinni og ákvað því að blása aðeins lífi í þetta allt saman. Þegar við vorum í rólegheitunum að dóla okkur upp Steingrímsfjarðarheiðina, á vel upphækkuðum vegi og með bláa krapapytti báðum megin við veginn, heyrðist allt í einu sérkennilegt hljóð og áður en ég vissi af hallaðist bíllinn vel til hægri og við hentumst út af veginum. Ég held ég hafi öskrað af hræðslu en er ekki viss. Hjartslátturinn yfirgnæfði öll hljóð sem ég heyrði. Við sátum fyrst sem frosin en klöngruðumst svo út...öll alveg heil og óbrotin. Bíllinn hafði lent pent á kafi í skafli, örfáa metra fyrir ofan risakrapapytt. Skýringin var sú að það hafði hvellsprungið hægra framdekkið.....gatið á stærð við fótbolta. Þegar svona gerist á upphækkuðum bíl, þá gerist það snöggt og engin leið að stýra honum, hann hallast svo niður að framan. En ég er alveg á því að þarna hafi snarræði Begga bjargað okkur, því við hefðum hæglega getað lent á hlið eða á hvolfi. Brattinn þarna niður af veginum er töluverður. Og í hjólförunum voru steinar á stærð við Hálfsterkan og Fullsterkan eða hvað sem þeir nú heita þarna í Dritvík. Og þarna vorum við...ein á ferð og ekki með NMT síma í lagi...hann drukknaði þarna um daginn.... En þetta bjargaðist allt saman, jeppi sem kom aðvífandi var með síma og við hringdum í ferðafélagana sem voru að gera kvöldmatinn sinn kláran. Þeir komu fljótt, skiptu um dekk (það var eitt aukadekk með í för, meira að segja á felgu - takk Kjartan!) og við héldum áfram á rammskökkum bílnum yfir heiðina. Stýrið var skakkt og bíllinn gekk alveg til. Það var óþægileg lífsreynsla. En á Hólmavík hjólastillti Beggi bílinn ásamt einum sem hafði slegist með í för úr ferðahópnum, var á leið á Sauðárkrók (Takk Danni!!), og eftir það gekk þetta betur. En sem sagt, okkur vantar eitt Groundhog 38" dekk, lítið notað, ef einhver veit um slíkt! Bíllinn þarf að fara í hjólastillingu á ný, rétta þarf felguna sem er rammskökk og okkur vantar líka nýjan síma! En ég er eiginlega komin með nóg...í bili. Minn óhappa- og tjónakvóti er búinn! En ég verð samt að viðurkenna...að undanfarið í öllum þessum óhöppum, þá höfum við samt verið heppin. Þetta hefði allt getað farið miklu, miklu verr - í öll skiptin.... En gerði það ekki. Okkar verndarengill hefur heldur betur verið að vinna yfirvinnu undanfarið......
..

Wednesday, April 16, 2003

"24"....

....er ein sú allsvakalegasta þáttaröð sem ég hef komist í. Systir mín keypti fyrir mig alla fyrstu seríuna á dvd úti og við hjónin erum orðnir fíklar. Horfðum á 5 þætti í röð um helgina. Og þrjá í gær. Þættirnir eru látnir gerast á rauntíma og hver þáttur spannar eina klukkustund og í heildina því einn sólarhring. Byrjar á miðnætti.....við horfðum í gærkveldi á þáttinn sem gerist milli ellefu og tólf á hádegi....eftir að Beggi kom heim seint og síðar meir. Urðum að horfa á einn þátt áður en við fórum að sofa. Er þetta eðlilegt?? Og til að toppa þetta allt þá erum við með tölvu í jeppanum.....með dvd-drifi........ *hóst* Sem sagt ef að við lendum í vandræðum eða vondum veðrum þá er bara hægt að koma sér vel fyrir með svefnpokann í bílnum og glápa..... eins og eldgömul sápa....
..
Páskafrí!!

...á morgun er komið páskafrí....Jibbííí!! Við hjónin erum hvergi bangin eftir síðustu svaðilfarir og ætlum á fjöll á morgun. Förinni er heitið vestur í Ísafjarðardjúp, á Reykjanes. Þaðan ætlum við að skoða okkur um og fara m.a. á Drangajökul. Heimferð er svo áætluð á laugardaginn. Snjófus er kominn í þokkalegt lag, allur tandurhreinn og fínn og það eina sem er í ólagi er blessaður NMT síminn sem náði sér ekki eftir volkið um daginn. Beggi er að þrífa og bóna bílfákinn í þessum skrifuðum orðum svo hann verði ekki eins og ljóti andarunginn við hliðina á öllum stífbónuðum jeppunum sem verða með okkur í för...

Tuesday, April 15, 2003

Skrítin könnun....



I am the number
2
I am friendly

_

what number are you?

this quiz by orsa



Veit ekki alveg hvernig ég á að taka þessu prófi. Fannst það ekki einu sinni fyndið. Veit því fjandakornið alls ekki af hverju ég set það á síðuna mína.
..
En ég verð nú samt að bæta einu við...

...ég verð að lýsa ýfir ánægju minni með hann Bush karlinn. Því Sýrland hefur alltaf valdið mér svolitlum uggi og ótta. Sýrlendingar eru að bralla eitthvað. Eiga örugglega eitthvað sem ekki má eiga skv. Bush. Því Bush veit upp á hár hvað er heimsbyggðinni fyrir bestu. Því er ég svo glöð með að hann Bush ætli að láta hermennina sína ekkert fara heim eftir Íraksstríðið heldur halda bara áfram að taka til þarna suður frá. Mér líður svo miklu betur yfir því að vita af þessum indælu piltum þarna, athugandi á bakvið sérhvern sandhól og klett hvort ekki leynist alveg stórhættuleg vopn eða eitthvað annað. Svona á þetta að vera, taka almennilega til þarna, allir þessir múslimar hljóta að vera bralla eitthvað illt. Eru ekki allir múslimar vondir? Líka þessi börn..með stóru augun sín. Þau hljóta að vera að búa til vopn eða eitthvað.

.....
Bloggið mitt...

...hefur verið vanrækt undanfarna daga. Hef bara alltof mikið að gera. Er eiginlega komin með upp í kok af því að hafa svona mikið að gera. Þessu má alveg fara að linna. Og gerir það vonandi eftir páska.
..

Friday, April 11, 2003

Veisluhöld....

...í gær gengu bara vel. Ég var ógurlega dugleg í eldhúsinu og kom familíunni á óvart með svaka fínu gúmmelaði sem er ekki síst vinkonum að þakka sem luma á góðum uppskriftum! Aðal"trítið" var svo auðvitað að fá að sjá systur mína og systurdóttur....sem er algjör snúllimús. Mikið var nú gaman að fá að klípa hana aðeins. Sú litla bara brosti og var ógurlega glöð, þrátt fyrir langt ferðalag alla leið frá Ameríku og ókunnugt umhverfi og ókunnug andlit. Ætli ég sleppi þeim mæðgum nokkuð heim aftur....
..

Thursday, April 10, 2003

Ég á ....

...afmæli í dag, ég á afmæli í dag, ég á afmæli í daaaag, ég á afmæli í dag!

...

Wednesday, April 09, 2003

Á morgun....

...verður vonandi góður dagur. Tilhlökkunarefnin eru allavega mörg. Þar ber hæst heimsókn litlu systur frá Flórída ásamt litlu nöfnunnar minnar. Hlakka ekki lítið til að klípa þær og kremja.... Svo ætla ég að vera ógurlega dugleg og gefa bæði samstarfsfólki nammigott í fyrramálið og nánustu ættingjum og vinum nammigott um kvöldið. Fæ að gefa 2 litlum frænkum ógurlega fín föt sem ég keypti í Stokkhólmi, m.a. svona ballerínuföt handa þeirri eldri. Það er nefnilega mikil forréttindi að fá að vera frænka. Við erum með sérleyfi fyrir dekri og eftirlátssemi.
..
Skondið próf....

...enda The Big Lebowski ein sú brjálæðislegasta fyndnasta og skrítnasta mynd sem ég hef séð. Fílaði hana alveg í ræmur.


According to the "Which Big Lebowski character are you?" quiz:




Why don't you check it out? Or we cut of your Johnson!


..

Tuesday, April 08, 2003

Komin heim...

...hversdagsleikinn tekinn við ásamt slagviðri og rigningu. En ég er sko í nýrri sænskri peysu og með "hei" ennþá klingjandi í kollinum! Ferðin var virkilega skemmtileg en ég kem að því síðar. Ég er svolítið á eftir með ferðasögur, á eftir að segja frá kvennaferðinni, krapaferðinni og svo Stokkhólmsferðinni. Það hefur verið nóg að gerast undanfarið....og svo er margt skemmtilegt framundan. Vorin eru alltaf viðburðarík og páskarnir eru minn uppáhaldstími. Allt að vakna til lífsins, litirnir í náttúrunni láta aftur á sér kræla hérna á höfuðborgarsvæðinu og fuglarnir ganga af göflunum úti á Álftanesi. Ég sá t.d. að mávurinn er mættur í móann meðfram Álftanesveginum, nokkuð skýr vorboði! Og sá næsti verða þá lóur á vappi í görðunum og margæsir á beit og hestunum fjölgar á túnunum. Þá er vorið örugglega komið.

Thursday, April 03, 2003

I mora...

...skal jeg til Stockholm! Ég er því að rifja upp norskuna mína því ekki kann ég sænsku.... Eldsnemma í fyrramálið leggjum við vinkonurnar í hann út á flugvöll. Mikið hlakka ég nú til! En á sama tíma er ég strax farin að sakna bóndans. Það kemur ekki oft fyrir að við erum aðskilin. En það er fjörug helgi framundan enda óratími síðan við vinkonurnar höfum gert eitthvað svona mikið saman í langan tíma. Mig grunar að það verði flissað heilmikið um helgina. Gvöð hvað við verðum skemmtilegar....

Friday, March 28, 2003

Og eitt enn....

....BARA VIKA ÞAR TIL ÉG FER TIL STOKKHÓLMS!!!!!!!!

...
Jökulheimar - Grímsfjall

Jæja, ég er á leiðinni á fjöll á ný. Núna með fullt af körlum....svolítið mikið frábrugðið síðustu helgi! Ætli ég verði ekki ein af fáum konum í ferðinni en mun að öllum líkindum sjá að mestu um aksturinn því bóndinn verður á kamerunni, að taka upp efni fyrir vin okkar (við í Flugfélaginu EJS ætlum sko að vinna myndbandasamkeppnina í Ferðaklúbbnum 4x4 í ár!). Mér þykir það ekki slæmt, þótt fyrirséð verði að við lendum í gífurlegum krapa og svoleiðis skemmtilegheitum. Þá er bara að skella sér í vöðlurnar, setja á sig húfu og stökkva út og hengja spott á á króka ef við festumst. Ferðinni er heitið í
Jökulheima sem eru skálar Jöklarannsóknarfélagsins við rætur Vatnajökuls. Vonandi mun viðra vel á morgun svo við getum þvælst eitthvað um Vatnajökulinn og skellt okkur í gufu á Grímsfjalli. Skíðin eru að sjálfsögðu með ásamt gítarnum hans Lúffa (jú og Lúffi líka..of course..), Óskar uppvaskari með meiru verður í fararbroddi í eldhúsinu en Ingvi hrotukóngur er enn úti á Kanarí með hinu gamla fólkinu og verður því af fjallaferð í þetta sinn. Hans ektakvinna komst heldur ekki með í kvennaferðina um síðustu helgi, því miður. En vonandi rignir ekki á okkur, það er eiginlega leiðinlegasta veðrið...stórhríð er eiginlega skárri (þó ég sé ekki að biðja um slíkt veður!). En það er sko ekki verra að fá fínt veður á fjöllum....það er fátt sem slær það út.
..
Föstudagur!!!!

...mikið er ég nú fegin að vikan er senn á enda. Ég hef verið ansi þreytt síðustu daga enda nóg að gera á öllum vígstöðvum. Ég er t.d. að verða gróin hérna við skrifborðsstólinn minn í vinnunni enda vinnudagarnir langir núna. Nema í dag! Þá ætla ég að hætta fyrir fjögur og halda heim og undirbúa mig fyrir ferðina um helgina...segi meira frá því á eftir, er rokin á fund...
..

Thursday, March 27, 2003

8 dagar...

..þar til við vinkonurnar gerum innrás á heimili vinkonu okkar í Stokkhólmi. Nú er ég farin að kíkja á veðrið þar á hverjum degi og vona að það taki svona ljúft vorveður á móti okkur! Það yrði ekki leiðinlegt að fá smá forskot á vorið hérna heima. Því ég vil ekkert fá vorið hingað of fljótt...vil halda snjónum á hálendinu sem lengst!!
..

Wednesday, March 26, 2003

Fínn dagur!

..búið að vera bara ágætt í dag. Nóg að gera, eins og alltaf, en það er alltaf gaman að skipta alveg um gír og fara í þýskutíma upp í háskóla. Fara í allt annað umhverfi, miklu afslappaðra þótt nóg sé að gerast. Þetta akademíska umhverfi á ósköp vel við mig. Einu sinni lofaði ég sjálfri mér að verða eilífðarstúdent en svo sættist ég á það að fara bara aftur í háskóla þegar ég yrði sjötug. En þarna er ég sem sagt mætt á ný og líkar bara vel. Svo er þýskan bara mjög skemmtileg þótt hún sé fjandi erfið. Ég er ekki beint að brillera í þessum stílum....það er af sem áður var þegar maður fékk tíu án þess að lyfta litla putta. *sniff* Svo skiptir engu máli hvort ég puða við stílana alein eða hvort ég fær aðstoð frá Þjóðverjunum hérna í vinnunni við orðaforðann eða frá öðrum þýskusnillingum. Alltaf sama einkunnin.... *búhúú*

Annars eru bara 9 dagar þar til ég fer til Stokkhólms!!!!..
..