Friday, August 08, 2003

Þessir ágætu herrar...

...hjá Baggalúti hitta stundum naglann á höfuðið nokkuð hnitmiðað og fast...
..

Thursday, August 07, 2003

Gerði virkilega góð kaup í hádeginu...

...þegar ég keypti mér tvo nýja geisladiska á góðu verði. Festi m.a. kaup á diski sem ég hef lengi haft augastað á, eða Sea Change með Beck. Hinn diskurinn er Love Is Here með Starsailor, ekki síðri diskur. Skífan fær hrós fyrir að setja fullt af góðum titlum í "2 fyrir 2.200" tilboðið sitt.
..
Tók mig til....

...og stakk af úr vinnunni í gær og fór í sund í alveg frábæru veðri. Alveg meiriháttar! Kíkti svo í Smáralindina til að athuga með nýju haustfötin og sá lítið áhugavert. Nennti síðan alls ekki að elda og var bara með brauð og skyr í kvöldmat, var að dunda mér útivið frameftir kveldi og ætlaði aldrei að dröslast inn. Hvað þá að koma mér í rúmið enda er ég geispandi aðra hverja mínútu í dag. Hefði sko alveg verið til í að sofa út í morgun. Bóndinn bauð mér í bíltúr í dag með túristunum sem hann er að keyra upp á Heklu en ég komst því miður ekki. Hefði alveg verið til í að þvælast þangað uppeftir og skella mér svo í laugina í Landmannalaugum.

p.s. hvað er þetta eiginlega með þessar tískufatabúðir? Hvar eru fötin fyrir svona venjulegt fólk sem er ekki 1.70 m á hæð og 45 kíló? Óþolandi. Mér líður eins og ég sé 100 kíló þegar ég máta föt í Zöru. Ggrrrrrr.......
..

Wednesday, August 06, 2003

Það er einn ókostur við það að fara í frí...

...það bíða manns svo mörg verkefni þegar maður kemur aftur og heilinn er í engu ástandi til að fara að hugsa skýrt og einbeita sér. Hvað þá að taka einhverjar ákvarðanir af viti. Nú langar mig t.d. bara að fara til útlanda þótt fjárhagurinn leyfi það líklegast ekki við nánari skoðun. En mig langar samt. Er komin hálfa leið út í huganum. Ekki mjög skynsamlegt.
Heilar nýkomnir úr sumarfríi eru því stórhættulegir. Það tilkynnist hér með.
..
Ég þarf að bæta einu við...

...á listann minn. Ég mæli með Lavendar baðolíu frá Body Shop í baðið. Prufaði svoleiðis í gær og þvílík sæla! Svaf eins og ungbarn í nótt. zzzzzzzzzzzzzzzzzzz
..


Tuesday, August 05, 2003

Mæli með....

....að finna sér fallegt fjallavatn með urriðaveiði, tjalda þar með sínum heittelskaða og veiða á undirfötunum einum fata.
....ná sér í vatn í næsta læk og hita sér kaffi á gamla mátann.
....skröltast á fjallajeppanum um nýja slóða inni á miðju hálendi, pissa á bak við stóran stein og horfa um leið á smyril kæla sig í fjallalæk.
....sofa í tjaldi í smá úðarigningu og finna bara lyktina af blóðberginu sem vex allt um kring.
....veiða um miðja sumarnótt. Kyrrðin er engu lík...

Var þetta ekki alveg hrikalega væmið? Mér er sama...þetta gerði ég í sumarfríinu mínu og er alveg endurnærð. og nú fer að líða að því sem kemur næst á "uppáhalds"-listanum mínum. Aðalbláberjatíminn mikli! Mér skilst að berjalönd séu alveg að verða tilbúin og sumstaðar er alveg hægt að tína ber. Namminamm...
..
Fríið búið...í bili...

...hversdagsleikinn tekinn við. Og bloggið. Það hefur heldur betur verið vanrækt í sumar enda á maður ekki að vera hangandi við tölvu þegar veðrið er gott úti.
..

Thursday, June 26, 2003

Það er algjör pína...

..að hlusta á útvarpsfréttir þessa dagana. Ríkisútvarpið hefur greinilega ekki fengið góða sumarafleysingamenn....fréttirnar eru sagðar á hikstandi hátt og mismæli allsráðandi. Núna í tvö-fréttum t.d. mismælti fréttaþulurinn sig a.m.k. sex sinnum og hikstaði og gapti í tvö skipti þannig að ég gafst upp og skipti um rás. Get bara ekki hlustað á þetta.
..

Tuesday, June 24, 2003

Ég þoli ekki....

....þegar eitthvað opinbert batterí ráðskast með hluti eins og nöfnfólks. Þetta er forsjárhyggja í sinni alverstu mynd. Ég legg til að þessi mannanafnanefnd verði lögð niður med det samme. Það er engum greiði gerður að leyfa honum Jóni að nefna dóttur sína Zakaríu en nágranninn má ekki nefna sína dóttur Elizu. Oh..þetta fer ógurlega í pirrurnar á mér. Þegar ég hef tjáð mig um þetta við aðra hefur stundum verið sagt við mig: já, en hvað ef foreldrar myndu skíra son sinn Satan? Það er alveg rétt, slíkt nafn myndi valda barni með þessu nafni mikilli kvöl og pínu en það er alls ekki rök fyrir því að hafa mannanafnanefnd starfandi í þeirri mynd sem hún er í dag. Það að nafn taki ekki einhverri háttvirtri og almáttugri eignarfallsendingu sé gild ástæða fyrir því að leyfa fólki ekki að nota það er ein sú mesta fásinna sem ég hef heyrt. Forsjárhyggja og þjóðernisfasismi eru orð sem klingja í kollinum á mér...
..


Friday, June 13, 2003

Ró og friður....

...einkennir húshaldið þessa dagana. Já, ætli hugtakið "leti" eigi ekki einnig við, við erum komin í í 1. gír, ég veit ekki hvort ég eða kettirnir lúra meira. Og að geta dormað úti í sólinni er alveg frábært. Með góða bók. Dejligt...
Góð vinkona mín eignaðist myndardreng núna fyrr í vikunni og ég fékk myndir í gær. Hann er algjör dúlla!! En ég var búin að spá því að þetta yrði stelpa. Ég er alltaf sannspá nema þegar það kemur að æskuvinkonum mínum þremur. Þá klikka ég alltaf! Skil þetta ekki!! :o)
..

Sunday, June 08, 2003

Geisp...

Búin að hafa það ferlega gott, lesa bækur og horfa á myndir sem ég ætlaði að sjá fyrir löngu. Mikið rosalega er Kevin Spacey góður leikari. Horfði m.a. á The Shipping News og skv. bókinni er Quoyle, sögupersónan sem hann leikur, stór og luralegur og þrátt fyrir að hann sé nú ekkert hávaxinn hann Kevin, þá virkar hann stór og luralegur í myndinni. Gengur alveg eins og hann sé að dröslast með a.m.k. 120 kíló.

Annars er það helst í fréttum að ég uppgötvaði mér til mikillar hrellingar að það voru komnar pöddur í fersku kryddjurtirnar mínar... *sniff* Ég er alveg ógurlega svekkt yfir því en mun ekki láta bugast og ætla að þvo pottana og planta upp á nýtt. Eldaði nefnilega spagetti Bolognese og það var bara næstum því vont - það vantað alveg bragðið af fersku basilikunni. Ógurlegt svekkelsi....

Thursday, June 05, 2003

Stundum...

...get ég verið svakalega pirruð út í sjálfa mig. Sérstaklega þegar ég hef ýtt einhverju máli á undan mér og svo þegar ég sest niður og fer loksins í það þá tekur það rétt hálftíma. Af hverju var ég ekki löngu búin að þessu??? Setti algjört met...úrskurðaði á nó tæm leiðindamál sem ég hef ekki megnað að fara í í marga daga..vikur..mánuði..eh... Alltaf virtist eitthvað annað koma upp á sem lá meira á. Og nú dauðskammast ég mín....
..
Ég er á leiðinni í frí...

...og þá er svo týpískt að það verði allt vitlaust að gera í vinnunni þannig að ég næ ekkert að klára öll þau mál sem ég ætlaði að klára. Demmit. Jæja, hvað um það - ég hlakka mikið til að liggja með tærnar upp í loft í hálfan mánuð. Vonandi helst veðrið gott líka þannig að ég komist í sólbað af og til.
..

Wednesday, June 04, 2003

Allt er nú til....

Nýjasta nýtt í henni Ameríku.... Ekki það...ég hef nú séð suma ónefnda ketti eltast við ýmislegt sem þeir sjá á sjónvarpsskjánum, s.s. skíðamenn, fótbolta og billjardkúlur. Fyndnast er þegar þeir hlaupa á bakvið sjónvarpið...tékka á því hvort áhugaverði hluturinn hafi skoppað þangað...
..

Tuesday, June 03, 2003

Ánægjulegustu fréttir dagsins...

...eru fréttirnar af upprisu bloggara dauðans. Fróðlegt að sjá að hann og bróðir hans voru einlægir aðdáendur þýska lagsins í Eurovision árið 1979. Þetta lag var í kósakkastíl og vakti mikla aðdáun okkar systra á sínum tíma. Það var sungið með miklum þrótti og tilheyrandi dansi heima hjá okkur í stofunni á þessum tíma enda bjuggum við í Þýskalandi þá og héldum því auðvitað með því lagi í keppninni sjálfri. Vonbrigðin urðu mikil þegar það lenti svo bara í fjórða sæti. Mig minnir að ég hafi næstum því grátið mig í svefn það kvöld....
..

Saturday, May 31, 2003

Þetta er skemmtilegt próf....

Switzerland
Switzerland -
A neutral power for as long as most can remember,
it has avoided war for several centuries.
However, it is still considered highly advanced
and a global power.


Positives:

Judicial.

Neutrality.

World-Renouned.

Powerful without Force.

Makes Excellent Watches, Etc.


Negatives:

Target of Ridicule.

Constant Struggle to Avoid Conflict.

Target of Criminal Bank Accounts.



Which Country of the World are You?
brought to you by Quizilla


Þeir gleymdu samt einu......þeir búa til svo fjandi gott súkkulaði þarna í Sviss!
..

Friday, May 30, 2003

Nenni ekki að skrifa meira...

....fyrr en þið druslist til að kommenta í kommentakerfið hjá mér. Ég púlaði við að koma því upp fyrir ykkur, og svo notið þið það ekki. Það er ekki upp á punt!
Iss..
Sumarkvöld eins og í gær...

...eru alveg frábær. Ég ætlaði aldrei að geta hætt að stússast í kvöldsólinni í gær. Við vorum að ganga frá bílskúrnum, nýja fína gólfið þar er æði, svo plöntuðum við stóru fínu 3 m háru birkitréi í garðinum og þegar inn var komið gat ég ekki hætt....fór að þvo þvott og taka til. Svo settumst við hjónin niður og fengum okkur te og spjölluðum í rólegheitunum. Manni langaði alls ekki upp í rúm á meðan sólin skein svona glaðlega úti. Var þvi svolítið þreytt í morgun en samt ánægð, svona notaleg sumarkvöld eru alveg meiriháttar.
..

Thursday, May 29, 2003

Það er náttúrulega bilun....

...að vera að vinna á svona góðum degi, en hér er ég nú samt. Verð nú ekki lengi, eitthvað framyfir hádegið. Vonandi verður gott veður þá líka!
Var á bjórkvöldi hjá ferðaklúbbnum 4x4 í gær. Við Beggi fengum hjónaverðlaun fyrir mikið afrek....að hafa kafað á Troopernum með glæsibrag. Fengum svona kafaragleraugu í verðlaun ásamt viðurkenningarskjali. Okkur var vinsamlegast bent á að hafa þennan kafaraútbúnað framvegis við hendina í bílnum, svona til vonar og vara...
..

Wednesday, May 28, 2003

Er mætt í vinnu á ný...

...enda enginn hiti í mér lengur og þrátt fyrir beinverki hef ég enga afsökun til að hanga heima. En...sem betur fer er frí á morgun!! Þarf samt að mæta í vinnuna, en ætla nú að sofa aðeins lengur. Var að skipuleggja að fara í smá frí í júní, í 1/2 mánuð...hlakka ekkert smá mikið til. Vonandi fáum við skaplegt veður hjónin. Frekari frí hefur ekki verið ákveðið, hugurinn stefnir út fyrir landsteinana í ágúst, seinnipartinn, en hvort af því verður og þá hvert, það kemur í ljós. Skandinavía (Danmörk eða Svíþjóð...troðast inná vinkonur mínar þar, hehehe) eða Portúgal eru "heitir" staðir!

Komst að einu þegar ég lá heima í gærmorgun....mikið sakna ég morgunútvarpsins á Rás 2. Þetta er ekki nærri því eins áhugavert og það var. Reyndar fínt fram til hálfátta en þá verður útvarpið ógurlega boring. Ég vil hafa tónlist og viðtöl í bland. Og er ég þó fréttafíkill...en það var fátt notalegra en að vakna með þeim þarna í morgunútvarpinu, fá fréttaefni matreitt oní mig með léttu yfirbragði. Svo voru þau með svo fjandi góðan tónlistarsmekk. Æ, ég er kannski óttaleg nöldurkerling núna...best að hætta þessu. Skv. einhverri könnun í Birtu, er lífstalan mín 4...og skv. því nöldra ég of mikið....
..