Bbrrrrrr......
...það er svolítið kalt úti. Og virkilega fallegt veður. Það hríslaðist um mig sælutilfinning við að sjá blábleiku birtuna yfir fjöllunum en það er fátt fallegra að vetrarlagi en þessi birta. Og hún nýtur sín best á hálendinu, ekki síst í grennd við jöklana. Síðdegistungl yfir Hofsjökli og sól að setjast í vestri og blábleik birta allt um kring, það er sjón sem ekki gleymist svo glatt. *andvarp* Hvenær ætli ég komist á fjöll? Kannski maður setji annan fótinn inn á Kjöl á morgun, við erum nefnilega á leið í bústað í kvöld í Biskupstungum. Væri alls ekki vitlaust að viðra Snjófus aðeins ef veðrið er áfram bjart og fallegt.
Annars var ég að furða mig á fréttamati DV í fyrradag. Forsíðufréttin (og baksíðan) var undirlögð þeirri frétt að Ólafur Ragnar forseti væri orðinn afi, þ.e. ætti nú barnabarn að blóðböndum. Finnst ykkur þetta ekki bráðmerkilegt? Og verðugt forsíðuefni fréttafjölmiðils? *hóst* Ég veit það eitt að ef ég hefði verið áskrifandi að þessu blaði þá hefði ég sagt þeirri áskrift upp samstundis. Hvað eru þessir menn að hugsa? Og hvernig vissu þeir þetta? Sátu þeir um fæðingardeildina eða lét einhver (nú kemur samsæriskenningin...) í hinni nýju íslensku konungsfjölskyldu DV vita? Hmmm... Því ekki liðu margir klukkutímar frá fæðingu barnsins fram að prentun blaðsins... Ég bara spyr... Þetta er allt eitthvað svo hallærislegt að ég fer alveg í keng. *hrollur*
No comments:
Post a Comment