Núna er kominn teljari..
...mér er alveg fyrirmunað að skilja hvernig í fja.. ég gat komið honum inn. Þetta html dæmi er jafndularfullt fyrir mér og stærðfræðin forðum daga.. En einhvern veginn gengur þetta upp þótt útlit síðunnar sé ekki upp á marga fiska.
Annars er ég á leiðinni heim. Búin með verkefni dagsins...sem hefur verið að angra mig síðustu tvær vikur. Unaðslegt hljóð að heyra í prentaranum, vitandi það að maður sé finido með þetta hundleiðinlega verkefni....þar til að janúar 2004 rennur upp og ársskýrslan kallar á mig að nýju... Úff...
Heima bíður eiginmaður, kjúklingabaunasúpa a la Jamie Oliver og svo jóga. Og þýskur stíll. Nokkuð týpískt mánudagskvöld, nema að það vantar CSI á Skjá einum. Hvenær ætli þeir byrji að sýna uppáhaldsþáttinn minn á ný??? *grenj* Það er af sem áður var þegar mánudagskvöldin voru langbestu sjónvarpskvöldin. Vitiði hvað þeir eru að sýna í staðinn? "World's wildest police videos". Sem betur fer er ég áskrifandi að Stöð 2 þennan mánuðinn því þeir voru að byrja að sýna nýjan þátt, The Court. Klukkan 20:50 í kvöld. Bara fjandi góður. Dugar mér í bili þar til áskriftin rennur út og CSI byrjar vonandi aftur!
No comments:
Post a Comment