Wednesday, February 12, 2003

Það eru svo sem ekki slæmar fréttir...

...að okkar ágæta ríkisstjórn ætli að dæla fjármagni út í atvinnulífið til þess að koma boltanum til að rúlla á ný og án þess að hækka skatta. Aðalmálið er víst að minnka atvinnuleysi. Og eins og áður er fjármagnið fyrst og fremst eyrnamerkt vega- og byggingarframkvæmdum. Þá spyr ég....hvað með hinn helminginn á atvinnuleysisskrám? Þann helminginn sem ekki er með aukatólið lafandi á milli lappanna? Að hvaða leyti kemur þetta atvinnulausum konum til góða? Já, og þeim karlmönnum reyndar líka sem ekki vinna við að byggja, hanna eða smíða? Ég er ekki að segja að einhverjar konur muni ekki fá vinnu út á þetta og ég átta mig svo sem einnig á því að þegar til lengdar lætur mun þetta skila sér út í hagkerfið sem kemur öllum til góða. En hvað með núið? Af hverju falla ráðamenn alltaf í sömu gryfjuna? Af hverju var ekki fjármagni veitt til rannsóknarstarfa á sviði menntamála eða heilbrigðismála? Eða verkefni á sviði verslunar, viðskipta eða þjónustu? Starfshópa og átaksverkefni í málaflokkum sem fjalla um fjölskyldumál og heilbrigðismál? Já, eða til að veita þá þjónustu í heilbrigðiskerfinu sem er lögbundin en ekki hefur verið til fjármagn fyrir? Látið mig þekkja það.....veit ýmis dæmi því tengdu.

Allavega, ég er ekki ósátt við aðgerðirnar sem slíkar...heldur hvernig fjármagninu er varið. Af hverju er verið að mismuna starfsgreinum? Af hverju eiga bara verktakar að njóta góðs af?
Ef einhver sér meiri glóru í þessu en ég, látið mig vita....

Pústi dagsins lokið...í bili.

No comments: