Thursday, February 20, 2003

Og hitt....

...um okkur vitleysingana sem æðum á fjöll og þurfum að láta bjarga okkur. Það fýkur sjaldan eins í mig og þegar ég heyri þetta. Eins og við séum bara einhverjir heilalausir hálfvitar sem brunum yfir skafla og hæðir og hóla og jökla og sprungur..án þess að hugsa. Já, mér verður agalega misboðið. Því við höldum aldrei af stað nema að athuga veðurspá. Og þótt ekki séð spáð sól og blíðu í febrúar, þá förum við nú yfirleitt nema varað sé við stormi, enda vel útbúin og getum keyrt í blindu, myrkri og stórhríð. Eftir fyrirfram ákveðnum leiðum sem við eigum í GPS tækjunum og fartölvunum. Erum með NMT síma, VHF talstöð og sumir jafnvel með fleiri en eitt tæki af hverju. Þessar leiðir krækja fram hjá giljum, sprungum og öðrum farartálmum. Erum vel útbúin með mat, drykk og hlýjan skjólfatnað. Ef erfiðlega gengur þá tökum við á því. Silumst stundum áfram 1 km á klukkutíma ef það er þá svo gott. Ef eitthvað bilar er reynt að gera við það. Ef óhapp verður þá koma ferðafélagarnir til hjálpar. Verða jafnvel stundum fyrir tjóni sjálfir við að hjálpa. En þetta vitum við...áður en við leggjum af stað og erum undir þetta búin. En það geta orðið óhöpp. Ekkert síður en þegar maður er að keyra á Miklubrautinni eða austur í Hveragerði. Og þá reynum við fyrst að athuga hvort félagar okkar í bænum geti aðstoðað, ef ferðafélagarnir geta það ekki. Það er allt reynt áður en björgunarsveitir eru kallaðar til. Sem betur fer höfum við hjónin hingað til ekki þurft á þeim að halda (7-9-13), höfum getað bjargað okkur sjálf. Og hvað er "pointið" með þessum skrifum? Jú, ekki dæma alla ferðamenn á hálendinu vegna einhverja örfárra. Og ekki dæma alla þá sem þurfa á björgunarsveit að halda....þeir lentu ekki í ógöngum bara af því að þeir gerðu eitthvað viljandi eða höguðu sér á óábyrgan hátt! Það var nú bara þetta sem ég vildi segja. Við erum ekki öll fífl sem förum á fjöll...

No comments: