Sólarupprásin...
..var ansi falleg í morgun. Slík sjón léttir lund þegar maður er grútmyglaður á leið í vinnuna. Svo flugu gæsir yfir húsið mitt í morgun. Það er merki um betri tíð og blóm í haga....eða svona næstum því! Ég hef ekki heyrt í þeim síðan í haust. En það er hægt að stilla klukkuna sína eftir þeim...alltaf á sama tíma fljúga þær kvakandi yfir húsið. Við erum greinilega í beinni leið frá þeirra næturstað að Bessastaðatúninu. Svo voru svanirnir á tjörninni í morgungöngu. Venjulega liggur leiðin þeirra frá tjörninni að húsi einu í grennd þar sem sett er æti út handa þeim. En núna var sá yngsti, sem er greinilega ekki farinn að heiman, komin langleiðina að gatnamótunum. Kannski verið að fylgjast með morgunumferðinni....já eða haldið að hann væri hundur og elt nágrannann sem var úti að labba með voffa...
..
No comments:
Post a Comment