Ég samdi langan pistil í huganum...
...í gær um ferð mína í Hagkaup í Smáralindinni. Man svo í dag fæst af því sem ég var að pirra mig yfir. En...látum á það reyna hvort það rifjast upp fyrir mér. Fór þangað frekar föl og illa útlítandi til að versla í matinn, enda ein heima og gat ekki sent neinn annan. Ég bara vonaði að ég rækist á engan sem þekkti mig, enda vill maður ekki hitta neinn þegar maður er veikur og slappur, með bauga og syndandi augu. En....allavega...þá var ég ógurlega lengi að versla því ég bara fann ekki neitt af því sem mig vantaði. Þvældist þarna um gangana, fram og aftur, leitandi að hinu og þessu, þó aðallega sítrónusafa. Af hverju eru ekki samræmdar reglur á milli búða hvar þessi fja... sítrónusafi er geymdur? Sums staðar er hann á grænmetistorgum en annars staðar hjá svona ýmis konar kryddlögum og sósum og enn annars staðar, m.a. í Hagkaup í Smáralind, var hann lengst inni í horni hjá ávaxtasöfunum. Auðvitað. Að ég skyldi ekki fatta það fyrr. Lá í augum uppi þegar ég loks fann þetta eftir langa leit. En þetta fór rosalega í taugarnar á mér. Enda fer það alltaf í taugarnar á mér þegar ég þarf að versla annars staðar í matinn en í Fjarðarkaupum. Maður er svo vanafastur. Er stundum frekar eins og níræð kona í svona málum.
..
No comments:
Post a Comment