Monday, August 11, 2003

Ég sat alveg límd við skjáinn í gær...

...enda síðasti þátturinn um Forsyte fjölskylduna á RÚV. Hef fylgst spennt með eftir bestu getu þrátt fyrir fjallaferðir og tjaldútilegur. Og nú er þetta búið. Reyndar eiga svona fínir þættir ekkert erindi í imbann á sumrin, þeir eiga að stytta manni stundir á dimmum vetrarkvöldum. En hvað um það, þessir þættir voru nokkuð góðir. Fínir leikarar, ekki síst Damian Lewis, sem lék hann Soames Forsyte. Sá brosti loksins á ný í lok þáttarins í gær eftir að hafa verið heltekinn af kvalafullri ást til hennar Irene alla þættina. Mikil dramatík. Það sem pirraði mig þó hvað mest var þessi leikkona sem lék Irene. Konu sem allir karlmenn áttu að heillast af vegna fegurðar hennar. Þessi kona sem lék hana var gjörsamlega frosin. Var þó hin indælasta í kvikmyndinni "Notting Hill", lék þar lamaða konu og gerði það vel. En sem Irene Forsyte var hún alltof stíf. Skiptir samt engu, þættirnir voru samt góðir. Og það er von á meiru...sagan er ekki búin!
Meira af breskum gæðaþáttum, takk!

Talandi um sjónvarp þá bíð ég spennt eftir því að sjá hvernig í ósköpunum Skjár einn ætlar að hafa nægt efni til að sýna á nýju stöðinni. Þeir hafa varla efni af viti til að sýna á þeirri fyrri. Ég bíð með óþreyju eftir CSI (ekki CSI Miami, þeim óskapnaði). RÚV hefur alveg bjargað geðheilsu minni í sumar með The West Wing , Ed og The Gilmore Girls að ógleymdri Forsyte ættinni. Í fyrsta sinn í mörg, mörg ár sem ég hef ekki séð eftir nauðungaráskriftinni í hítina í Efstaleitinu...
..

No comments: