Helgin...
..var alveg brill. Byrjaði vel og endaði vel og allt inn á milli var bara alveg frábært. Ég hóf leikinn í hádeginu á föstudag þegar ég heimsótti vinkonu mína og lenti í amerískum "brönsj". Slurp - smjatt. Heilsaði upp á kisurnar hennar, Kitchen og Closet, en þær eru allar þrjár nýlega fluttar heim frá Ameríku eftir dvöl þar í um áratug. Og þær voru allar yndislegar heim að sækja, ekki síst matmóðirin. Takk aftur kærlega fyrir mig!!
Um kvöldið bauð Beggi mér á villibráðarhlaðborð í Perlunni og það var líka æði. Mér varð reyndar hálfillt af átinu, en það var allt í lagi. Ég held að það sé varlega til orða tekið að segja að við rúlluðum heim af ofáti. Úff. Hreindúracarpaccio-ið er snilld og villibráðarsúpan einnig. Engin rjúpusúpa þetta árið en samt góð súpa. Þeir kunna að bjarga sér þarna í Perlunni. Ég reyndar sakna eins sem þeir mættu alveg bjóða uppá, þ.e. dádýrakjöts. Smakkaði það í Stokkhólmi í vor og það er algjört lostæti. Sá að það er verið að selja það hér (Í Nóatúni).
Laugardagurinn hófst á vinnu. Mætti á gamla vinnustaðinn og kláraði verkefnið sem mér var falið og þarf því ekki að koma aftur að vinna þar. Á sama tíma voru fyrrum starfsmennirnir mínir í deildinni minni í sinni árlegu hausttiltekt. Og því var kaffi og meðlæti þar í hádeginu. Gott að sjá að fólkið mitt heldur uppi hefðum sem ég kom á... :o) Fékk sem sagt brauð, síld og kökur og fleira gúmmelaði. Svo þegar heim var komið byrjaði tiltekt þar ásamt því að taka á móti nýju húsgögnunum!! Veii! þau eru komin! Svo fékk ég lítinn fimm ára gullmola í heimsókn yfiir nótt þannig að kvöldinu eyddi ég í lestur barnabóka og umræðum um Línu Langsokk og Birgittu Haukdal. Fór svo og tók til í föndurherberginu og var svo bara sofnuð snemma. Eins gott því ég var vakin rúmlega átta morguninn eftir. Eg tók áfram til í föndurherberginu/bókaherberginu mínu og leyfði litlu frænku að mála. Þegar móðir hennar hafði sótt hana og við hjónin stússast í fleiri tilfæringum í stofunni skelltum við okkur í Byko, Húsgagnahöllina og Kringluna. Um kvöldið fór ég svo til hálfnöfnu minnar og föndraði eitt stykki jólasvein sem segir manni hvað margir dagar eru til jóla. Þegar ég kom heim upp úr miðnætti í gærkveldi hálfbrá mér, ég þekkti ekki stofuna mína aftur í rökkrinu.......
..
No comments:
Post a Comment