Sunday, November 23, 2003

Kisur, föndur og sunnudagsleti...

Það er nýr heimilisgestur byrjaður að mæta í morgunkaffi hérna. Veit ekki hvað hann heitir, en er ósköp ljúfur og angar eins og rósablöð. Þetta er ekki Gormur Grámann, bestir vinur Nebba, úr húsinu á móti, sem þykist eiga heima hérna, heldur einhver nýr kettlingur. Kom hérna inn í fyrrakvöld, malaði eins og díeselvél. Var vísað pent á dyr út í kuldann en var mættur hérna í morgunkaffi í gærmorgun, ferskur og glaður. Sá til hans aftur í morgun en var nógu fljót að loka glugganum. Ég er hætt að skilja þetta. Stendur á skilti hér fyrir utan á kattamáli að hér búi voða góð kona sem líkar vel við ketti og kann að klóra þeim á bakvið eyrun? Og eigi harðfisk uppi í skáp? Ég fer að halda það eða að Nebbi Nautnaseggur er svona gestrisinn og býður oft heim kunningjum sem hann hittir á förnum vegi..... Og þetta eru ekkert einhverjir úfnir skítugir fressarar? Neinei, allir voða ljúfir, góðir og hreinlegir heimiliskettir sem greinilega lúra innan um ilmandi þvott á sínu heimili. Eru bara að droppa inn í smá klór og klapp. Gamla geitin, sem notabene átti 10 ára afmæli í gær, og Sunna stresspersi eru alveg að fara á límingunum yfir þessum tíðu heimsóknum...

Annars er ég alveg hryllilega löt núna. Kannski skiljanlegt þegar maður situr að sumbli fram eftir nóttu. Það var alveg virkilega gaman í gærkvöldi. Flugsveitin hittist í gær hérna í sveitinni, hinn mánaðarlegi matarklúbbur ekta jeppasjúklinga. Eins og gefur að skilja var mikið rætt um þennan vetur og því spáð að hann verði ofboðslega snjóþungur...vonandi. Svo var aðeins minnst á 44" dekk og milligíra og jeppategundir og ég er ekki frá því að það hafi gripið um sig smá fjallafiðringur. En svo í morgun var bara rigning og slagviðri. Oj bara. En kannski snjóaði í fjöllin á meðan það rigndi hér?

Ég þarf að fara að klára þetta jólakortaföndur. Ekki nema ég geri eins og í fyrra, öööörfáir útvaldir fá heimagerð jólakort...... :o) Spurningin er...hvort á ég að vinna eða föndra..hmmm...erfitt val. Eða þannig. Svo get ég náttúrulega líka bara lagst aftur í bólið og lesið bókina hans Michael Crichton, "Prey". Orðin alveg allsvakalega spennandi sú bók. Ég held ég eigi meira að segja slatta af súkkulaði til að maula með bókinni. Og kaldan reyktan hátíðarkjúkling. Og nýja jólamaltogappelsínið frá Egils. Hmm...mér sýnist orð dagsins vera: leti. :o)

Og í kvöld erum við að fara á tónleika með Páli Óskari, Diddú og Móniku. Ég hlakka mikið til. Sá þau hjá Gísla Marteini um daginn og þetta lofar góðu. Svo eru tónleikarnir í Háteigskirkju. Ekki leiðinlegt að fara þangað á tónleika, hún er svo falleg.

Sko, búin að blogga helling. Segiði svo að ég sé löt í dag! hah!
..


No comments: