Monday, November 24, 2003

Það snjóar!!!!

Það var komin hríð þegar ég var á leiðinni úr þýsku og aftur í vinnuna. Ég keyrði því alsæl og óskaði þess heitt að þetta héldi svona áfram. Helst í nokkra daga, jafnvel vikur. Snjófus bíður spenntur inni í bílskúr, búinn að vera í smá "snyrtingu" og dekri í nokkra daga. Og verður eitthvað áfram fram að komandi helgi. Þá á að reka trýnið út fyrir borgina og inn á hálendið. Það skal tekið fram að ekki verður farið eftir veðurspám á mbl.is. Ég hef komist að því að það er ekkert að marka þau veðurkort sem þar birtast. Það er jafnvel ekki hægt að treysta því að veðurspáin á laugardagsmorgni sé rétt fyrir þann dag. Hvorki á sumrin né á veturna. Svo er verið að fussa yfir því þegar fólk lendir í villum og vandræðum til fjalla. "þessi hefði nú átt að fylgjast með veðurspám og haldið sig betur heima". Já, já, einmitt það. Eftir að Halo hvarf þá hefur ekki verið hægt að átta sig á veðráttunni næstu daga nema etv. að vera haldinn skyggnigáfu. Ég hef lent í því að halda til fjalla af því að veðurspáin er alveg þokkalega góð, enginn stormur eða hríð í kortunum, bara svona aðgerðarlítið veður og endað í þvílíkum hremmingum að ferðalagið varð meira og minna að "stikuferð" (rýna út um bílgluggann að leita að næstu stiku). Hef síðan þá alltaf haft með mér nóg af lestrarefni og nesti sem ekki þarf að hita eða matreiða. Að ógleymdri "freschettunni" minni. Svo ég geti pissað standandi eins og strákarnir. Það er nefnilega vont og kalt að bera bossann í skafrenningi..... En allavega, þá lýsi ég frati á mbl.is veðurspána. Siggi stormur er þó skárri þótt hans vegna hafi ég rokið í Húsafell í sumar og endað í útilegu eina mestu rigningarhelgi fyrr og síðar. Hann hefur líka vandað sig eftir þann skandal.
En varðandi komandi helgi, þá byrja ég fyrst að kíkja fyrir alvöru á spárnar á fimmtudagskvöldið. Og vonandi sést bara snjór eða frost í kortunum...allavega svona fram í apríl? Er það ekki bara ásættanlegt? :o)
..

No comments: