Jæjajá....
...það eru bara órólegheit í fólki? Ástæðan fyrir bloggleysi er fyrst og fremst tímaskortur ásamt hreinni leti. Þegar ég hef tekið smá pásu yfir daginn sl. 2 vikur hef ég verið að skoða heimasíður ferðaskrifstofanna og ekki nennt að skrifa neinum tölvupóst. Nema einn örstuttan til litlu systur í Flórída. Tek hana fram yfir alla sem ég þarf að skrifa póst. Sorrí, en það er bara staðreynd. Svo nenni ég ekki að kveikja á tölvunni heima nema í ítrustu neyð. Þessar fáu mínútur sem ég hef eytt heima undanfarna daga í annað en að sofa og borða hafa farið í sjónvarpsgláp og umönnun Sunnu kisu. Sjónvarpsglápið er Kiefer Sutherland að kenna og Sunna var í aðgerð síðasta fimmtudag og hefur ekki sleppt af mér loppunni síðan.
Eins og sjá má þá hélt Katla sig á mottunni og lét okkur í friði, ekki síst vegna þess að við komumst ekkert mjög nálægt henni, þ.e. ég sá enga almennilega sigkatla eða neitt annað spennandi. Urðum að fara Fljótshlíðina upp í Hvanngil, bæði vegna ófærðar og veðurhams. Það var allt í lagi, fengum hið besta veður og frábært útsýni og tuttuguogfimmstiga frost. Það var soldið kalt í skálanum en manni hlýnaði fljótt, allavega að innan, þökk sé ýmsum góðum fjallaráðum en það albesta er auðvitað að fara á smá “drekk” eins og nornirnar frábæru kalla það. Ég ætlaði reyndar að vera svolítil fjalladís og ganga þarna aðeins upp á smátind þarna í Hvanngilinu en komst ekki langt. Óð púðursnjó upp í klof og snéri því við og dáðist að útsýninu bara frá veröndinni. Dugði alveg að þessu sinni. Fengum líka fínt veður á heimleiðinni, ég tók fullt af myndum í þessari ferð. Það er nú alveg ferlega fyndið hvað Einhyrningur er eins og tippi í laginu. Ég tók nokkrar myndir og það liggur við að maður þurfi að ritskoða þær áður en ég sendi þær eitthvað. Ég sé barasta varla nokkuð annað en veglegt kynfæri karlmanns. Kannski er það bara ég, næ ekki hugsunarhættinum uppúr ræsinu...
Og síðan hef ég bara verið að vinna. Fyrir utan eitt alveg frábært fertugsafmæli sl. laugardag. Skemmti mér konunglega. Það er miklu meira fjör í fertugsafmælum en þrítugsafmælum. Og svo vígðum við milliloftið sl. sunnudag. Horfðum á sjónvarpið uppi og fengum okkur kaffi og horfðum á útsýnið. Ekki lítið gaman. Og síðan þá hefur semsagt hver laus mínúta farið í að deyfa fíkn. Við gjörsamlega týndum okkur í annarri þáttaröðinni af 24. Þetta eru ekkert smá ávanabindandi þættir. Við urðum alveg að hemja okkur og skammta okkur áhorf. “Ekki fleiri en 2 þætti í einu! Svo horfðum við á fjóra. Alveg óð. Hlakka til þegar númer þrjú kemur út á dvd. Kannski ágætt að við erum búin með alla tuttuguogfjóra þættina. Þá getum við farið að gera eitthvað annað!
..
No comments:
Post a Comment