Sunday, March 07, 2004

Sunnudagsblogg

Það var nú ekki ætlun mín að láta heila viku líða á milli bloggfærslna. Reyndar hafði ég ekki frá neinu merkilegu að segja, nema að mér fannst siðasti þáttur með hommunum á Skjá einum algjör snilld og að ég fór í Smáralindina og spreðaði í föt. Í sjálfu sér alls ekki merkilegt! Svo hef ég átt ágætis sósíallíf síðustu daga. Hitt vinkonur og saumaklúbba, á meira að segja eftir að fara í einn í kvöld, fundað með jeppakörlum og konum í 4x4 klúbbnum, m.a. að undirbúa kvennaferðina núna í mars. Minn maður hefði alveg verið til í að fara á fjöll þessa helgi en þar sem ég hef þurft að vinna, bæði í gær og í dag, og mæta í saumaklúbba þá varð hann að upplifa fjallamennskuna í gegnum vini sína, þ.e. í gegnum síma. Hann vill helst hafa mig með, ég er svo góður kóari... :o) Núna er hann reyndar alveg að drepast úr eirðarleysi, við fréttum í gærkvöldi að einn félagi okkar hafi lent í því að fljúga fram af hengju á jeppanum og allt í döðlum að framan og hann vildi helst fara í björgunarleiðangur, finnst hann þurfa að gera eitthvað. Við höfum nefnilega ágætan skilning á jeppaveseni á fjöllum eftir síðasta ár. Í þessum skrifuðu orðum eru sem sagt félagarnir að reyna að koma bílnum úr Laugafelli niður Sprengisandinn heim. Úff. En svo ég tali áfram um jeppamennsku þá er heilmargt framundan í því. Næstu helgi fara hópar á vegum klúbbsins í allar áttir í jeppaferðir, m.a. á Vatnajökul, í Setrið og í Laugafell. Hálfum mánuði seinna er svo kvennaferðin. Það er sem sagt nóg um að vera í fjallajeppadellunni. Bara vonandi að frost haldist á hálendinu ásamt snjó. Leiðinlegra að fara í krapaferð og eyða helginni í vöðlum.
Í dag ætla ég að vinna, fara svo til mömmu og pabba og enda daginn í saumaklúbbi og dást að litlum sætum krúttum.
..

No comments: