Saturday, April 03, 2004

Grasekkja

Ég er karllaus um helgina, sendi manninn í karlaferð á Vatnajökul. Tja, eiginlega var mér bara ekkert boðið með. Ég er svo sem þokkalega sátt, enda skemmti ég mér á fjöllum um síðustu helgi með rúmlega 60 öðrum konum í frábærri kvennaferð Ferðaklúbbsins 4x4. Og ég þarf að sinna skattframtalagerð um helgina hvort eð er. Ætla að kíkja í búðir mér til skemmtunar og fara í bíó með vinkonu minni. Svo að ég er ágætlega sátt. Samt ekki alveg. Hefði alveg verið til í að fara í gufu á Grímsfjalli um helgina. Alltaf gaman að fara á aðalskaflinn á landinu. En ég fæ kannski tækifæri til þess um páskana, en þá förum við Flugsveitin ásamt Rottugenginu (þetta er nú meira ónefnið á þessum félögum mínum sem er hið besta fólk en datt greinilega á hausinn þegar þau ákváðu nafnið) norður í Aðaldalinn og ætlum að kanna hálendið þar í kring. Vonandi rúntum við svo Kverkfjöll-Grímsfjall heim. Vona bara að Snjófus hafi það af að fara aftur á þessar slóðir, endaði nú ekki vel sl. sumar. Og ég er enn að borga það! Verð alveg mökkfúl af því einu að hugsa um þetta bévítans umboð. En segi nú bara ekki meir. Komnir nýir eigendur, vonandi skánar bara þjónustan og viðmótið.
Það er nokkuð margt sem ég ætlaði að röfla yfir, en fyrst ég gerði það ekki strax þá er ég búin að gleyma því. Minnið mitt er eins gloppótt og hinn ágætasti svissneski geitaostur. Liggur víst í ættinni. Ég hef líka áhyggjur af því að ég skuli verða svona hundfúl yfir mörgu. Ég hlýt að vera hin versta nöldurkerling. En mér er svo sem sama. Það sem t.d. pirrar mig ósegjanlega þessa dagana er að blaðburðarþrælarnir ýta ekki blöðunum alveg inn um lúguna. Þannig að blöðin eru alltaf blaut eða rifna þegar ég er að reyna að ná þeim alveg inn. En ég segi ekki orð því þetta eru illa launaðir þærlar sem eru hetjur að vakna svona snemma svo ég fái blöðin með morgunkaffinu. Segi því ekki orð, set Moggann og Fréttablaðið á ofninn svo þetta þorni nú aðeins. Annars hef ég nú fengið DV í tæpar 2 vikur. Skildi ekki af hverju því ekki fékk ég nein sölusímtöl í kjölfarið. Hef því fylgst með mannorðsmorðunum undanfarnar vikur alveg ókeypis og án þess að ég hafi nokkurn áhuga á því. En svo hringdi síminn í fyrradag og var spurt um eiginmanninn. Hann andvarpaði bara í símann: "þetta er í fjórða skiptið sem þið hringið, svarið er nei og aftur nei!". Kannski hættir blaðið að fara að koma núna. Ég hef ekki orðið undan að fara í endurvinnslugáminn hérna á Álftanesinu til að tæma blaðakassann! Þvílík sóun á pappír.
Annars er lítið að frétta annað en það að laukarnir í garðinum eru að gægjast upp hver af öðrum, ég á afmæli eftir nokkra daga og ég staðfesti ferð til Spánar í gærmorgun. Einnig hef ég í hyggju að fara í ferð með Íslenskum fjallaleiðsögumönnum í sumar ef ég finn dagsetningu sem passar. Hef heyrt að ferðirnar með þeim séu alveg frábærar og bæklingurinn sem fylgdi Mogganum í morgun gerði mig einbeittari í þeirri ákvörðum að fara með þeim inn á hálendið suðvestan við Vatnajökul. og fara á námskeið hjá þeim í ísklifri! Hljómar alveg ótrúlega spennandi!
..

No comments: