Monday, April 19, 2004

Kuldaboli

Voðalegur kuldi er úti, það voru ekki nema 3 gráður á mælinum heima í morgun. Brrr.... Það var samt fallegt veður og ósköp ljúft að sitja við eldhúsborðið í sólinni og lesa Moggann og ímynda sér að það væri komið sumar. Við vöknuðum frekar snemma, enda vorum við bæði sofnuð fyrir klukkan tíu í gærkveldi! Samt sofnaði ég síðdegis eftir að vinkonur mínar voru farnar, ætlaði að lesa smávegis en datt alveg útaf í klukkutíma. Það er annað hvort í ökkla eða eyra með þennan svefn minn...
Kjúklingurinn í græna karríinu og franska súkkulaðikakan mæltist ágætlega fyrir í gær og fær Hulda systir þakkir fyrir. Ég var bara að herma eftir henni. Ferskt kóríander og basilika passar bara nokkuð vel saman.

Framundan er annasöm vika í vinnu og félagslífi en ég er að hugsa um að hafa samt smákaffi á sumardaginn fyrsta fyrir nánustu familíuna. Um að gera að halda áfram að bjóða fólki heim, þá kannski helst þokkalega hreint hjá mér.

Ég er alveg ógurlega andlaus, skil ekkert af hverju ég er að bulla þetta hérna núna...nema kannski að ég var að atast í systrum mínum fyrir að láta ekkert í sér heyra neins staðar og get þá ekki verið þekkt fyrir að skrifa ekkert sjálf. En það er spurning samt sem áður hvort ég þurfi ekki að hafa eitthvað af viti til að tala um. En ég nenni bara ekki að röfla um jákvætt misrétti og stríðsrekstur í Írak....
..

No comments: