Thursday, April 15, 2004

Páskarnir og afmælið

Páskafríið leið hratt og örugglega, enda alltaf svoleiðis þegar maður er í fríi! Við fórum norður á fimmtudagskvöldið, eftir gúrmei-mat hjá mömmu og pabba og hittum fyrir ferðafélagana okkar í sumarbúðum þjóðkirkjunnar við Vestmannsvatn í Aðaldal. Þaðan fórum við í dagsferðir næstu daga inn á hálendið í kring, skoðuðum Dettifoss og Þeystareykjasvæðið og skoðuðum m.a. alveg frábært fjós þarna í Aðaldalnum þar sem allt er sjálfvirkt, þ.e. svona róbot sér um allt og beljunum leið greinilega vel. Ég var alveg heilluð! Sá eins og skot að ég gæti alveg hugsað mér að verða bóndi þegar ég yrði stór. Og þá einmitt svona kúabóndi með róbot þannig að maður væri ekki eins bundinn. Svo var fjósakisan þarna mjög falleg, mjúk, kelin og hrein. Nýbornir kálfarnir voru ógurlega fallegir, litirnir í bústofninum þarna voru alveg ótrúlega skemmtilegir. Ég hló nú samt að sjálfri mér fyrir að verða svona heltekin af sveitarómantíkinni enda örugglega einfalda borgarbarnið í mér sem ekkert veit í sinn haus sem þarna réð ferðinni. En ég hef alltaf verið heillaðri af sveit fremur en borg, dýrum fremur en fólki og draumurinn er að búa einhvers staðar þar sem hægt er að vera með hesta og hunda og kisur og ..og..og... :o) Sem sagt, hápunktur ferðarinnar hjá mér var heimsóknin í fjósið í Grímshúsum í Aðaldal þrátt fyrir að margt annað skemmtilegt hafi komið uppá þessa daga fyrir norðan. Síðan hélt ég upp á afmælið mitt með því að gefa ferðafélögunum 35 gúmmelaðibombu og þeir sungu fyrir mig afmælissönginn. Frekar gaman því margir þeirra eru mikið söngfólk og því hljómaði söngurinn mjög vel! Líka greinilega góður hljómur þarna í samkomusalnum Við sungum líka nokkur sem erum öll saman í kór og þar sem ég, altinn, mundi ekki röddunina í vísu Vatnsenda-Rósu þá söng ég bara sópran. Og gat það bara alveg án nokkurra vandkvæða. Ég held að þetta hafi alveg gert sig hjá okkur. Vona það allavega!
Við heimkomuna á sunnudagskvöldið var minn maður orðinn frekar slappur og daginn eftir kom í ljós að hann var með háan hita og hefur hann því vermt bælið alla vikuna, alveg búinn. 39 stiga hiti fer heldur ekki vel í fólk almennt! Það var fyrst í morgun sem honum leið vel. Ég aftur á móti hef verið “á leiðinni” að verða slöpp frá því í gær en ekki svo að ég sé heima. Vonum bara að það verði ekkert meir úr því, ég hef engan tíma til að verða veik núna!
..

No comments: