Janúar brátt á enda...
..og þessi mánuður hefur einhvern veginn flogið fram hjá mér. Þegar maður er á haus á öllum vígstöðvum þá er eiginlega ekki við öðru að búast! Janúar hefur verið undirlagður þrem "verkefnum". Fyrst auðvitað vinnan, og mikið að gera - jafnvel meira en oft áður og er þá mikið sagt, síðan er það hin vinnan - stofnun fyrirtækisins, skjalavinnsla, fjármála og bankastúss, starfsmannahald og auðvitað almennar og sífelldar áhyggjur yfir því að þetta gangi nú. Og svo að lokum náði félagsstarfið í F4x4 ákveðnum hápunkti þessar síðustu vikur með tilheyrandi auglýsingaöflun, prófarkalestri og ritsmíðum, forvinnu, hönnun og fundum. En það afkvæmi rataði í prentsmiðju sl. föstudag og nú get ég ekkert gert annað en að bíða þess dags þegar Fréttablaðið pompar inn um lúguna með blaðið vonandi innanklæða. Úff... En þá þarf ég reyndar að koma því í dreifingu í dreifbýlinu. Jeppafólk í afkimum landsins á auðvitað rétt á að frá sitt mánaðarlega fréttabréf þótt febrúarútgáfan verði með öðrum hætti en venjulega. En hér sit ég á sunnudagsmorgni með listann af verkefnum til þess að klára en finnst það bara vera pís of keik því nú á ég bara eftir þessi tvö fyrstnefndu verkefni eftir, sem munu fylgja mér liklega næstu ár. Þá er bara eins gott að venjast því og skipuleggja sig bara betur! En hvort ég taki að mér svona félagsstörf aftur verður að koma í ljós. Svonalagað tekur nefnilega tíma frá fjölskyldu og vinum og það er alveg kominn tími á heimsóknir og smábarnaknús!
...
No comments:
Post a Comment