Thursday, March 24, 2005

"Léttar konur"

Það er til ákveðin tegund kvenna að mati eins pistlahöfundar í Fréttablaðinu í gær. Þar verður blaðamanninum tíðrætt um þessar Létt 96,7 konur og bíómyndir fyrir konur. Ég er degi á eftir í blaðalestri og sá þetta ekki fyrr en áðan. Það er nefnilega alveg heilög stund að sitja með kaffibollann og blöðin á frídegi! En ég fór aðeins að hugsa eftir að hafa lesið pistilinn og áttaði mig á því að ég er alveg greinilega ekki ein af þessum "léttu" konum. Í fyrsta lagi hlusta ég aldrei á Létt 96,7. Tónlistin þar er einum of væmin, allavega þegar ég fletti framhjá stöðinni í bílnum af og til. Ég dytti frekar dauð niður en að taka þátt í einhverjum rómantískum leik í útvarpi og vinna rómantíska ferð til Karabíska hafsins eða whatever. En ég hins vegar fíla vel stelpumyndir eða Chick flicks og bókmenntir tengdar þeim sbr. Bridget Jones og höfundinn Marian Keyes. Stelputónlist svokölluð er þó ekki mjög vinsæl hjámér, ég er allavega meiri rokkari í mér en það. Datt meðal annars niður á frábæran disk um daginn og er sá óspart spilaður á leiðínni í vinnuna á morgnana. Þá glymur bara Milk & alcohol og Ziggy Stardust og ég fæ svona nostalgíukast og rifja upp árin á Gauknum þegar cover-böndin tóku þessi lög af einskærri snilld. En það er eiginlega annað sem fer miklu miklu meira í taugarnar á mér. Ég þoli t.d. ekki Innlit - útlit og allan hamaganginn í kringum það. Og ég þoli ekki fólk (konur) þar sem eina lífsfyllingin virðist vera að eiga nýjasta stólinn frá Philip Stark eða nýjasta dressið úr GK. Reyndar grunar mig að þær sem eru í svona dútleríi hlusti ekki á Létt 96,7... Og svo finna þær upp á alls konar útfærslum og tilfærslum og lausnum og uppfinningum í tengslum við gardínur og púða og stell og ég veit ekki hvað og hvað. Hvernig í fjandanum er hægt að hafa tíma í svoleiðis? Það eru allar búðir lokaðar þegar ég er búin að vinna. Ég rétt meika það að fara í Ikea af og til um helgar og finnst nóg um. Ég einhvern vegin er að spá i allt aðra hluti. Sem betur fer umgengst ég ekki mikið af svona konum. Mínar vinkonur hafa ólíkt skemmtilegri áhugamál og þótt við leiðumst stundum út í húsbúnaðarumræður þá er það bara í hollum mæli.
Og niðurstaðan í þessu bloggi? Ég veit það eiginlega ekki. Það virðist sem Létt 96,7 konur fari miklu betur í mig en Innlit-útlit konur. Svo eru til alls konar konur. Skjár-einn-konur. Útivistarkonur. Líkamsræktarkonur. Pólitískar konur. Mannréttindakonur. Bókmenntakonur. Kaffihúsakonur. Bíladellukonur. Íþróttakonur. Matreiðslubókakonur.
...til hvers er verið að flokka þetta? Ég held t.d. að ef ég renni yfir þessa flokka þá eigi ég heima pínulítið í þeim, kannski meira í sumum en öðrum. Æ, svona flokkun er asnaleg. Best að hætta þessu og fara að endurskipuleggja tölvuherbergið.
...
p.s. þeir sem héldu að þetta yrði kaloríublogg, réttið upp hönd!

No comments: