Monday, April 18, 2005

Kaffiblogg

Við hjónin fjárfestum í lítilli expressovél í gær sem við sáum á tilboði í Elko. Það hefur verið rjúkandi gangur á kaffihúsinu í sveitinni síðan. Verst hvað fylgir hverri lögun mikið moj, slá úr sigtinu og þrífa og tæma bakkann og svo frv.
En mikið helv... er kaffi gott úr svona vélum. Ég hef nú aðeins slegið af kaffidrykkjunni undanfarið ár, en finnst sopinn ennþá ansi góður. Og svo er þetta alveg heilög stund...ég...blaðið og kaffibollinn í eldhúsinu. Verst hvað maður á svoleiðis stundir bara alltof sjaldan. Þetta er eins og með dekurbaðið og síðdegislúrinn í sófanum. Ég náði samt öllu þessu núna um nýliðna helgi. Það var því á skjön við allt að vakna með hnút í maganum í morgun. Það kom á daginn að þetta var einhver magapína að hrjá mig. Ætli það sé út af kaffinu?
..

No comments: