Friday, April 08, 2005

Þurrkatíð

Eftir 14 ára heimilishald og búskap þá fékk ég loksins þurrkara í fyrradag. Síðan þá hef ég svifið um þvottahúsið með sælusvip og þvegið nokkrar vélar og þurrkað. Og þvílíkur munur að brjóta saman þvottinn! Já, svona gerist þegar maður er að verða hálfsjötugur. Þá gleðst maður innilega yfir hlutum eins og nýjum þurrkara.... En ég tek það fram að bóndinn fékk fast olnbogaskot þegar hann fór að ýja að því að þetta væri afmælisgjöfin frá honum!!

Annars erum ég og afmælissystir mín að byrja okkar 6. viku í einkaþjálfaraaðhaldi. Þetta er alveg svakalega gaman. Ekki síst þegar maður hætti að skríða út úr Baðhúsinu eftir hvern tíma heldur fór að geta haldið höfði. Ég finn þvílíkan mun á mér á svo margan hátt. Sef t.d. miklu betur, hef lést aðeins en þó fyrst og fremst eru öll föt orðin rúm á mig. Og ég er bara komin með vöðva! Og ég vona að ég nái að halda svona áfram, því þá get ég borðað súkkulaði á laugardögum með góðri samvisku!!
..

No comments: